Dagur - 16.05.1991, Side 5
leiklist
Fimmtudagur 16. maí 1991 - DAGUR - 5
BMrapiðBji
ávaxta
Páll Þór Jónsson og Dóra Yilhelinsdóttir við Gistiheiinilið Árból.
kirkjunnar við Vestmannsvatn Aðaldal
Flokkaskipting sumarið 1991
1. fl. 18. júní-25. júní börn 7-10 ára
2. fl. 26. júní- 3. júlí börn 8-11 ára
3. fl. 5. júlí -12. júlí börn 10-13 ára
4. fl. 15. júlí -22. júlí börn 7-10 ára
5. fl. 23. júlí -26. júlí aldraðirfrá Dalvík
6. fl. 27. júlí - 3. ágúst blindirog aldraðir
Innritun er hafin í síma 96-27540 frá kl.
17.00-18.30 virka daga.
1-----
Lilí ævintýri
Fimmtudaginn 9. maí var mikið
um dýrðir á Raufarhöfn. Að
kvöldi þess dags setti leikfélag
byggðarinnar upp viðamikla sýn-
ingu, þegar það frumsýndi verkið
I teiti hjá prinsessunni á baun-
inni, eftir Margréti Óskarsdóttur,
kennara og leikstjóra á Raufar-
höfn.
í sýningunni tóku þátt unt eitt
hundrað og tíu flytjendur og aðr-
ir starfsmenn, en það er rétt tæp-
lega einn þriðji af heildar íbúa-
tölu Raufarhafnar. Bara þetta er
mikið afrek og sýnir vel þann
stórhug og þá dirfsku, sent
aðstandendur uppsetningarinnar
hafa til að bera. Annað, sent ekki
síður var eftirtektarvert og glæsi-
legt var umbúnaður sýningarinn-
ar allur. Leiksviðið var afar
fallegt. Það var í sjálfu sér ekki
flókið að gerð, en þjónaði sínunt
tilgangi mjög vel. Að miklu leyti
var það gert úr akryl-dúk, sent
notaður var sem baktjald allan
hringinn, en innan dúksins voru
lystilega málaðir flekar, sem
skipt var um eftir þörfunt. Þá
voru búningar leikenda allra,
sem skiptu tugum, vel gerðir-og
sumir reyndar glæsilegir - og
féllu vel að þeim persónum, sem
í hlut áttu. í öllu þessu hefur leg-
ið gífurlcg undirbúningsvinna,
sem sannar kyrfilega hvers menn
eru megnugir, þegar höndum er
tekið saman og verki stýrt af
ákveðni og dug.
Efni verksins í teiti hjá prins-
essunni á bauninni er fengið úr
fjölda ævintýra og sagna. Þarna
voru ininni úr Stígvélaða kettin-
unt, Mjallhvít, Dvergunum sjö,
Rauðhettu, Hans og Grétu,
Prinsessunni á bauninni, Dimma-
limm og Þyrnirós, svo nokkuð sé
nefnt, og einnig mátti sjá þarna
Línu langsokk, persónur úr
Kardimommubænum og Dýrun-
um í Hálsaskógi og hina íslensku
Bakkabræður. Lykilpersónur
hvers ævintýris eða sögu tóku
þátt í leiknum og voru allar að
fara í teiti hjá prinsessunni á
bauninni. Allt var þetta fléttað
saman í samfellda sýningu, sem
gekk lipurlega og fjörlega fyrir
sig. Hnökrar voru afar fáir og
yfirleitt óverulegir.
Þó að Leikfélag Raufarhafnar
stæði að sýningunni, voru flytj-
endur verksins og langflestir
starfsmenn nemendur í Grunn-
skóla Raufarhafnar. Hver einasti
nemandi tók þátt í henni í ein-
hverja veru. Hér eru ekki nokkur
tök á að geta einstakra leikenda,
því að ef slíku ætti að gera skil,
yrði upptalningin miklu of löng.
Nægja verður því að segja, að í
heildina var frammistaða hinna
ungu leikenda góð. Leikgleðin
lýsti af andlitum þeirra og fjörið í
flutningi var smitandi. Þrátt fyrir
það var ljóst, að allt var agað og
allir vissu gjörla hvað þeim bar
að gera og hvar átti að standa.
Ekki síst var þó eftirtektarvert
hve greinilegur sem næst allur
texaflutningur var og hve vel barst
frant í salinn. Slíkt verður seint
oflofað og reyndar talsvert of
mikið um hið gagnstæða jafnt hjá
börnum sem fullorðnum.
Mikið var um söng og tónlist í
sýningunni. Undirleik og annan
tónlistarflutning annaðist hljóm-
sveit skipuð nemendum grunn-
skólans. Hljómsveitin lék vel og
af öryggi en ekki síður má geta
mikillar smekkvísi í styrkleika-
stillingu, sem gerði það að
verkum, að raddir söngvara á
sviðinu, þó að ungir væru að
árum, þurftu engrar mögnunar við
andstætt því, sem virðist vera hald
ýmissa fullorðinna flytjenda, sent
virðast ekki telja, að í sér heyrist
í söng nema með hjálp hljóð-
nema.
Uppsetning leikritsins í teiti
hjá prinsessunni á bauninni var
hin besta skemmtun. Margrét
Óskarsdóttir, leikstjóri sýningar-
innar og höfundur verksins á
mikið hrós skilið fyrir þetta glæsi-
lega framtak og hið sama eiga all-
ir þeir, sent lögðu hönd á
plóginn. Með sanni má segja, að
það sé ævintýri líkast, hve vel allt
tókst. Slík ævintýri gerast sem
betur fer iðulega í starfi áhuga-
manna um menningu og listir.
Enda er starf þeirra, jafnt karla
sem kvenna, unnið undir því
mottói, sem kom fram í loka-
orðunt sýningarinnar á Raufar-
höfn: „Lifi leiklistin, lifi sönglist-
in, lifi ævintýr."
Haukur Ágústsson.
Bíladagar • BOadagor
Húsavík:
Árból, nýtt vistlegt
gistiheimili opnað
U3L
Sýnum í dag bifreiðar frá
Honda á íslandi.
Bílar í takt við tímann
Honda Accord
Honda á íslandi.
BílasalaÞórshamars
Glerárgötu 36 Akureyri
Árból, nýtt gistiheimili á
Húsavík hóf starfsemi um síð-
ustu helgi. Árból er að
Ásgarðsvegi 2, niður við aðal-
götu hæjarins, en húsið stend-
ur einnig við Búðarána, rétt
neðan skrúðgarðsins, og fá
gestir hússins einstaklega fal-
legt útsýni úr gluggum her-
bergja sinna.
Eigendur Árbóls eru Björn
Hólmgeirsson, Björn Sigurðsson
og hjónin Dóra Vilhelmsdóttir og
Páll Þór Jónsson. Það eru Dóra
og Páll sem reka gistiheimilið.
Þau eiga og búa á neðri hæð húss-
ins en í vetur keypti hlutafélagið
Árból efri hæðina og risið. í ris-
inu er svefnpokapláss í rúmum, á
efri hæðinni eru herbergi með
uppbúnum rúmum og á neðstu
hæð er afgeiðsla og borðstofa fyr-
ir morgunverðargesti, auk íbúð-
arinnar. Alls er boðið upp á gist-
ingu í sjö herbergjum, eins til
fjögra manna, auk svefnpoka-
plássins. Verði á gistingunni er
mjög stillt í hóf.
Vel hefur tekist til með þær
breytingar sem gerðar hafa verið
á húsnæðinu og er aðstaðan hin
vistlegasta. Alúð hefur verið lögð
við að lagfæra og leyfa því sem
eldra er í húsinu að þjóna sínum
tilgangi áfrant, í stað þess að
henda öllu út og setja ný efni í
staðinn. Nýtt hefur þó verið not-
að þar sem þörf var til svo að
gestir geti notið þeirra þæginda
sem sjálfsögð eru talin í dag.
Húsið var byggt 1903 og í upp-
hafi sent hótel, það var í eigu Sig-
urjóns Þorgrímssonar, vert, sem
einnig rak bakarí í húsinu til
1920. Um áratugaskeið var húsið
sýslumannsbústaður er Júlíus
JJavsteen bjó þar ásamt sinni
fjölskyldu og þá var sýsluskrif-
stofan einnig þar til húsa.
„Það er talsvert bókað og við
hljótum að vera vongóð. Það er
verst hvað stutt ferðamannatíma-
bil háir slíkum rekstri," sagði Páll
Þór, aðspurður hvernig þeint
hjónum litist á rekstur gistiheim-
ilisins. Talsvert hefur verið um
það að Hótel Húsavík hafi pant-
að viðbótargistirými í Árbóli fyr-
ir væntanlega hópa sumargesta.
1M
Einingabréf henta þeim sem vilja ávaxta sitt fé til lengri tíma, en
vilja jafnframt geta losað það með skömmum fyrirvara.
Skammtímabréf henta þeim sem eru með laust fé í skamman
tíma, 1-6 mánuði og þau eru einnig laus með skömmum fyrirvara.
Ávöxtun sl. 12 mánuði
Raunávöxtun Nafnávöxtun
Einingabréf 1 7,5% 14,9%
Einingabréf2 6,0% 13,3%
Einingabréf3 7,2% 14,5%
Skammtímabréf 5,9% 13,2%
éálKAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700