Dagur - 06.07.1991, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 6. júlí 1991
Hestar
íslandsmót í hestaiþróttum í Húnaveri
rætt við framkvæmdastjóra mótsins Hjört Einarsson á Húnavöllum
Um næstu helgi, nánar tiltekið dagana 11.-14. júlí, verður fjórtánda íslandsmótið í hesta-
íþróttum haldið í Húnaveri. íslandsmót í hestaíþróttum eru haldin á hverju sumri. Tvö síð-
astliðin sumur hafa mótin verið haldin á félagssvæði hestamannafélagsins Skugga að Vindási
við Borgarnes. Síðasta íslandsmót sem haldið var á Norðurlandi fór fram á Flötutungum í
Svarfaðardal árið 1987. íþróttadeild hestamannafélagsins Hrings sá um framkvæmd þess
móts. í ár er það íþróttadeild hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu sem sér um framkvæmd
mótsins í samvinnu við Hestaíþróttasamband íslands. íslandsmótið í Húnaveri verður tví-
mælalaust stærsta mótið á Norðurlandi í ár, framkvæmdastjóri mótsins er Hjörtur Einars-
son.
Á síðasta íslandsmóti sem haldið var í Borgarnesi hlaut aðeins
einn norðlenskur keppandi íslandsmeistaratitil. Það var Sigrún
Brynjarsdóttir frá Akureyri sem sigraði í fjórgangi á hryssunni
sinni Snerru frá Skúfsstöðum. Sigrún keppti í flokki ungmenna
og varð stigahæst í íslenskri tvíkeppni. Norðlendingar; nú er að
taka á honum stóra sínum og sýna að getumikil hross og knapar
eru víðar til en á höfuðborgarsvæðinu.
Neisti-Óðinn-Snarfari
íþróttadeild hestamanna í A-
Húnavatnssýslu starfar innan
vébanda Ungmennasambands A-
Húnvetninga. Á svæði deildar-
innar starfa þrjú hestamannafé-
lög, Neisti, Óðinn og Snarfari og
er Neisti þeirra stærst. Keppnis-
svæðið við Húnaver er í eigu
hestamannafélagsins Óðins.
Formaður íþróttadeildar
hestamanna í A-Húnavatnssýslu
er Magnús Jósefsson bóndi í
Steinsnesi í Sveinsstaðahreppi.
Hann er jafnframt formaður
framkvæmdanefndar mótsins. í
nefndinni eru auk hans Jón
Gíslason á Hofi í Vatnsdal mikill
áhugamaður um hross og hrossa-
rækt, Hrafnhildur Jónsdóttir á
Þingeyrum, en hún rekur þar
tamningastöð ásamt Hermanni
Ingasyni, Jón Sigmarsson nýút-
skrifaður búfræðingur frá
Hólum, hann varð í öðru sæti í
Skeifukeppninni í vor og er að
hefja störf við tamningar á Flögu
í Vatnsdal, Hrönn Hallsdóttir á
Húnavöllum, en hún starfaði við
stjórn og skipulagningu hópreið-
arinnar á síðasta Landsmóti og á
fjölda hrossa. Framkvæmdastjóri
mótsins er eins og áður sagði
Hjörtur Einarsson íþróttakenn-
ari og hestamaður á Hún. völl-
um. Hann hefur stjórnað hóp-
reiðum á flestum stærri hesta-
mótum norðanlands undanfarin
ár. Hjörtur og Hrönn á Húna-
völlum eiga sex kynbótahryssur
auk annarra hrossa. Hjörtur
sýndi í vor fimm vetra stóðhest-
inn Stefnir frá Grænuhlíð í
Torfalækjarhreppi og reið hon-
um í fyrstu verðlaun. Eigandi
Stefnis er Hrönn Hallsdóttir á
Húnavöllum.
Það er langt síðan húnvetnskir
hestamenn hafa haldið stórmót
og þegar áhorfendur sjá glæsilega
gæðinga dansa á vellinum í
Húnaveri eru ótal vinnustundir
að baki. Ekki aðeins hjá knöpum
og hestum heldur einnig hjá
framkvæmdaaðilum mótsins. Það
vill oft gleymast að engin væru
mótin ef starfsmennina vantaði.
Heyrum hvað Hjörtur Einarsson
hefur að segja um íslandsmótið
1991.
Logn á mótssvæðinu!
Að sögn Hjartar var síðasta stór-
mót haldið í Húnavatnssýslu
1964 en þá var Fjórðungsmót
haldið í Húnaveri. Þá fór mótið
fram á sléttum grónum bökkum
að þeirra tíma sið. Nú er öldin
önnur og húnvetnskir hestamenn
hafa byggt upp keppnissvæði í
Húnaveri. Þar er fyrsta flokks
hringvöllur og 300 metra
hlaupabraut sem að sögn Hjartar
er ein sú besta á landinu
í Húnaveri er stórt og gott fé-
lagsheimili sem mun gegna veiga-
miklu hlutverki á mótinu. Þar
verður matsala fyrir starfsmenn,
keppnismenn og gesti. Á föstu-
dagskvöldið verður haldin kvöld-
vaka í félagsheimilinu. Þá verður
örugglega glatt á hjalla og það
ætti enginn að þurfa að mæta
dúðaður í ullarteppi á kvöld-
vökuna eins og algengt er á
hestamótum þegar kvöldvökurn-
ar fara fram úti undir beru lofti.
Á laugardagskvöldið verður
dansleikur í félagsheimilinu þar
sem hljómveitin Herramenn mun
leika fyrir dansi.
Að sögn Hjartar er veðursæld
einstök í Húnaveri. Þar er yfir-
leitt alltaf logn og því sterkar lík-
ur á að mótsgestir sleppi við þann
leiðinda strekking sem algengur
er á mótssvæðum hestamanna.
Um tuttugu mínútna akstur er í
Húnavelli en þar er fyrsta flokks
sundlaug og stutt er bæði í
Varmahlíð og Blönduós. Tjald-
stæði í Húnaveri eru óendanleg
og fjölskyldufólk sérstaklega
velkomið, sagði Hjörtur.
Fjöldi snjallra knapa
og hesta mæta í Húnaver
Mikill fjöldi keppenda hefur
skráð sig í keppni á mótinu. Sem
dæmi má nefna að 76 keppendur
hafa skráð sig til keppni í tölti og
70 keppendur í keppni í fjór-
gangi. Hjörtur segist reikna með
að sjá í Húnaveri marga snjalla
reiðmenn og góða hesta.
Það er Ijóst að hlýðnikeppnin
verður sérstaklega spennandi þar
sem allir þeir sem lokið hafa
meistaraprófi Félags tamninga-
manna eru skráðir til leiks. Þeir
eru Sigurbjörn Bárðarson,
Eyjólfur ísólfsson og Reynir
Aðalsteinsson. Eyjólfur mætir nú
til leiks eftir langt hlé með Dropa
frá Hólum. Sigurbjörn og Kraki
verða í Húnaveri og knapar
tveggja hæst dæmdu kynbóta-
hryssanna á Fjórðungsmótinu á
Suðurlandi mæta með þær á
mótið. Þeir eru Reynir Aðal-
steinsson með hryssuna Flipu frá
Nýjabæ og Sigurður Matthíasson
með Venus frá Skarði. Sigurður
Matthíasson sem er aðeins fjór-
tán ára sýndi Venus svo glæsilega
á Fjórðungsmótinu að hún hlaut
hæstu einkunn fyrir hæfileika af
öllum hryssum á mótinu 8.73.
Það verður spennandi að fylgjast
með þessum unga knapa í Húna-
veri.
Dagskrá
íslandsmótið hefst á fimmtudags-
morgun og þann dag verður
keppt í hindrunarstökki og
hlýðniæfingum. Þá fer einnig
fram forkeppni í fimmgangi.
Á föstudag verður forkeppni í
fjórgangi, keppt í gæðingaskeiði
og kvöldvaka um kvöldið.
Á laugardag fer fram for-
keppni í tölti og 150 m-skeiði og
um kvöldið verður dansleikur.
Á sunnudag verða öll úrslit
mótsins og verðlaunaafhending-
ar.
Aögangseyrir
Aðgangseyrir á mótið verður
krónur tvö þúsund en börn yngri
en tólf ára greiða ekki aðgangs-
eyri. Á sunnudag verður
aðgangseyrir krónur fimmtán
hundruð, eða eins og Hjörtur
sagði „þetta er svipað miðaverð
eins og á meðal dansleik".
„Ég vil hvetja alla Norðlend-
inga til að koma á íslandsmótið.
Húnaver er til dæmis innan við
tveggja tíma akstur frá Akureyri
og því kjörið fyrir þá sem ekki
hafa tækifæri til að vera á öllu
mótinu að koma á sunnudaginn.
Þá verður hægt að sjá alla bestu
hestana og snjöllustu knapana á
mótinu takast á um efstu sætin í
úrslitakeppni, sagði Hjörtur."
Hjörtur Einarsson á Húnavöllum.
Séð yfir mótssvæðið í Húnaveri, þar sem um næstu helgi verður fjöldi kátra hestamanna og fjörugra hrossa.