Dagur - 15.08.1991, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 15. ágúst 1991
Um Ijórðu:
- starfsmenn Bifrei
Eitt af því sem forscti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, mun gera í hcimsókn sinni til Skagafjarðar er aðgróðursetja tré. Hér er hún að gróðursetja
ásamt börnum í Húnaveri þcgar hún heimsótti Húnvetninga fyrir þrem árum.
Heimsókn forseta íslands til Skagaíjarðar:
Undirbúningur stendur sem hæst
- áhersla lögð á að sem flestir heilsi upp á forsetann
Forseti íslands, frú Yigdís Finnbogadóttir, er væntanleg í
opinbera heimsókn til Skagafjarðar dagana 23. til 25. ágúst
nk. Undirbúningur fyrir heimsóknina stendur sem hæst og
óhætt að segja að mikið verði um dýrðir i Skagafirði um þar
næstu helgi. Að sögn Björns Sigurbjörnssonar, formanns
undirbúningsnefndar fyrir heimsóknina, hefur undirbúning-
ur gengið vel.
Ásamt Birni í nefndinni eru
Halldór Þ. Jónsson, sýslumaður,
og Elín Sigurðardóttir, oddviti, í
Sölvanesi. Þá hefur Magnús Sig-
urjónsson, framkvæmdastjóri
Héraðsnefndar Skagafjarðar,
verið nefndinni innan handar. í
samtali við Dag sagði Björn að
öll megin dagskráratriði heim-
sóknarinnar væru komin í fastar
skorður en nk. mánudag mun
skrifstofa forsetaembættisins
senda frá sér- formlega dagskrá.
Undirbúningsnefndin hefur
setið nokkra fundi þar sem áætl-
un hefur verið búin til um heim-
sóknina. Síðan var haft samband
við oddvita allra hreppa í Skaga-
firði og fundað með þeim um til-
högun yfirferðar Vigdísar um
fjörðinn. „Þegar við vorum kom-
in með beinagrind að dagskrá
kom forsetaritari, Kornelíus Sig-
mundsson, norður og vann með
nefndinni í tvo daga. Hann
kynnti sér aðstæður og fundaði
með fulltrúum allra hreppa sem
standa að móttökunni. Eftir
þetta höfum við fundað áfram
með oddvitum og kynnt málið
fyrir Héraðsnefnd. Núna er
heildarplan komið um hvernig
við stöndum að heimsókn forset-
ans," sagði Björn Sigurbjörnsson
þegar hann var spurður um störf
undirbúningsnefndarinnar.
í stórum dráttum er dagskrá
heimsóknarinnar þessi: Vigdís
lendir á Alexandersflugvelli á
Sauðárkróki að morgni föstu-
dagsins 23. ágúst. Þaðan liggur
leiðin í Lýtingsstaðahrepp og
snæddur hádegisverður í Árgarði
þar sem íbúar hreppsins eru
boðnir velkomnir. í Félagsheim-
ilinu Miðgarði verður drukkið
síðdegiskaffi á föstudag í boði
Akrahrepps, Seyluhrepps og
Staðarhrepps. Um kvöldið situr
forsetinn kvöldverðarboð í boði
Sauðárkróksbæjar.
Laugardagurinn hefst með
heimsókn í Fljótahrepp og
snæddur morgunverður í Sól-
görðum. Því næst tekur Hofs-
hreppur á móti forsetanum og
býður til hádegisverðar í Höfða-
borg á Hofsósi. Þaðan liggur leið-
in til Hóla í Hjaltadal og drukkið
síðdegiskaffi í barnaskólanum í
boði Hólahrepps og Viðvíkur-
hrepps. Að kvöldi laugardagsins
er boðið til kvöldverðar í Mið-
garði í Varmahlíð í boði Héraðs-
nefndar Skagafjarðar.
Skefilsstaðahreppur tekur á
móti Vigdísi á sunnudeginum
með morgunverði í Skagaseli,
félagsheimili hreppsins. Um
miðjan dag verður mótttaka í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki í
boði Sauðárkróksbæjar, Skarðs-
hrepps og Rípurhrepps.
Forsetinn mun gróðursetja tré
á nokkrum stöðum í sýslunni og
einnig verður skáli Skátafélagsins
Eilífsbúa frá Sauðárkróki heim-
sóttur í landi Brekku í Seylu-
hreppi en Vigdís er verndari
skátahreyfingarinnar á íslandi.
Þá mun Vigdís afltenda verðlaun
á Króksmótinu í knattspyrnu sent
er pollamót á vegum Tindastóls
og Fiskiðjunnar Skagfirðings hf.
nteð þátttöku fjölda liða víðs
vegar af Norðurlandi. Vigdís
kemur víðar við í heimsókn sinni
en hér hefur verið greint frá og
nánar verður fjallað um dag-
skrána síðar í blaðinu.
Lögð er áhersla á að sem flestir
íbúar Skagafjarðarsýslu eigi þess
kost að heilsa upp á forseta
Islands og eru morgun-, hádegis-
og síðdegisverðirnir m.a. hugsað-
ir til þess. Kvöldverðirnir eru síð-
an lokaðir nema fyrir boðsgesti.
-bjb/GG
Bifreiöaskoðun íslands hf.
(BSÍ) starfrækir tvær skoðun-
arstöðvar á Norðurlandi
vestra. Þær eru á Blönduósi og
Sauðárkróki og er einn fastur
starfsmaður á hvorum stað. Á
Blönduósi var stöðin opnuð í
mars árið 1989 og starfsmaður
þar er Þórólfur ÓIi Aadne-
gaard. Á Sauðárkróki var opn-
uð skoöunarstöö í október
sama ár og Bjarki Sigurðsson
er starfsmaður á þeim bæ.
Stöðvarnar á Blönduósi og
Sauðárkróki eru opnar frá mánu-
dögum til föstudags frá kl. 8.00-
15.30. Þeir Þórólfur og Bjarki
eiga töluvert samstarf, auk þess
sem þeir leysa hvorn annan af í
fríum. Þá fara þeir gjarnan sam-
an til Siglufjarðar þegar eru
skoðunardagar þar. Næst verða
þeir á Siglufirði frá 20.-23. ágúst
nk. Bjarki skoðar því einnig á
Siglufirði og Blönduósi auk ann-
arra starfa sem fylgja Bifreiða-
skoðun íslands, s.s. innheimta
bifreiðagjalda, afskráning bif-
reiða, innheimta þungaskatts
o.m.fl. Þórólfur skoðar einnig á
Hvammstanga og Hólmavík auk
þess sem hann var á Borðeyri og
í Árneshreppi í einn dag í júlí sl.
Á Hólmavík verður Þórólfur
næst 18.-23. október nk. og á
Hvammstanga 25.-31. október.
Bílaeigendur trassa að
koma á réttum tíma
f samtölum sem blaðamaður átti
við þá Þórólf Óla og Bjarka kom
fram að frekar lítið væri að gera
fyrstu þrjá mánuði ársins en síð-
an færu lætin að byrja í apríl og
maí. Eftir það væri nóg að gera
og stundum skoðaðir hátt í 30
bílar á dag þótt venjulega væri
ekki gert ráð fyrir nema 13-14
bílum á dag. Bjarki sagði að
bifreiðaeigendur væru ekki nógu
duglegir að koma með bílana í
skoðun á réttum tíma og úr því
þyrfti að bæta. „Ef allir kæmu
með bílana á réttum tíma þá
myndaðist aldrei nein töf," sagði
Bjarki en dæmi eru urn nokkurra
daga bið eftir skoðun í stöðinni á
Sauðárkróki.
Fram kom hjá Bjarka að yfir-
leitt væru um fjórðungur bíla sem
Málarar í önnum fyrir forsetaheimsóknina:
Bakhliðamar málaðar líka!
Skagfírðingar hafa verið í óða
önn í sumar að gera hreint fyrir
sínum dyrum áður en forseti
Islands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, heimsækir sýsluna.
Yinsamleg tilmæli bárust frá
sveitarfélögunum til íbúa sinna
um að snyrta til í kringum sig
og einnig hafa sveitarfélögin
sjálf fegrað sín mannvirki. Hús
sem hafa staðið ómáluð svo
áratugum skiptir hafa tekið lit í
sumar og fannst mörgum tími
til kominn.
Segja má að forsetaheimsókn-
in komi einni stétt til góða meir
en öðrum en það eru málara-
meistarar og þeirra menn. Þeir
hafa varla haft undan í sumar,
svo mikið hefur verið að gera.
Mörg íbúðarhús hafa verið
máluð, jafnt í þéttbýli sem dreif-
býli, og opinberar byggingar hafa
einnig verið málaðar.
Til eru dæmi um þegar heirn-
sókn forseta íslands hefur verið
undirbúin til nokkurra staða að
eingöngu framhliðar húsa hafa
verið málaðar eða þær hliðar sem
snúa eiga að forsetanum. Ekki
verða nafngreindir neinir staðir í
þessu sambandi en líklega heyrir
þetta sögunni til.
Þegar blaðamaður var á ferð-
inni á Sauðárkróki á dögunum
hitti hann að máli málarameistar-
ana Þórarinn Thorlacíus og
Albert Þórðarson þar sem þeir
voru að mála Safnahús Skagfirð-
inga ásamt aðstoðarmönnum. Og
viti rnenn, þeir voru að mála
bakhlið Safnahússins! Aðspurðir
sögðust þeir hafa haft nóg að
gera í sumar og voru m.a. búnir
að mála stórar byggingar eins og
Varmahlíðarskóla og Félags-
heimilið Miðgarð í Varmahlíð.
Svo voru þeir að verða búnir með
Safnahúsið og eftir var að mála
Sjúkrahús Skagfirðinga, svo
stærstu byggingar séu nefndar. En
allar hafa þessar byggingar eitt
sameiginlegt; þær eru málaðar í
bláum og hvítum lit. „í fyrra vor-
um við í grænu línunni en í sumar
er það bláa línan," sögðu þeir
k'appar, Albert og Þórarinn,
hressir í bragði. -bjb
„í sumar er það bláa línan,“ sögðu
þeir Albert og Þórarinn, niálara-
incistarar á Sauðárkróki. Á efsta
pallinum stendur Albert Þórðarson,
síðan koma aðstoðarmennirnir og
landsliðsmennirnir í körfubolta,
þeir Valur Ingimundarson og Einar
Einarsson, og neðst er Þórarinn
Thorlacíus með blátt í rúllunni.