Dagur


Dagur - 09.01.1991, Qupperneq 5

Dagur - 09.01.1991, Qupperneq 5
Miðvikudagur 9. janúar 1991 - DAGUR - 5 Áskriftargjöld Stöðvar 2: Ekki afsláttur fyrir eldri borgara Eldri borgari hafði samband við Dag vegna gjaldskrár Stöðvar 2. Hann sagði að í Reykjavík hafi félag eldri borgara gert samning við Stöð 2 um 25% afslátt af áskriftar- gjöldum. Þessi sami aðili vildi vita hvort von væri á því að slíkur samningur yrði einnig gerður fyrir eldri borgara á landsbyggðinni. Bjarni Hafþór Helgason sjón- varpsstjóri Eyfirska sjónvarps- félagsins sagði að ekki væri heimild hjá Eyfirska sjón- varpsfélaginu, samkvæmt áskriftarsamningi við Stöð 2, að veita sérstakan afslátt af áskriftum. Það er einhver hluti eldri borgara í Reykjavík með afslátt vegna samnings sem gerður var við félag þar fyrir all löngu síðan. Við höfum hins vegar ekki heimild til þess að gera slíka samninga hér og erum þess vegna bundnir af þeim samn- ingi sem í gangi er á milli Eyfirska sjónvarpsfélagsins og Stöðvar 2.“ Frönsk kvikmyndavika: „Því fór sem fór“ Áhugamaður um kvikmyndun og kvikmyndir hafði samband við Dag og hafði þetta að segja: „Fréttir greina frá slæmri að- sókn að franskri kvikmyndaviku á Akureyri. Ég er nokkuð viss um að hún hefði fengið betri aðsókn hefði hún verið betur auglýst. Það var með mig sem marga að ég hélt að hver sá er vildi njóta sýninganna þyrfti að vera í þeim klúbbi sem stóð að vikunni þ.e. að kvikmyndirnar væru aðeins fyrir klúbbfélaga. Hvergi kom fram í auglýsingum að sýningarn- ar væru fyrir almenning og því fór sem fór.“ ' < Lesendur athugið! Lesendur eru hvattir til að láta álit sitt í Ijós í lesenda- þætti blaðsins. Tekið er við lesendabréfum á ritstjórnarskrifstofum Dags á Akureyri, Húsavík og Sauð- árkróki. Æskilegt er að bréfin séu vélrituð. Einnig geta les- endur hringt til að koma skoðunum sínum á framfæri. Af gefnu tilefni skal það tekið fram að fullt nafn, heimilisfang, kennitala og símanúmer þarf að fylgja með bréfunum, jafnvel þótt við- komandi kjósi að skrifa undir dulnefni. Það sama gildir ef lesendur kjósa að nota sím- ann. Einnig skal það tekið fram að ef bréfritari eða sá sem hringir er að deila á ákveðna persónu eða persón- ur, verður hann að koma fram undir fullu nafni. Að öðrum kosti verður bréfið ekki birt. Ritstjóri Stundum þarf að tala um peninga og mannslíf í sömu andrá Peningar geta haft úrslitaáhrif á líf fólks og hamingju. Engin heilbrigðisþjónusta verður rekin án fjármagns - ekkert heimili heldur. Þess vegna er Happdrætti SÍBS til. Það hefur staðið undir uppbyggingu endurhæfingar, vinnuaðstöðu og aðhlynningar, á Reykjalundi og víðar, sem skiptir sköpum í lífi tugþúsunda íslendinga. Milljónamæríngur með góðrí samvisku Happdrætti SÍBS er jafnhliða þessu skemmtilegur leikur þar sem þú getur orðið margfaldur milljónamæringur því að þar vinnur 3. hver miði næsta ár. Fáðu þér miða hjá næsta umboðsmanni - á óbreyttu verði 3ja árið í röð aðeins 400 kr. Upplýsingar í síma 91-22150. - með mestu vinningslíkumar Hundruð milljóna bíða þín hér Þú færð miða hjá umboðsmönnum SÍBS: * NORÐURLAND: HVAMMSTANGI: Róberta Gunnþórsdóttir, Lækjargötu 6, sími 95-12380 BLÖNDUÓS: GRlMSEY: Kristjana Bjarnadóttir, Sæborg, slmi 96-73111 ÓLAFSF JÖRÐUR: MÝVATNSSVEIT: Hólmfrlöur Pótursdóttir, Víðihllö, sfmi 96-44145 AÐALDALUR: Láttu það eftir þér að vera með - þú átt það skilið. Kaupfólag Húnvetninga, sími 95-24200 Valberg hf., sími 96-62208 SKAGASTRÖND: HRlSEY: Kristjana Helgadóttir, Hraungerði, sími 96-43587 Kristln Kristmundsdóttir.Fellsbraut 6, slmi 95-22858 SAUÐÁRKRÓKUR: Friðrik A. Jónsson, Háuhllð 14, slmi 95-35115 HOFSÓS: Ásdls Garðarsdóttir, Kirkjugötu 19, slmi 95-37305 SIGLUFJÖRÐUR: Kristln Hannesdóttir, Norðurgötu 9, slmi 96-71114 Erla Sigurðardóttir, sími 96-61733 DALVlK: Sólveig Antonsdóttir, Verslunin Sogn, sími 96-61300 AKUREYRI: Björg Kristjánsdóttir, Strandgötu 17, slmi 96-23265 SVALBARÐSEYRI: Bára Sævaldsdóttir, Laugartúni 18, Slmi 96-24784 GRENIVfK: Brynhildur Friðbjörnsdóttir, Túngötu 13B, slmi 96-33227 Rannveig H. Ólafsdóttir, Laugum, sími 96-43181 HÚSAVfK: Jónas Egilsson, Árholti, Húsavik, slmi 96-41405 KÓPASKER: Óli Gunnarsson, slmi 96-52118 RAUFARHÖFN: Vilhjálmur Hólmgeirsson, slmi 96-51150 ÞÓRSHÖFN: Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis, sími 96-81117 - með mestu vinningslíkumar i i

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.