Dagur - 09.04.1991, Side 6

Dagur - 09.04.1991, Side 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 9. apríl 1991 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), KÁRI GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍK/'°ÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Þriðja auðlindin Oft er talað um að íslenska þjóðin hafi aðeins yfir tveimur auðlindum að ráða. Annars vegar sé það líf- ríki hafsins í kringum landið sem fært hefur þjóðinni björg í bú frá því sögur fara af fyrstu byggð. Hins veg- ar sé það sú orka sem ýmist fellur fram af hálendi landsins í formi fallvatnanna eða leynist sem hiti und- ir yfirborði jarðar. Hvorug þessara auðlinda hefur ver- ið nýtt til hins ýtrasta. Þótt fiskistofnarnir í hafinu kringum landið séu takmarkaðir og skammsýni að auka veiðar frá því sem nú er þá höfum við möguleika á að auka verðmæti aflans sem við getum flutt að landi án þess að stofna auðlindinnni í hættu. Til þess þurfum við að beita vöruþróun og markaðsvísindum í auknum mæli frá því sem nú er gert. Til þess þurfum við á þekkingu að halda. Fallvötnin streyma áfram frá upptökum til ósa og þótt nokkuð af þeim hafi verið beislað á undanförnum árum og áratugum er langt í land að við höfum nýtt þá auðlind til nokkurrar fullnustu. Sömu sögu er að segja af hitanum í iðrum jarðar. Til þess að breyta þeirri orku, sem í jörðinni býr, í varning og þjónustumögu- leika þurfum við einnig á þekkingu að halda. Við verð- um bæði að kunna skil á því hvað við getum framleitt og fyrir hverja. Við verðum einnig að átta okkur á hvaða möguleika við eigum til að fá aðra aðila til sam- starfs þegar um stór verkefni er að ræða. Hver samn- ingur um framleiðslu er byggir á innlendri orku er skref á þeirri leið sem við verðum að varða á næstu árum og áratugum. En einn slíkur samningur, er að- eins áfangi í baráttu okkar til að nýta auðlindir landsins. Áfangi í baráttu sem við verðum sífellt að heyja. Baráttan fyrir nýtingu auðlindanna má ekki eiri- skorðast við sjávarfang og orkufrekan iðnað. Barátta okkar fyrir auðlegð þjóðarinnar á komandi tímum verður einnig að byggjast á þriðju auðlindinni sem við eigum á meðal vor. Þriðja auðlind þjóðarinnar og sú mikilvægasta er þekkingin sem með okkur sjálfum býr. Upplýsingar eru undirstaða allrar vitneskju. Við verðum því stöðugt að leita nýrra upplýsinga og þekkingar og vinna úr henni allt það sem okkur nýtist best á hverjum tíma. íslendingar hafa ekki efni á að hafna þriðju auð- lindinni. Þeir hafa öll tækifæri til að afla sér þekkingar, þróa hugmyndir og starfa sjálfir að sérfræðilegum við- fangsefnum. Slík vinna getur bæði orðið að útflutningsverðmætum ein og sér en einnig í formi þróaðra framleiðsluverðmæta. Fáir hafa oftar minnt á þriðju auðlindina en Stein- grímur Hermannsson, forsætisráðherra. Hann hefur haldið því fram hversu nauðsynlegt sé að efla og nýta þekkingu landsmanna til framfara og hagsældar á komandi tímum. í því felist auður þjóðarinnar meðal annars. Þriðja auðlindin er ekki eingöngu viðbót við hinar efnislegu auðlindir. Hún er einnig forsenda þess að okkur takist að hagnýta þær af þeirri skynsemi og hagkvæmni sem nauðsynlegt er ef við ætlum að ná því takmarki að efla hagvöxt og auka velsæld á íslandi á næstu árum. ÞI Fleiri verkeftii til sveitarfélaganna Alþingiskosningar eru nú á næsta leiti, og innan við eitt ár síðan sveitarstjórnarkosningar fóru fram. Stundum virðist fólk ekki alveg átta sig á að þessar tvennar kosningar eru sitt hvor hliðin á sama hlutnum, þ.e. ráða úrslitum um framkvæmdavald og löggjaf- arvald í landinu, hvorar á sinn hátt. Stundum kemur fram dap- urlegt skilningsleysi á þessum eðlistengslum, t.d. nýíega í útvarpsspjalli við kennara í grunnskóla á landsbyggðinni. f umræðum um stöðu „grunnskól- ans“ með breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga taldi kenn- arinn að alveg væri undir hælinn lagt hvort grunnskóli með sæmi- legu lagi væri starfræktur í sveit- arfélagi, þar sem forræði sveitar- stjórna um málefni skólans hefði aukist. Tónlistarskólakennarar tröllriðu Alþingishúsinu með sambærilega „visku“ á tímabili þegar lög um hina breyttu verka- skiptingu var þar til umræðu og afgreiðslu. í öllum tilvikum eru það fulltrúar okkar, kosnir í beinum, leynilegum, lýðræðisleg- um kosningum, sem stjórna hlutunum. Nokkrar breytingar áttu sér stað á íslenska stjórnkerfinu, þegar þessi breytta verkaskipting átti sér stað. Ein mikilvægasta forsenda breytingarinnar var aukin valddreifing, en það er hugtak sem allir telja sig styðja. Þegar svo á hólminn kemur, rísa upp ólíklegustu postular, ekki síst úti á landi, sem halda því fram að sveitarstjórnunum sé ekki treystandi fyrir verkefnun- um, og því verði ríkið að sjá um þau áfram. Þó svo talsvert hafi áunnist í að afmarka verkefni sveitarfélaga annars vegar og ríkisins hins veg- ar er nauðsynlegt að sest verði niður og listinn skoðaður með raunverulega valddreifingu í huga. Tveir stærstu málaflokk- arnir, sem nú eru á verkefnalista ríkisins, en ,ættu með tilliti til valddreifingarsjónarmiðs, að vera í forsjá sveitarfélaga eru skólakerfi (nema háskólar og sér- skólar) og grunnheilbrigðiskerfi landsins. Grunnskólarnir eru nú reknir af sveitarfélögunum, nema hvað laun kennaranna (þar með taldir skólastjórarnir) koma úr ríkis- sjóði. Það þýðir auðvitað, að þeir Guðmundur Sigvaldason. heyra undir ráðuneytismenn. Mikil nauðsyn er, að kennara- launin séu greidd af sveitar- félögunum, því að augljóst er óhagræðið fyrir skólana af því að hafa tvo húsbændur. Þó að sam- búðin gangi yfirleitt vandræða- „Þeir sem hafa áhyggjur af því að ann- ar hvor aðilinn sé betri en hinn, ríki og sveitar- félög, í að sjá fyrir til- teknum málaflokkum, eru búnir að stein- gleyma því, að það líða aldrei meira en fjögur ár milli kosninga til sveitarstjórna annars vegar og Alþingis hins vegar.“ laust, eru til dæmi um hið gagn- stæða. Og jafnvel þótt allir aðilar séu allir af vilja gerðir, getur ver- ið vandkvæði á því að skólastjóri virði þá fjárhagslegu ábyrgð, sem hann verður að bera gagnvart sveitarstjórninni vegna reksturs skólans. Mikilvægur þáttur í nýju verkaskiptingunni frá 1989 var að forræði heilsugæslustöðva færðist alveg yfir til ríkisins í stað þess að vera tvískipt, eins og nú er í grunnskólanum. Hins vegar hefðu heilsugæslustöðvar, vegna valddreifingarsjónarmiða, átt að færast alfarið til sveitarfélaganna. Hið sama hefði átt að gerast með sjúkrahús, a.m.k. þau ódeildar- skiptu. Það sjónarmið, að heilsu- gæslustöðvar og sjúkrahús, vegna samreksturs víða, þurfi að vera undir sama hatti (þ.e. ríkisins), ristir grunnt. Ekki var það sjón- armið látið gilda um grunnskól- ann og víða færðust skilin í þess- um málaflokki bara til, þar sem í sömu byggingunni er heilsu- gæslustöð, sjúkrahús og dvalar- heimili (eða hjúkrunarheimili) aldraðra, en málefni aldraðra eru áfram á vettvangi sveitarfélag- anna (sem betur fer). Þeir sem hafa áhyggjur af því að annar hvor aðilinn sé betri en hinn, ríki og sveitarfélög, í að sjá fyrir tilteknum málaflokkum, eru búnir að steingleyma því, að það líða aldrei meira en fjögur ár milli kosninga til sveitarstjórna annars vegar og Alþingis hins vegar. Með fullri virðingu fyrir Alþingi og Stjórnarráði íslands, er það mín skoðun, að það ætti að vera kappsmál þeirra sem vinna við opinbera þjónustu og vilja veg sinnar stofnunar sem mestan, hvort sem þeir eru kenn- arar eða eitthvað annað, að þeir heyri frekar undir sveitarstjórn- ina heldur en Fjárlaga- og hag- sýslustofnun ríkisins. Fyrir utan hvað miklu styttra er til sveitar- stjórnarmannanna, að þá er margfalt meira samband milli árangurs stofnunarinnar í starfi og þess aðbúnaðar sem henni er skapaður, þegar heimafólkið kýs þá sem um hana eiga að fjalla, heldur en þegar stofnunin heyrir undir menn sem eru kosnir af öllu landinu, með öllum þeim áherslum sem þar er að finna. Á sama hátt er það íbúunum, sem eiga að njóta þjónustunnar, fyrir bestu að heimamennirnir stjórni þjónustustofnununum. Kjósum þá til Alþingis, sem vilja meiri valddreifingu og fleiri verkefni til sveitarfélaganna. Kjósum þá næst í sveitarstjórnir sem þora að takast á við mörg þau verkefni, sem ríkið fjallar um núna, en láta sér ekki nægja brauðmolana. Lækkum tekju- skattinn, hækkum útsvarið. Guðmundur Sigvaldasun. Höfundur er framkvæmdastjóri Heilsu- gæslustöðvarinnar á Akureyri. 100 ár liðin frá fæðingu Björgvins Guðmundssonar: Aldarafmælis tónskáldsins minnst með veglegum hætti í ár minnast Akureyringar þess að öld er liðin frá fæðingu Björgvins Guðmundssonar tónskálds en hann hefði orðið 100 ára 26. apríl. Þessara tíma- móta verður minnst með marg- víslegum hætti og boðaði Ing- ólfur Ármannsson, menning- arfulltrúi, til blaðamannafund- ar af því tilefni. Fram kom á fundinum að menningarsjóður bæjarins mun standa að útgáfu á kynningarriti um Björgvin Guðmundsson. Sverrir Pálsson, fyrrv. skóla- stjóri, hefur urfisjón með þessu riti. Hann sagði að meginefni bæklingsins yrði ritgerð Jóns Þór- arinssonar um tónskáldið Björg- vin og sjálfur tekur Sverrir saman grein um dvöl og störf Björgvins á Akureyri. Þá eru kynntir þeir viðburðir sem í boði verða í tilefni afmælisíns. Kór Glerárkirkju ríður á vaðið með tónleikum í Akureyrar- kirkju 14l; apríl næstkomandi. Þar mun kórinn, ásamt einsöngv- urum og hljóðfæraleikurum, flytja verk eftir Björgvin og einnig Áskel Jónssön sem varð áttræður 5. apríl. Dagana 24.-2þ; apríl mun Leikfélag Akureyrar sýna Skrúðsbóndann eftir Björgvin í nýrri leikgerð Jóns St. Kristjáns- sónar í sarhvinnu við Kór Akur- eyrarkirkju. Uppfærslan er liður í Kirkjulistaviku í Akureyrar- kirkju. Kammerhljómsveit Akureyrar ræðst í það stórvirki að flytja Strengleika og verður þetta í fyrsta sinn sem þetta mikla verk Björgvins er flutt í fullri lengd. Verkið er fyrsta íslenska óratorí- an og hefur Roar Kvam útsett hána fyrir hljómsveitina, kór og einsöngvara. Tónleikarnir verða í Skemmunni 2. júní. Nánar verður greint frá þess- um viðburðum síðar en á fundin- um kom einnig fram að hug- myndir væru uppi um að tengja einsöngstónlist og upplestur úr verkum Björgvins í dagskrá sem flutt yrði í Minjasafninu í maí. SS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.