Dagur - 09.04.1991, Page 15
reer I'nqu .6 iu9Bbut6ii«! - FIUDAQ - k
Þriðjudagur 9. apríl 1991 - DAGUR - 15
Formannaskipti hja Landvara
- félagsmenn vona að senn verði bundinn endir á
flutningastarfsemi utanfélagsmanna
Á aðalfundi Landvara, landsfé-
lags vörubifreiðaeigenda á flutn-
ingaleiðum, sem haldinn var 9.
mars sl., var Halldór Brynjólfs-
son, Borgarnesi, kosinn formaður
félagsins.
Halldór er deildarstjóri bif-
reiða- og fóðurvörudeildar KB í
Borgarnesi. Hann hefur setið í
stjórn Landvara sl. fjögur ár og
er Halldór því vel kunnugur
málefnum félagsins.
Magnús Svavarsson, Sauðár-
króki, hefur sl. tvö ár verið for-
maður Landvara og voru honum
þökkuð góð störf fyrir félagið.
Gunnar Árnason, Akureyri og
Sigurgeir Aðalgeirsson, Húsavík,
voru endurkjörnir í stjórn félags-
ins, en tveir nýir félasmenn taka
nú sæti í stjórn Landvara í fyrsa
sinn, en þeir eru Rúnar Gunnars-
son, Neskaupstað og Birgir Ingva-
son, Ólafsvík.
Endurskoðendur Landvara voru
kosnir Magnús Svavarsson,
Sauðárkróki, og Óskar Jónsson,
Dalvík.
Samgönguráðherra
meömæltur starfsvernd
„í ávarpi Steingríms J. Sigfússon-
ar, samgönguráðherra, á aðal-
fundinum kom fram að ráðherra
telur mikilvægt að finna ein-
hverja lausn á því óöryggi sem
félagsmenn Landvara búa við
varðandi óeðlilega samkeppni á
flutningaleiðum sínum.
í samgönguráðuneytinu liggur
fullmótað frumvarp til laga um
vöruflutninga á landi, sem ráð-
herra hefur ekki enn kynnt á
alþingi, en í því frumvarpi eru
lagðar vissar hömlur á það, að
einstaklingur eða félag geti farið
að bjóða almenna vöruflutninga
á leiðum, þar sem þegar er full-
komin þjónusta til staðar og rek-
in af ábyrgum Landvarafélaga.
I frumvarpinu er gert ráð fyrir
því að Landvari verði umsagnar-
aðili um nýja flutningsaðila gagn-
vart ráðuneyti og viðkomandi
sveitarstjórn.
Landvaramenn fagna þessari
afstöðu ráðherra og binda miklar
vonir við að fljótlega verði endir
bundinn á það óviðunandi rekstr-
arumhverfi sem þeir hafa búið
við í þessum efnum. Reynslan
hefur Ifka sýnt að flutningastarf-
semi utanfélagsmanna, hefur til
lengri tíma litið, eingöngu spillt
fyrir eðlilegri uppbyggingu þjón-
ustu á flutningaleiðum og í reynd
skapað óöryggi og skaða fyrir þá
sem á flutningana treysta og við-
komandi sveitarfélög.
Bundið slitlag komið á
2.350 km
í fróðlegu erindi Helga Hall-
grímssonar, aðstoðarvegamála-
stjóra á aðalfundi Landvara kom
fram að Vegagerðin miðar nú við
11,5 tonna burðarþol á öxul við
endurbyggingu vegakerfisins, en
ljóst er að heimild til að aka með
þessum þunga á flutningaleiðum
á enn langt í land.
í árslok 1990 var bundið slitlag
komið á 2.350 km, en fyrir 10
árum voru einungis 359 km lagðir
bundnu slitlagi. Hjá Vegagerð-
inni er nú forgangsverkefni að
leggja bundið slitlag á allár
stofnbrautir og þjóðbrautir með
100 bíla umferð á dag eða meira.
Fram til 1994 verða stærstu
verkefni Vegagerðarinnar að
leggja nýjan veg og brú á Mark-
arfljót, nýjan veg og brú á Dýra-
fjörð, Vesturós Héraðsvatna,
Breiðdalsá, fjarðarþverun, og
Öxnadalsheiði og Öxnadalur,
einnig er ráðgert að vinna við
vestfjarðagöng hefjast á þessu
tímabili. A árunum 1995-1998 er
ráðgert að vinna að brúun Kúða-
fljóts og Gilsfjarðar og vegar um
Búlandshöfða. Næstu verkefni
þar á eftir verða að líkindum
Skjálfandafljót, Jökulsá á Dal,
Jökulsá í Lóni og Austfjarða-
göng.
Landvari, Landfari
I erindi Aðalgeirs Sigurgeirsson-
ar á aðalfundinum kom fram að
við stofnun félagsins árið 1971
var fyrirhugað að nafn þess yrði
Landfari, en því miður var þá til
í Reykjavík félag með því nafni.
Effinu var þá breytt í vaff og til
varð Landvari.
Aðalgeir kom víða við í erindi
sínu og minntist margs frá upp-
hafsdögum félagsins og úr sögu
þess, m.a. sagði hann skemmti-
lega sögu um það hvernig lög um
Landflutningasjóð urðu til vorið
1979.
Félagsmönnum er bent á grein
Aðalgeirs á bls. 16 í Morgunblað-
inu laugardaginn 9. mars.
Þjónustunet Landvara um
allt Iandið
í erindi Guðmundar Arnaldsson-
ar, framkvæmdastjóra Landvara,
á aðalfundinum kom fram sú
framtíðarsýn að flutningafyrir-
tæki myndu stækka og leggja
meiri áherslu á markaðsstarfsemi
og þjónustu við innflytjendur og
framleiðslufyrirtæki. Þannig
myndu Landvaramenn í framtíð-
inni gera einn þjónustu- og vöru-
dreifingarsamning við aðila um
dreifingu á vörum hans í sameig-
inlegu flutninganeti um allt land.
Guðmundur taldi einnig að í
framtíðinni yrði einungis ein
vöruafgreiðsla Landvaramanna í
Reykjavík fyrir landið allt, því
greinin yrði að leita hámarkshag-
kvæmni í rekstri til að auka hlut-
deild sína í vöruflutningum um
leið og greinin þyrfti að vera sam-
keppnisfær í verðum.
Árshátíðin á Seltjarnarnesi
Árshátíð Landvara sem haldin
var í félagsheimilinu á Seltjarnar-
nesi tókst með afbrigðum vel.
Skemmtinefndin á hrós skilið fyr-
ir undirbúning hátíðarinnar. 227
miðar voru seldir á hátíðina og
skemmtu allir sér konunglega eft-
ir því sem sögur herma og menn
muna,“ segir í frétt frá Landvara.
Aðalfundur Osta- og smjörsölunnar:
Ostasala jókst um 39
tonn á síðasta árí
Aðalfundur Osta- og smjör-
sölunnar var haldinn fyrir
nokkru. A fundinum kom m.a.
fram að O.S.S. hefur hafið
samvinnu við Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins um fram-
leiðslu á lífefldri mjólk
(,,ekólógískri“).
Þá eru hafnar mælingar á áhrif-
um umhverfismengunar á osta-
og smjörframleiðslu hér á landi í
samvinnu við Rannsóknastofu
háskólans í lyfjafræði. Enn frem-
ur kom fram að nýir ostagámar
hafa dregið úr umbúða- og rýrn-
unarkostnaði og nýtt osta-
skurðartæki, sem hefur verið tek-
ið í notkun, jók enn frekar á hag-
ræðingu og vöruvöndun hjá
O.S.S. í fyrra.
Neysla fitusnauðra
mjólkurafurða vaxandi
Ostasala jókst um 39 tonn eða
1,5% á árinu 1990. Fór úr 2.668
tonnum í 2.707 tonn. Smjörsala
dróst saman en á móti kom aukin
sala á smjörva og Léttu og lag-
góðu. Þá jókst sala á 17% osti
mest í samanburði við aðrar osta-
tegundir og gefa þessar tölur því
e.t.v. til kynna að íslendingar séu
að auka neyslu sína á fitusnauð-
ari mjólkurafurðum á kostnað
fituríkari.
Samanburður á alþjóðlegum
neyslutölum leiðir í ljós að
íslendingar eru ásamt Belgum í
4. til 5. sæti hvað ostaneyslu
varðar, með 16.5 kíló á ári á
mann. Það eru vitaskuld Frakkar
sem eiga heimsmetið í osta-
neyslu, með 22.3 kíló á mann,
Þjóðverjar eru í öðru sæti með
um 18 kíló en ítalar í því þriðja
með 17.5 kíló.
Hvað feitmeti varðar eru
íslendingar í 13. sæti, næst á eftir
Sovétmönnum, með meðalneyslu
á smjöri sem nemur 2.4 kílóum á
ári. Heimsmetið eiga Ný-Sjá-
lcndingar en þeir neyta að meðal-
tali tæpra 11 kílóa af smjöri á ári.
Heimsmet í neyslu
mjólkurfitu
fslendingar eiga hins vegar
heimsmétið í neyslu á bæði
mjólkurprfcteini og mjólkurfitu.
Við neytumlS kílóa af próteini á
ári, á móti 12.-7 kílóum í Finn-
landi og 11.8 ki'lóum í Svíþjóð.
Af mjólkurfitu neytum við 18.5
kílóa á ári, Ný-Sjálendingar 17.7
kílóa á ári og Danir 17.4 kílóa á
ári.
7,2% aukning innveginnar
mjólkur milli ára
Innvegin mjólk til mjólkursam-
laga var 107 milljón lítrar á árinu
1990 og jókst úr 99.8 milljónum
lítra eða um 7.2% á milli ára.
Þessa framleiðsluaukningu má
fyrst og fremst rekja til sveiflna í
árferði. Slæmt árferði 1989 gerði
að verkum að mjólkurfram-
leiðendur áttu ónýttan fullvirðis-
rétt til góða en gott árferði í fyrra
orsakaði hins vegar að margir
notfærðu sér heimild til að fram-
leiða allt að 15% af fullvirðisrétti
yfirstandandi verðlagsárs. Mjólk-
urframleiðslan mun því minnka í
ár sem því nemur. Heildarmjólk-
urneysla minnkaði um 0.28% í
fyrra.
íslenskir ostar hlutu 12 gull-
verðlaun og 11 silfurverðlaun á
ostasýningu í Herning í fyrra.
Enn fremur hlutu umbúðir frá
O.S.S. fyrstu verðlaun í alþjóð-
legri umbúðasamkeppni í Banda-
ríkjunum.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum eignum fer
fram í skrifstofu embættisins,
Hafnarstræti 107,3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Dalsbraut 1, hl. A2-G2, Akureyri,
þingl. eigandi Stefán Sigurðsson,
föstud. 12. apríl 1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Bæjarsjóður
Akureyrar, Benedikt Ólafsson hdl.,
Hróbjartur Jónatansson hrl., Ásgeir
Þ. Árnason, Bragi Kristjánsson hdl.
og Iðnlánasjóður.
Dalsgerði 7a, Akureyri, þingl. eig-
andi Heiðar Jóhannsson, föstud.
12. apríl 1991, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Innheimtumaður ríkissjóðs.
Einholti 16c, Akureyri, þingl. eigandi
Pétur Ólafsson, föstud. 12. apríl
1991, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Gísli Gíslason hdl.
Faxaborg 5, hesthús Akureyri, tal-
inn eigandi Björn Þorsteinsson,
föstud. 12. apríl 1991, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Grenivöllum 22 e.h., Akureyri, talinn
eigandi Birgir Sigurðsson o.fl.,
föstud. 12. apríl 1991, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Gunnar
Sólnes hrl. og Húsnæðisstofnun
ríkisins.
Grundargötu 4 suðurendi, Akureyri,
þingl. eigandi Sigurlaug K. Péturs-
dóttir, föstud. 12. apríl 1991, kl.
14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Hafnarstræti 3 e.h. Akureyri, þingl.
eigandi Bergþóra Gísladóttir o.fl.,
föstud. 12. apríl 1991, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Reynir Karlsson hdl.
Lönguhlíð 3d, Akureyri, þingl. eig-
andi Gunnar Steinþórsson, föstud.
12. apríl 1991, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Kristinn Hallgrímsson hdl.
Langholti 26, Akureyri, þingl. eig-
andi Árni Sigurðsson, föstud. 12.
apríl 1991, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ævar Guðmundsson hdl. og Gunn-
ar Sólnes hrl.
Hringtúni 5, Dalvlk, þingl. eigandi
Magnús I. Guðmundsson, föstud.
12. apríl 1991, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Jón Þórodds-
son hdl., Sigríður Thorlacius hdl.,
Árni Einarsson hdl., Veðdeild
Landsbanka íslands og Benedikt
Ólafsson hdl.
Hrísalundi 8g, Akureyri, þingl. eig-
andi Árni Harðarson o.fl., föstud.
12. apríl 1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands og
Björn Jónsson hdl.
Karlsbraut 17, Dalvík, þingl. eigandi
Sverrir Sigurðsson, föstud. 12. april
1991, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Karlsrauðatorgi 20, Dalvík, þingl.
eigandi Bergur Höskuldsson,
föstud. 12. apríl 1991, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Bene-
dikt Ólafsson hdl. og Gunnar Sól-
nes hrl.
Múlasíðu 5f, Akureyri, talinn eigandi
Birgir Torfason, föstud. 12. apríl
1991, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru.
Gunnar Sólnes hrl., innheimtumað-
ur ríkissjóðs og Guðmundur Jóns-
son hdl.
Norðurgötu 1, Akureyri, þingl. eig-
andi Ingvi Guðmundsson o.fl.,
föstud. 12. apríl 1991, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Guðmundur Markússon hrl.
Rimasíðu 19, Akureyri, þingl. eig-
andi Tryggvi Pálsson, föstud. 12.
apríl 1991, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Smárahlíð 18f, Akureyri, þingl. eig-
andi Hildur Gunnarsdóttir, föstud.
12. apríl 1991, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Ævar Guðmundsson hdl.
Tryggvabraut 22 efstu hæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Helga Alice
Jóhanns o.fl., föstud. 12. apríl 1991,
kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Birgir Árnason hdl, inn-
heimtumaður ríkissjóðs, Ólafur
Gústafsson hrl. og Byggðastofnun.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Sjávargötu 4, Hrísey, þingl. eigandi
Birgir Sigurjónsson, föstud. 12. apríl
1991, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Byggðastofnun og Eggert B. Ólafs-
son hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum eignum fer
fram á skrifstofu embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Grundargerði 6f, Akureyri, þingl.
eigandi Ragnar Elías Maríasson
o.fl., föstud. 12. apríl 1991, kl.
14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Kristinn Hallgrímsson hdl. og Ásgeir
Thoroddsen hdl.
Grænumýri 12, Akureyri, þingl. eig-
andi Friðjón Eyþórsson, föstud. 12.
apríl 1991, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Björn Jósef Arnviðarson hdl. og
Bæjarsjóður Akureyrar.
. ENDURUNNINN
PAPPÍR nín
. telefaxpappir
• ÁÆTLUNARBLOÐ
.ÁÆTLUNARBLOÐ
fyrir sumarleyfi
• SKÝRSLUBLOKKIR
. rissblokkir
• SÉRSKORINN PAPPIR
. HVERS kyns
SÉRPRENTUN
Heiðrúnu EA-28, þingl. eigandi
Söltunarfélag Dalvíkur, föstud. 12.
apríl 1991, kl. 14.45.
Uppboðgbeiðandi er:
Tryggingastofnun ríkisins.
[DAGSPRENf]
L-------- ---Á
STRANDGÖTU 31 • 600 AKUREYRI
SfMAR 24222 & 24166