Dagur - 06.07.1991, Page 10
10 - DAGUR - Laugardagur 6. júlí 1991
Frami Eyjólfe Gjafara Sverri^r hjá ***^*£££l S
,erið ævinlýri líkastnr. „°L'iffmvinnnmennskuna í knattspyrnn, a
draganum á Sauðarkrok. g ,,jnstök. Hann fór beint ur 2. dedd
22. aldursári. Saga Eyjolts t Tin<jastóli í hinn harða heim þysku
íslandsmótsins í knattspyrnu með T.ndasU) ^ ^ einn einasta
úrvalsdeildarinnar, ”B“nd®S ‘f ð var ’ekki góð frammistaða hans með
leik í 1. deildinm íslensku. E þ t hei(jur frábær frammistaða
Tindastóli semkom honum U' S nUgart^e ^ ^ ^
með landsliði Islands, ^ipuðu le.k , landsleik gegn Fmn-
stætt verður t.d. að heyJra hljóðið í Eyjólfi um gang mala
um á Akureyrarvell. 1989. Td að y , foreldra hans a Sauð-
í Stuttgart he.msott. blaða dd j fríi m.a. til að ganga að e.ga
árkróki nýlega þar sem hami var stad þeirrafór framums.ð-
unnustu sína Önnu Palu G.s t ^ Hveitihrauðsdagarn.r urðu ekki
rtktlar -Xo" — « S*“H8ar‘ Sl' mWV,kUdaS
strangra æfinga með l.ð. sinu.
„Hefái þessi regla
gilt hjá Tindastóli
væri ég fátækur
maður í dag"
- Eyjólfur Gjafar Sverrisson
knattspyrnumaður hjá
Stuttgart í helgarviðtali
Eyjólfur hefur ekki látið gott gengi með
Stuttgart stíga sér til höfuðs. Hógvær .• var
drengurinn áður en hann hélt út en sú dyggð
hefur dafnað síðan. Eyjólfur veit að hann
þarf að hafa fyrir hlutunum til að halda sér
í liðinu. Stuttgart hefur á að skipa sterkum
hópi leikmanna og hefur Eyjólfur skotist
fram fyrir marga stjörnuna í liðinu. Eins og
stendur gengur liðinu allt í haginn, komið í
Evrópukeppni félagsliða og andrúmsloftið
því gott í Stuttgart. í atvinnumennskunni
skiptast á skin og skúrir og Eyjólfur gerir sér
fyllilega grein fyrir því. En hvernig hefur
honum verið tekið í Stuttgart?
„Mér hefur verið tekið ágætlega. Ég
kannaðist við nokkra stráka úr þýska lands-
liðinu frá því ég spilaði með U-21 árs liðinu.
Petta var eins og að koma í hvert annað nýtt
lið, sumir voru ánægðir en aðrir ekki,“ svar-
aði Eyjólfur og átti þá við þá leikmenn sem
keppa við hann um sömu stöðu á vellinum.
„Það er barist gífurlega á æfingum og þeir
láta mann finna vel fyrir því í tæklingun-
um.“
„Sá hlær best sem síðast hiær“
Eftir slæma byrjun Stuttgart í „Bundeslig-
unni“ í haust fór að ganga vel eftir ráðningu
nýs þjálfara, Christoph Daum, sem kom til
liðsins í lok nóvember á síðasta ári. Eyjólfur
segir að andinn í hópnum sé fínn um þessar
mundir. „Metnaðurinn er gífurlega mikill,
menn vilja bara toppárangur. „Mórallinn" í
haust var kominn á lægsta plan því Stuttgart
hafði ekki gengið eins illa í mörg ár, liðið
komið í 16. sæti af 18 liðum í deildinni.
Félagið sætti mikilli gagnrýni en hlutirnir
fóru að ganga þegar Daum kom. Hann
sagði að liðið myndi ná Evrópusæti en þá
var bara hlegið að honum,“ segir Eyjólfur
en við vitum hvað hefur gerst. Daum er
mikill hörkukarl að sögn Eyjólfs og í hans
augum skiptir engu máli hvað leikmenn
heita, bara að þeir skili árangri og fari eftir
því sem hann segir. „Ef þú stendur þig þá
færðu að spila. Stjörnurnar komast ekki upp
með neina leti eða múður.“
Stuttgart komst í Evrópukeppni félags-
liða á kostnað FC Köln, sem tapaði bikar-
úrslitaleik fyrir Werder Bremen eftir víta-
spyrnukeppni. Þar sem Werder Bremen var
fyrir ofan Stuttgart í „Bundesligunni" losn-
aði eitt sæti í Evrópukeppni félagsliða. Það
„skemmtilega“ við þetta er að Christoph
Daum var rekinn frá FC Köln í haust vegna
gagnrýni hans á styrktaraðiia félagsins.
Hann þakkaði pent fyrir sig og kom sínu
nýja félagi áfram í Evrópukeppnina á kostn-
að gamla félagsins. Það sannaðist því mál-
tækið að „sá hlær best sem síðast hlær“!
Þakkaði fyrir tækifærið
Ein fyrsta breytingin sem Daum gerði eftir
að hann kom til Stuttgart var að setja Eyjólf
í liðið í staðinn fyrir þekktan leikmann,
Manfred Kastl. Eyjólfur þakkaði fyrir tæki-
færið og hefur verið í byrjunarliðinu síðan,
ef frá er talinn einn leikur sem hann lék ekki
vegna meiðsla í hné. Eyjólfur var sprautað-
ur niður fyrir nokkra leiki vegna hnémeiðsl-
anna og aðspurður sagði hann að það hafi
ekkert verið óþægilegt á meðan á því stóð
en þess á milli hafi meiðslin verið frekar
pirrandi. Eyjólfur hefur nú náð sér af
meiðslunum.
Atvinnuknattspyrnumenn hafa m.a. það
fram yfir aðra knattspyrnumenn að þeir æfa
miklu meira, enda væru þeir annars ekki
atvinnuknattspyrnumenn! En hvernig skyldi
þetta vera? Eyjólfur var fenginn til að lýsa
venjulegum degi hjá honum í Stuttgart:
„Ef tvær æfingar eru á dag þá vakna ég
um hálfáttaleytið og fæ mér góðan morgun-
mat. Fer á æfingu kl. 10 sem stendur yfir í
einn og hálfan til tvo tíma. Eftir morgunæf-
inguna förum við strákarnir í liðinu yfirleitt
saman út að borða. Síðan er æfing aftur kl.
3 og stendur til kl. 5. Þá fer maður heim. En
þegar keppnistímabilið er í hámarki þá er
stundum bara ein æfing á dag. Vikan líður
þá þannig að á mánudögum er frí, tvær
æfingar á þriðjudögum, ein á miðvikudög-
um, tvær á fimmtudögum, ein á föstudög-
um, leikur á laugardögum og ein æfing á
sunnudögum.“
Meiri tími í eiginhandaráritanir
Vitanlega hefur Þjóðverjum gengið misjafn-
lega að bera nafn Eyjólfs sómasamlega fram
og fljótlega var farið að segja „Jolly“, enda
drengurinn kallaður Jolli af mörgum hér
heima. Áhugi áhangenda Stuttgart fór að
beinast að þessum „ljóshærða víkingi sem
kom út úr ísskápnum", svo vitnað sé í
blaðaumfjöllun, og í dag er hann einn af
vinsælli leikmönnum liðsins. A.m.k. hefur
farið meiri tími í eiginhandaráritanir hjá
Eyjólfi þegar áhangendur ná á honum fyrir
og eftir leiki eða opinberlega.
Eyjólfur og fjölskylda; eiginkonan Anna
Pála Gísladóttir og tæplega 1 árs sonur
þeirra Hólmar Örn, hafa búið í úthverfi
Stuttgart, Bietigheim-Bissingen. Um þessar
mundir eru þau að koma sér fyrir í nýrri
íbúð í sama hverfi og segir Eyjólfur það
vera mun betra húsnæði en þau voru í.
Hef þak yfir höfuðið og
nóg að borða!
Forráðamenn Stuttgart hafa verið ánægðir
með frammistöðu Eyjólfs og í vor var undir-
ritaður nýr samningur til eins árs. Þeir vildu
semja lengur, en í samningnum er „klásúla“
um viðræður í haust um lengri samnings-
tíma, 2-3 ár. Um hvort hann taki slíku til-
boði sagði Eyjólfur að það fari allt eftir því
hvernig samningurinn hljóðaði. Ekki
tókst blaðamanni að fá Eyjólf til að tjá sig í
tölum um launamál sín en kappinn hafði þó
þetta að segja: „Ég kvarta ekki, hef þak yfir
höfuðið og nóg að borða!“ En bónusgreiðsl-
ur leikmanna eru sjaldan trúnaðarmál og
þegar Stuttgart tryggði sér sæti í Evrópu-
keppni félagsliða varð Eyjólfur hálfri millj-
ón íslenskum krónum ríkari. Ætti sú upp-
hæð að gefa lesendum einhverja hugmynd
um hvað miklir peningar eru í boði fyrir
atvinnuknattspy rnumenn.
Sektaður um 10 þúsund fyrir
að koma of seint
Eyjólfur hefur þurft að venjast ýmsu í
Þýskalandi og laga sig að aðstæðum. Eitt af
því er mikill agi Þjóðverjanna og eru for-
ráðamenn Stuttgart engin undanteking þar
á. Leikmenn eru látnir greiða sektir fyrir allt
mögulegt sem fellur utan laga og reglna og
skiptir engu hvort menn heita Jón eða séra
Jón. Eyjólfur hefur fengið að kenna á
þessu. I eitt skiptið kom hann klukkutíma
Eyjólfur á landsliðsæiingu fyrir leikinn gegn Tékkum í byrjun júní sl.
Laugardagur 6. júlí 1991 - DAGUR - 11
Myndir og texti:
Björn Jóhann Björnsson
Hjónin Anna Pála Gísladóttir og Eyjólfur Gjafar Sverrisson með soninn Hólmar Örn. Myndin er tekin eftir brúðkaup þeirra um síðustu helgi.
of seint á æfingu þar sem hann hafði gleymt
að breyta klukkunni þegar sumartíminn tók
gildi í Evrópu. „Þegar ég kom voru allir
byrjaðir að æfa úti á velli. Við eigum að
vera mættir hálftíma fyrir æfingu og fyrir
hverja mínútu sem þú mætir of seint þarftu
að greiða 10 mörk í sekt. Fyrir þetta skipti
þurfti ég að greiða um 300 mörk,“ sagði
Eyjólfur en þess má geta að þýska markið er
um 35 krónur íslenskar. „Hefði þessi regla
gilt hjá Tindastóli væri ég fátækur maður í
dag,“ bætti Eyjólfur við og brosti breitt.
Þjóðverjar eru sektaglaðir og sagði Eyjólfur
frá því þegar leikmönnum liðsins var boðið
út að borða af hóteli í Stuttgart eftir einn
sigurleikinn. Þeir fengu dýrindis máltíð frá
hótelinu en þegar leikmenn ætluðu á brott,
hver á sínum Benz, beið þeirra hótelstjór-
inn með 3000 króna bílastæðasekt á mann!
Eins og gefur að skilja hefur félögum
Eyjólfs hjá Stuttgart gengið brösulega að
skilja íslensku en þó bregða þeir stundum
fyrir sig íslenskum blótsyrðum í hita leiksins.
Éyjólfur sagði að þeir hefðu mikinn áhuga á
íslandi og nokkrir lýst áhuga sínum á að
heimsækja landið, einkum heimaslóðir
þeirra Eyjólfs og Ásgeirs Sigurvinssonar,
Sauðárkrók og Vestmannaeyjar. Aðspurð-
ur sagði Eyjólfur að engir teljanlegir tungu-
málaerfiðleikar hafi háð honum í fyrstu en
skiljanlega hefði þýskan sem hann lærði í
framhaldsskóla dugað skammt. „Þetta er
allt að koma. Hvorki leikmenn né þjálfarinn
þurfa að tala við mig á ensku þannig að öll
tjáskipti fara núna fram á þýsku. Argen-
tínumaðurinn Basualdo hefur hins vegar átt
erfitt uppdráttar þar sem hann skilur hvorki
ensku né þýsku og er strítt mikið."
Tindastóll á eftir aö hala inn stig
Næst á dagskrá í viðtalinu við Eyjólf var að
spjalla stuttlega um gengi gömlu félaganna í
Tindastóli í 2. deildinni. A meðan Eyjólfur
dvaldi hér heima í 2ja vikna sumarfríi tókst
honum að sjá einn leik með Tindastóli,
þann eina sem liðið hefur fengið stig úr þeg-
ar þetta er skrifað, gegn Fylki 3:3. Eyjólfur
var á því að liðið ætti eftir að fá fleiri stig í
sumar, en þess ber að geta að viðtalið var
tekið áður en Bandaríkjamennirnir fóru til
síns heima. En Eyjólfur minntist á ástæður
sem ekki hafa komið fram í umræðum um
hvers vegna Tindastóll hefur byrjað sumarið
svo illa. „Ég hef trú á að þeir eigi eftir að
hala inn stig þegar fer á líða á mótið. Málið
er að það er mikill aðstöðumunur á liðunum
fyrir norðan og sunnan. Liðin fyrir sunnan
hafa gervigrasið og geta æft úti allan ársins
hring auk þess sem þau spila fleiri æfinga-
leiki á vorin. Norðanliðin þurfa hins vegar
að sækja sína æfingaleiki suður og undir-
búningurinn er ekki eins góður og hann
þyrfti að vera. Tindastóll hefur áður byrjað
mótin illa en tekist að rétta úr kútnum þegar
á líður. Þetta kemur hjá strákunum.“
Auðvitað hefði verið ljúft
að fá dæmt mark
Eins og flestum er kunnugt lék Eyjólfur sinn
fyrsta A-landsleik á Laugardalsvelli gegn
Tékkum 5. júní sl. þegar Island tapaði 1:0.
Eyjólfur sagði að það hafi verið góð tilfinn-
ing að leika þennan leik. „Annars var þetta
eins og hver annar leikur en leiðinlegt að við
skyldum tapa.“ Eyjólfur hefur viðurkennt
að hann hafi handleikið knöttinn þegar
hann hamraði boltann í mark Tékkana í
leiknum en heyrum hans sögu: „Ég er á því
að dómarinn hafi verið að dæma brot á Arn-
ór því hefði hann verið að dæma hendi á
mig þá hefði hann gefið mér gula spjaldið.
Við strákarnir töluðum um þetta eftir leik-
inn og vorum sömu skoðunar. Annars skipt-
ir þetta engu máli, markið var dæmt af og
það stendur. En auðvitað hefði verið ljúft
að fá dæmt mark.“
Eyjólfur fór utan til Stuttgart sl. miðviku-
dag, eins og áður greinir, og hóf æfingar
með liðinu daginn eftir. „Við byrjum á
þrem æfingum á dag. Byrjum kl. 7 á morgn-
ana á því að hlaupa 10 kílómetra. Síðan er
morgunmatur og æfing næst kl. 11. Eftir
hana fáum við hádegismat og smáhvíld en
æfing byrjar aftur kl. 3 og stendur í tvo
tíma. Svona gengur þetta í þrjár vikur og
um miðjan júlí förum við í æfingaferð í
svissnesku Alpana." Eins og sjá má verður
nóg að gera hjá Eyjólfi næstu daga og lítill
tími fyrir brúðkaupsferð. „Ætli við förum
nokkuð í brúðkaupsferð fyrr en ég er hættur
í fótboltanum," sagði Eyjólfur og leist
greinilega ekki vel á þá hugmynd!
Þess má geta að „Bundesligan“ hefst að
nýju 3. ágúst nk. Þann dag verður Eyjólfur
23 ára þannig að ekki yrði amalegt fyrir
hann að skora í þeim leik. Það yrði einnig
ágætis afmælisgjöf til handa syninum Hólm-
ari Erni sem verður eins árs þrem dögum
síðar.
Tindastóll má hafa samband þegar
liðið er komið í l.deild!
Eins og staðan er í dag er ekki vitað hversu
lengi Eyjólfur verður hjá Stuttgart. En hvað
á hann von á að vera þar lengi og hefur hann
áhuga á að leika annars staðar?
„Það er erfitt að segja hvað ég verð lengi
í Stuttgart, a.m.k. í eitt ár enn. Ég hef alveg
eins áhuga á að spila annars staðar en lendi
maður í meiðslum þá er maður fljótur að
detta út. Þetta mun að sjálfsögðu fara eftir
hvernig gengur. Eins og stendur þá er ekk-
ert annað land sem freistar mín að leika í.“
- Áttu von á því að eiga eftir að leika í 1.
deildinni á íslandi?
„Það er aldrei að vita. Ég gæti vel hugsað
mér það einhvern tímann. Ég hef ekkert
óskalið í huga, ekki nema þegar Tindastóll
er kominn í 1. deild. Þeir mega hafa sam-
band við mig þegar þeir eru komnir upp,“
svaraði Eyjólfur hress í bragði.
Leikið 22 leiki með aðalliðinu
og skorað 6 mörk
Frá því Eyjólfur kom til Stuttgart í janúar
1990 hefur hann leikið 22 leiki með aðallið-
inu og skorað 6 mörk, 5 í deild og 1 í bikar-
keppninni. Fyrsta markið skoraði hann í
fyrsta leiknum sem hann kom inn á, gegn
Nurnberg 1. maí 1990. Eyjólfur skoraði þá
með þrumuskalla eftir sendingu frá Ásgeiri
Sigurvinssyni. Þá hefur Eyjólfur skorað
nokkur mörk með varaliði Stuttgart sem
leikur í 4. deildinni þýsku. Hann komst í
fyrsta skiptið í byrjunarliðið gegn Köln 24.
nóvember sl. Þetta var fyrsti leikur Christ-
oph Daum með liðið og Stuttgart sigraði
3:2. Eyjólfur átti stórleik og lagði upp tvö af
mörkum liðsins. Eftir þetta var Eyjólfur í
byrjunarliðinu nánast það sem eftir var
mótsins. En hvað skyldi standa upp úr í
huga Eyjólfs frá síðasta keppnistímabili?
„Það er margt sem stendur upp úr en
sennilega stendur 7:0 sigurinn gegn Dort-
mund hæst þar sent ég skoraði þrennu í
leiknum. Það var virkilega gaman og leikur-
inn mjög mikilvægur, sá fyrsti í seinni
umferð Bundesligunnar. Þessi sigur gaf
mjög gott „start“ og við fylgdum honum vel
eftir. Fyrsta markið mitt með Stuttgart er
líka minnisstætt."
- Var ekki mikil pressa á þig eftir mörkin
þrjú?
„Jú, sérstaklega frá áhangendum liðsins
og blaðamönnum. Þegar þú ert búinn að
gera eina þrennu þá segja þeir að þú eigir að
skora þrennu í hverjum leik eftir það. Þeir
eru svo kröfuharðir að það er alveg ótrú-
legt. Um leið og við eigum lélegan leik erum
við níddir niður, erum sagðir ekkert nema
rusl og eigi bara að selja okkur. Svo þegar
við vinnum leik erum við algjörir kóngar."
Álagið og keyrslan mest
„sjokkerandi“
Eftir þrennuna í lok febrúar sl. skoraði
Eyjólfur ekki mark fyrir Stuttgart fyrr en
gegn Köln 1. júní í 6:1 stórsigri. „Það var
gott að skora þetta mark en í rauninni hef
ég ekki verið í því hlutverki að skora. Fritz
Walter er aðalmarkaskorari liðsins og ég hef
meira verið í því að skapa marktækifæri og
losa um hann. Walter er leikmaður sem er
ekki mikið í boltanum en er á réttum stað á
réttum tíma þegar þarf að skora mörk.“
Fyrir unga drengi sem langar að gerast
atvinnuknattspyrnumenn dugir aðeins eitt
að sögn Eyjólfs og það er að æfa og æfa og
gefast aldrei upp þó á móti blási. „Það er
æfingin sem skapar meistarann,“ eins og
Eyjólfur komst að orði. En urðu ekki ýmsar
hindranir á vegi Eyjólfs þegar hann kom út
til Stuttgart?
„Jú, það var eitt og annað sem maður rak
sig á. En þetta er allt öðruvísi í atvinnubolt-
anum. Þar eru allir leikmenn fljótir og
sterkir og hafa einhvern ákveðinn styrk-
leika. Það sem „sjokkeraði“ mig mest var
álagið og keyrslan á æfingum. Baráttan er
mikil og ekkert gefið eftir. Reyndar nýttist
stökkkrafturinn mér mjög vel og hefur gert
síðan. Þegar þú gerir ekkert annað en að
æfa fótbolta þá segir það sig sjálft að þú tek-
ur framförum. Ég hef öðlast meiri tækni,
snerpu og kraft. Æfingarnar sjálfar eru
meira fyrir liðið sem heild en síðan er mikil-
vægt að æfa sjálfur áfram á eftir, sérstaklega
þau atriði sem þarf að styrkja eða halda við.
Öðruvísi næst ekki árangur.“
Eins og stendur kemst ekkert
annað að en fótbolti
- Hvað hyggst Eyjólfur gera að ferli loknum
sem knattspyrnumaður?
„Það er erfitt að segja. Eins og stendur
kemst ekkert annað að en fótbolti. Ég hef
stúdentspróf og gæti hugsað mér að mennta
mig eitthvað meira, jafnvel tengt einhvers
konar íþróttaþjálfun en það er nógur tími til
að húgsa um slíkt.“
Það var komið að lokum spjalls okkar
Eyjólfs á heimili foreldra hans við Smára-
grundina á Sauðárkróki. Framundan var
strangur undirbúningur fyrir brúðkaupið og
var ekki annað að sjá um síðustu helgi en
hann hafi tekist með miklum ágætum. Dag-
ur þakkar Eyjólfi spjallið og óskar honum,
Önnu Pálu og Hólmari Erni alls góðs í
Stuttgart. Eitt er víst að Norðlendingar og
allir Islendingar munu halda áfram að fylgj-
ast grannt með gengi „ljóshærða víkingsins“
af Króknum í hinum harða heimi atvinnu-
knattspyrnunnar. -bjb