Dagur - 16.05.1991, Side 9
Fimmtudagur 16. maí 1991 - DAGUR - 9
Stöðug þjálfun og endurhæfing er flestum fötluðum nauðsynleg.
Sjálfsbjargarhúsið í Reykjavík. Margir fatlaðir dvelja á stofnunum, en lögin
miða við að sem flestum verði gert mögulegt að búa í eigin húsnæði utan
stofnana.
Hús Öryrkjabandalags íslands við Hátún 10, Reykjavík.
Lög þessi skarast ekki við lögin
um málefni fatlaðra, en í 45. gr.
segir að fatlaðir eigi rétt á
almennri þjónustu og aðstoð, og
skuli þeim veitt viðeigandi þjón-
usta á stofnunum eftir því sem
við á, enda þótt meginstefnan sé
að styðja fatlaða til að búa sem
lengstan hluta ævinnar utan
stofnana, þ.e. á sambýlum eða í
einkahúsnæði. Þá segir einnig að
samstarf skuli vera sem víðtækast
á milli svæðisstjórna um málefni
fatlaðra og einstakra sveitarfé-
laga um þjónustu.
Húsnæðismál á
félagslegum grunni
í 12. kafla laganna er fjallað um
húsnæðismál. Þar segir í 46. gr.
að sveitarstjórnir skuli tryggja
framboð af leiguhúsnæði, félags-
legu kaupleiguhúsnæði og félags-
legum eignaríbúðum handa fjöl-
skyldum og einstaklingum sem
eru ekki færir um að sjá sér fyrir
húsnæði vegna lágra launa,
þungrar framfærslubyrði eða af
öðrum félagslegum ástæðum.
Hlutverk félagsmálanefnda í
húsnæðismálum er m.a. að sjá
fjölskyldum og einstaklingum
sem eiga undir högg að sækja af
framangreindum ástæðum fyrir
úrlausn í húsnæðismálum, meðan
beðið er varanlegra lausna, til að
ráða bót á bráðum vanda.
í lögunum um breytingu á lög-
um um Húsnæðisstofnun ríkisins
frá 19. og 20. mars er fjallað um
húsnæðissamvinnufélög og bú-
seturétt. Þetta eru vel þekkt
fyrirbæri innan íslenska hús-
næðiskerfisins, og hefur færst
mjög í vöxt undanfarin ár að fólk
gangi í félög til að byggja eftir
búsetukerfinu.
2. liður 11. greinar laganna
hljóðar á þá leið að heimilt sé að
veita sérstök lán til einstaklinga
með sérþarfir. Lán samkvæmt
þessum lið er aðeins heimilt að
veita þeim sem eru ellilífeyris-
þegar, öryrkjar eða búa við
skerta starfsorku, eru t.d. hreyfi-
hamlaðir. Lánin eru veitt til bygg-
ingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði
vegna aukins kostnaðar af völd-
um sérþarfa umsækjanda og geta
komið til viðbótar fasteignaveð-
lánum sem húsbréfadeild gefur út
vegna byggingar eða kaupa á
íbúð. Ennfremur má veita lán
sem þessi til endurbóta á húsnæði
þeirra aðila sem rétt eiga á lánum
vegna örorku eða annars slíks, og
falla undir skilgreiningu laga-
ákvæða þessara.
Einnig má veita lán samkvæmt
þessum lið til þeirra sem hafa
orðið fyrir meiriháttar röskun á
högum og hafa vegna fráfalls
maka eða af öðrum ástæðum
lækkað svo í tekjum að þeir geta
ekki haldið íbúðum sfnum.
Umsóknum um lán samkvæmt
þessum lið skal fylgja umsögn
viðkomandi sveitarstjórnar eða
félagsmálastofnunar.
Það hefur lengi verið ljóst að
öryrkjar eða aðrir þeir sem hafa
skerta starfsorku geta tæplega
keypt íbúðir á frjálsum markaði
nema í einstaka tilvikum. Hús-
næðisamvinnufélög, þar sem bú-
seturéttur myndast við leigu og
menn ávinna sér vissan rétt með
tímanum, er í mörgum tilvikum
æskilegri kostur, þ.c. ef viðkom-
andi hefur eitthvað rýmri fjárhag
en þó ekki nægilega góðan til að
kaupa á frjálsum markaði. Lögin
um húsnæðissamvinnufélög og
búseturétt komu því í góðar þarf-
ir á sínum tíma. Húsnæðíssam-
vinnufélög sækja um lán úr Bygg-
ingarsjóði verkamanna, en afla
auk þess fjár með öðrum leiðum
til framkvæmda. EHB
Takið eftir!
Áklæði og gluggatjaldaefni
Glæsilegt úrval - frábært verð,
frá kr. 280 kr. per. m.
Svampdýnur fyrir heimilið, sumar-
húsið, hjólhýsið eða tjaldvagninn.
Latexdýnur, eggjabakkadýnur.
SVAMPUR OG BÓLSTRUN
Austursíða 2 (Sjafnarhúsið), sími 96-25137.
V___________________________________/
Vortónleikar
Karlakórs Akureyrar - Geysis
verða haldnir í Miðgarði Skagafirði
laugardaginn 18. maí kl. 21.00,
íþróttaskemmunni Akureyri sunnudaginn 19. maí
kl. 17.00 og mánudaginn 20. maí kl. 20.30.
Mjög fjölbreytt söngskrá.
Stjórnin.
Háskólinn á Akureyri
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við
rekstrardeild Háskólans á Akureyri:
Staða lektors í iðnrekstrarfræði (50%).
Staða lektors í þjóðhagfræði.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ræki-
lega skýrslu um vísindastörf sín, ritsmíðar og rann-
sóknir, svo og námsferil sinn og störf.
Upplýsingar um störfin gefur forstöðumaður rekstar-
deildar í síma 96-11770.
Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri
fyrir 10. júní nk.
Háskólinn á Akureyri.
Kynning
föstudaginn 17. maí frá kl. 15.00-19.00
Barilla pasta, Uncle Bens hrísgrjón og súr sæt sósa.
Fimmtudag, föstudag og laugardag:
Kynning á maltöli og appelsíni
frá Ölgerðinni
Kynningarverð
Opið til kl. 19.00, föstudaga.