Dagur - 16.05.1991, Qupperneq 3
Fimmtudagur 16. maí 1991 - DAGUR - 3
fréftir
i
Amtsbókasafnið á Akureyri:
Veruleg útlánsaukning nií ára
- vaxandi vinsældir myndbandaleigunnar
Heildarútlán Amtsbókasafns-
ins á Akureyri á árinu 1990
voru 103.621 bindi á móti
95.842 bindum árið 1989.
Aukningin nemur 7.779 bind-
um eða 8,2% og einnig var
nokkur aukning á útlánum til
skipa, skóla og stofnana eða
3.185 bindi á móti 3.112. Þess-
ar upplýsingar koma fram í
ársskýrslu safnsins.
Útlán voru mest í október,
9.849 bindi, og einnig yfir níu
þúsund í janúar og mars. Lán-
þegar voru hins vegar latastir við
lesturinn í maí en þá voru ríflega
sex þúsund bindi lánuð út.
Fjölmörg skip og stofnanir
fengu bókakassa á árinu og þá
nutu 69 lánþegar, aldraðir og
öryrkjar, heimsendingarþjón-
ustu. Félagar í Soroptimista-
klúbbi Akureyrar annast út-
keyrslu á bókunum.
Skráðir gestir á lestrarsal, sam-
kvæmt gestabók, voru 5.299, eða
um 20 á dag til jafnaðar. Aðsókn-
in var mest í mars svo og bóka-
notkun en alls voru 26.166 bindi
úr prentskilasafninu lánuð til
notkunar á lestrarsalnum á síð-
asta ári.
Myndbandaeign Amtsbóka-
safnsins jókst um 60 titla og á
safnið nú 126 myndbönd. Pessi
þjónusta nýtur sívaxandi vin-
sælda. í upphafi var áherslan
lögð á fræðsluefni en í seinni tíð
hafa einnig verið keyptar valdar
kvikmyndir. Alls voru 752 útlán á
myndböndum á árinu.
Tölvuvæðing bókasafnsins
hófst á miðju ári og væntanlega
líða ekki mörg ár þar til allur
bókakostur safnsins verður tölvu-
skráður.
Aðsókn skólanema var að
vanda mikil að safninu og orðrétt
segir Lárus Zophoníasson, amts-
bókavörður, í ársskýrslunni: „Þó
ÁTVR opnar á Húsavík:
Bóndí úr Kinn
keypti íyrsta bjórinn
Sigurður Þórarinsson, verslun-
arstjóri ATVR á Húsavík opn-
aði dyr verslunarinnar fyrsta
sinni fyrir viðskiptavinum kl.
13:33 á miðvikudaginn. Fyrsti
viðskiptavinur verslunarinnar
var Þórólfur Jónasson, bóndi á
Syðri-Skál í Kinn og keypti
hann tvær kippur af bjór.
Húsnæði verslunarinnar er
smekklega innréttað og virðist
áfengisútsalan fara ágætlega í
sambýli við Fatahreinsun Húsa-
víkur. ÁTVR verður opið fram-
vegis kl. 13:30 til 18, mánudaga
til fimmtudaga, en á föstudögum
verður opið frá 10 til 18.
Kvöldið fyrir opnun var boð í
versluninni þar sem gestir virtust
kunna ágætlega að meta væntan-
lega söluvöru ÁTVR sem þar var
boðið upp á. Meðal boðsgesta
var Bæjarstjórn Húsavíkur og
bæjarstjóri, Einar Njálsson sagði
við þetta tækifæri: „Ég álít ekki
að áfengið sem slíkt verði Húsa-
vík til bjargar, en hér er um að
ræða ákveðna þjónustu sem
menn vildu fá. Okkur finnst eðli-
legt, í samkeppni við aðra aðila
um þjónustu, að þessi þjónusta
sé veitt í bænum af innanbæjar-
mönnum og skapi hér atvinnu.“
Einar brá á létta strengi og
sagði að Sigurði, útibústjóra
mundi líklega ekki veita af einum
sterkum áður en hann opnaði dyr
verslunarinnar, sem vega rnunu
nokkur hundruð kíló.
Mikla athygli vakti sýning sem
sett var upp í tilefni af opnun
ATVR á Húsavík, en þar sýnir
Húsvíkingurinn Sigfús Þráinsson
hátt á annað hundrað óáteknar
vískíflöskur, úr einstöku vískí-
flöskusafni sínu.
Myndir frá opnun verslunar-
innar og opnunarteitinu verða
síðar birtar í Degi. IM
Húsavík:
Bæjarverksíjóri hættír
Bæjarstjórn Húsavíkur hefur
ákveðið að auglýsa stöðu
bæjarverkstjóra lausa til
umsóknar, en Guðmundur
Þorgrímsson sem gegnt hefur
stöðunni um árabil lætur af
störfum þann 1. júní nk.
Guðmundur mun breyta um
starfsvettvang hjá bænum og
hefja störf við íþróttahöllina í
haust. IM
Ljóðasamkeppni Dags og Menor:
Úrslit ktmngerð
á mánudaginn
- alls bárust 104 ljóð
Svo fór að yfir eitt hundrað
Ijóð bárust í Ijóðasamkeppni
Dags og Menningarsamtaka
Norðlendinga og er endanleg
tala 104 Ijóð. Þetta er öllu
meiri þátttaka en reiknað hafði
verið með en hún þarf þó ekki
að koma á óvart miðað við þær
viðtökur sem smásagnasam-
keppni sömu aðila fékk.
Störf dómnefndar hafa gengið
vel þótt ljóðin séu mörg, en þau
voru öll lesin vandlega og síðan
komin séu bókasöfn við flesta
skóla bæjarins, misjafnlega öflug
að sjálfsögðu, þá verður Amts-
bókasafnið, með sitt prentskila-
safn, ætíð hinn sterki bakhjarl,
sem mennta-, upplýsinga- og
menningarstofnun, ef bæjaryfir-
völd bera gæfu til að sýna því
skilning og hlúa að því eftir bestu
getu.“ SS
þúsund
Útlán á mánuði 1988-1990
Amtsbókasafnið á Akureyri
Jan. Fcb. Mars Apríl Maí Júnf Júlí Ágúsl Scpl. Okl. Nóv. Dcs.
Mánuðir
11988
1989 CJ 1990
HoffsÓS:
Dýralæknis-
staða laus
Landbúnaðarráðuneytið hefur
auglýst lausa til umsóknar stöðu
héraðsdýralæknis í Hofsósi.
Staðan er auglýst laus tíma-
bundið til eins árs. Gísli Hall-
dórsson hefur gegnt stöðu hér-
aðsdýralæknis í Hofsósi
undanfarin ár.
Staða héraðsdýralæknis í Hofs-
ósi er laus frá og með 1. septem-
ber á þessu ári til 31. ágúst árið
1992. Starfandi dýralæknir Gísli
Halldórsson hefur tekið sér árs
leyfi frá störfum til að gegna
stöðu framkvæmdastjóra Slátur-
samlags Skagfirðinga. Gísli tekur
við framkvæmdastjórn af Birgi
Bogasyni en hann andaðist á síð-
asta ári. kg
Pí prH'omPfPÍr í mm Ítí
• endurunninn
pappír ín
. TELEFAXPAPPIR
• ÁÆTLUNARBLOÐ
.ÁÆTLUNARBLOÐ
pyrir sumarleyfi
• 5KÝRSLUBLOKKIR
LsSSnpapw
.hvers kyns
, SÉRPRENTUN
DAGSPRENT
STRANDGÖTU 31 • 600 AKUREYRI
SÍMAR 24222 & 24166
var þeim fækkað smátt og smátt
eftir gagnrýninn yfirlestur og
greiningu. Erfiðasta verkefnið
var að velja „bestu“ ljóðin (hug-
takið getur verið illhöndlanlegt)
úr þeim 15-20 sem eftir voru í
lokatörninni, en dómnefnd mun
gera nánari grein fyrir störfum
sínum er úrslit liggja fyrir.
Dómnefndin er nú að skila af
sér niðurstöðum og fer verð-
launaafhending fram í Gamla
Lundi á annan í hvítasunnu. SS
L66
Rroers
^ ®MR
Lee
HERRADEILD ^
Gránufélagsgötu 4