Dagur - 15.08.1991, Page 5

Dagur - 15.08.1991, Page 5
Fimmtudagur 15. ágúst 1991 - DAGUR - 5 Embættismannavaldið Þekking eða öllu heldur meintur þekkingarskortur bæjarfulltrúa varð þess valdandi að þessar lín- ur voru barðar á blað. Það var áhugi á að stjórnendur bæjarins viti um hvað þeir eru að fjalla á fundum bæjarstjórnar - og það sem meira er - taki aukinn þátt í daglegri stjórn, ákvörðunum, sem skipta oft meira máli en að rétta upp aðra höndina á hálfs- mánaðar fresti. Það fer ekki hjá því að mikill hluti þess valds, sem bæjarstjórn er veitt á fjögurra ára fresti, hafni hjá embættismönnunum. Jafnvel má ganga svo langt að segja að meirihluti valdsins sé í höndum embættismanna sem þurfa ekki að standa kjósendum reikn- ingsskil gerða sinna. Petta er óheppilegt því hversu vandaöir sem embættismennirnir eru eiga þeir ekki að hafa svo mikið vald. Endurskipulagning Það verður að gera yfirstjórn bæjarins mun hraðvirkari og ákveðnari, hún verður að ná því að setja mark sitt á stjórnun bæjarins svo eftir sé tekið. Ein leið að því marki er að fækka bæjarfulltrúum úr ellefu í sjö, endurskipuleggja nefndir, ráða í fullt starf hjá bænum þá fulltrúa sem fara í meirihluta og greiða fulltrúum í minnihluta sem svarar a.m.k. hálfu starfi. Þetta væri verðugt verkefni nýrrar bæjar- stjórnar. Tveir bæjarfulltrúar á Akureyri! En dæmið er ekki eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera. Fjöldi bæjarfulltrúa er nefnilega bund- inn í lögum - miðað við íbúa- fjölda á Akureyri skulu vera ellefu fulltrúar hvað sem tautar og raular. í sjáflu sér er það fár- ánlegt að Alþingi hafi sett lög sem þessi því með þeim er verið að meina sveitarfélögum að hag- ræða og skipuleggja að vild. Á bak við hvern bæjarfulltrúa á Akureyri eru rétt tæplega 1300 íbúar en til samanburðar má geta þess að í Reyjavík eru 6.447 íbú- ar að baki hvers borgarfulltrúa. Borgarfulltrúar í Reykjavík eru 15 talsins og við verðum ekki vör við að íbúar í Reykjavík kvarti svo mjög. Þríliðan sem kennd var á árum áður segir okkur að bæjarfulltrúar á Akureyri (íbúa- fjöldi 1. desember 1990 var 14.091), miðað við Reykjavík (íbúafjöldi 1. desember 1990 var 96.708), ættu að vera rétt rösk- lega tveir! Úr hæjarstjórn Akureyrar. Tillögur til úrbóta Næsta bæjarstjórn á Akureyri - því tæplega gerir sú sem nú situr stórar rósir - verður að knýja á dyr Alþingis og krefjast þess að henni verði gert kleift að fækka bæjarfulltrúunum. Núverandi meirihluti Sjálfstæðismanna og Alþýðubandalags hefur ekki sýnt þau tilþrif að líkur séu á að hann verði endurkosinn og það mun án efa koma í hlut Framsóknar- flokksins að laga til í kerfinu svo það fari að vinna eins og til er ætlast. Eg vil gera það að tillögu rninni að Framsóknarmenn á Akureyri leggi áherslu á eftirfarandi í næstu kosningum: 1. Bæjarfulltrúum verði fækkað úr ellcfu í sjö. 2. Fulltrúar þess flokks eða flokka sem mynda meiríhluta bæjarstjórnar næsta kjörtímabil verði ráðnir til bæjarins sem yfir- menn ákveðinna sviða. Fulltrúar minnihlutans fái einnig ákveðnar greiðslur sem miðist við að þeir geti verið starfsmenn Akureyrar- bæjar í hálfu starfi. 3. Bæjarstjóri komi úr hópi kjör- inna fulltrúa og hann gegni jafn- framt starfi formanns bæjarráðs. 4. Nefndir verði sameinaðar og fækkað í þeim. Gerðar verði kröfur til faglegra vinnubragða. Nefndir eiga að setja sér mark- mið og reyna að ná þeim. Aukin afköst og eðlilegri vinnutími Ef við gefum okkur að þessir sjö - svo ekki sé talað um meirihlut- ann - geti á dagvinnutíma unnið að málefnum bæjarins verða afköstin meiri og betri. Það þarf ekki neina sérstaka mannvits- brekku til að sjá að fólk vinnur betur á daginn en þegar degi tek- ur að halla. Ef Akureyrarbæ skortir eitthvað þá er það m.a. óþreytt og dugmikið fólk sem getur óskipt helgað sig málefnum bæjarins. Að sjálfsögðu fylgir því talsverð- ur kostnaður að ráða þetta fólk til starfa en á það bera að líta að talsvert sparast við færri fulltrúa í bæjarstjórn - og færri fulltrúa í færri nefndunt. Þá er það einnig næsta öruggt að aukin afköst og eðlilegri vinnutími munu bæta stjórnunina. Eftir breytingu sem þessa á meirihlutinn hægar með að koma pólitískum áhugamálum í framkvæmd og menn eiga í auknum mæli að standa og falla með verkurn sínum. Tilbúið dæmi Tökum dæmi: Gefum okkur að einn þeirra flokka sem bjóða fram við næstu bæjarstjórnar- kosningar fái fjóra fulltrúa og hreinan meirihluta. Einn fulltrú- inn gerist bæjarstjóri og formað- ur bæjarráðs, annar verður yfir- maður tæknisviðs, sá þriðji fær félagsmálastofnun í sína umsjá og sá fjórði gæti haft nteð fjármál bæjarins að gera. Nú er þessi skipting án allrar ábyrgðar og sýnir e.t.v. vankunnáttu greinar- höfundar - og þó - einhvern veg- inn verða þessir fjórir að skipta með sér verkum og ég leyfi mér að halda því fram að þessi skipt- ing sé ekki vitlausari en hver önnur. Aukin ábyrgð kjörinna fulltrúa Hvað þýðir þetta? Að mínu viti þýðir þetta einfaldlega að kjörnir bæjarfulltrúar meirihlutans þurfa að axla mun meiri ábyrgð en gerist í dag. Þeir verða þátt- takendur í daglegri stjórnun bæjarins og geta komið kosninga- málum flokksins/flokkanna betur á framfæri. Við drögum úr valdi embættismanna og færunt það í hendur kjörinna fulltrúa. Bæjarstjóri úr hópi kjörinna fulltrúa Auðvitað á meirihlutinn að koma með bæjarstjórann úr sínum röðum. Það er ótækt að í þeim hópi sé ekki karl eða kona sem næst samstaða um sem bæjar- stjóra. Núverandi meirihluti sótti sinn bæjarstjóra á Sjúkrahúsið og fyrrverandi meirihlutar hafa einnig leitað út fyrir sínar raðir. Án efa er oft um að ræða mála- miðlun en ansi þætti mönnum það sérkennilegt ef ríkisstjórnir leituðu út fyrir Alþingi þegar kemur að vali á forsætisráðherra. Mannval á Þingi er slíkt að rétt rösklega 60 telja sig geta orðið forsætisráðherrar með litlum eða engum fyrirvara. Á Akureyri virðist ómögulegt fyrir meiri- hlutaflokka að pússa einn fulltrú- ann upp í embætti bæjarstjóra. Plöggin af eldhúsborðinu í dag er ekki gert ráð fyrir að full- trúar flokkanna hafi neina starfs- aðstöðu á skrifstofum Akureyr- arbæjar. Þessu þarf að breyta. Við getum ekki ætlast til að ráða- ntenn bæjarins, fulltrúar í bæjar- stjórn, séu með pappíra og plögg heima a eldhúsborði enda hefur það komið fyrir að mikilvæg trúnaðarskjöl hafi verið vandlega merkt með hafragraut eða sæt- súpu. Það er lágmarkskrafa að bæjarfulltrúar hafi góða starfs- aðstöðu á sínum vinnustað - og aðgang að þeint tækjum og tólum sem skrifstofur nútímans hafa upp á að bjóða. Fækkum bæjarfulltrúum! í stuttu máli: Fækkum bæjarfull- trúum og gerunt þá ábyrgari gerða sinna. Göngum þannig frá málum að hæft fólk sækist mjög eftir því að komast í „öruggt" sæti á listum flokkanna. Enn og aftur skal ítrekað að laun og starfsaðstaða skiptir miklu máli þó svo margir virðist telja að bæjar- fulltúar eigi að nærast á hugsjón- um einum saman. Vel má vera að sjö manna bæjarstjórn á fullum launum kosti bæjarsjóð eitthvað meira en núverandi ellefu ma.'ina bæjarstjórn - og þó - meirihluti þessara fulltrúa mun sinna dag- legum stjórnunarstörfum innan bæjarkerfisins. En við getum sparað í nefndafarganinu og verði starfsaðferðum þeirra sem eftir lifa breytt og þær látnar vinna skipulega mun það fljótt koma fram í auknum sparnaði. Með öðrurn orðum: Er ekki dýrara fyrir bæjarfélagið að í yfir- stjórn bæjarins sitji fólk sem ekki getur gefið sér tíma til að sökkva sér niður í málefni bæjar- ins? Svarið er tvímælalaust jákvætt. Við höfum ekki lengur efni á að bænunt sé stjórnað í hjáverkum. Akureyri í ágúst 1991, Áskell Þórisson. Höfundur cr áhugamaöur um hæjarmál á Akur- cyri. ár alls, jafngilti því að lántakand- inn greiddi um 33% í ársvexti! Ég vil svo að lokum benda á þá staðreynd að frá því í vetur hafa víxilvextir hækkað úr 13,25% í 20,5%. Þeir hafa sent sagt hækk- að um 55 af hundraði og hlýtur það að vera heimsmet. Ef þetta er ekki vaxtaokur, veit ég ekki hvað það hugtak merkir." Eininaabréf Skammtímabréf Tveir góðir kostir til að ávaxta fé Einingabréf henta þeim sem vilja ávaxta sitt fé til lengri tíma, en vilja jafnframt geta losað það með skömmum fyrirvara. Skammtímabréf henta þeim sem eru með laust fé í skamman tíma, 1-6 mánuði og þau eru einnig laus með skömmum fyrirvara. Ávöxtun sl. 12 mánuði Raunávöxtun Nafnávöxtun Einingabréf 1 7,4% 16,0% Einingabréf 2 5,8% 14,2% Einingabréf 3 7,0% 15,5% Skammtímabréf 6,1% 14,6% ééjKAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.