Dagur - 01.10.1991, Síða 2

Dagur - 01.10.1991, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 1. október 1991 Fréttir Lífeyrissjóður Norðurlands: Reiknað með stofti- fimdi næsta haust - starfsemi heQist 1. janúar 1993 Að vígslu lokinni. Frá vinstri: sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Vestmannaeyjum og eiginmaður Jónu Hrannar, sr. Bragi Friðriksson, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sr. Hjálmar Jónsson, sr. Bolli Gústavsson, vígslu- biskup, sr. Eiríkur Jóhannsson og sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Mynds: sbg Séra Bolli vígði dóttur sína í embætti Séra Bolli Gústavsson, vígslubiskup að Hólum í Hjaltadal, vígði sl. sunnudag dóttur sína, Jónu Hrönn, til prestsembættis í Hóladóm- kirkju. IVlun það vera ein- stæður atburður a.m.k. á Norðurlöndum ef ekki í öll- um heiminum að faðir vígi dóttur sína. Athöfnin fór fram kl. 11 að morgni sunnudags og meðal þeirra sem voru viðstaddir voru ellefu manns úr Vestmannaeyj- um, en sr. Jóna Hrönn var vígð til Vestmannaeyjaprestakalls sem sérþjónustuprestur. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson lýsti vígslu, en vígsluvottar voru sr. Bjarni Karlsson, eiginmaður Jónu Hrannar, sr. Bragi Frið- riksson prófastur, sr. Eiríkur Jóhannsson og sr. Hjálmar Jónsson prófastur. Kór Hóladómkirkju söng við vígsluna við undirleik Rögn- valdar Valbergssonar og systir Jónu Hrannar, Gerður, söng einsöng. Nánar verður greint frá vígsl- unni síðar í vikunni. SBG „Það er búið að vinna nánast alla undirbúningsvinnu sem við ætluðum að gera á vegum verkalýðsfélaganna. Það er að taka saman upplýsingar um málið og kynna það fyrir félögunum, kynna hugmynd- ina og búa til tillögur að því hvernig þetta gæti gerst,“ sagði Kári Arnór Kárason, aðspurður um undirbúnings- nefnd fyrir stofnun sameigin- Akureyri: Innbrot og rán á vertshúsum Innbrot var framið á Akur- eyri aðfaranótt laugardags. Einnig voru menn nokkuð fíngralangir í vertshúsum. „Innbrotsþjófamir er voru á ferð unt helgina brulust inn í fyrirtækið Matur og mörk að Glerárgötu 26. Tékkhefti var stolið sem og smámynt að upp- hæð 10.000 krónur. í Kjallar- anum var stolið jakka sem og kventösku. Jakinn fannst aftur, en þjófurinn hafði ávísanahefti upp úr krafsinu,” sagði Gunnar Jóhannsson, rannsóknarlög- reglumaður. ój Akureyri: Harður árekstur legs lífeyrissjóðs á Norður- landi, en fundurinn var hald- inn fyrir þingsetningu Alþýðu- sambands Norðurlands á Illugastöðum sl. föstudag. Unnið hefur verið að málinu síðan á þingi sambandsins 1989. Flest félög hafa skilað inn svari um hvort þau vilji vera með í stofnun sjóðsins og eru svörin undantekningalaust jákvæð, en þó nokkur félög setja þó skilyrði fyrir þátttöku. Fundurinn á föstudaginn var sameiginlegur fundur verkalýðs- félaganna og atvinnurekenda. Þar var samþykkt að kjósa sex manna framkvæmdanefnd sem mun ganga endanlega frá stofnun lífeyrissjóðsins. Nefndina skipa þrír menn frá atvinnurekendum og þrír frá verkalýðsfélögunum. Nefndinni er ætlað að gera nýja reglugerð fyrir sjóðinn, gera tillögur um meðferð eldri sjóða, semja við alla þá aðila á Norður- landi sem nálægt þessu koma, semja um hvernig fara skuli með þjónustu á stöðunum og fjár- magnið. Reiknað er með að þessu starfi verði lokið næsta haust og þá verði haldinn endan- legur stofnfundur þessa nýja sjóðs, og hann hefji síðan eigin- lega starfsemi 1. jan. 1993. IM A Ólafsflörður: Utgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Bjöm V. Gíslason hf. gjaldþrota í gær Um hádegisbilið í gær varð harður árekstur á horni Þing- vallastrætis og Mýrarvegar á Akureyri. Engin ineiðsl urðu á fólki, en eignatjón varð verulegt. „Mönnum hættir til að aka verulega greitt á götum Ak- ureyrar. Til marks urn það voru níu ökumenn teknir um helgina og þrír það sem af er mánu- deginum. Lögreglan þurfti einnig að hafa afskipti af stúlku er datt á bifhjóii, en sem betur fer hlaut hún ekki stórvægileg meiðsl,” sagði Ingimar Skjól- dal, varðstjóri á Lögreglu- stöðinni á Akureyri. ój Húsavík: Brotíst inn í Torgið Þrjú ungmenni voru gripin glóðvolg eftir að hafa brotist inn í Vídeóleiguna Torgið á Húsavík aðfaranótt laugar- dags. Lögreglan á Húsavfk var kölluð á vettvang eftir að veg- farendur höfðu orðið varir óeðlilegra mannaferða við Torgið. Mjög litlar skentmdir urðu á húsnæðinu vegna inn- brotsins. IM - aðaleigendur ósammála um skuldastöðu fyrirtækisins Fyrirtækið Björn V. Gíslason hf. í Ólafsfirði, sem stundaði físk- verkun og útgerð, var úrskurðað gjaldþrota í gær en stjórn fyrir- tækisins lagði beiðni um gjald- þrotaskipti fyrir bæjarfógeta síðastliðinn föstudag. Aðaleig- endur fyrirtækisins, Björn Val Gíslason og Sigtrygg Valgeir Jónsson, greinir mjög á um skuldastöðu fyrirtækisins. Sig- tryggur, sem skráður er stjórn- arformaður, sakar fram- kvæmdastjórann, Björn Val, um fjármálamisferli og skjalafals og segist íhuga kæru á hendur hon- um. Þetta telur Björn Valur til- hæfulaust og hljóti að dæmast ó- merkt þar sem bókhald fyrir- tæksins hafi frá upphafi verið unnið af viðurkenndum bók- halds- og endurskoðunarskrif- stofum og reikningarnir alltaf verið samþykktir án athuga- semda. Kjartan Þorkelsson, bæjarfógeti í Ólafsfirði, sagði ljóst að skuldir Björns V. Gíslasonar hf. séu um- frarn eignir, þó nákvæm skulda- staða liggi ekki fyrir fyrr en kröfur hafi borist. Eignir fyrirtækisins við gjaldþrot eru sjóhús, veiðarfæri og birgðir af verkaðri skreið. Samkvæmt nýútkominni skýrslu Byggðastofnunar námu skuldir Björns V. Gíslasonar hf. „Réttarstaða björgimarmaimsins óljós“ - segir Ólafur Proppé, formaður Landsbjargar í máli Ólafs Proppé, formanns Landsbjargar, á hátíðarfundi sambandsins sl. laugardag kom fram að réttarstaða björgunar- mannsins er óljós í íslenskum lögum. Hann sagði að Lands- björg myndi leggja áherslu á að fá fram skýrari löggjöf hér á landi uin þessi mál. Orðrétt sagði Ólafur í ræðu sinni: „Réttarstaða björgunar- mannsins er óljós t íslenskum lög- um. Björgunarsveitimar kosta miklu til að tryggja félagana í æf- ingum og við björgunaraðgerðir. En hvar liggur ábyrgðin á aðgerð- um björgunarsveitarmannsins? Hlýtur ekki lögformleg ábyrgð að hvíla á herðum þeirra yfirvalda og opinberu aðila sem kveðja björg- unarsveitirnar til starfa hverju sinni? Það eru til lög um almanna- vamir í landinu. En um leitar- og björgunarstörf er engin heildstæð löggjöf til. Að auki heyra slík mál undir mismunandi stofnanir eftir eðli málsins hverju sinni.“ Ólafur ræddi einnig urn fyrir- byggjandi starf og nefndi að stór- aukin fræðsla almennings til að verjast slysum, einkum á ferðum um hálendi íslands, væri eitt af framtíðarverkefnum Landsbjargar. SS Blönduós: Gjafír til heilsugæslu Föstudaginn 27. sept. sl. var í anddyri nýju heilsugæslustöðv- arinnar á Blönduósi formleg afhending og sýning á nokkr- um tækjum og búnaði sem gef- in hafa verið á árinu. Meðal gjafa sem sjúkrahúsi og heilsugæslu hafa borist á þessu ári og voru formlega afhentar þarna, má nefna endurlífgunar- og gjörgæslutæki sem Krabba- meinsfélag A-Húnvetninga gaf sjúkrahúsinu. Auk þess hafa ein- staklingar og félagasamtök gefið sjúkrarúm, ljósalampa fyrir psoriasissjúklinga og smásjár- lampa til augnlækninga svo nokk- uð sé nefnt. Andvirði gjafanna er um fjórar milljónir króna. Bolli Ólafsson, framkvæmda- stjóri sjúkrahússins, segir margt hafa verið um manninn þegar gjafirnar voru afhentar og sýndar, en að því loknu bauð stjórn sjúkrahúss og heilsugæslu upp á kaffiveitingar. SBG hjá Atvinnutryggingasjóði útflutn- ingsgreina 1,7 milljón króna við síðustu áramót. Auk þess skulduðu aðaleigendur fyrirtækisins samtals 11,8 milljónir króna hjá sjóðnum sem þeim hafði verið lánað til hlutafjárkaupa. Þar af var skráð skuld Bjöms Vals Gíslasonar 9,2 milljónir og skukl Sigtryggs Val- geirs Jónssonar 2,6 milljónir. Sigtryggur Valgeir Jónsson ítrek- aði í samtali við blaðið ásakanir á hendur framkvæmdastjóranum um fjársvik og skjalafals. Hann neitaði hins vegar að útskýra á hverju hann byggi grunsemdir sínar um þessi atriði, sagði það ekki tíma- bært nú. Sigtryggur staðhæfir að skuldir fyrirtæksins séu 27 millj- ónir við gjaldþrotið, þar af 13 í Sparisjóði Ólafsfjarðar og 13 í At- vinnutryggingasjóði útflutnings- greina. Þeirri spumingu hvort end- urskoðendur hafi gert athugasemd við bókhald fyrirtækisins vildi Sig- tryggur ekki svara á annan veg en að ekki sé tímabært að hann tjái sig frekar um málið. Björn Valur Gíslason segir fjarri lagi að fyrirtækið skuldi 27 millj- ónir nú við gjaldþrot. Þau lán sem fyrirtækið hafi fengið úr Atvinnu- tryggingasjóði hafi verið með veði í báti fyrirtækisins og fylgt honum þegar hann var seldur. Þau lán sem þeir tveir, sem einstaklingar, hafi fengið úr sjóðnunt komi gjaldþroti fyrirtæksins ekkert við. Skuldir fyrirtækisins segir hann fyrst og fremst við Sparisjóð Ólafsfjarðar, á móti afurðalánum komi verkuð skreið og á móti öðrum lánum nokkrar eignir, svo sem að framan er greint. JÓH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.