Dagur - 09.04.1991, Side 9

Dagur - 09.04.1991, Side 9
teer ihqe .e iuestnui6h*í - rudaq - a Þriðjudagur 9. aprrl 1991 - DAGtíR -9 Skíðamót íslands á ísafirði: Akureyringar hlutu 25 verðlaun - þar af 7 gullverðlaun Það er óhætt að segja að Akureyringar hafí verið í sviðsljósinu á Skíðamóti íslands sem lauk á ísafírði á laugardag. Þeir unnu 25 verð- laun af 45 á mótinu, þar af 7 gullverðlaun. Yaldemar Valde- marsson sigraði i svigi og alpa- tvíkeppni karla, Guðrún H. Kristjánsdóttir sigraði í sam- hliðasvigi kvenna, Haukur Ei- ríksson sigraði í 15 km göngu karla og göngutvíkeppni og Rögnvaldur Ingþórsson í 30 km göngu karla. Þá sigraði sveit Akureyrar í 3x10 km boð- göngu. Norðlendingar hlutu ein gullverðiaun til viðbótar en þau komu í hlut Kristins Björnssonar frá Ólafsfírði sem sigraði glæsilega í stórsvigi karla. Ef byrjað er á alpagreinunum þá hefur þegar verið sagt frá glæsilegum sigri Kristins í stór- sviginu. Hann hafði síðan lang- besta tímann eftir fyrri ferð í sviginu en krækti í hlið snemma í seinni ferðinni og féll úr leik. Valdemar Valdemarsson hafði 6. besta tímann eftir fyrri ferð í sviginu en keyrði seinni ferðina mjög vel og vann sigur sem fáir bjuggust við eftir fyrri ferðina. Athygli vakti stórgóð frammi- staða „gömlu“ kempunnar Daní- els Hilmarssonar frá Dalvík sem varð þriðji í svigi og alpatví- keppni þrátt fyrir að hafa lítið æft síðustu ár. Frábært hjá Ástu ' í kvennaflokki gerði ísfirðingur- inn Ásta Halldórsdóttir sér lítið fyrir og sigraði í svigi, stórsvigi og þar með alpatvíkeppni. Guðrún H. Kristjánsdóttir mátti sætta sig við annað sætið í svigi og stór- svigi eftir að hafa haft forystu eft- ir fyrri ferð í báðum greinum. Hún fékk ^síðán uppreisn æru með því að sigra í samhliðasvigi síðasta daginn. María Magnús- I dóttir hafnaði í þriðja sæti í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni. Yfírburðir Akureyringa í göngunni Haukur Eiríksson vann góðan sigur í 15 km göngu eins og kom fram í föstudagsblaðinu en hann réði ekki við Rögnvald Ingþórs- son í 30 km göngunni. Rögnvald- ur gekk þá göngu mjög vel og sigraði örugglega þrátt fyrir góð- an endasprett Hauks. Það kom þó ekki í veg fyrir að Haukur sigraði í tvíkeppni. Þeir félagar áttu síðan ekki í vandræðum með að tryggja sér sigur í boðgöngunni ásamt Krist- jáni Ólafssyni. í flokki göngu 17-19 ára var ísfirðingurinn Daníel Jakobsson í algerum sérflokki og sigraði hann með miklum yfirburðum á báðum vegalengdum og í tví- keppninni. Kristján Ölafsson varð annar í 15 km göngunni og tvíkeppninni en mátti sætta sig við þriðja sætið í 10 km göngu. Skíðagöngumennirnir Haukur Eiríksson og Rögnvaldur Ingþórsson voru í sérflokki á mótinu. Haukur krækti í 3 gull og Rögnvaldur 2. Mynd: kl íslandsmeistarar KA í blaki 1991. Efri röð frá vinstri: Arngrímur Arngrímsson, Stefán Magnússon, Þröstur Frið- flnnsson, Hafsteinn Jakobsson, Sigurður Arnar Olafsson og Huo Xiao Fei, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Magnús Aðalstcinsson, Bjarni Þórhallsson, Haukur Valtýsson, fyrirliði, og Oddur Olafsson. Mynd: -bjb Blak: KA-menn luku þátttöku sinni í 1. deild karla í blaki meö tveimur sigrum á útivelli um helgina. A föstudagskvöidið sigruðu þeir HK 3:1 en þessi lið mætast einmitt í úrslitaleik bikarkeppninnar um næstu helgi. Daginn eftir unnu KA- menn síðan öruggan 3:0 sigur á Fram og fengu afhentan bikar- inn fyrir sigur á Islandsmótinu að þeim leik loknum. KA-menn unnu fyrstu hrinu gegn HK 15:9 en töpuðu þeirri næstu 10:15. Þeir komust yfir 15:12 og tryggðu sér síðan sigur- inn með 16:14 sigri í síðustu hrinu. „Þeir áttu góðan leik, vörðu vel aftur á vellinum og börðust vel. Þeir eru frekar lágvaxnir þannig að blokkin hjá okkur var þokkaleg en móttakan hins vegar léleg. Ég er hóflega bjartsýnn á bikarleikinn. Það ríkir önnur stemmning í kringum þessa bikarleiki og taugaveiklunin er oft mikil. HK hefur aldrei spilað úrslitaleik en við höfum spilað tvo og tapað báðum. Við stefnum auðvitað að tvöföldum sigri og höfum undirbúið okkur í sam- ræmi við það. En leikurinn byrjar 0:0 og því betra að vera bara hóf- lega bjartsýnn," sagði Haukur Valtýsson, fyrirliði KA. Leikur Fram og KA var heldur rislítill og KA-menn áttu í hálf- gerðu basli þrátt fyrir að þeir ynnu 3:0. Úrslitin í hrinunum urðu 16:14, 15:9 og 15:12. Handknattleikur: KA-menn misnotuðu íjögur vítaköst - er þeir gerðu jafntefli 17:17 við Fram KA-menn eru enn efstir í fall- keppni 1. deildar í handknatt- leik eftir jafntefli gegn Fram, 17:17, í Laugardalshöll á sunnudagskvöld. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og var jafn allan tímann. Stað- an í hléi var 7:7. KA-menn voru fyrri til að skora allan fyrri hálfleikinn en Framarar náðu alltaf að jafna. Fram byrjaði síðan betur í seinni hálfleik og náði þriggja marka forystu og staðan um miðjan hálfleikinn var 15:12. KA-menn skoruðu þá þrjú næstu mörk og í lokin var hart barist. KA-menn fengu síðustu sókn leiksins þegar staðan var 17:17 og eftir langa sókn skaut Hans Guðmundsson á markið á síðustu sekúndunum en Guðmundur A. Jónsson, mark- vörður Fram, varði og jafnteflið var staðreynd. Það sem gerði gæfumuninn í leiknum var að KA-menn mis- notuðu fjögur vítaköst. Þrjú varði Guðmundur og eitt fór framhjá markinu. Annars var leikurinn ekki áferðarfallegur, harkan í fyrirrúmi enda hvert stig dýrmætt í fallbaráttunni. Bestir KA-manna voru Axel Stefánsson í markinu og Hans og Erlingur sem voru drjúgir í seinni hálfleik. Hjá Fram var Guðmundur í markinu bestur, varði 14 skot, þar af þrjú víti. Karl Karlsson og Gunnar Andrésson áttu einnig ágætan leik. -bjb Mörk KA: Hans Guðmundsson 7/1, Er- lingur Kristjánsson 3, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 3, Pétur Bjarnason 2, Andrés Magnússon 2. Mörk Fram: Karl Karlsson 5/2, Gunnar Andrésson 4, Jason Ólafsson 3, Páll Þór- ólfsson 2, Andri V. Sigurðsson 2, Egill Jóhannesson 1. Dómarar: Grétar Vilmundarson og Ævar Sigurðsson. Voru slakir. Þorsteinn Jónsson. Knatt-spyrna: Þorsteinn til Færeyja Þorsteinn Jónsson úr Þór hef- ur verið valinn í landslið 21 árs og yngri í knattspyrnu sem fer til Færeyja um næstu helgi. Leiknir verða tveir leikir í ferðinni, annar gegn eyjaúrvali skipuðu 21 árs leikmönnum og yngri en hinn gegn A-landsliði Færeyinga. KA-menn enduðu á tveimur sigrum

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.