Dagur - 13.06.1991, Page 7
Fimmtudagur 13. júní 1991 - DAGUR - 7
Sólning er starf sem krefst óskiptrar
athygli.
umhverfisári
lit og merkisibrennslu er fram-
kvæmanleg ef pöntunin er nógu
stór. Möguleikar á framleiðslu í
mismunandi litum hafa opnast
vegna samstarfs við Efnaverk-
smiðjuna Sjöfn. Af endursölu-
vörum bindur Gúmmívinnslan
mestar vonir við GV-reitina. Því
miður hefur verðsamanburður
við steinhellur staðið sölu þeirra
fyrir þrifum. Sá samanburður er
yfirleitt óhagstæður vegna hærri
framleiðslukostnaðar. En GV-
reiturinn er ca. 9-65% dýrari en
litaðar steinhellur. Þessi saman-
burður er þó ekki alveg réttmæt-
ur því reiturinn er ekki í sam-
keppni við steinhellur. Notkun
hans tryggir öryggi barna og full-
orðinna á leiksvæðum, við sund-
laugar og íþróttamannvirki og á
örðum þeim stöðum þar sem fall-
og hálkuhætta er.“
Nú fellur til mikið af alls konar
plastvöru sem ekki er endurunn-
in hérlendis. Hefurðu hugleitt
slíka endurvinnslu?
„Nei, ekki alvarlega enda
þyrfti þá aukinn tækjabúnað, og
slíkt er ekki á dagskrá. Plasti er
hins vegar safnað saman hér-
lendis, sagað niður og flutt út en
það er ekki endurvinnsla í þeim
skilningi heldur söfnun og
útflutningur. Það er hins vegar
jákvætt frá umhverfisverndar-
sjónarmiði að safna saman öllu
þessu gífurlega magni af plasti
sem til fellur í nútímaþjóðfélagi.
Notkun á endurunnum pappír
þarf að aukast og opinberir aðilar
ættu að ganga fram fyrir skjöldu í
þessum efnum og nota slfkan
pappír þar sem því verður við
komið. í skólunum eru haldnar
umhverfisvikur og skólayfirvöld
ættu að sýna gott fordæmi og
auka verulega hlutfall endurunn-
ins pappírs í skólum. Allar slíkar
aðgerðir auka skilning á nauðsyn
þess að náttúran og umhverfið er
hluti af okkur sjálfum.“
Gúmmivinnslan hf. hefur verið
rekin með hagnaði öll þessi ár án
þess að nokkur opinber aðstoð
eða styrkir hafi komið þar til,
sem undirstrikar þá staðreynd að
umhverfisvernd í formi endur-
vinnslu getur líka verið ábata-
söm. GG
KONUR!
Hvernig væri að fá sér
hatt fyrir 17. júní?
Einnig úrval af dressum
fyrir þjóðhátíðardaginn.
Ath.! Aðeins 1-2 stk. af hverju.
Líttu inn!
Opið á laugardaginn 15. júní frá kl. 10-14.
tískuhúsið
Hafnarstræti 88,
sími: 24396.
Sýn i ngarafs láttu r
í framhaldi af Sumarsýningunni ‘91
af eftirtöldum KEA-vörum:
★ AB mjólk
★ Jógúrt, allar teg.
★ Glóðarpylsur
★ Hvítlaukslamb
★ Sinnepslamb
★ Appelsínubiti
★ Rommbraggi
★ Flóru smjörlíki
Afslátturinn gildir þessa
viku í verslunum
á Eyjafjarðarsvæðinu.
Mjólkursamlag KEA. Brauðgerð KEA.
Kjötiðnaðarstöð KEA. Smjörlíkisgerð KEA.
Tilboð
Lambalærissteik
m/beini kr. 649,- kg.
Ostakynningar
föstudag frá kl. 13-18.
Laugardag frá kl. 10-13.
10% kynningarafsláttur
BóndaBrie
Appelsínuostakaka
Smurostar
Kryddsmjör
Nýtt
kortatímabil.
Vínber blá
kr. 259,- kg.
Opið til kl. 19.00, föstudaga.