Dagur - 19.12.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 19. desember 1990
tónlist
Lúsíuhátíð
Þaö hafa gerst miklir atburðir í
málefnum karlakóranna á Akur-
eyri síðastliðin fáein ár. Karlakór
Akureyrar og Karlakórinn Geys-
ir voru komnir í talsverðan vanda
sakir þess, hve illa gekk að
manna kórana söngmönnum.
Svo var komið, að kórarnir höfðu
ekki meira en svo liðsafla til
starfa og starfsemi þeirra lá niðri
að hluta til eða að fullu nokkur
tímabil.
Fyrir nokkrum árum var fariö
að ræða, hvort ekki væri ráð að
sameina kórana í einn öflugan
kór. Eins og vænta mátti var
þetta ekki auðveld ákvörðun
ýmsum þeim, sem í kórunum
störfuðu. Hefðir og liðin starf-
semi stóðu fyrir brjósti ýmissa.
í vetur leið æfðu kórarnir sam-
an og unnið var að samræmingu
laga og annarra atriða. Þessu
starfi lauk með því, að stofnaöur
var einn kór undir nafninu Karla-
kór Akureyrar - Geysir. Söng-
stjóri var ráðinn Roar Kvam og
undirleikari Guðrún A. Kristins-
dóttir.
Framan af yfirstandandi starfs-
ári hefur kórinn æft af kappi fyrir
fyrsta verkefni sitt. Það var hin
hefðbundna Lúsíuhátíð, sem hef-
ur verið fastur liður í tónlistarlífi
Akureyringa í mörg ár.
Lúsíuhátfðin var frumflutt I3.
desentber og endurtekin 15. des-
ember. Auk karlakórsins komu
fram Óskar Pétursson, tenór.
Sigríður Helga Ágústsdóttir.
sópran, sem var í hlutverki
Lúsíu, og barnakór Lundarskóla
undir stjórn Elínborgar Lofts-
dóttur. Hljóðfæralcikarar voru
Guðrún A. Kristinsdóttir,
píanófeikari, Helga Kvam, sem
lék á hljómborð, og Jóhann
Baldvinsson, sem lék á orgel.
Það er ánægjulegt, að geta sagt
með fullum sanni, að Lúsíutón-
leikarnir gengu talsvert vel.
Karlakórinn söng á margan hátt
ágætlega. Þróttur hans var góöur.
hljómar almesnnt hreinir og radd-
irnar yfirleitt ákveðnar og fullar.
Vald kórsins á styrkbreytingum
var eftirtektarvert. Þessi atriði
skiluðu sér vcl í ýmsum þeirra
laga, sem kórinn flutti, svo sem í
„Pílagrímakórnum" eftir R.
Wagner, hollenska þjóðlaginu
„Þakkargjörö", í „Ö, heilög
nótt" eftir A. Adam og víðar.
Nokkrir gallar voru á flutningi
kórsins. Nefna má. að fyrir brá
óstyrk og óákveðni. Þetta henti
til dæmis í lagi Björgvins Guð-
mundssonar, „Þey. þey og ró,
ró". Þá var flutningur kórsins
stundum ekki nógu þýður og
samfelldur. svo sem f naptMfska
laginu „Santa Lucia". í laginu
„Týndur hljómur" var undirleik-
ur og kór ósamtaka einkum i
byrjun. Fleira rnætti til tína. þótt
ekki verði gert hér. Eftir stendur
þó, aö hér var f heildina vel að
verki staðið.
Óskar Pétursson söng einsöng
með karlakórnúm í nokkrum
lögum. Ekki er ástæða til að
tíunda einstök atriði varðandi
frammistöðu Óskars. Það nægir
að taka það fram, að hann stóö
sig með prýöi. Rödd hans var
þjál og virtist aldrei skorta þrótt
eða öryggi.
Barnakór Lundarskóla setti
Ijúfan svip á Lúsíuhátíðina. Kór-
inn söng þýtt og fallega. Tónninn
var yfirleitt öruggur, en ekki
hefði sakað. að nokkuð meiri
þróttur hefði verið í söngnum.
Undirleikur var yfirleitt við
hæfi. Guðrún A. Kristinsdóttir
fylgdi kórnum og studdi hann af
kunnáttu og smekkvísi. Jóhann
Baldvinsson gerði yfirleitt ágæt-
lega, en fyrir kom þó að viss
óöryggis virtist gæta. Helga
Kvam átti smekklegan þátt í
flutningi snoturrar og nokkuð
forvitnilegrar útsetningar söng-
stjórans á „Heims um ból".
Full ástæða er til að fagna því,
að nú sknli aftur hljórna karla-
kórasöngur á Akureyri. sem ekki
er vansæmd að og sem gefur
tilefni til þess að ætla, að upp
kunni að renna nýtt tímabil af-
reka á þessu sviði tónlistar. Enn
er þó mikið verk óunnið. Von-
andi bera kórjélagar í Karhikór
Akureyrar - Geysi gæfu til að
starfa af þcim metnaði, sem til
þarf jafnt í flutningi sem verk-
efnavali, bænum og tónlistarlífi í
honum til sóma og eflingar.
Haukur Ágústs.son.
::: Mjólkursamlag KEA
Ahureyn Simi 96-21400
Glerárprestakall:
Séra Pétur lætur af störftun
Svo sem kunnugt er hefur sókn-
arpresturinn í Glerárkirkju, sr.
Pétur Þórarinsson, átt við nokkra
vanheilsu að stríða nú að undan-
förnu. Hefur hann af þeim sök-
um verið í veikindafríi og leitað
sér lækninga. Af því hefur orðið
nokkur árangur en læknar hans
telja nú að hann þurfi á lengri
hvíld að halda og ráðleggja hon-
um að láta af frekari prestskap
fyrst um sinn. Sr. Pétur hefur því
ritað biskupi íslands bréf þar sem
hann óskar eftir að verða leystur
frá frekari störfum við Glerár-
kirkju.
Sóknarnefnd Lögmannshlíðar-
sóknar harmar mjög þessar mála-
lyktir þar sem svo virtur og vin-
sæll þjónn kirkjunnar á í hlut.
Hefur samstarf sóknarnefndar
við sr. Pétur verið með miklum
ágætum og allt starf hans við
GJerárkirkju verið unnið af slíkri
samviskusemi og vandvirkni að á
betra verður vart kosið.
Sóknarnefnd flytur honum
alúðarþakkir fyrir fórnfúst starf
og óskar honum og fjölskyldu
hans allrar blessunar um ókomna
framtíð.
f forföllum sr. Péturs hefur sr.
Lárus Halldórsson þjónað í Gler-
árkirkju og verður svo fyrst um
sinn og væntanlega fram yfir
fermingar.
Viðtalstímar sr. Lárusar verða
áfram í Glerárkirkju á sama tíma
og áður.
(Frcttatilkynning frá sóknarnefnd Lögmanns-
hlíðarsóknar.)
Leiðréttíng
í bæjarmálapunktum frá Akur-
eyri í gær var farið rangt með
föðurnafn Sigríðar, sem sagt hef-
ur lausu starfi sínu sem ritari við
Tónlistarskólann. Hún er Sigurð-
ardóttir en ekki Guðmundsdótt-
ir. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.