Dagur - 07.09.1991, Page 11
Laugardagur 7. september 1991 - DAGUR - 11
Krossgáta
Tekið skal fram að skýr greinarmunur er gerður á grönnum og breiðum sérhljóðum.
Þegar þú hefur ráðið gátuna, skaltu skrifa stafina í tölusettu reitunum á lausnarseðilinn hér
að neðan. Klipptu síðan lausnarseðilinn út og sendu til Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri,
merktan: „Helgarkrossgáta nr. 194“
Þóra Jónsdóttir, Garðaflöt 11, 210 Garðabæ, hlaut verðlaun-
in fyrir helgarkrossgátu nr. 191. Lausnarorðið var Vinnupall-
ar. Verðlaunin, skáldsagan „Átök í eyðimörk“, verða send
vinningshafa.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er bókin „Krist-
inn í Björgun - eldhuginn í sandinum", skráð af Árna
Johnsen.
Útgefandi er Almenna bókafélagið.
Aftcj Kcoa tljU
iktéii. s T ■fl s s l
Hrftii K A L L fí D
Cltfk 0 L s A R 1
Fto« L 1 M G A N
o ,.n. l Ufj' Bcr.r 1,’fci A L 1 R .— 'n
s T '/1 L s n I 3 A ictlcm
T A F A L A F 1fHr O T 1
'0 L A G a V A s K ’a N
L A S fiatnr G y u í> N 1 TLT G
Rijk f\ R r 'v Æ ft L°!iL Æ "r A/ u
'fii Þ t J) 'i / £ ftflct / S
:-p U A 5 '0 L ft T A N
'flit A 5 p H á s K 0 ö Ú
rjíki 'N ’A N A R s K Ý s T u
Bor- A 'L 1 N •a Arnuci ö S K U n
Helgarkrossgáta nr. 194
Lausnarorðið er ................
Nafn ..............
Heimilisfang ......
Póstnúmer og staður
Um 4500 börn að heíja skólagöngu sína:
Ökumenn sýni sérstaka aðgát
Um þessar mundir hefja um
4500 börn skólagöngu fyrsta
sinni. Þetta eru nýliðar í
umferðinni, börn sem ekki
hafa verið sjálfstæðir vegfar-
endur. Þess vegna þurfa allir
að leggjast á eitt til að skóla-
ganga þeirra sé eins örugg og
kostur er. Þar kemur til kasta
foreldra, ökumanna og barn-
anna sjálfra, að svo miklu leyti
sem þau geta þar haft áhrif á.
í frétt frá Umferðarráði segir
að ökumenn þurfi að gæta sér-
staklega að hraða í nágrenni við
skóla og auðvitað alls staðar þar
sem börn eru á ferð. Lögregla
beinir nú athygli sinni mjög að
ökuhraða í skólahverfum. Minn-
umst þess að börnin í umferðinni
eru börnin okkar.
Meðal þess sem ökumenn þurfa
að hafa í huga er: Börn skynja
hraða og fjarlægðir mun verr en
fullorðnir. Séu börn á eða við
akbraut þurfa ökumenn að sýna
varúð. Að miða ökuhraða alltaf
við aðstæður. Athafnir barna eru
ekki alltaf í samræmi við það sem
fullorðnu fólki finnst vera
rökrétt.
Börn sem eru að hefja skóla-
göngu þurfa góðan undirbúning
til að þau komist heilu og höldnu
í skólann og heim aftur. Fullorð-
ið fólk verður að fylgja þeim í
skólann til að byrja með og velja
með þeim öruggustu leiðina. Pað
getur skipt miklu máli að velja
rétta leið með tilliti til öryggis
barnsins.
Foreldrar þekkja umhverfið og
vita hvar hættur eru fyrir hendi
og leiðbeina börnum sínum til að
þau sneiði hjá þeim. Það má
aldrei senda barn eitt í skólann
fyrr en öruggt er að það treysti
sér til þess sjálft. Fyrr er það ekki
í stakk búið til að veita umferð-
inni þá athygli sem nauðsynlegt
er.
Algengt er að börnum sé ekið í
skólann. í þeim tilfellum er
mikilvægt að ökumaðurinn hagi
aðkomu að skólanum þannig að
barnið þurfi ekki að fara út úr
bílnum út á götu heldur beint
upp á gangstétt. Og þá þarf líka
að hafa í huga að barnið þurfi
ekki að fara yfir götu. Með því
móti geta forráðamenn barna
aukið öryggi þeirra til muna.
------------------------------——
AKUREYRARB/íR
Lausar kennarastöður
Við Glerárskóla eru ennþá lausar stöður heimil-
isfræðikennara og tónmenntakennara.
Upplýsingar í símum 96-21395 eða 96-21521.
Einnig veittar upplýsingar hjá skólafulltrúa í síma
96-27245.
Skólafulltrúi.
Dalvík
Hjúkrunarforstjóri
Á Heilsugæslustöðina á Dalvík vantar hjúkrunarfor-
stjóra frá 1. nóvember eða eftir nánari samkomulagi.
Dalvík er fallegur staður í örum vexti, um 40 km
norður af Akureyri.
Heilsugæslustöðin þjónar Dalvík, Svarfaðardal,
Árskógsströnd og Hrísey, alls um 2400 manns.
Áhugasamir hafið samband við Kristjönu Ólafs-
dóttur hjúkrunarforstjóra í síma 96-61500 eða
96-61072, sem veitir upplýsingar um húsnæði
o.fl.