Dagur - 15.08.1991, Síða 1

Dagur - 15.08.1991, Síða 1
74. árgangur Akureyri, fimmtudagur 15. ágúst 1991 152. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Einn lífeyrissjóður fyrir Norðurland: Undirbúningsftindur í september - mikill meirihluti aðildarfélaga Alþýðusambands Norðurlands lýsir sig fylgjandi stofnun sjóðsins Miðstjórn Alþýðusambands Norðurlands hefur ákveðið að boða til undirbúningsfundar fyrir stofnun eins lífeyrissjóðs á Norðurlandi. Þetta var Akureyri: Árásir á ljósastaura - Mustang í vanskilum Ekið var á Ijósastaur á Austur- brú á Akureyri í gærmorgun, á milli Hafnarstrætis og Drottn- ingarbrautar. Ökumaður var einn í bflnum og meiddist ekki en bíllinn og Ijósastaurinn skemmdust töluvert. F>etta er í annað sinn á jafn- mörgum dögum sem ekið er á ljósastaur á Akureyri. Sl. þriðju- dag var ekið á ljósastaur við gatnamót Skarðshlíðar og Smára- hlíðar og þeir sem voru í bílnum eru grunaðir um að hafa haft Bakkus með í för. F>rír voru í bílnum og tveir þeirra fluttir á slysadeild FSA en fengu að fara heim að rannsókn'lokinni. Lögreglan á Akureyri lýsir eft- ir bifreiðinni MA-658 sem stolið var á Akureyri sl. fimmtudag. Bifreiðin er af gerðinni Ford Mustang, árg. 1980, grá að lit og með stóra svarta stafi á hliðunum þar sem stendur „Mustang". F>eir sem hafa orðið bifreiðarinnar varir eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Akureyri. -bjb niðurstaða fundar sem boðað- ur var til að fara yfír svör aðild- arfélaga AN á en síðasta vetri var óskað eftir afstöðu ein- stakra félaga til stofnunar eins lífeyrissjóðs fyrir Norðurland. Stefnan hefur verið sett á að sjóðurinn taki til starfa í árs- byrjun 1993. í nóvember sl. efndi Alþýðu- samband Norðurlands til ráð- stefnu á Akureyri um lífeyrissjóða- mál þar sem sérstaklega var til umræðu möguleiki á stofnun eins lífeyrissjóðs fyrir Norðurland. Strax að þessari ráðstefnu lokinni fór fram aukaþing Alþýðusam- bandsins þar sem samþykkt var að beina því til aðildarfélaga sambandsins að þau taki afstöðu til stofnunar lífeyrissjóðs fyrir Norðurland. Bréf þessa efnis voru þá send út og hafa þau verið að berast fram eftir vori og sumri. Miðstjórn Alþýðusam- bandsins kom svo saman fyrir skömmu til að fara yfir þau. „í heild eru þessi svör mjög jákvæð og mikill meirihluti lýsir sig fylgjandi stofnun þessa sjóðs,“ segir Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðusambands Norð- urlands. Svör bárust frá 19 af 22 aðildarfélögum Alþýðusambands- ins. „Við ákváðum á þessum mið- stjórnarfundi að þar sem viðtök- ur séu svona góðar þá verði boð- aður undirbúningsfundur fyrir stofnun eins lífeyrissjóðs á Norðurlandi í tengslum við 22. þing Alþýðusambands Norður- lands á Illugastöðum í lok sept- Alexandersflugvöllur: Tilboð opnuð í tækjageymslu 25-30% yfir kostnaðaráætlun - voru Fyrr í vikunni voru tilboð opn- uð í byggingu tækjageymslu á Alexandersflugvelli á Sauðár- króki. Tvö tilboð bárust frá heimaaðilum og reyndust þau vera nokkuð yfír kostnaðar- áætlun. Kostnaðaráætlun Flugmála- stjórnar var kr. 8.558.800. Trésmiðjan Borg hf. bauð tæpar 10,7 milljónir króna í verkið og Byggingafélagið Hlynur hf. tæpar 11,2 milljónir. Útboðið fólst í jarðvinnu, lögnum í jörð og steypuvirki. Ofan á steypuvirkið kemur stálgrindarhús en það var ekki í þessu útboði. Flugmálastjórn á eftir að yfir- fara tilboðin og ekki er vitað hve- nær framkvæmdir hefjast. -bjb ember. F>ar verður fulltrúum frá öllum stéttarfélögum á Norður- landi boðin þátttaka sem og full- trúum atvinnurekenda," segir F>óra. Þóra segir að á þessum undir- búningsfundi flytji miðstjórn AN skýrslu um hvað gerst hafi í þessu lífeyrissjóðamáli og fái fram umræður. Þar verði einnig kosin undirbúningsnefnd sem að lík- indum velji sér framkvæmda- stjórn og ráði sér starfsmann til að hrinda stofnun þessa lífeyris- sjóðs í framkvæmd. „Segja má að nú hefjist viúqan því málið er flókið. Aðdrfgand- inn er kominn á skrið en útfærslu- vinnan verður gífurleg," segir Þóra. Aðspurð segir hún að mið- stjórn hafi sett það mark að einn lífeyrissjóður fyrir Norðurland taki til starfa í ársbyrjun 1993 en hvort þessi undirbúningstími sé nægjanlegur verði að koma í ljós. JÓH Hér steypist Blanda út úr nýja miðlunarlóninu við Kolkuhól. Fjallað verður um Blönduvirkjun í máli og myndum í helgarblaði Dags á laugardag. Myiul: -ÞH Lögreglan á Blönduósi: Ökumenn aka of hratt í gegnum Húnaþíng Þjóðvegurinn í gegnum Húnavatnssýslur er langur og strangur og ökuhraði mikill. Lögreglan á Blönduósi hefur eftirlit með þessum vegi á sinni könnu og hefur í nógu að snúast. Síðustu misseri hafa stöðugt borist fréttir af fjölda ökumanna sem hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur í Húnaþingi en er þetta eitthvað að batna? Þegar blaðamaður Dags var á ferðinni á Blönduósi á dögun- um kom hann við á lögreglu- stöðinni og lagði þessa spurn- ingu fyrir Kristján Þorbjörns- son, aðalvarðstjóra. Kristján sagði að ekki væru eins margir ökumenn teknir og áður en það stafaði frekar af minna eftirliti en að ökumenn hafi stillt hraðanum meir í hóf. „Sparn- aðarráðstafanir dómsmála- ráðuneytisins gera það að verk- um að við getum ekki sinnt hraðamælingum eins vel og áður,“ sagði Kristján. „Við fáum ekki eins háar ökuhraðatölur en það er alltaf eitthvað um hraðakstur á bilinu 110-130 km. Ökumenn aka of hratt hér í gegn og við reynum að stemma stigu gegn því eins og við mögulega getum,“ sagði Kristján ennfremur. Þegar Dagur heimsótti lög- reglustöðina bar svo vel í veiði að allur bílaflotinn var í höfn og því tilvalið að smella mynd af flotanum ásamt lögreglumönn- um. -bjb Bílafloti lögreglunnar í Húnaþingi fyrir utan lögreglustöðina á Blönduósi, tvær Subaru-bifreiðar, Chevrolet og Mitsubishi-jeppi. Þetta er scnnilega ein síðasta myndin af Chevrolet-bílnum í hlutverki lögreglubíls því hann mun víkja fyrir nýjiini Econoline. Lögreglumennirnir eru, frá vinstri, Þór Gunnlaugsson, varðstjóri, Gunnar Sigurðsson, lögregluþjónn, Kristján Þorbjörnsson, aðalvarðstjóri, Hermann Ivarsson, lögregluþjónn, og Sigurður Sigurðsson, varðstjóri. Mynd: -bjb

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.