Dagur - 09.04.1991, Qupperneq 13
+
■-+
Vígslubiskupskjör í Hólastifti:
Allir í kjöri - einnig séra Þórhallur
í laugardagsblaði Dags var frétt
um vígslubiskupskjör, og vitnað
til orða séra Hannesar Arnar
Blandon þar sem hann lýsir þeirri
skoðun sinni að séra Þórhallur
Höskuldsson, sóknarprestur á
Akureyri, sé hæfastur í embætt-
ið. Skorar hann á séra Þórhall að
láta frá sér heyra um þetta mál.
Blaðið innti séra Þórhall eftir því
hvort hann gæfi kost á sér í
embætti vígslubiskups.
„Ég vil í fyrsta lagi þakka hlý
orð og það traust sem mér er sýnt
í þessum tilvitnuðu orðum. Þeim
sem hafa spurt mig persónulega
hef ég svarað því til að ég myndi
taka kjöri, yrði ég til þess valinn.
Ég teldi það skyldu mína, og tel
að það myndu flestir gera sem
stæðu i þeim sporum. En vegna
eðlis embættisins finnst mér síst
við hæfi að menn beiti sér fyrir
eigin kjöri, eða setji á fót ein-
hverskonar kosningabaráttu. Ég
hef hins vegar gert þeim sem hafa
nefnt mitt nafn Ijóst, að verði ég
til kvaddur muni ég beita mér
fyrir því að gera þetta embætti að
alvöru biskupsembætti, og þá á
ég við að ég er ekki tilbúinn að
setjast í helgan stein sem sóknar-
prestur Hólaprestakalls og gleðj-
ast þar af vígslubiskupstitlinum
einum saman. Ég er m.ö.o. ekki
sáttur við stöðu vígslubiskups-
embættisins, eins og því hefur
verið sniðinn stakkur með nýlegri
löggjöf og drögum að reglugerð
sem nú liggur fyrir, en þar er
þetta embætti lítið annað en
nafnið eitt. Og ég veit heldur
ekki hvers sóknarbörnin þar
vestra eiga að gjalda, að fá ekki
að standa eins að vígi gagnvart
því að velja sér prest og aðrir!“
- Ertu þá ekki tilbúinn til að
setjast að á Hólum?
„Jú, embættið er nú bundið við
sóknarprestsstarf í Hólapresta-
kalli, svo að sá sem tekur við því
verður að sjálfsögðu að hlíta
þeirri búsetu. Og ég vil veg Hóla
sem mestan. En staðsetningin er
ekki markmið í sjálfu sér heldur
velferð prestanna og þeirrar
hjarðar sem biskupinn á að
þjóna. Það hefur verið baráttu-
mál okkar margra um árabil, og
er að okkar dómi nauðsynlegt
fyrir kirkjuna, að efla biskups-
embættið út af fyrir sig, og það
teljum við aðeins unnt að gera
með því að fjölga biskupum og
skapa þeim þannig aðstöðu að
þeir geti sinnt sinni helgu þjón-
ustu, sinnt söfnuðunum og prest-
unum án þess að vera bundnir við
prestsþjónustu um leið og þar
með viðveruskyldu á ákveðnum
stöðum.“
- Nú hefur heyrst að þú gefir
ekki kost á þér.
„Já, ég hef heyrt það sjálfur en
sú „frétt“ er ekki frá mér komin.
Ég hef hins vegar ekki gengið
fram fyrir skjöldu sjálfur og leit-
að eftir stuðningi og á erfitt með
að skilja að nokkur geti litið sjálf-
an sig rétt borinn til þessa
embættis. Það vill líka svo vel til
að löggjafinn hefur hingað til
hlíft kirkjunni við því að heyja
kosningabaráttu að hætti stjórn-
málanna, og gerir hvorki ráð fyrir
að menn sæki um eða bjóði sig
fram til þessara embætta, né
heldur að tilskilinn hóp með-
mælenda þurfi til að bera fram
biskupsefni. Allir sem hafa rétt til
að taka við prestsembætti í þjóð-
kirkjunni eru í kjöri og ekki
aðeins í Hólastifti. Én það er aft-
ur á móti takmarkaður hópur
sem er trúað fyrir því að velja
biskupsefni með leynilegri
atkvæðagreiðslu. Og þeim hópi á
að treysta til verksins, enda er
líka gert ráð fyrir fleiri en einni
umferð, nema niðurstaða sé strax
óyggjandi. Fyrsta umferð á að
þjóna því hlutverki að vera eins-
konar prófkjör, og síðan skal
kjósa á milli þeirra sem fá flest
atkvæði. Það er svo annað mál
hvort menn virða þessar leikregl-
ur eða hvort þær eru raunhæfar,
en ég vil halda mig við þær.“
- Hverjir mynda þennan trún-
aðarhóp, sem þú talar um?
„Það eru þjónandi prestar og
nokkrir sérstaklega kjörnir leik-
menn í stiftinu. En þar að auki
hafa biskup íslands og fráfarandi
vígslubiskup fengið kosningarétt
með sérstakri reglugerð sem gef-
in var út fyrir þetta vígslu-
biskupskjör, og það kom mér og
fleirum mjög á óvart. Ég tel það
ekki aðeins ganga gegn almennri
venju að fela þeim embættum
þátttökurétt í kjöri heldur stang-
ast líka á við þann embættisskiln-
ing að biskupsembættið sé hirðis-
starf, og að köllum til þessa starfs
eigi að koma gegnum þá hjörð
sem biskupinn á að þjóna eða
fulltrúa hennar, en ekki frá
öðrum. Það gegnir öðru máli
með fráfarandi vígslubiskup ef
hann er um leið þjónandi sóknar-
prestur og eðlilegt að kosninga-
réttur hans markist af því. En ég
tel ekki eðlilegt að menn geti í
krafti embætta sinna hlutast til
um val eftirmanna. Við erum
ekki að velja stjórn í fyrirtæki.
Við erum að kalla til þjónustu-
embættis í kirkju Krists. Og
„Leyfið kirkjunni að vera kirkju"
er heiti á nýútkominni bók eftir
norskan biskup. Þau orð eiga við
hér og tala skýru máli,“ sagði
séra Þórhallur. EHB
Nýtt sölufyrirtæki
fyrir Póls-vörur
Stofnað hefur verið fyrirtækið
Eltak hf. í Reykjavík, sem
mun annast sölu og þjónustu á
Póls-vörum hérlendis. Eigend-
ur þess eru þrír fyrrum starfs-
menn sölu- og þjónustudeildar
Póls-Tækni hf. í Reykjavík.
Eins og kunnugt er varð Póls-
Tækni hf. á ísafirði gjaldþrota í
lok desember sl. og í framhaldi af
því stofnuðu 11 fyrrum starfs-
menn þess á ísafirði nýtt fyrir-
tæki, Póls-Rafeindavörur hf., og
keyptu rekstur þrotabúsins. Þá
hafax fyrirtæki á Vestfjörðum
ásamt Byggðastofnun gerst hlut-
nafar.
Eltak hf. mun sjá um sölu og
þjónustu á Póls vogum og tækj-
um á öllu landinu nema Yest-
fjörðum. Hilmar Sigurgíslason
og Guðmundur Kristinsson
munu sjá um þjónustu og Jónas
Ágústsson um sölu. Eltak hf. er
til húsa að Síðumúla 23 í Reykja-
vík.
Nú hafa verið framleiddar um
2500 Póls vogir, sem notaðar eru
bæði á landi og sjó í löndum víðs-
vegar um heiminn. Þar af eru í
Stárfsmenn og eigendur Eltaks hf. Frá vinstri: Jónas Ágústsson, Guðmundur
Kristinsson og Hilmar Sigurgíslason.
notkun hér innanlands um 1500 tækjum í ýmsum starfsgreinum.
vogir og tæki hjá yfir 400 fyrir- (Fréttaiilkynning).
O? sem VIT
Þriðjudagur 9. apríl 1991 - DAGUR - 13
Byggðastofnun
Fyrirtæki í rækjuvinnslu
Byggðastofnun hefur verið falið að endurlána
fyrirtækjum í rækjuvinnslu erlent lán að upphæð
200 millj. kr. til fjárhagslegrar endurskipulagn-
ingar.
Umsóknum um lán skal skila til Byggðastofnunar,
fyrirtækjadeild, Rauðarárstíg 25, 105 Reykjavík fyrir
1. maí 1991. Umsókninni skulu fylgja ársreikningar
fyrir árin 1988-90, uppreiknuð veðbókarvottorð,
brunabótamat fasteigna, tryggingarmat véla og
rekstraráætlun fyrir 1991 og 1992.
Norðurland eystra:
Kosningaskrifstofur llll
Framsóknarflokksins
Aðaiskrifstofa
Hafnarstræti 90, Akureyri,
opið alla virka daga
kl. 9-22.
Símar: 21180 - 26054 - 26425.
Kosningastjóri:
Sigurður P. Sigmundsson.
Verið velkomin í súpu og brauð í hádeginu. Frambjóðend-
ur á staðnum.
Dalvík:
Skrifstofan, Hafnarbraut 5, verður opin alla virka daga kl.
20-22. Sími 96-63191. Kosningastjóri: Óskar Pálmason.
Húsavík:
Skrifstofan, Garðarsbraut 5, verður opin alla virka daga kl.
20-22. Sími 96-41225. Kosningastjóri: Ævar Ákason.
Stuðningsmenn B-listans
* Við minnum á að utankjörstaðaatkvæðaqreiðslan er
hafin.
* Hafið samband við kosningaskrifstofuna og takið þátt í
kosningastarfinu.
Framsóknarflokkurinn.
i