Dagur - 01.03.1991, Blaðsíða 5
Föstudagur 1. mars 1991 - DAGUR - 5
Til hamingju með
Múlagöng Olafsfirðingar
og landsmenn allir.
Húsavíkur-
kaupstaður
Það er niikiö vandaverk að koma sprengiþráðunum fyrir í göngun-
um þannig að bergið brotni niður eftir settum reglum. Við spreng-
ingarnar vann vaskur hópur Norðmanna og íslendinga. Mynd: tlv
Þefta gekk út á
að sofa og vinna
- spjallað við Tryggva Jónsson, staðarstjóra Kraftaks sf.
Tryggvi Jónsson: „Það sem kom okkur hvað mest á óvart var vatns-
lekinn í göngunum. Vegagerðin áætlaði 20-30 sekúndulítra vatns-
rennsli, en þegar mest var var vatnsflauinurinn yfir 200 sekúndulítr-
ar.“
„Já, við áttum frekar von á
því,“ svaraði Tryggvi. „Við
urðum varir við mikinn áhuga
fólks á jarðgangagerð þegar
við unnum við Blöndu. Hins
vegar áttum við varla von á að
svo nákvæmlega yrði fylgst
með gangi mála hér. Það á þó
sínar skýringar. Þetta verk er,
ef svo má segja, miklu nær
fólki en Blönduvirkjun. Ólafs-
Qarðargöngin eru mikil sam-
göngubót, sem fólk kann vel
að meta. Ólafsfirðingar hafa
verið mjög vinsamlegir í okkar
garð. Fólk hefur iðað í skinn-
inu að taka göngin í notkun.
Ég skil mæta vel þá fegins-
tilfinningu Ólafsfirðinga að fá
jarðgöngin. Ég hef sjálfur lent
í smá snjóflóði í Múlanum og
skynja því vel hversu mikil
samgöngubót göngin eru fyrir
Ólafsíjörð."
Tryggvi telur engan vafa
leika á því að sú staðreynd að
vinnan við Ólafsíjarðargöngin
gekk mjög vel, eigi eftir að ýta
ntjög undir jarðgangagerð á
íslandi. Slegið hafi töluvert á
efasemdaraddir og ráðamenn
þjóðarinnar hafi sannfærst
um að þetta sé það sem koma
skal til að bæta úr erfiðum
samgöngum víða um land.
„Ég sé fyrir mér að árið
2000 verða komin veggöng á
Vestíjörðum. Þá tel ég nokkuð
ljóst að HvalQarðargöngin
verða komin. Búið er að
stofna hlutafélag um byggingu
og rekstur þeirra. Spurningin
er hins vegar hvort verður
ofan á að gera jarðgöng eða
botnstokk undir Hvalfjörð.
Það fer eftir jarðlögunum
þarna. Þá er hugsanlegt að
fyrir aldamót verði byrjað á
gerð ganga á Austfjörðum,
sem ætlað er að tengja Egils-
staði, NorðQörð, Seyðisfjörð
og Mjóaíjörð." óþh
„Það sem kom okkur hvað mest á óvart var vatnslek-
inn í göngunum. Vegagerðin áætlaði 20-30 sekúndu-
lítra vatnsrennsli, en þegar mest var var vatns-
flaumurinn yfir 200 sekúndulítrar. Það er ekki fjarri
lagi að þetta sé álíka magn og Akureyringar nota.
Vatnsrennslið tafði verkið nokkuð, en þegar upp var
staðið voru gangasprengingarnar nokkurn veginn á
áætlun,“ sagði Tryggvi Jónsson, staðarstjóri Krafttaks
sf., verktakafyrirtækisins sem sá um jarðgangafram-
kvæmdirnar í Ólafsfjarðarmúla.
Krafttak sf. er íslenskt/norskt
samstarfsfyrirtæki og saman-
stendur af Ellert Skúlasyni hf.
og Aker Entreprenör. Krafttak
var með lægsta tilboðið í gerð
Ólafsljarðarganganna og að
því tilboði var síðan gengið.
Góð samvinna
íslendinga og
Norðmanna
Krafttak sf. hefur fengist við
jarðgangagerð hér á landi síð-
an 1984 þegar vinna við jarð-
göng Blönduvirkjunar hófst og
Aker Entreprenör hefur ára-
langa reynslu af jarðganga-
gerð í Noregi.
Tryggvi lét vel af samstarfi
fyrirtækjanna við gerð Múla-
ganganna og sagði það hafa
gengið snurðulaust. Starfs-
mennirnir hafi fengist við
slíka vinnu áður og reynsla
þeirra komið að góðum
notum.
Krafttak sf. bauð 537 millj-
ónir króna í gerð jarðgang-
anna í Ólafsfjarðarmúla, sem
reyndist vera lægsta tilboðið
þegar þau voru opnuð á vor-
dögum árið 1988. Gengið var
frá samningum þann 1. júlí
sama ár. Tryggvi sagði að
framreiknað til dagsins í dag
væri þessi tala á milli 900 og
950 milljónir króna með virð-
isaukaskatti. Hann sagði ekki
liggja fyrir endanlegt uppgjör,
en ljóst væri að verktakanum
hafi tekist að vinna verkið inn-
an tilboðsmarka.
Verk staðarstjóra var
umfangsmikið. í hans hlut
kom að fylgjast með verkinu
dag frá degi og gera verkáætl-
anir í samráði við eftirlits-
menn Vegagerðar ríkisins.
Tryggvi sagði þetta hafa verið
skemmtilega en oft erfiða
vinnu. Hann fékk á sínum
tíma að kynnast slíkri „útlaga-
vinnu“ í Blönduvirkjun, en þar
vann hann fyrir Ellert Skúla-
son hf. í hálft íjórða ár.
En hvernig skyldi vinnu-
andinn hafa verið á meðal
starfsmanna þegar dvalið var
svo vikum skipti íjarri ætt-
mennum?
„Það er mjög mismunandi
og fer eftir því hvernig menn
eru skapi farnir. Þegar líða tók
á þriggja til fjögurra vikna
vaktir voru menn oft orðnir
mjög fúlir, en síðustu þrjá til
Qóra dagana áður en menn
komust í frí tóku þeir yfirleitt
gleði sína á nýjan leik og léku
á als oddi. Það má segja að
þetta hafi gengið út á að vinna
og sofa. Á laugardagskvöldum
gerðu menn sér síðan glaðan
dag.“
Tvö slys við
jarðgangagerðina
Jarðgangavinna er að sjálf-
sögðu hættuleg og menn þurfa
að gæta fyllstu varúðar. Tvö
slys urðu þó við gerð Múla-
ganganna. Annars vegar slas-
aðist íslendingur á baki þegar
hann vann við ásprautun á
bergið. Það hrundi úr loftinu
og yfir hann. Tryggvi segir að
aðeins fyrir snarræði vinnu-
félaganna hafi ekki farið verr.
Þeir hafi verið fljótir að átta
sig á aðstæðum og náð piltin-
um undan grjóthruninu. Hann
átti í þessum meiðslum um
sex mánuði, en kom þá aftur
til starfa.
Ilitt slysíð var öllu alvar-
legra. Það varð 8. nóvember
1989. Norðmaður að nafni
Steinar Otnes, margreyndur
jarðgangamaður, var að vinna
inni í göngunum. Skyndilega
tóku smásteinar að falla á
hann. Steinar hörfaði, en það
dugði ekki til. Stór egghvass
steinn féll á annan fótinn sem
fallöxi væri og tók hann af fyr-
ir neðan hné. Það var engu
bjargað og Steinar fékk staur-
fót. „Hann kom hingað aftur í
mars og var með okkur þegar
við sprengdum síðustu hleðsl-
una. Eftir því sem mér skilst
verður hann verkstjóri hjá
Aker Entreprenör," sagði
Tryggvi.
Tryggvi sagðist vera því feg-
inn að þessu verki væri nú
lokið. En næg önnur verkefni
liggja fyrir. „Ég fer að vinna
við tilboðsgerð vegna fyrir-
hugaðrar Fljótsdalsvirkjunar
og Vestíjarðarganganna. Er
verkinu í Ólafsfjarðarmúla
lýkur hefur Krafttak ekkert
verk eins og er, en við ætlum
okkur stóra hluti í framtíðar-
framkvæmdum við jarðgöng."
/ fjölmiðialjósinu
Óneitanlega hefur almenning-
ur fylgst mjög náið með jarð-
gangagerðinni í Ólafsíjarðar-
múla. Fjölmiðlar hafa verið
duglegir við að greina frá
gangi mála. Áttu starfs-
mennirnir sjálfir von á því að
vera svo mjög í sviðsljósinu?