Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 7

Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 9. apríl 1991 - DAGUR - 7 Almennur fundur framsóknarmanna á Akureyri: „Kosið um stöðugleikann og for- ystuhlutverkið að kosningum loknum“ - segir Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra Frá fundinum í Alþýðuhúsinu á sunnudaginn. Guðmundur Bjarnason, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Steingrímur Hermannsson, Guðmundur Stefánsson og .Valgerður Sverrisdóttir. Framsóknarmenn á Norður- landi eystra héldu opinn fund í Alþýðuhúsinu á Akureyri á sunnudag, þar sem Steingrím- ur Hermannsson, forsætisráð- herra og formaður Framsókn- arflokksins, var aðalræðumað- ur. Brandarakarlinn úr Reykjavík Steingrímur hóf mál sitt á þessum orðum: „Ég hringdi norður á dögunum til að fá fréttir af fundi Davíðs Oddssonar hér á Akur- eyri. Viðmælandi minn sagði: „Þú meinar brandarakarlinn úr Reykjavík?“ Nei, sagði ég. Ég meina formann Sjálfstæðisflokks- ins. Það varð löng þögn hinum megin á línunni og ég fékk reynd- ar ekkert meira upp úr þeim manni. Ég hlustaði síðan á það í Ríkis- sjónvarpinu nokkrum dögum síð- ar að fréttir af fundi Davíðs á ísa- firði yrðu fluttar í seinni fréttum Sjónvarpsins það kvöld, svo ég horfði á þær. Fréttamaðurinn á ísafirði var að því spurður hvað helst hefði komið fram í ræðu formanns Sjálfstæðisflokksins. Það varð smáþögn en síðan sagði hann að eiginlega hefði ekkert komið fram í ræðunni en ýmis- legt í svörum við fyrirspurnum fundarmanna. Meðal annars það að Sjálfstæðisflokkurinn hefði enga sjávarútvegsstefnu. „Hér sjáið þið skúrkinn“ Ég var síðan á ísafirði í gær (laugardag) og þar fékk ég nú besta lýsingu á fundi formanns Sjálfstæðisflokksins. Þar stóð upp ágæt kona sem Ingibjörg heitir, Malmquist, og flutti nokkra tölu og lýsti m.a. ræðu Davíðs á fyrrnefndum fundi. Hún sagði að það sem markverð- ast hefði verið í ræðunni hefðu verið brandarar og,, grín um Steingrím Hermannáson. Og hér sjáið þið skúrkinn," sagði Stein- grímur m.a. við góðar undirtektir fundarmanna/ Vildi gjarnan mæta Davíð á opnum fundi Steingrímur sagðist viðurkenna að hann treysti sér ekki til að segja brandara til jafns við Davíð Oddsson en hann treysti sér til að keppa við hann á öllum sviðum stjórnmálanna og væri meira en tilbúinn til þess, fengi hann til þess tækifæri, Því miður virtist honum þó sem hann fengi ekki að mæta Davíð í rökræðum í yfir- standandi kosningabaráttu. „Ég er hins vegar þannig gerð- ur að ég hef aldrei tamið mér að ræða um andstæðinga mína í stjórnmálum, þegar þeir eru fjar- verandi. Þannig að þið skuluð ekki búast við að ég fari neinum háðsyrðum um Davíð Oddsson hér. Ég hef þvert á móti boðið hann velkominn til leiks. Ég veit að ég stenst honum ekki snúning í brandaratilbúningi en á öllum öðrum sviðum skora ég hann í keppni. Meðal annars vildi ég mjög gjarnan fá að hitta hann einhvers staðar á opnum fundi en það tekst ekki að því er virðist." Með krosslagðar hendur Steingrímur sagði að hann hefði oft heyrt þeirri skoðun haldið fram að undanförnu að Sjálf- stæðisflokkurinn ætlaði í gegnum þessar kosningar með krosslagð- ar hendur eða hendur í vösum og hann hefði ekki trú á að það boð- aði gott í íslenskri pólitík. Steingrímur kom víða við í klukkustundar langri ræðu sinni. Hann gerði grein fyrir helstu verkefnum núverandi ríkisstjórn- ar og þeim árangri sem hún hefði náð. Hann gerði einnig grein fyr- ir helstu verkefnum sem biðu nýrrar ríkisstjórnar. Varðveisla stöðugleikans og afstaðan til EB Steingrímur taldi að í komandi kosningum yrði aðallega tekist á um tvennt. Hvort varðveita ætti þann stöðugleika sem tekist hefði að skapa í efnahagslífinu og hvaða afstöðu ísland ætti að taka gagnvart Efnahagsbandalagi Evrópu. Hann minnti á að innan Sjálfstæðisflokksins væru mjög skiptar skoðanir um þá hugmynd sem lægi að baki þjóðarsáttinni. Þá væri stefna sjálfstæðismanna í Evrópumálunum mjög óljós og talsmenn flokksins slægju ýmist úr eða í. Sömu sögu væri að segja af Alþýðuflokknum í því máli. Á hinn bóginn væri stefna Fram- sóknarflokksins mjög skýr og ótvfræð: Aðild íslands að EB kæmi ekki til greina. Kosið um forystu- hlutverkið Guðmundur Bjarnason, heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra og efsti maður B-listans í Norðurlandskjördæmi eystra tók í sama streng og forsætisráðherra í ávarpi sínu. Hann sagði að komandi kosningar myndu aðal- lega snúast um atvinnulífið- og áfrarrihaldandi uppbyggingu þess, til að treysta okkar velferð- arþjóðfélag og velferðarkerfi, sem við viljum standa vörð um. Hitt atriðið sem kosið verður um er forystuhlutverkið í íslenskum stjórnmálum. Hverjum á að fela forystuhlutverkið að kosningun- um loknum? Verður það áfram í höndum Framsóknarflokksins og formanns hans, Steingríms Her- mannssonar, forsætisráðherra og hans samstarfsmanna, eða á að fela Reykjavíkuríhaldinu, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú sett til öndvegis og forystu í sín- um flokki, að leiða þjóðina að loknum kosningum? Um þetta tvennt snúast þessar kosningar,“ Guðmundur Bjarnason. Frjálshyggja í stað stöðugleika? Guðmundur sagði að ef Fram- sóknarflokkurinn yrði ekki áfram forystuafl í íslenskum stjórnmál- um myndi óheft frjálshyggja taka við af stöðugleikanum f efna- hagslífinu, með tilheyrandi þenslu og verðbólguholskeflu. Ef itil vill tæki auðlindaskattur á sjávarútveginn við af kvótakerf- inu, það vissi enginn því sjávarút- vegsstefna Sjálfstæðisflokksins væri „enn sem komið er óútfyllt eyðublað. Þá fyrst flytjum við sjávarútveginn í hendur þeim aðilum sem hafa mesta fjár- muni,“ sagði Guðmundur Bjarnason. „Valið er auðvelt“ Jóhannes Geir Sigurgeirsson, sem skipar 3. sæti B-listans í Norðurlandskjördæmi eystra, bar saman yfirlýst stefnumið Framsóknarflokks annars vegar og Sjálfstæðisflokks hins vegar í helstu málaflokkum og komst að þeirri niðurstöðu að Sjálfstæðis- flokkurinn hefði mjög óljósa stefnu í veigamestu málaflokkun- um. Síðan sagði hann: „Þessar kosningar snúast í raun um það hvort við ætlum að veita Davíð Oddssyni, Friðriki Sopussyni og Birni Bjarnasyni, þremur efstu mönnum á lista flokksins í Reykjavík umboðið til að stýra þessu landi næstu fjögur árin, eða hvort það eiga að vera Steingrímur Hermannsson, Hall- dór Ásgrímsson og Guðmundur Bjarnason. Fyrirokkur, kjósend- ur á landsbyggðinni hlýtur valið að verða auðvelt.“ BB.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.