Dagur - 01.10.1991, Side 1
74. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 1. október 1991
185. töiublað
Ær og tvö lömb frá Svalbarðsströnd
í sérkennilegu ferðalagi:
Urðu á vegi gangnamaima
suirnan við Hofsjökul
LACOSTE
Peysur • Bolir
mi
HERRADEILD
Gránutélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
„Ég held að ég hafi aldrei orðið
eins hissa á ævinni,“ sagði Hall-
dór H. Sigfússon, bóndi á Geid-
ingsá á Svalbarðsströnd, en sl.
föstudagskvöld var honum til-
kynnt að gangnamenn á Holta-
mannaafrétti hefðu fundið á og
tvö lömb frá Geldingsá sunnan
við Hofsjökul.
Sauðárkrókur:
Engar uppsagnir
hjá Dögun
Rækjuvinnslan Dögun hf. á
Sauðárkróki hefur dregið til
baka uppsagnir starfsfólks sem
koma áttu til framkvæmda í
dag. Að sögn Ómars Þórs
Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra, var ákveðið að berjast
áfram þrátt fyrir að hagræðing
í rekstri hafí gengið illa.
Ómar segir að Dögun eigi tölu-
verðar birgðir af frystri rækju, en
þó komi það sér afar illa að ekki
sé hægt að hefja veiðar á inn-
fjarðarrækju strax eins og reikn-
að var með. Búið ar að fá leyfi til
að hefja þær veiðar 1. okt. eða í
dag, en sökum þess að rannsókn-
ir á miðunum hafa dregist geta
veiðar í Skagafirði ekki hafist á
næstunni.
Að sögn Ómars mun starfs-
fólki frekar fjölga hjá Dögun ef
eitthvað er og reynt verður að
halda uppi svipuðum vinnudegi.
SBG
Halldór sagði að hann hefði
sleppt öllu sínu fé á Vaðlaheiði sl.
vor og það hefði því komið honum
gjörsamlega í opna skjöldu að fá
þessa upphringingu. „Eg hef trá á
því að ærin hafi farið inn Bleiks-
mýrardal inn af Fnjóskadal, þaðan
inn á Sprengisand og síðan áfram
suður yfir,“ sagði Halldór.
Ekki er leyfilegt að flytja sauðfé
milli landssvæða og því liggur1
ekkert annað fyrir ánni frá Geld- 1
ingsá og lömbunum tveim en að
enda líf sitt í sláturhúsinu á
Selfossi.
Halldór sagði að þessi tiltekna
ær hafi aldrei tekið upp á slíku
áður. Hún væri heimaalin og því
væri erfitt að skýra út þessa lang-
ferð ærinnar og tvílembinganna
hennar. óþh
Stofnfundur Foldu hf. á Akureyri í gær. Til hans mættu fulltrúar þeirra aðila sem þegar hafa keypt hlut í nýja fyrir-
tækinu. Þrátt fyrir frestun afgreiðslu stjórnar Byggðastofnunar í gær á hlutafjárkaupum í Foldu var félagið stofnað
enda hafa allar áætlanir miðast við að nýtt ullarvinnslufyrirtæki tæki til starfa í dag, 1. október. Það gekk eftir.
Mynd:Golli
Nýju ullarvinnslufyrirtæki hleypt af stokkunum í dag:
Starfsmenn tÚ starfa hjá
Foldu hf. á Akureyri
samningar við Landsbankann í höfn um kaup á tækjum og leigu á húsnæði
Ullarvinnslufyrirtækið Folda hf.
var stofnað á Akureyri síðdegis í
gær og tekur það til starfa í dag.
Folda yfirtekur þann rekstur
sem Landsbankinn hefur haft
með höndum frá því Alafoss
varð gjaldþrota í sumar. Samn-
ingar voru gerðir við Lands-
bankann í fyrradag um kaup á
tækjum og búnaði og leigu á hús-
næði undir starfsemina. Gert er
ráð fyrir að starfsmenn verði
130 hjá nýja fyrirtækinu, eða
jafn margir og störfúðu hjá því
meðan Landsbankinn rak það.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar,
sem stýrt hefur undirbúningi stofn-
unar hins nýja ullarvinnslufyrir-
Sigurður Harðarson, formaður Arkitektafélags íslands:
Guðmundur á ekki sjálf-
sagðan rétt til Iistagils
- misskilningur hjá Guðmundi, segir Sigurður J. Sigurðsson
Fimmtudaginn 26. september
sl. var bréf Guðmundar Jóns-
sonar, arkitekts í Osló og 1.
verðlaunahafa í samkeppni um
stækkun Anitsbókasafns á Ak-
ureyri tekið fyrir á bæjarráðs-
fundi á Akureyri. Eins og fram
kom í Degi sl. fimmtudag fór
Guðmundur fram á í bréfinu,
að bæjaryfirvöld á Akureyri í-
huguðu gang mála áður en
lengra verði haldið í fram-
kvæmdum við Listagil.
Að sögn Sigurðar J. Sigurðs-
sonar, forseta bæjarstjómar Ak-
ureyrar, er búið að senda svarbréf
til Guðmundar. í því er farið yfir
stöðu mála hvað varðar Amts-
bókasafn og Listagil. Rakið er
upphaf samkeppninnar og síðan
þær breytingar sem á hafa orðið.
Meginniðurstaða bæjarráðs er, að
þrátt fyrir að bæjaryfirvöld á Ak-
ureyri hafi horfið til fram-
kvæmda í Grófargili, þá hafi ekk-
ert verið útilokað er varðar bygg-
ingaframkvæmdir við Amtsbóka-
safnið.
„Að okkar mati er fyrst og
fremst um misskilning að ræða
hjá bréfritara sem vonandi leið-
réttist með bréfi bæjarráðsf
sagði Sigurður J. Sigurðsson í
samtali við Dag.
Er biaðamaður snéri sér til for-
manns Arkitektafélags íslands,
Sigurðar Harðarsonar, þá hafði
hann þetta um málið að segja:
„Arkitektafélag íslands getur
ekki tekið undir þetta mál eins og
það er lagt upp af hendi Guð-
rnundar Jónssonar. Sé litið til
reglna Arkitektafélagsins á hann
ekki sjálfsagðan rétt til Listagils.
Guðmundur vann samkeppni unt
ákveðið hús, sem á að þjóna
ákveðinni starfsemi. Guðmund-
ur leysti verkefnið vel og hann
hefur unnið að verkinu áfram og
fengið greitt fyrir vinnuna. Menn
geta ekki gert kröfur til að elta
einhverja starfsemi út um víðan
völl. Ef verkkaupa þóknast að
breyta forsendum og nota aðra
arkitekta við nýtt verkefni þá er
það hans mál. Hins vegar telur
Arkitektafélagið að Guðmundur
hafi vissan siðferðislegan rétt til
Listagils, sem sá arkitekt er sýndi
sig hæfastan til að leysa verkefni
er lúta að menningarlífinu á Ak-
ureyri. Því hefði verið eðlilegast
að leila til hans með vinnuna við
Listagil, sérstaklega í ljósi þess
að arkitektar á Akureyri, sem nú
vinna að Listagili, lýstu yfir á stn-
um líma að þeir tækju ekki þátt í
samkeppninni unt viðbyggingu
Amtsbókasafns." ój
tækis, setti sér það mark að safna
60 milljóna króna hlutafé. Gert
hefur verið ráð fyrir að Byggða-
stofnun keypti 20% hlut en stjórn
stofnunarinnar frestaði afgreiðslu
málsins á fundi í gær. Folda var
engu að síður stofnuð með 39
milljóna króna hlutafé og þar af er
hlutur Framkvæmdasjóðs Akur-
eyrar 19,5 milljónir. Aðrir hluthaf-
areru Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar,
Lífeyrissjóður Iðju, Iðja, KEA,
Stéttarsamband bænda, Höldur, j
Útgerðarfélag Akureyringa, Eyja-
fjarðarsveit, Samskip og Islenskur
skinnaiðnaður.
Aukaaðalfundur verður innan
eins mánaðar og fram að þeim tíma
verður stofnskrá opin. Þeir sem
gerast hluthafar innan þessa tíma
teljast stofnaðilar að félaginu, en
Ásgeir Magnússon, framkvæmda-
stjóri IFE, segist ekki í vafa um að
nægt hlutafé safnist fyrir þann
tíma, enda hafi margir boð um
hlutafjárkaup til skoðunar.
Stjóm Foldu fram að aukaaðal-
fundi skipa Kristján E. Jóhannes-
son og Ámi V. Friðriksson fyrir
Akureyrarbæ, Ásgeir Magnússon
frá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar,
Haukur Halldórsson frá Stéttar-
sambandi bænda og Hrólfur Skúla-
son Bjarkan frá Iðju. Fram-
kvæmdastjóri Foldu hf. er Baldvin
Valdimarsson. JÓH
Aðalfundur Lindu hf.:
Mikill rekstrarbati milli ára
- KEA kaupir hlutabréf fyrir allt að 3 millj.
Á aðalfundi Lindu hf. á Akur-
eyri á föstudag var samþykktum
félagsins breytt þannig að því
verði kleift að sækja um leyfi til
skattstjóra að setja hlutabréf í
félaginu á almennan markað og
kaupendur njóti skattaafsláttar
með kaupum á bréfum. Þá var
einnig á aðalfundinum kynnt er-
indi frá Kaupfélagi Eyfirðinga
þar sem félagið lýsir yfir vilja til
að kaupa hlutabréf fyrir allt að
þrjár milljónir króna.
Eignaraðild í Lindu var breytt
verulega í lok síðasta árs en fyrir-
tækið var þá í miklum taprekstri.
Sigurður Arnórsson, fram-
kvæmdastjóri, segir að verulegur
rekstrarbati hafi orðið á fyrstu sex
mánuðum ársins og reksturinn á
þeim tíma við núllpunktinn. Veltu-
aukning á milli ára varð 70-80%,
að sögn Sigurðar.
Linda bauð Kaupfélagi Eyfirð-
inga fyrir skömmu að kaupa hlut í
fyrirtækinu sem Sigurður Amórs-
son segir að hafi verið gert vegna
þess að mikil viðskipti eigi sér stað
milli þessara fyrirtækja. „Við höf-
um verið að velja aðila sem við
viljum fá inn í félagið og þeir voru
fyrir valinu. Það er að öllu leyti já-
kvætt að fá KEA héma inn,“ segir
Sigurður.
Skattstjóra verður nú sent erindi
hvað varðar breytingu á meðferð
hlutabréfa í Lindu og segist Sig-
urður vonast til að innan fárra
vikna komi hlutabréf í fyrirtækinu
á almennan markað. JÓH