Dagur - 01.03.1991, Síða 17
> 0.0 >
Föstudagur 1. mars 1991 - DAGUR - 17
Stöndum saman Norð-
lendingar og tökum á!
Nú þegar Ólafsfjarðarmúlinn
er formlega tekinn í notkun er
áfanga náð í bættum sam-
göngum á Norðurlandi. Ég
óska Ólafsfirðingum til ham-
ingju með göngin. Það var
orðið löngu tímabært að’ losna
við þá slysagildru sem vegur-
inn um Múlann var.
Heyrst hefur sú skoðun, að
bætt vegakerfi verði til þess að
byggðir leggist frekar af. Ég
held að þetta sé rangt! Mér
virðast auðveldari samgöngur
þvert á móti geta styrkt byggð-
irnar, ef rétt er á málum
haldið. Þetta kallar hins vegar
á breytt vinnubrögð. Þjónustu
og atvinnusvæðin stækka og ef
við viljum að þau eílist að
sama skapi - þá þurfum við
að taka höndum saman og í
stað þess að hver sé að berjast
í sínu horni - þá bindumst við
bræðraböndum og vinnum
saman.
Það kreppir að í þjóðarsál-
inni um þessar mundir. At-
vinnuleysi, sem hefur verið
nánast óþekkt fyrirbæri hér á
landi frá því á fyrirstríðsárun-
um, er nú að verða æ algeng-
ara.
v;
ð megum til með að sporna
við þessum vágesti Norð-
Horfl til
ferðamanna-
þjónustunnar
- segir Björn Valur Gíslason
„Ég horfi til þess að með
opnun jarðganganna auk-
ist ferðamannastraumur
til Ólafsfjarðar töluvert.
Hér er um að ræða
lengstu veggöng landsins
og þau munu vekja for-
vitni ferðafólks,“ sagði
Björn Valur Gíslason,
bæjarfulltrúi í Ólafsfirði.
Þegar til lengri tíma er litið
tel ég að verði athyglis-
verðast að sjá hvernig sam-
vinna sveitarfélaga við Eyja-
fjörð þróist. Við höfum til
þessa ekki átt auðvelt með
samstarf við sveitarfélög
handan Múlans vegna erfiðra
samgangna. Þetta mun breyt-
ast og raunar hafa þegar verið
stigin skref í þá átt með skip-
un nefndar Ólafsfirðinga og
Dalvíkinga um framtíðarskip-
an hafnarmála á báðum
stöðum.
Ég horfi í þessu sambandi
til fleiri sviða og nefni sem
dæmi skólamálin. Byrjað er að
samnýta tónlistarkennara í
Ólafsfirði og Dalvík.
Þá hefur verið nefndur
möguleikinn á aukinni sam-
vinnu í heilbrigðismálum og
einnig hefur verið rætt um
samvinnu peningastofnana.
Forsenda þessara hugmynda
eru góðar og öruggar sam-
göngur,“ sagði Björn Valur.
Hann sagði að íbúaíjöldi í
Ólafsfirði hafi á síðari árum
verið töluvert rokkandi. í
kringum 1980 fjölgaði og
íbúafjöldi fór í fyrsta skipti yfir
1200. Síðan fækkaði fólki og
íbúafjöldi hefur staðið nokk-
urn veginn í stað. Björn Valur
sagðist ekki búast við að jarð-
göngin sem slík myndu skipta
sköpum í íbúafjölda í Ólafs-
firði. „En einangrun byggðar-
lagsins verður rofin og ég held
að sú sfaðreynd hljóti að gera
staðinn búsældarlegri."
Björn Valur sagði að svo
virtist sem slegið hafi á
háværar gagnrýnisraddir um
Múlagöngin. „Borgarstjórinn í
Reykjavík sagði að með því að
Björn Valur Gíslason.
gera jarðgöng fyrir nokkrar
hræður norður í.landi væri
verið að henda peningum í
sjóinn. Ég held að sem betur
fer hafi ekki verið hlustað
mikið á þennan málflutning.
Ég er sannfærður um að ef
við náum að spila vel úr þeim
möguleikum sem opnast við
þetta, t.d. hvað varðar ferða-
þjónustu og samnýtingu á
opinberum framkvæmdum,
hafnarmannvirkjum, mennta-
stofnunum og sjúkrastofnun-
um, þá muni verða léttara í
framtíðinni að sækja íjármagn
til hins opinbera í ýmsar
nauðsynlegar framkvæmdir."
Björn Valur sagði að því
væri ekki að neita að sér hefði
verið bölvanlega við Múlaveg-
inn og í því ljósi væri þessi
samgöngubót kærkomin. „Ég
er fæddur hér og uppalinn og
fann hér á árum áður aldrei
fyrir ónotum við að keyra
þennan veg. Síðan fór ég í
nokkur ár í burtu, m.a. í skóla
í Reykjavík. Eftir að ég kom til
baka verð ég að viðurkenna
að ég var oft smeykur að fara
fyrir Múlann, t.d. í hlákuveðri
og rigningu.
Því er opnun ganganna í
mínum huga mjög stór við-
burður, einn stærsti og
ánægjulegasti viðburðurinn
héríÓlafsfirðiíáratugi.“ óþh
lendingar, ef við viljum byggja
þennan Qórðung og mín skoð-
un er sú að við þurfum að
byrja á því að líta í eigin barm.
Við þurfum hvert og eitt að
spyrja sjálf okkur: Hvað get ég
gert og hvað vil ég gera?
1. Veljum norðlenskt! Tök-
um okkur saman og skiptum
við fyrirtæki og þjónustuaðila
á Norðurlandi.
2. Vinnum saman! Fyrir-
tæki á Norðurlandi takið
höndum saman og vinnið
saman, myndið sterkari heild-
ir, fyrirtækjakeðjur og sýnið
og sannið að þið standið undir
nafni.
3. Höfum gæðin í fyrirrúmi!
Vöndum það sem vð höfum
fram að færa, hvort heldur
það eru efnislegir hlutir eða í
formi viðnióts.
4. Verum sanngjörn! Látum
það ekki henda okkur að selja
vöru okkar, aðstöðu eða þjón-
ustu svo dýrt að menn leiti út
fyrir fjórðunginn eftir ódýrari
kosti.
5. Fullvinnum afurðirnar
sem við framleiðum! Aukum
þannig verðmæti og sköpum
meiri atvinnu á heimavelli.
6. Flytjum beint inn á
Norðurland! Stöndum á eigin
fótum, en ekki annarra og
flytjum inn milliliðalaust
vörur, erlenda ferðamenn eða
erlenda samstarfsaðila.
Ingunn St. Svavarsdóttir.
7. Veitum meiri og betri
þjónustu í byggðarlögunum
með því að sameina sveitarfé-
lög, þar sem það er augljós-
lega hagkvæmt, þ.e.a.s. tekju-
auki verður í sameinuðu sveit-
arfélagi og þar með meiri
möguleiki á bættri þjónustu.
^lft þetta og meira til getum
r\við gert, ef við leggjumst á
eitt og ég skora á okkur öll
sem á Norðurlandi búum að
láta nú ekki deigan síga, held-
ur þjappa okkur saman og
heQast handa um að treysta
byggð á Norðurlandi.
Ingunn St. Svavarsdóttir.
(Höfundur er formaður Fjórðungs-
sambands Norðlendinga.)
Hamingjuóskir
við vígslu
Múlaganga
Þökkum viðskiptin
Fiskmiðlun Norðurlands
Ólafsfirðingar!
í 17 ár höfum viö átt
ánægjuleg viðskipti
Með þeirri samgöngu-
bót sem nú er vígð
verða samskiptin
traustari og betri
Til hamingju með opnun
á Múlagöngum
Víkurbakarí