Dagur - 09.04.1991, Side 1

Dagur - 09.04.1991, Side 1
Útsala Útsala Útsala Útsala HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599^ Spurningakeppni framhaldsskólanna: MA-ingar fara í úrslit - lögðu lið MH að velli í undanúrslitum Lið Menntaskólans á Akureyri hafði betur í baráttunni við menntskælinga í Hamrahlíð í síðari umferð undanúrslita í spurningakeppni framhalds- skólanna sl. föstudagskvöld. MA-ingar sigruðu með einu stigi eftir bráðabana og er óhætt að segja að þetta hafi verið einhver mest spennandi spurningakeppni í sjónvarpi á síðari árum. Með þessum glæsta sigri áunnu MA-ingar sér rétt til þess að mæta liði Flensborgarskóla í Hafnarfirði í úrslitum, sem verða send út nk. föstudag. Ætla má að keppnin, sem verður háð í Fél- agsheimilinu í Kópavogi, verði jöfn og spennandi, enda hér á ferðinni tvö frábær lið. Vitað er að öflugt klapplið MA-inga fer suður yfir heiðar til þess að hvetja kappana til dáða í úrslita- keppninni. Hinir fræknu fróðu MA-ingar eru allir átján ára. Tveir þeirra, Magnús Teitsson og Finnur Friðriksson, eru frá Akureyri, en þriðja hjólið undir vagninum er Pálmi Óskarsson frá Dalvík. Dagur mun birta viðtal við þá félaga nk. fimmtudag. óþh Skíðamót íslands: Akureyringar sigursælir - unnu 25 verðlaun af 45 mögulegum Akureyringar unnu 25 verðlaun af 45 mögulegum á Skíðamóti íslands sem lauk á ísafirði á laugardag. Þar af unnu Akur- eyringar til 7 gullverðlauna, Valdemar Valdemarsson sigr- aði í svigi og alpatvíkeppni, Guðrún H. Kristjánsdóttir í samhliðasvigi, Haukur Eiríks- son í 15 km göngu og göngutví- keppni, Rögnvaldur Ingþórsson í 30 km göngu og loks sigraði sveit Akureyrar í boðgöngu. Myndin var tekin við komu hópsins til Akureyrar á sunnu- dag en félagar úr SRA biðu á flugvellinum með blóm, kakó og rjómatertu. Nánar er sagt frá mótinu á íþróttasíðum blaðsins. Mynd: Golli Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga í Félagsborg sl. laugardag: Goður hagnaður en háar skuldir - skuldir félagsins óþægilega miklar, segir stjórnarformaður KEA Mikil umskipti urðu í rekstri Kaupfélags Eyfirðinga á síðasta ári samanborið við árið 1989. Rekstrarhagnaður ársins nam 262 milljónum króna, en árið 1989 varð 177 milljón króna tap. í krónum talið eru þessi umskipti upp á um 440 milljónir króna. Þetta kom fram á aðalfundi KEA, sem haldinn var sl. laugardag í Félagsborg á Akureyri. Fund- inn sátu 253 fulltrúar, þar af 200 karlar og 53 konur. Magnús Gauti Gautason, kaup- félagsstjóri, sagði að hlutfall skammtímaskulda hefði verið lækkað umtalsvert á síðasta ári með skuldbreytingu. Hann tók undir þau orð stjórn- arformanns að áfram yrði að gæta aðhalds og hagræðingar í rekstri KEA og slaka hvergi á klónni. Hann sagði að á ýmsum sviðum hefði gengið vel í rekstr- inum, en miður í öðrum. Ein þeirra greina sem miður gekk á síðasta ári er kjötiðnaðurinn, en Magnús Gauti upplýsti að sam- kvæmt tölum fyrstu tveggja mán- aða þessa árs væri rekstur Kjöt- iðnaðarstöðvar réttu megin við strikið. Fram kom hjá kaupfélags- stjóra að áfram yrði unnið að sölu þeirra eigna KEA sem gæfu félaginu engan arð. Eins og fram hefur komið hafa staðið yfir við- ræður KEA og Akureyrarbæjar um sölu eigna félagsins í Gróf- argili. Magnús Gauti orðaði það svo að lokasprettur samnings- gerðarinnar væri eftir og síðan yrði málið lagt fyrir stjórn KEA. Á síðasta ári var meðalstarfs- mannafjöldi KEA 948 og beinar launagreiðslur námu 1,007 millj- ónum króna. Hjá samstarfsfyrir- tækjum störfuðu að meðaltali 223 manns og beinar launagreiðslur til þeirra námu 360 milljónum króna. Alls námu beinar launa- greiðslur Kaupfélags Eyfirðinga og samstarfsfyrirtækja 1,367 milljónum króna, sem er 8% lækkun frá árinu 1989. óþh Erfiðleikar hjá Síldarverksmiðjum ríkisins: Stjóm SR leitar leiða til að brúa bilið Heildarvelta KEA á síðasta ári var 8,3 milljarðar og hafði aukist frá fyrra ári um 7,2%. Velta sam- starfsfyrirtækja var 1,7 milljarð- ur, sem er 12% lækkun frá árinu 1989. Um síðustu áramót voru eignir KEA samtals 6,959 millj- ónir króna. Skuldir voru hins vegar 4,350 mi'lljónir og eignir umfram skuldir 2,609 milljónir króna. Eigiðfj árhlutfall var 37,5%. Jóhannes Sigvaldason, for- maður stjórnar KEA, sagði í ræðu sinni á aðalfundinum að þrátt fyrir batnandi hag félagsins á síðasta ári mætti ekki líta fram hjá þeirri staðreynd að skuldir KEA væru óþægilega miklar. Því yrði áfram að gæta aðhalds f rekstrinum og grynnka á skuldunum. Hann sagði að ekki væru áformaðar stórar fjárfest- ingar hjá KEA á þessu ári. Stjórn Sfldarverksmiðja ríkis- ins hefur undanfarið rætt um leiðir til að brúa bilið í þeim erfiðleikum sem steðjað hafa að fyrirtækinu vegna loðnu- brestsins. Taprekstur var síðari hluta árs í fyrra, og loðnuveiði- bannið eftir síðustu áramót gerði myndina ennþá dekkri. Þorsteinn Gíslason, stjórnar- formaður SR, segir að fyrri hluta seinasta árs hafi verið rekstrar- hagnaður hjá SR, en dæmið snér- ist við síðari hluta ársins og á þessu ári. Erfiðleikar steðji óneitanlega að verksmiðjum SR eins og öðrum loðnuverksmiðj- um landsins. Eigandi SR, ríkis- sjóður, verði að greiða götu fyrir- tækisins með ríkisábyrgðum, þegar erfiðleikar sem þessir steðja að. Aðspurður hvort leggja ætti verksmiðju SR á Skagaströnd niður sagði Þorsteinn að varla væri hægt að ræða um að leggja neitt niður á þeim stað. Á Skaga- strönd starfar aðeins einn fastur starfsmaður við beinavinnslu, og engin loðna verið brædd þar í meira en tólf ár, því verksmiðjan var úrelt 1979, rétt eftir að hún hafði verið endurbyggð frá grunni. Fiskifræðingar höfðu sagt að loðnustofninn þyldi einnar og hálfrar milljóna tonna ársveiði, en það álit breyttist á byggingar- tímanum. Vegna eindreginna til- mæla stjórnvalda var verksmiðj- an aldrei gangsett eftir endur- byggingu. „Við erum að vinna að því að hægt verði að halda sjó með verksmiðjurnar að næstu loðnu- veiði. Lögin sem Síldarverk- smiðjur ríkisins starfa eftir eru löngu úrelt, við stefnum líka að því að ný lög verði sett en það tókst ekki að koma þeim gegnum Alþingi fyrir þingslit á dögun- um,“ sagði Þorsteinn Gíslason. EHB Glerárprestakall: Sr. Gunnlaugur Garðarsson Maut lögmæta kosningu Gunnlaugur Garðarsson, safn- aðarprestur í Garðabæ, var kosinn lögmætri kosningu í embætti sóknarprests í Glerár- prestakalli á kjörfundi sl. sunnudag. Átján kjörmenn greiddu atkvæði, níu aðalmenn í sóknar- nefnd og níu varamenn. Atkvæða- greiðslan var leynileg og stjórn- aði sr. Birgir Snæbjörnsson, pró- fastur Eyjafjarðarprófastdæmis, kosningunni. Aðrir umsækjendur um- Glerárprestakall voru sr. Flosi Magnússon, prófastur í Bíldudal, og sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í Ólafs- firði. Sr. Gunnlaugur er fæddur 3. janúar 1950, kvæntur Sigríði Halldórsdóttur, lektor í hjúkrun- arfræðum við Háskóla íslands. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1972 og guðfræðiprófi frá HÍ ári 1984. Einnig lagði hann stund á nám í sálarfræði og heimspeki við HÍ. Framhaldsnám í guðfræði stundaði hann við Vancouver School of Theology á árunum 1986-1988. Sr. Gunnlaugur var sóknar- prestur í Þingeyrarprestakalli árin 1984-1986 og starfi aðstoðar- prests í Garðaprestakalli hefur hann gegnt frá 1. september 1988. Af félagsstörfum sr. Gunn- laugs má nefna að hann hefur gegnt formennsku í Félagi brauð- lausra presta, Rauða-krossdeild Dýrafjarðarþinga og Æskulýðs- sambandi vestfirskra safnaða. Sr. Gunnlaugur Garðarsson mun væntanlega taka við starfi sóknarprests í Glerárprestakalli nálægt 1. júní nk. óþh Eyjaíjörðiir: Iitið sem ekkert af grásleppu „Netunum fjölgar ár frá ári og veiöin minnkar. Öfugþróunin er allsráöandi og í dag er lítiö sem ekkert af grásleppu í Eyja- firði,“ sagði Svavar Gunnþórs- son, sjómaður á Grenivík. Að sögn Svavars hófust grá- sleppuveiðar 10. mars sl. á svæð- inu frá Skagatá að Langanesi. Grenvíkingar bleyttu net strax og gaf, en afraksturinn er lítill sem enginn. Sömu sögu er að segja frá Dalvík, Ólafsfirði og Siglu- firði. „Okkur gengur illa. Hér er norðanstórhríð og bræla og útlitið ekki gott. Þetta er ræfill og öll net full af þara. Að vísu tók- um við upp örfá net í gær og af- raksturinn var 2’Á tunna. Nú fer besti veiðitíminn í hönd og því er þetta aðeins spurningin um veðr- ið á grásleppumiðum Grímsey- inga,“ sagði Óli B. Ólason, sjó- maður í Grímsey. ój

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.