Dagur - 22.05.1991, Blaðsíða 2

Dagur - 22.05.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 22. maí 1991 fréftir Erfið staða ístess hf. eftir að Skretting sagði upp samstarfssamningi: Um stórt og alvarlegt mál Vegna umræðna um erfiða stöðu fóðurverksmiðju ístess hf. á Akureyri hefur fyrirtækið sent frá sér eftirfarandi frétta- tilkynningu: „Istess h.f. var stofnað í maí 1985 og voru stofnendur Kaup- félag Eyfirðinga og Síldarverk- smiðjan í Krossanesi sem áttu hvort um sig 26% hlutafjár, og norska fyrirtækið T. Skretting a.s. í Stavanger sem átti 48% hlutafjár, en það fyrirtæki er í eigu BP Nutrition. Tilgangurinn með stofnun félagsins var fyrst og fremst framleiðsla og sala fóðurs fyrir eldisfisk og ýmis þjónusta við fiskeldi. Við stofnun ístess h.f. var undirritaður leyfis- og sölusamn- ingur milli ístess h.f. og T. Skretting a.s. sem m.a. veitti Istess h.f. aðgang að framleiðslu- tækni og fóðurgerð T. Skretting a.s. Fóðurverksmiðja var reist árið 1987 og árleg framleiðsla hefur verið 8-9.000 tonn. Sam- kvæmt samningnum fékk ístess h.f. einnig einkarétt til að selja fóðurvörur undir vörumerki T. Skretting a.s. á íslandi og í Fær- eyjum. teignai Glerárgötu 28, II. hæð Sími 21967 + Oddeyrargata: 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi, ca. 85,0 m2. Ódýr íbúð. Þarfnast lagfær- ingar. + Smárahlíð: 3ja herberaja íbúð á 3. hæð, 77,0 m2. íbúð í topp standi með nýjum innréttingum. *- Seljahlíð: Raðhúsíbúð á einni hæð 3ja herbergja, 78,8 m2. Fal- leg og vönduð íbúð á góðum stað. + Dalsgerði: Raðhúsíbúð á jarðhæð 3ja herbergja, 87,0 m*. Vel skipulögð og falleg íbúð á góðum stað. + Dalsgerði: Raðhúsíbúð á 2 hæðum, 127,0 m2. ibúð í góðu ástandi á góðum stað. Laus fljótlega. + Ásabyggð: Einbýlishús á 2 hæðum 6 herbergja, 170,0 m2. Góður suðurgarður. Bílskúrsréttur. Laus fljótlega. * Vegna mikillar sölu vantar allar gerðir fasteigna á skrá. Skoðum og verðmætum eignir samdægurs. GAGNKVÆMT TRAUST - TRAUST WÓNUSTA flniA- 10.30 tii 12.00 upiu. 13.00 til 18.00 Sölustjóri: Tryggvi Pálsson Heimasími 21071 Ásmundur Jóhannsson hdl. Þegar fyrirtækið var stofnað og fyrstu árin á eftir, ríkti mikil bjartsýni hér á landi sem og f nágrannalöndum okkar um framtíð laxeldis. Þessi atvinnu- grein var af mörgum talinn einn helsti vaxtarbroddurinn í íslensku atvinnulífi og miklum fjármunum var varið til uppbygg- ingar í greininni. Þó strax bæri á ákveðnum erfiðleikum, einkum greiðsluerfiðleikum, var það álit- ið vandamál sem stafaði af því að ung atvinnugrein hefði ekki enn fengið þá fyrirgreiðslu sem eðli- legt væri að reikna með, enda var það, m.a. af opinberum aðilum, oft gefið í skyn að úr þessu yrði bætt. Á árunum 1987, 1988 og fram á árið 1989 söfnuðu fiskeld- isfyrirtækin því miklum skuldum hjá fóðursölum. Undanfarin ár hafa verið fisk- eldisfyrirtækjum erfið og eru fyr- ir því ýmsar ástæður. Erfiðleikar í fiskeldi hafa að sjálfsögðu haft mikil áhrif á rekstur ístess h.f., enda hefur fyrirtækið svo að segja alla sína afkomu af fiskeldi. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að tryggja reksturinn til frambúð- ar, síðast með hlutafjáraukningu 1990, en þá bættust í hóp hlut- hafa Hraðfrystistöð Þórshafnar h.f. og Byggðastofnun, en Akur- eyrarbær hafði þá yfirtekið eign- arhlut Krossaness. Hlutafé í fyrirtækinu er nú tæpar 200 millj- ónir króna, en enn eru ógreiddar til félagsins af þessu fé um 40 milljónir króna, sem sérstakt samkomulag er um að T. Skrett- ing a.s. greiði. Rekstur ístess h.f. gekk þolan- lega á síðastliðnu ári og varð tæp- lega 32 milljóna króna hagnaður af reglulegri starfsemi. Hins veg- ar varð að færa viðskiptakröfur félagsins verulega niður til að mæta hugsanlegum töpum krafna, mest vegna gjaldþrota fiskeldisfyrirtækja. ístess h.f. hefur kannski þurft að gera ráð fyrir að viðskiptakröfur að upp- hæð talsvert á annað hundrað milljónir króna töpuðust og þetta hefur vissulega haft mikil áhrif á hag félagsins. Engu að síður var eigið fé félagsins jákvætt um rúmar 50 milljónir króna 31. mars 1991, reksturinn fyrstu þrjá mánuði þessa árs í jafnvægi og sala umfram áætlanir. Þrátt fyrir að fyrirséðir séu áframhaldandi miklir erfiðleikar í rekstri fiskeld- isfyrirtækja í náinni framtíð, og að ekki sé víst að séð sé að fullu fyrir endann á gjaldþrotum þeirra, er ekki ástæða til annars en að telja að þetta ár gæti rekst- ur félagsins orðið í viðunandi jafnvægi. Tap viðskiptakrafna nú er í meginatriðum óháð rekstri, vegna þess að þessar kröfur mynduðust fyrir 2-3 árum. Pað er því fyllilega raunhæft að reikna með að eiginfjárstaða félagsins hefði orðið jákvæð í árslok að öllu óbreyttu. Hins vegar er greiðslustaða félagsins erfið, en enginn við- skiptaaðili hefur gengið að félag- inu og engin krafa hefur komið fram um opinber skipti og því ekkert sem liggur fyrir um að félagið sé í greiðsluþroti, enda hefur tekist að semja við flesta viðskiptavini félagsins fram til þessa. Á stjórnarfundum á þessu ári hefur þeirri hugmynd verið hreyft af fulltrúa T. Skretting a.s., hvort ekki bæri að leggja þennan rekstur niður, enda væru þær forsendur sem upphaflega var byggt á, ekki lengur til staðar. Hinir íslensku stjórnar- menn hafa lagst eindregið gegn Norðurlandamót samvinnustarfsmanna: Sveit íslands varð Norðurlandameistari - tveir Akureyringar gertðu það gott Norðurlandamót samvinnu- starfsmanna í skák var haldið nýlega í Kaupmannahöfn. A- sveit Islands sigraði og tryggði sér Norðurlandameistaratitil- inn í fyrsta sinn, en mót þetta er haldið á tveggja ára fresti, og lögðu Akureyringarnir Sig- urjón Sigurbjörnsson og Rún- ar Sigurpálsson grunninn að góðum sigri. Auk Sigurjóns og Rúnars var í sveitinni Ari Richardsson frá ReykjaK'ík. Sveitin fékk 11 Vi vinnirlg af 15 mögulegum. íslend- ingar sendu fjórar samvinnusveit- ir á mótið og þar voru einnig sveitir frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. í einstaklingskeppni varð Sig- urjón Sigurbjörnsson í 2. sæti með 6 vinninga, jafn marga vinn- inga og sigurvegarinn en færri stig, og Rúnar Sigurpálsson varð í 3. sæti með 5!/2 vinning. SS Skákfélag Akureyrar: Rúnar Sigurpálsson vann Amaro-bikarinn Skákfélag Akureyrar hélt hraðskákmót sl. mánudag og var teflt um Amaro-bikarinn í þriðja sinn. Rúnar Sigurpáls- son sigraði og fékk bikarinn, sem Amaro gaf til keppninnar, til varðveislu í eitt ár. Áður höfðu Olafur Kristjánsson og Arnar Þorsteinsson haft þenn- an bikar í vörslu sinni. Úrslit í hraðskákmótinu urðu þessi: 1. Rúnar Sigurpálsson 14 v. 2. Ólafur Kristjánsson 13'/2 v. 3. Jón Björgvinsson 12!/2 v. 4. Arnar Þorsteinsson 12 v. 5. Þór Valtýsson W/i v. 6. Þórleifur Karlsson 11 v. Keppendur voru alls 17 og skákstjóri var Albert Sigurðsson. SS að ræða slíkum hugmyndum og talið að hagur lánardrottna, starfsmanna og eigenda væri best tryggður með áframhaldandi rekstri. Þann 8. maí s.l. sagði Skretting a.s. upp samstarfssamningi við ístess, án nokkurs fyrirvara, á þeim grundvelli að félagið hafi verið gjaldþrota 31. mars sl. Ekki hefur verið sýnt fram á að full- yrðing um gjaldþrot eigi við rök að styðjast og hefur stjórn ístess mótmælt uppsögninni og óskað eftir viðræðum við T. Skretting a.s. um þetta mál sem allra fyrst. í leyfis- og sölusamningi félag- anna eru ákvæði þess efnis að leysi beri úr ágreiningi um fram- kvæmd hans með viðræðum. Beri þær ekki árangur er hægt að vísa málinu til sérstaks gerðardóms. í samningi félaganna er einnig ákvæði þess efnis, að verði samn- ingnum sagt upp sé fstess h.f. óheimilt að framleiða eða selja fiskfóður og aðrar fóðurvörur næstu 3 árin. Félagið væri því með uppsögn samningsins sett í óbærilega stöðu og í raun allar bjargir bannaðar. Það er skoðun meirihluta stjórnar fstess h.f. að ekki hafi verið efni til uppsagnar samn- ingsins. Því beri að leysa þann ágreining sem uppi er eftir ákvæðum samningsins. Meiri- hluti stjórnar telur einnig að samningurinn sé í fullu gildi þar til tekist hefur að leysa úr ágrein- ingnurn, annað hvort í viðræðum aðila eða með gerðardómi. í framhaldi af uppsögn samn- ingsins hefur T. Skretting a.s. nú stofnað eigið fyrirtæki til að selja sínar vörur í Færeyjum, ráðið til sín starfsfólk dótturfyrirtækis ístess h.f. í Færeyjum, gert til- raun til að ná undir sig lagerað- stöðu félagsins og gert félaginu erfitt fyrir að kaupa nauðsynleg hráefni til framleiðslunnar. Markaður ístess h.f. í Færeyjum neinur um 2/3 hlutum sölunnar og ef hann tapast verður afar erf- itt að reka félagið áfram. Aðgerðir T. Skretting a.s. hafa því nú þegar valdið félaginu miklu tjóni og uppsögn samn- ingsins er byggð á forsendum sem T. Skretting a.s. hefur ekki sýnt fram á að séu fyrir hendi og hefur heldur ekki fengist til að ræða fram til þessa. Á þessari stundu er staða ístess h.f. mjög óviss, en hinir íslensku eigendur hafa farið fram á við- ræður við T. Skretting a.s. og af niðurstoðum þeirra viðræðna mun áframhaldið ráðast. Verði ekki unnt að bjarga þessum rekstri, fyrst og fremst vegna afstöðu og aðgerða T. Skretting, má gera ráð fyrir að 20 Akureyr- ingar missi atvinnu sína, lánar- drottnar félagsins tapi fjármun- um, eigendur tapi hlutafé sínu og á þá falli ábyrgðir og að gengið verði að fiskeldisfyrirtækjum með þeim hætti að það verði þeirra banabiti. Eignir félagsins eru í fullu gildi, en verðmæti þeirra ræðst mikið af því hvort fyrirtækið er í rekstri eða ekki. Þannig er ekki hægt að gera ráð fyrir að fyrir þær fáist sannvirði, stöðvist rekstur félagsins. Hér er því um að ræða stórt og alvarlegt mál. Það er hins vegar álit meirihluta stjórnar ístess h.f., að ef samstaða næst meðal eigenda fyrirtækisins, þá verði unnt að bjarga rekstrinum og félagið muni ná að vinna sig út úr þeim erfiðleikum sem það hefur átt við að stríða.“ Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráði hefur borist bréf frá bæjarstjórninni í Runavik í Færeyjum. í bréfinu er frá því greint að bæjarstjórnin hafi ákvcðið að taka upp vina- bæjasamband við Egilsstaða- bæ og þar með sé fallin niður hugmyndin um vinabæjasam- band við Akureyri. ■ Hreinn Pálsson bæjarlög- maður hefur sagt upp starfi sínu og miðar við að starfslok verði 1. ágúst nk. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá tveimur bæjarbúum, þar sem Ieitað er eftir umsögn bæjarstjórnar um rekstur þjónustufyrirtækis, greiðabíla, sem þjónustaði bæði einstakl- inga og fyrirtæki í bænum. Bæjarráð telur jákvætt að þjónusta greiðabíla verði boð- in á Akureyri og óskar eftir umsögn Bílstjóraféiags Akur- eyrar um erindið. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að veita Myndlistarskólanum á Akureyri, ferðastyrk að upp- hæð kr. 250.000,- vegna þátt- töku nemenda í vinabæjaviku í Lahti 25.-31. ágúst í sumar. ■ Á fundi stjórnar Tóniistar- skólans fyrir skömrnu, kom fram að tvær umsóknir höföu borist um stöðu yfirkennara. Með hliðsjón af uppsögn skólastjórans Jóns Hlöðvers Áskelssonar, samþykkir skólastjórn að umsóknarfrest- ur um stöðu yfirkennara verði framlengdur til 25. maí nk. og staða skólastjóra verði auglýst með sama umsóknarfresti. ■ Bæjarráð hefur samþykkt aö veita skáksveit Gagnfræða- skóla Akureyrar styrk að upp- hæð kr. 50.000.- vegna þátt- töku í íslandsmóti grunnskóla- sveita í Rcykjavík, 24.-26. maí. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá íþróttasambandi fatlaðra, þar sem leitað er eftir styrk frá Akureyrarbæ til þátt- töku fatlaðra í íþróttamótum erlendis á þessu sumri. Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 40.000.- vegna þátttakenda frá Akur- eyri í íþróttamótum. ■ Ferðamálahópur sem bæjarstjórn skipaði, hcfursent frá sér eftirfarandi tillögu, sem bæjarráð leggur til að verði samþykkt: „Bæjarstjórn Akureyrar skorar hér með á Flugmálastjórn að sjá til þess að á flugmálaáætlun næstu fjögurra ára verði uppbygging Akureyrarflugvallar sem milli- landaflugvallar forgangsatriði. Bæjarstjórn Akureyrar lýsir jafnframt yfir vilja sínum til samstarfs í máli þessu.“ ■ Bæjarverkfræðlngur kynnti á fundi bæjarráðs nýlega, til- boð sem borist hafa í hellur til notkunar á Ráðhústorgi. Ann- að var frá Hellustcypunni og hljóðaði upp á kr. 5.020.400,- og hitt frá Möl og sandi hf. og hljóðaöi upp á kr. 4.401.000.-. Bæjarráð leggur til að tekið verði tilboði frá Möl og sandi hf.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.