Dagur - 22.05.1991, Síða 5
Miðvikudagur 22. maí 1991 - DAGUR - 5
Nemendur á 2. stigi stýrimannanáms útskrifast, dúxinn Björn Viðar Gylfason stendur næst íslenska fánanum
Dalvíkurskóli:
Sumarbúðir
kirkjunnar við Vestmannsvatn Aðaldal
Flokkaskipting sumarið 1991
1. fl. 18. júní-25. júní
fl. 26. júní- 3. júlí
3. fl. 5. júlí -12. júlí
4. fl. 15. júlí -22. júlí
5. fl. 23. júlí -26. júlí
6. fl. 27. júlí - 3. ágúst
börn 7-10 ára
börn 8-11 ára
börn 10-13 ára
börn 7-10ára
aldraöir frá Dalvík
blindirog aldraðir
Innritun er hafin í síma 96-27540 frá kl.
17.00-18.30 virka daga.
Fyrstu fiskvmnslunemarnir útskrifaðir
- skólayfirvöld á Dalvík stefna að því að þar rísi miðstöð
fræðslumála sjávarútvegsins á Islandi
- Stýrimannadeildin hefur starfað í tíu ár
Stýrimannadeild Dalvíkur-
skóla hefur nú útskrifað skip-
stjórnarmenn í tíu ár sam-
fleytt. Jafnframt náði skólinn
þeim áfanga á föstudaginn að
útskrifa fyrstu nemendurna af
fískvinnslubraut. Skólayfirvöld
stefna að því að gera fram-
haldsdeildirnar á Dalvík að
sjálfstæðum sjávarútvegsskóla
sem orðið gæti miðstöð
fræðslumála sjávarútvegsins á
Islandi.
í ræðu Þórunnar BergKdóttur
skólastjöra Dalvíkurskóla við
skolaslit "framhaldsdeildánna í
Víkurröst á föstudaginn kom
fram að stýrimannanámið á Dal-
vík er orðið 10 ára gamalt. Skól-
inn hefur rétt til að útskrifa stýri-
menn af 1. og 2. stigi og nú liggur
fyrir umsókn til menntamála-
ráðuneytisins um að skólinn fái
einnig að útskrifa stýrimenn af 3.
stigi og verði með því fullgildur
stýrimannaskóli.
Þá urðu þau tímamót að á
föstudaginn voru útskrifaðir sex
nemendur sem lokið hafa þriggja
ára námi við fiskvinnslubraut.
Brautin er skipulögð á svipaðan
hátt og nám í Fiskvinnsluskólan-
um í Hafnarfirði að viðbættu
námi í markaðsfræðum og örygg-
ismálum fyrir sjómenn. Það síð-
astnefnda er kennt í ljósi þess að
margir nemenda munu væntan-
lega starfa á frystitogurum þegar
fram líða stundir. Fiskvinnslu-
deildin er rekin í tengslum við
Þórunn Bergsdóttir, skólastjóri
Dalvíkurskóla, tekur við gjöf frá
kollega sínum úr Fiskvinnsluskólan-
um í Hafnarfirði, Sigurði Haralds-
syni.
Verkmenntaskólann á Akureyri.
Bókleg kennsla fer fram í Dal-
víkurskóla en verkleg í frystihúsi
KEA, en þar starfa nemendur
alla síðustu önnina.
í vetur hefur Ómar Karlsson
verið deildarstjóri fyrir báðar
deildirnar og kom frani í máli
hans við skólaslitin að hann telur
að deildirnar hafi þegar fest sig
það vel í sessi að tengslin við
grunnskólann séu að verða
óþörf. Þórunn tók í sama streng
og benti á að erfiðlega hefði
gengið að sameina þá skóla á
höfuðborgarsvæðinu sem sinna
fræðslu fyrir sjávarútveginn.
Hins vegar væru allar forsendur
fyrir því að koma upp á Dalvík
fræðslumiðstöð sjávarútvegsins
þar sem kennd verði sjó-
mennska, fiskvinnsla, ntarkaðs-
fræði og sjávarlíffræði.
I vetur voru 52 nemendur í
deildunum tveimur og útskrifuð-
ust 12 stýrimenn á 2. stigi og 14 á
1. stigi. Fram kom í máli Omars
að umsóknum um skólavist fjölg-
ar stöðugt og bjóst hann við að
nemendur yrðu á bilinu 60-70
næsta vetur. Þar nýtur deildin
góðs af heimavist sem Dalvíkur-
skóli rekur en þar er pláss fyrir 20
nemendui i fiamhaldsdeildum.
Hæstu einkunn á 2. stigi stýri-
mannadeildar hlaut Björn Viðar
Gylfason, 9,60, og er það hæsta
meðaleinkunn sem náðst hefur í
sögu deildarinnar. Bestum ár-
angri fiskvinnslunema náði Sig-
rún Friðriksdóttir. Að vanda
fengu þau og aðrir nemendur
sem sýnt hafa góða frammistöðu
viðurkenningar frá skólanum og
ýmsum aðilum sern sýnt hafa
skólanum áhugaogstuðning. Við
skólaslitin töluðu þeir Valdimar
Bragason fyrir hönd samtaka
norðlenskra útgerðarmanna,
Guðmundur Steingrímsson fyrir
hönd Skipstjórafélags Norður-
lands, Friðrik Friðriksson spari-
sjóðsstjóri á Dalvík, Gunnar
Aðalbjörnsson frystihússtjóri á
Dalvík, Bernharð Haraldsson
skólastjóri Verkmenntaskólans á
Akureyri og Sigurður Haraldsson
skólastjóri Fiskvinnsluskólans í
Hafnarfirði. -ÞH
Vinningstölur laugardaginn
18. maí ’91
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 6.905.124.-
2. 4%« 5 150.582.-
3. 4af5 302 4.300.-
4. 3af 5 8.431 359.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
11.983.363.-
I Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustöðum.
RHEINLAND-PFALZ - Ferðaævintýri í eigin bíl
TyskTurist-Information ■ Vesterbrogade 6 d,- DK-1620 Kbh. V.
Simi: (90) 45 33 12 70 95
Njótið fegurðar Rínarlanda, þar sem hið
heimsfræga Rínarvín er ræktað. Sjáið og siglið
á fljótunum Rin-Mosel-Ahr og Lahn með
fallega kastala og hallir á árbökkunum. Skoðið
miðaldabæi með markaðstorgum og uppruna-
legum miðaldahúsum. Rínarhéruð eru frábær
staður til að skoða sig um, en jafnframt að
njóta hvíldar.
Flugáætlun Flugleiða er kjörin til þess að koma þér og þínum í þægilegt og skemmtilegt frí í Þýskalandi.
Luxemborg 10 sinnum í viku
Frankfurt 5 sinnum í viku
Hamborg 2 sinnum í viku
Amsterdam 5 sinnum í viku
BÍLALEIGUR: Flugleiðir sjá um pöntun á
bílaleigubílum á hagstæðum kjörum.
SUMARHÚS/ÍBÚðlR: Sérstaklega
hagstæðir samningar í Hunsrúck í miðju
Rínarhéraðí. í Hunsrúck er skemmtilegt að
dvelja og njóta lífsins í fallegu umhverfi eða
fara í spennandi ferðir um nágrennið.
HÓTEL: Flugleiðir hafa samninga við úrval
hótela á góðu verði í Pýskalandi.
Upplýsingar og bókanir:
FLUGLEIÐIR
símí 690300
opio 7 daga í viku eða
ferðaskrifstofur og umboðsmenn.