Dagur - 09.01.1991, Blaðsíða 12

Dagur - 09.01.1991, Blaðsíða 12
M1 Akureyri, miðvikudagur 9. janúar 1991 Rammasamningur um íþróttahús á félagssvæði KA í höfn: Byggingarframkvæmdir hefjast í aprfl - kostnaður um 140 milljónir króna Sauðárkrókur 95-35960 Húsavík 96-41585 Leikur í snjó. Mynd: Golli Gagnrýni brunamálastjcra vegna Krossanesbrunans: „Bæjarstjóm ber vissa ábyrgð“ - segir Sigurður J. Sigurðsson Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti í gær rammasamning milli Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar um byggingu íþróttahúss á svæði félagsins í Lundarhverfi á Akureyri. Viðræður um þessa byggingu hafa staðið milli aðila um nokkurt skeið og voru drög að rammasamningi samþykkt í bæjarráði síðastlið- Húnavatnssýslur: Ófremdar- ástand í símamálum Húnvetningar eru mjög óhressir með það ástand sem skapaðist þegar Ijósleiðari fór í sundur í óveðrinu á dögunum. Síðastliðinn föstudag var fund- ur í almannavarnarnefnd á Blönduósi og sátu fulltrúar Pósts og síma og Rarik fundinn. Ýmislegt athyglisvert um skipan símamála kom fram á fundinum. „Það er gjörsamlega óviðun- andi að þó ljósleiðari norður við Laxá rofni þurfi að vera síma- sambandslaust í Húnavatnssýsl- um og á Ströndum. Þessi skipun mála er verri fyrir okkur heldur en var fyrir fjörtíu árum,“ sagði Ófeigur Gestsson bæjarstjóri á Blönduósi. Ekkert varaafl reyndist vera til fyrir farsímakerfið í Húnavatns- sýslum og verður það að teljast mjög ámælisvert þegar tekið er mið af hversu mikið öryggistæki farsímarnir eru. Einnig virðist vera mjög ábótavant með varaafl fyrir Blönduósbæ en þar eru geymdar í frystigeymslum sjávar- afurðir og kjöt fyrir hundruði milljóna króna. „Það sýndi sig að þetta ástand hér hjá Pósti og síma er óviðun- andi og úrbóta er þörf ekki seinna en strax,“ sagði Ófeigur Gestsson að lokum. kg Nýjasti togari Akureyringa: Víðir EA-910 Skömmu fyrir áramót var skipt um einkennisstafi á Víði HF- 201, nýjasta togara Samherja hf. á Akureyri. Togarinn heitir nú Víðir EA-910, með heima- höfn á Akureyri en var áður gerður út frá Hafnarfirði. Víðir EA-910 er ísfiskstogari og systurskip Akureyrarinnar EA, rúmar 740 brl. að stærð. Togarinn var áður í eigu Hval- eyrar hf, í Hafnarfirði og átti Samherji hf. tæpan helming hlutafjár í fyrirtækinu. í haust nýtti fyrirtækið forkaupsrétt sinn á hlutabréfum annarra hluthafa í fyrirtækinu og eignaðist um leið togarann. -KK inn fímmtudag. Áætlaður kostnaður við þessa byggingu er um 140 milljónir króna en um er að ræða 2200 fer- metra hús. Þessu til viðbótar kemur tengibygging við félags- heimili KA en hún verður um 120 fermetrar að stærð og alfarið kostuð af KA. Á síðustu stigum þessara viðræðna var fyrrgreind kostnaðartala samþykkt og jafn- framt ákveðið að frágangur lóðar yrði á kostnað KA. Sigmundur Þórisson, formaður KA, segir að næsta skref verði að ganga endanlega frá teikningum og bjóða því næst út verkþætti. „Við vonumst til að geta byrjað í apríl næstkomandi og þá verður húsið gert fokhelt í einum áfanga. Grunnhugmyndir okkar eru að húsið verði komið í notk- un 1992-1993 en hvort tekst að standa við það verður síðar að koma á daginn. Þetta er hús sem nýtist bæði okkur og Lundar- skóla mjög vel,“ sagði Sigmund- ur. Samkvæmt rammasamningn- um greiðir Akureyrarbær 75% af áætluðum byggingarkostnaði, þ.e. um 105 milljónir króna. Þessa upphæð mun bærinn greiða á næstu 5 árum. JÓH Söluhorfur á frystum vatna- silungi til Svíþjóðar eru góðar á árinu. Gert er ráð fyrir að selja þrjátíu til fjörtíu tonn af heilfrystum silungi til Svíþjóð- ar. Verð hefur hækkað og Hitaveita Akureyrar: Skemmdir á heimæðumhúsa Skemmdir urðu á fjórum stöð- um í dreifíkerfí Hitaveitu Akureyrar á föstudaginn í síð- ustu viku, en rekja má skemmd- irnar til þess að leiðslur þoldu ekki álag sem fylgdi í kjölfar þrýstingsbreytinga, þegar vatn fór af stærstum hluta dreifí- kerfís H.A. Skemmdirnar urðu flestar á heimtaugum að húsum í íbúða- hverfum, á þremur stöðum á Oddeyri og einum stað í Glerár- hverfi. Franz Árnason, hitaveitu- stjóri, segir að þegar dreifikerfið kólni og hitni á víxl, eins og gerð- ist á föstudag, geti veikir punktar gefið sig með þessum hætti. Ekki 'hafi verið margar kvartanir vegna óhreininda í síum, þótt slíkt hafi aðeins borið við. „Þegar þrýst- ingur féll kólnuðu rörin og dróg- ust saman. Þegar vatninu var hleypt á aftur þöndust þau út. Þá gefa þau sig á veikum stöðum," segir Franz. EHB Brunamálastjóri setur fram ýmsar aðfínnslur í garð bæjar- yfírvalda á Akureyri í skýrslu um Krossanesbrunann, eins og áður hefur komið fram í Degi. Átelur hann m.a. byggingayf- irvöld, eldvarnaeftirlit, verk- töluverð er nú þrjátíu og þrjár krónur sænskar. Á síðasta ári voru seld um fímmtán tonn til Svíþjóðar og líkaði sá fískur mjög vel. Silungurinn er heilfrystur og pakkaður í lofttæmdar umbúðir og er seldur sem villibráð í sænskum fiskverslunum. Svíar leggja mikla áherslu á að um villi- bráð sé að ræða. Netaför sem íslendingar eru ekki hrifnir af eru vel séð á fisknum í Svíþjóð sem sönnun þess að um sé að ræða villibráð. Sænsku söluaðilarnir eru að kanna markað fyrir íslenskan sil- ung í Dannmörku og Frakklandi í samráði við frankst fyrirtæki. Nægur markaður virðist vera fyr- ir silung í Frakklandi en þar selst hann betur ferskur. Svíar vilja helst smásilung eða fisk af stærð- inni 200 til 300 grömm. Fiskur af þessari stærð selst mjög illa hér- lendis. Enginn veit með vissu hversu stór innanlandsmarkaðurinn er fyrir vatnasilung. Gott verð hefur fengist fyrir silung til veitinga- húsa og hótela og er silung nú að finna á matseðlum sífellt fleiri matsölustaða. Að sögn Bjarna Egilssonar hjá Vatnafangi hf. er framtíðin björt hjá silungsveiðibændum og er skilaverð til bænda nú um tvö hundruð krónur fyrir kílóið. Ef vel væri á málum haldið mætti auka neyslu á silungi innanlands til muna en fyrir silung af réttri stærð fæst mjög gott verð. kg smiðjustjórn og fyrrverandi bæjarstjóra á Ákureyri sem stjórnarformann Krossanes- verksmiðjunnar. Bygginga- nefnd bæjarins fær hörðustu ádrepuna. Gagnrýni brunamálastjóra beinist mjög að því atriði að ekki var búið að framkvæma ýmis öryggisatriði sem þó voru á sam- þykktum teikningum. Umrædd skýrsla er ekki til nema í drögum, og því ekki formlegt plagg enn sem komið er. Skýrsludrögin hafa verið send viðkomandi aðil- um til umsagnar, en hún birtist opinberlega um næstu mánaða- mót. „Ég þekki ekki réttmæti þess- ara ásakana, en vísað er til þess að bæjaryfirvöld séu ábyrg í mál- inu, og það er alveg rétt. Bæjar- stjórn ber vissa ábyrgð á sínum starfsmönnum,“ sagði Sigurður Fiskeldisstöðin Miklilax í Fljótum hefur sótt um fyrir- greiðslu til Byggðastofnunar til að Ijúka framkvæmdum við hitavatnslagnir, sláturhús og fleiri verkefni. Ætlunin er að sláturhúsið verði tekið í notkun í maí en hingað til hef- ur laxinn verið fluttur til Hofs- óss til slátrunar. Borunum eftir heitu vatni er lokið en eftir er að leggja leiðslur um tveggja kílómetra leið og setja upp dælur. Ólokið er fram- kvæmdum við frágang á athafna- svæði fiskeldisstöðvarinnar og á þeim að ljúka á næsta ári. Fyrirgreiðsla sú sem Miklilax fer fram á við Byggðastofnun nemur um 120 milljónum króna, J. Sigurðsson, formaður bæjar- ráðs Akureyrar, er hann var spurður um málið. Sigurður segir að menn mættu ekki gleyma því að Krossanes hafi verið í uppbyggingu á þeim tíma sem bruninn varð, og fram- kvæmdum engan veginn lokið. Nauðsynlegt sé að bygginganefnd fari nákvæmlega ofan í saumana á skýrslunni, og að menn læri af reynslunni í þessu máli. „Það hefur staðið til hjá bæjarráði að eiga viðræður við brunamála- stofnun og slökkviliðsstjóra um brunamálefni á Akureyri. Það verður ekki hægt fyrr en vinnu við fjárhagsáætlun lýkur, en við viljum gjarnan taka upp viðræður við þessa aðila því menn virðast ekki vera alveg samstíga,“ segir Sigurður, sem telur að samræma þurfi betur sjónarmið bygginga- nefndar, slökkviliðs og bruna- málastofnunar. EHB sem þarf til að geta lokið fram- kvæmdum. Að sögn Reynis Pálssonar verður mikil breyting til batnaðar við að taka í notkun eigið slát- urhús við fiskeldisstöðina. Flutn- ingur á laxinum til slátrunar á Hofsósi hefur verið ýmsum vand- kvæðum bundinn og kostnaðar- samur fyrir Miklalax. „Ég er nokkuð bjartsýnn á komandi ár ef við fáum þessa fyrirgreiðslu. Þessi rekstur kemur til með að ganga ef við fáum sam- bærilega fyrirgreiðlu og önnur framleiðslufyrirtæki. Það tekur lengri tíma að komast af stað en haldið var annars gengur rekstur- inn eins og búist var við,“ sagði Reynir að lokum. kg Silungsveiðibændur: Góðar söluhorfur á árinu Miklilax í Fljótum: Vantar 120 milljóiiir til að ljúka framkvæmdum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.