Dagur - 07.09.1991, Page 16
Tvær Fokkerflugvélar
veðurtepptar á Akureyri:
Þokuumaðkenna
Þoka hamlaði flugi til og frá
Reykjavík aðfaranótt föstu-
dagsins. Af þeim sökum höfðu
tvær Fokkerflugvélar Flug-
leiða hf. næturdvöl á Akur-
eyri.
„Já, hér eru þrjár Fokkerflug-
vélar. Vegna þoku í höfuðstaðn-
um var ekki hægt að ljúka kvöld-
fluginu Reykjavík-Akureyri-
Reykjavík. Það sama gilti um
kvöldflugið Reykjavík-Egilsstað-
ir-Reykjavík. Vélinni frá Egils-
stöðum var snúið til Akureyrar
þannig að tvær vélar voru hér á
Akureyrarflugvelli í nótt. Þok-
unni hefur létt. Morgunvélin er
komin og flugvélarnar þrjár fara
suður á næsta klukkutímanum,"
sagði flugvallarstarfsmaður á
Akureyri snemma á föstudags-
morguninn. ój
Þau áform að Ijúka byggingu íþróttahúss KA á sex mánuðum þóttu á sínum tíma bjartsýni en sú áætlun mun stand-
ast og húsið verður tekið í notkun í fyrstu viku október. Á innfelldu myndinni má sjá inn í íþróttasalinn sjálfan.
Myndir: Golli
Bygging íþróttahúss KA á lokasprettinum:
íþróttakennsla í húsinu hefst í októberbyijim
dregst vegna seinkunar á afhendingu áhorfendabekkja
- vígsluhátíð
„Staðan á byggingunni er góð
og allt á réttu róli ef frá er talið
að afhending bekkjanna í hús-
ið tefst líklega um mánuð. Að
öðru leyti verður allt klárt á
réttum tíma,“ segir Sigurður
Sigurðsson hjá S.S.-Byggi sem
er verktaki við byggingu
íþróttahúss á félagssvæði KA á
Akureyri.
Upphaflega var gert ráð fyrir
að ljúka byggingu hússins á sex
mánuðum en skóflustunga að því
var tekin þ. 30. mars síðastliðinn.
Sigurður segir að íþróttakennsla
hefjist fyrstu vikuna í október,
eins og til hafi staðið, en vígslu-
hátíðinni verði frestað þar til
áhorfendabekkirnir verði
komnir. Sigurður segir þetta
jafnframt þýða að meistaraflokk-
Knattspyrna:
LeikurVíkingsog
KA sýndur beint
- einnig viðureign
KR og Fram
Leikur Víkings og KA í 1.
deild karla í knattspyrnu
sem fram fer á Víkingsvell-
inum í dag kl. 14.00, verður
sýndur í beinni útsendingu í
Ríkissjónvarpinu.
En þar með er ekki öll sag-
an sögð, því leikur KR og
Fram, sem fram fer á KR-vell-
inum kl. 16.00 á morgun
sunnudag, verður einnig sýnd-
ur í beinni útstcndingu í Sjón-
varpinu.
Baráttan um íslandsmeist-
aratitilinn stendur á milli Vík-
ings og Fram. Bæði liðin hafa
33 stig en Víkingar hafa hag-
stæðara markahlutfall. KA-
menn gætu sett strik í reikn-
inginn hjá Víkingum í dag og
eins gætu KR-ingar lagtFram-
ara að veili á morgun. -KK
ur KA í handbolta muni spila 2-3
heimaleiki í íþróttahöllinni í
upphafi móts. Hins vegar eru
júdómenn að taka sal sinn í notk-
un þessa dagana og er það bylting
á aðstöðu þeirra.
Gengið hefur verið frá bráða-
birgðasamkomulagi milli rekstr-
arfélags Landsbanka íslands
og Iðnþróunarfélags Eyjafjarð-
ar um yfirtöku síðarnefnda
aðilans á ullariðnaði þeim sem
áður tilheyrði Álafossi hf. á
Akureyri. Baldvin Valdemars-
son hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri fyrir ullariðnað-
inn, en stefnt er að formlegri
stofnun hlutafélags um rekst-
urinn síðar í þessum mánuði.
Samkomulagið var undirritað
af stjórnum Iðnþróunarfélagsins
og bankastjórn Landsbankans,
með fyrirvara um samþykki
væntanlegra hluthafa í fyrirtæk-
inu. Ásgeir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri IFE, segir að
samningurinn feli í sér yfirtöku á
vélum og tækjum ullariðnaðarins
en eftir er að semja um leigu á
húsnæðinu. Viljayfirlýsing er fyr-
ir hendi um að IFE og nýtt hluta-
félag taki við rekstrinum eins
fljótt og kostur er. Ekki verður
greint frá neinum tölum eða
verði á eignunum í þessu sam-
bandi en samkvæmt heimildum
Dags hjá Landsbanka íslands
nemur bókfært verð véla, tækja
og húsa hundruðum milljóna
króna. Að sögn Ásgeirs er kaup-
verðið trúnaðarmál milli Lands-
bankans og IFE og aðstandenda
þess.
Sigurður segir að illa gangi að
fá járnklæðningu afhenta frá
Yleiningum hf. á Flúðum og því
hafi klæðning hússins dregist.
Henni verði hins vegar lokið fyrir
mánaðamótin.
Markaðsmálin eru mikilvæg og
ráðandi um framtíð fyrirtækisins.
Ásgeir segir að nýi framkvæmda-
stjórinn muni skoða þau mál
nánar. Áætlanir IFE gera ráð fyr-
ir sömu mörkuðum og verið hafa
hingað til fyrir íslenskar ullarvör-
ur. „Ef okkar björtustu vonir
ganga eftir og við náum að selja á
þessa markaði eins og stefnt var
að á seinasta ári og einnig að við
seljum eitthvað til Sovétríkjanna
þá gæti þetta orðið allt að 130
manna vinnustaður. Of snemmt
er að segja nokkuð til um áhrifin
á litlu saumastofurnar sem hafa
skipt við Álafoss hf. Ef okkur
tekst ekki að selja jafnmikið til
Sovétríkjanna og við höfum gert
Tæplega 180 nemendur eru
skráðir til náms í framhalds-
deildum Framhaldsskólans á
Húsavík í vétur, en hann var
settur sl. þriðjudag. Þetta er
fimmta árið sem skólinn er
starfræktur og fyrsta „alvöru“
útskriftarár hans, að sögn
Guðmundar Birkis Þorkels-
sonar, skólameistara.
Nú er skráðir um 40 fleiri
nemendur í framhaldsdeildir
Sigurður segir lokatörnina
framundan í fráganginum. Hann
segir að fleiri sjálfboðaliðar megi
láta sjá sig í þessu lokaátaki enda
sé nóg af smærri verkefnum.
JÓH
á undanförnum árum, en það
dæmi er í mikill óvissu eins og
málum er háttað í dag, þá er
alveg ljóst að minnkun verður á
framleiðslu í saumaiðnaði og það
hefur auðvitað áhrif á aðra aðila,
þar á meðal litlu saumastofurn-
ar,“ segir Ásgeir.
Formleg stofnun hlutafélags
verður að öllum líkindum seint í
þessum mánuði eða um næstu
mánaðamót. Áður verða stjórnir
og stofnanir að leggja blessun
sína yfir það samkomulag sem
náðst hefur. „Unnið verður að
þessum málum á fullu og við
erum þokkalega bjartsýnir á
framhaldið,“ segir Ásgeir Magnús-
son. EHB
skólans en á síðasta vetri. Flestir
nemendanna eru úr Suður-Þing-
eyjarsýslu, en einnig koma þeir
austan af Langanesi, Vopnafirði
og fleiri stöðum.
Guðmundur Birkir segir að
skólastarfið verði með svipuðu
sniði í vetur og undanfarin ár.
Farskólinn verði t.d. starfræktur
eins og í fyrra.
Kennarar við Framhaldsskól-
ann eru um þrjátíu talsins. óþh
Framtíð ullariðnaðarins á Akureyri:
Iðnþróunarfélag Evjaflarðar og
Landsbankinn náðu samkomulagi
- Baldvin Valdemarsson ráðinn framkvæmdastjóri nýs rekstrarfélags
Framhaldsskólinn á Húsavík:
Um 180 nemendur í vetur
Norðurland:
Hægvestlægátt
Veðurguðinn verður hlið-
hollur Norðlendingum um
helgina ef marka má veður-
spá Veðurstofu íslands.
„Hæg vestlæg átt mun ríkja
um allt Norðurland á laugar-
dag og sunnudag. Að mestu
verður skýað, þurrt til
landsins, cn súld og jafnvel
rigning með ströndinni aust-
ast. Hitastig verður á bilinu 10
til 16 gráður,“ sagði Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðing-
ur á Veðurstofu íslands. ój
Lottópotturiim
í stærra lagi
Ef að. líkum lætur verður
vinningspotturinn í lottóinu
í kvöld í stærra lagi. Pottur-
inn er þrefaldur og ætla má
að vinningsupphæðin verði
vel yfir tíu milijónir króna.
Frá síðustu helgi færast 6,9
milljónir króna yfir á þessa
helgi og ljóst má vera að
nokkrar milljónir bætast við
þá upphæð.
Athyglisvert er að þetta er
fyrsti þrefaldi lottópotturinn á
þessu ári. Síðast var hann
þrefaldur 1. desember á síð-
asta ári. Þá var potturinn 12,8
ntilljónir króna, en rétt er að
taka fram að þá kostaði röðin
35 krónur, en nú kostar hún 40
krónur. óþh
Byggingariðnaðurinn
á Akureyri:
Þokkalegar
horfiirhjáhand-
verksmönnum
Horfur hjá handverksmönn-
um í byggingariðnaði á
Akureyri eru ekki of góðar í
vetur og virðast múrarar,
pípulagningamenn og mái-
arar sjá fram á litla vinnu.
Þeir aðilar sem Dagur ræddi
við sögðu að byggingar væru
almennt skammt á veg
komnar og því lítið um verk-
efni fyrir þá iðnaðarmenn
sem koma til sögunnar á
seinni stigum, s.s. áður-
nefnda hópa, fyrr en undir
vor jafnvel.
Byggingaverktakar á Akur-
eyri hafa löngum kvartað und-
ir seinagangi hjá Húsnæðis-
stofnun við að afgreiða um-
sóknir um íbúðir í félagslega
kerfinu. Þeir vilja að úthlutun
liggi fyrir strax á vorin svo
hægt sé að steypa upp yfir
sumarmánuðina, en fram-
kvæmdir við íbúðir í félags-
lega kerfinu eru að hefjast og
framhaldið ræðst af tíðarfar-
inu næstu ntánuði.
Eftir því sem Dagur kemst
næst verða fá stór vcrkefni í
byggingariönaði í gangi þcnn-
an vetur en verkefnastaðan er
þokkaleg hjá flestum verktök-
um. Ef tíðin verður góð og
byggingarnar rjúka upp ætti
eicki að vera ástæða til mikillar
svartsýni hjá handverksmönn-
unt í þessum iðnaði. SS