Dagur - 09.04.1991, Side 20

Dagur - 09.04.1991, Side 20
F Akureyri, þriðjudagur 9. apríl 1991 Kodak Express Gædaframköllun ★ Tryggðu filmunni þinni Jbesta ‘Tfediðjfnyndir Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. Bílstjórafélagið Valur og Guðmundur Hjálmarsson deila: Valsmenn lögðu bflum í veg fyrir bfla frá G. Hjáhnarssyni Vörubifreiðastjórar frá bif- reiðastjórafélaginu Val á Akureyri gripu til táknrænna mótmælaaðgerða við K.A. heimilið á laugardaginn. Vík- ingur Guðmundsson, formað- ur Vals, og Bragi Steinsson, bifreiðastjóri, lögðu vörubif- reiðum sínum við slóða inn á vinnusvæðið þar sem Guð- mundur Hjálmarsson, verk- taki, var að taka grunn að nýja íþróttahúsinu, en hurfu frá eft- ir skamma stund. Tilboð í vegagerð á Öxnadalsheiði: Lægsta tilboð 62% af kostn- aðaráætlun - 17 verktakar buðu í verkið I gær voru opnuð tilboð í vega- gerð á Öxnadalsheiði, nánar tiltekið kaflann Giljareitur - Grjótá. Lengd þessa vegar- kafla er 4,26 km. og verður verkið unnið á komandi sumri. Óvenju mörg tilboð bárust í verkið, eða 17, og einnig er athyglisvert að Iægsta tilboð er aðcins 62% af kostnaðaráætl- un Vegagerðar ríkisins. Lægsta tilboð átti fyrirtækið Höttur sf. í Strandasýslu eða 22,9 milljónir króna. Ýtan hf. á Akur- eyri átti næsta tilboð sem var að- eins einu prósenti hærra en næst kom tilboð Króksverks hf. á Sauðárkróki, tæpar 26 milljónir. Sex af tilboðunum sem bárust voru yfir kostnaðaráætlun Vega- gerðarinnar og það hæsta var frá Hagvirki/Kletti hf., eða 48,7 milljónir. Af þessu sést að munur á hæsta og lægsta tilboði var tæp- ar 26 milljónir króna. Að sögn Jónasar Snæbjörns- sonar, umdæmisverkfræðings hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki, á að skila þessu verki fyrir 1. október en þessi nýi vegur verður væntanlega ekki klæddur slitlagi fyrr en sumarið 1992. Með til- komu þessa vegarkafla mun leið- in yfir Öxnadalsheiði breytast nokkuð frá því sem nú er. JÓH Tildrög rnáls þessa eru þau, að sögn Víkings Guðmundssonar formanns Vals, að lög hafa verið brotin árum saman á félags- bundnum vörubifreiðastjórum á Akureyri. Víkingur segir að tveir vörubílar séu notaðir til leigu- aksturs utan stöðvarinnar í þessu tilviki, sem sé brot á lögum um leiguakstur. Um er að ræða eina vörubifreið frá Aðalgeir Finns- syni hf. og aðra bifreið í eigu Stefáns Þengilssonar. Víkingur vitnar í lög um leigu- akstur, en þar segir í 5. grein: „í þeim kaupstöðum og á þeim sýslusvæðum þar sem viðurkennd vörubifreiðastöð er starfandi, er öllum óheimilt að stunda leigu- akstur á vörubifreiðum utan stöðvar eða frá stöð, sem eigi er viðurkennd. Leiguakstur telst það, þegar vörubifreið er seld á leigu ásamt ökumanni til flutn- inga á vörum eða efni fyrir tiltek- ið gjald, þar sem ökumaður eða eigandi bifreiðarinnar er hvorki eigandi, seljandi né kaupandi vörunnar, sem flutt er.“ „Við erum búnir að vísa þessu máli til lögfræðings Landssam- bands vörubifreiðastjórafélaga í Reykjavík. Ég er ekki sammála því að Guðmundur Hjálmarsson tali um þessa tvo bíla sem starf- andi á vegum undirverktaka, því undirverktakar verða að hafa sérstakt og afmarkað verksvið, þ.e. sérstakan þátt verksins,“ segir Víkingur Guðmundsson. Guðmundur Hjálmarsson segir að því miður hafi hlaupið harka í þetta mál, en það sé ekki frá sinni hendi heldur Valsmanna. „Ég var búinn að tala við þá áður en ég byrjaði um að ég myndi skipta vinnunni með þeim, en síðan koma þeir hér á svæðið eftir þrjá daga með æsing. Ég var alls ekki búinn að útiloka þá frá vinnu, og hef ekkert á móti þeim eða stöð- inni, og vildi samstarf við þá, en því miður vilja þeir ekkert nema hörkuna. Ég hef því vísað málinu til Árna Pálssonar lögfræðings,“ segir Guðmundur Hjálmarsson, en hann segir að þáttur undir- verktaka í tilboðsverkinu sé laga- legt túlkunaratriði. EHB Þessi mynd var tekin þegar Víkingur Guðmundsson og Guðmundur Hjálm- arsson ræddust við á laugardag, en þá lokuðu Valsmenn vegarslóða um stundarsakir. . Mynd: EHB Norðurlandskjördæmin: Framboðslistar samþykktir af yfirkjörstjómum - H-listi á Norðurlandi eystra mun bera nafn Heimastjórnarsamtaka Frestur til að skila inn fram- hoðslistum fyrir komandi kosningar til Alþingis rann út síðastliðinn föstudag. Kjör- stjórnir hafa nú farið yfir fram- boðslista og stuðningsmanna- lista og í Norðurlandskjör- dæmunum tveimur voru allir listar samþykktir eftir að breyting hafði verið gerð á heiti eins framboðsins, þ.e. Samtaka jafnréttis og félags- hyggju - Heimastjórnarsam- taka, á Norðurlandi eystra. Hugmyndin var að fyrrnefnt framboð yrði í nánum tengslum við framboð Heimastjórnar- samtakanna í öðrum kjördæmum landsins og yrði undir H-bókstaf Heimastjórnarsamtakanna þrátt fyrir að í nafni þessa framboðs á Norðurlandi eystra yrði líka nafn Samtaka jafnréttis og félags- hyggju. Ragnar Steinbergsson, formaður yfirkjörstjórnar á Norðurlandi eystra, segir að aðstandendum listans hafi verið bent á að þessi uppsetning væri ekki leyfileg, annað hvort yrði einungis notað nafn Heima- stjórnarsamtakanna eða að fram- boð í öðrum kjördæmum yrði einnig að bera nafn Samtaka jafnréttis og félagshyggju. Þá væri einnig sá möguleiki uppi að nota nafn Samtaka jafnréttis og félagshyggju og bjóða þá fram undir J-bókstafnum sem notaður var í síðustu kosningum. Eftir að aðstandendum framboðsins hafði verið skýrt frá þessum kostum nú um helgina var ákveðið að fram- boðið héti Heimastjórnarsam- tökin líkt og í öðrum kjördæmum og listabókstafurinn verði H. Aðrar athugasemdir voru ekki gerðar við framboðslistana í Norðurlandskjördæmi eystra. Hjá yfirkjörstjórn í Norðurlands- Ekkert vimislustopp hjá ÚA Gunnar Ragnars, fram- kvæmdastjóri ÚA, segir aö unnt hafi verið aö halda uppi stöðugri vinnslu hjá fyrirtæk- inu, þrátt fyrir tímabundið stopp ísfisktogara þess, og ekkert bendi til þess að til vinnustöðvunar komi vegna hráefnisskorts. í gær var lokið við að vinna fisk sem togararnir færðu á land í fyrri viku og í dag verður landað um 90 tonnum úr Baldri EA á Dalvík til vinnslu hjá ÚA. Síðar í vikunni kemur Kaldbakur síðan inn til löndunar og þar með fara hjólin að snúast á eðlilegan hátt á nýjan leik. óþh Leitað að sérfræðinguin Útibú Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins á Akureyri og sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri hafa auglýst lausar til umsóknar tvær stöður sér- fræðinga til kennslu og rann- sóknarstarfa. Grímur Valdimarsson, for- stjóri Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins, segir að hér sé um nýjar stöður að ræða og líta megi á þær sem vísi að vaxandi þrótt- miklum rannsóknum stofnunar- innar á Akureyri. óþh kjördæmi vestra komu ekki upp vandamál og fengust öll fram- boðin átta samþykkt. Kjörskrár vegna kosninganna hafa að undanförnu legið frammi hjá sveitarstjórnum en síðustu forvöð eru að gera athugasemdir við þær þar sem kærufrestur rennur út á hádegi í dag. Sveita- stjórnir skulu, samkvæmt lögum, hafa úrskurðað um kærumál eigi síðast en næstkomandi mánudag. JÓH Viðgerð á Strákagöngum við Siglugörð: Fimm í lokuðu útboði Fimm aðilar taka þátt í lokuðu útboði í viðgerð á Strákagöng- um við Siglufjörð. Tilboð verða opnuð 15. apríl nk. Kostnaður við þetta verk er áætlaður á bilinu 50-60 millj- ónir króna. Lengi hefur staðið til að gera við Strákagöngin, enda ekki van- þörf á. Ætlunin er að þétta þau, leggia nýtt slitlag á gólfið og skipta um drenlagnir. Þeir sem bjóða í viðgerð Strákaganganna eru: ístak hf., Krafttak sf., Hagvirki, Gunnar og Guðmundur sf. ásamt Klæðn- ingu hf. og Ármannsfelli hf. og siglfirsk fyrirtæki í sameiningu; Bás sf., Berg hf., Jón og Erling, Rafbær sf. og Síldarverksmiðjur ríkisins. Jónas Snæbjörnsson, um- dæmisverkfræðingur Vegagerðar ríkisins á Sauðárkróki, segir að ætlunin sé að hefja vinnu við endurbætur á Strákagöngum í ágúst og er búist við að þær taki átta vikur. Göngin verða að mestu lokuð fyrir umferð meðan á viðgerð stendur. Þó er gert ráð fyrir að þau verði opin á morgn- ana milli kl. 7 og 8 og frá 19.30 til 20.30 á kvöldin og hugsanlega einnig í hádeginu. Jónas sagðist eiga von á því að vegurinn um Siglufjarðarskarð yrði opnaður, að minnsta kosti fyrir jeppa. Steingrímur J. Sigfússon, sam- gönguráðherra, segir að f athug- un sé í ráðuneyti samgöngumála að auka við framkvæmdir í Strákagöngunum frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir. „Ég er með þetta mál í athug- un og ætla að gera hvað ég get í því að auka við framkvæmdir í göngunum á þessu ári, það sem lýtur að forskála, hurðum og fleiru. Út af fyrir sig lítur ekki illa út með þetta mál. Eg hef von um að hægt verði að færa fjármagn til milli ára með tilteknum hætti og auka við þessar framkvæmdir. Meðal annars var ætlunin að skoða hvort heimaaðilar gætu ekki fengið vinnu við verkið. Þar á meðal vorum við að hugsa um vélsmiðjumenn hjá Síldarverk- smiðjum ríkisins," sagði Stein- grímur. óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.