Dagur


Dagur - 01.10.1991, Qupperneq 6

Dagur - 01.10.1991, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 1. október 1991 Söguleg tímamót á Akureyri um helgina: Stofnþing Landsbjargar og hátíðarfundur Stofnþing Landsbjargar - lands- sambands björgunarsveita var haldið á Akureyri að morgni laugardags og eftir hádegi var hátíðarfundur í íþróttahöllinni. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, biskup Islands, herra Olafur Skúlason, Þor- steinn Pálsson, dómsmálaráð- herra, og fleiri góðir gestir heiðr- uðu samtökin með nærveru sinni á þessum sögulegu tímamótum. Um 700 björgunarsveitamenn og fjöldi boðsgesta sátu hátíðar- fundinn sem þingforsetamir Gunn- ar Eyjólfsson og Magnús Hall- grímsson stjórnuðu. Nýkjörinn formaður Landsbjargar, dr. Olafur Proppé, tók fyrstur til máls og sagði m.a. þetta: „I dag eru mikil tímamót í sögu björgunar- og hjálparstarfs á Is- landi. Þrjátíu björgunarsveitir víðs vegar að af landinu hafa sameinast og stofnað nýtt og öflugt lands- samband sem hlotið liefur nafnið Landsbjörg. Enda þótt þetta nýja landssamband, Landsbjörg, sé að verða til með formlegum hætti hér á Akureyri í dag, er það reist á gömlum og traustum grunni. Með- al þeirra sem nú taka höndum sam- an eru margar af reyndustu og öfl- ugustu björgunarsveitum landsins hringinn í kringum landið. Lands- björg er stofnuð til að auka sarn- heldni björgunarsveita og til að stuðla að farsælu björgunar- og slysavarnastarfi í landinu. Lands- sambandið á að gæta hagsmuna björgunarsveitanna og koma fram sem fulltrúi þeirra bæði gagnvart opinberum aðilum og öðrum samtökum.“ Starf í björgunarsveitum gefandi og þroskandi Olafur rakti þróun björgunarmála hér á landi og aðdragandann að stofnun samtakanna en í Lands- Vinningstölur 28. SeDt. ’91 laugardaginn----------------r-------- 1. 2.4K1 4. FJÖLDI VINNINGSHAFA 96 3.758 UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1.354.024,- 117.690,- 8.459,- 504,- Heildarvinningsupphæð þessaviku: 5.884.904.- upplýsingar:s!msvari91 -681511 lukkulIna991002 björg eru þær 22 björgunarsveitir sem mynduðu Landssamband hjálparsveita skáta og 6 sveitir sem mynduðu Landssamband flug- björgunarsveita. Þar að auki slóg- ust tvær sveitir í hópinn, sem höfðu staðið utan við landssam- bönd, Björgunarfélag Vestmanna- eyja og Björgunarsveitin Stakkur í Keflavík. Eftir stofnun Lands- bjargar eru allar starfandi björgun- arsveitir landsins annað hvort í hinu nýja landssambandi eða í Slysavarnafélagi Islands. í máli Ólafs kom fram að innan Landsbjargar eru á þriðja þúsund félagar á útkallsskrá og yfir tóll hundruð félagar virkir í reglu- bundnu starfi björgunarsveitanna. Hver einstök björgunarsveit er sjálfstæður aðili að sambandinu. Sveitimar eru misjafnlega vel tækjum búnar en eiga það sameig- inlegt að félagamir hafa fengið þjálfun í fyrstu hjálp, rötun og grundvallaratriðum björgunar- starfa. Þær fá aðstoð frá landssam- tökunum í gegnum björgunarskóla Landsbjargar, í formi náms- og ferðastyrkja og með ýmsu öðru móti. I lok ræðu sinnar sagði Ólafur: „Enda þótt björgunarsveitarstarf sé afar krefjandi er það einnig gef- andi og þroskandi. Tilgangurinn er afar auðsær þeim sem að björgun- armálum vinna og þegar vel tekst til fá menn erfiðið og óþægindin endurgreidd í ánægjunni yfir að hafa orðið til gagns. Stundum sæk- ir uppgjöfin og vonleysið á björg- unarsveitamenn í starfi. Þá er gott að eiga góða félaga. Oftast er þó vonin, bjartsýnin og áræðið björg- unarmanninum ofar í huga. Að vera viðbúinn til að hjálpa öðrum Um 700 manns sátu stofnþing Landsbjargar í íþróttahöllinni sl. laugardag. & g Blóm og gjafavara 0 § *' í miklu úrvali 0 ÚrvM afskorinna blóma Útíkrarskreytingar kransar-krossar-kistuskreytingar Sjáiun um skreytingar í kirkju 4 AKUR * Kaupangi • Akureyri Símar 24800 og 24830 Við háborðið sátu m.a. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, Ólafur Froppé, formaður Landsbjargar, biskup íslands, hr. Ólafur Skúlason, Þor- steinn Pálsson, dómsmálaráðherra, og Halldór Blöndal, landbúnaðarráð- herra. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, ávarpar hátíðargesti í íþróttahöll- ínili. Myndir: Golli Ólafur Proppé, formaður Landsbjargar, og forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, ganga í þéttskipaða íþróttahöllina. þegar í nauðir rekur er hugsjón þeirra sem í björgunarsveitum starfa. Þetta nýja landssamband björgunarsveita á meðal annars að efla samheldni einstakra björgun- arsveita og björgunarsveitamanna. Að því er stefnt að Landsbjörg verði öflugur stuðningur og bak- hjarl björgunar- og hjálparstarfs í landinu. Mestu skiptir að horfa til framtíðar, en gleyma þó ekki því sem við höfum lært af reynslu lið- inna ára. Þá mun vel fara.“ „Skaði eins er skaði okkar allra“ Vigdís Finnbogadóttir samþykkti að gerast vemdari Landsbjargar og var henni afhent gullmerki félags- ins á hátíðarfundinum. Vigdís á- varpaði fundinn og sagði m.a.: „Þess er gott að minnast hér í dag að íslendingar hafa ætíð átt í hjarta sínu ríka samkennd, sem er snar þáttur í þjóðarvitund okkar. Um aldir sneru menn bökum sam- an til að lifa frekar af harðræði og hörmungar. Og við búum við þá gæfu að það er ríkt meðal íslend- inga okkar tíma að mega ekkert aumt sjá og mega ekki vita af nein- um í vá eða þrengingum án þess að þeir finni sig knúna til að reyna að rétta fram hjálparhönd. Við finnum það betur er margar aðrar þjóðir að skaði eins er skaði okkar allra. Fyr- ir það fögnum við því ætíð þegar kraftar eru sameinaðir til heilla landsmönnum, til samhjálpar sem allir mega njóta, til björgunar mannslífa úr háska." Vigdís sagði að sér væri það Ijúft að gerast vemdari Lands- bjargar og óskaði hún samtökunum gæfu og bað Guð að blessa björgunarstarf hvarvetna á landinu. Ólafur Skúlason, biskup, ávarp- aði einnig hátíðarfundinn svo og Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð- herra, erlendir gestir og fleiri. Gjafir og heillaóskir komu víða að. Skemmtiatriði voru á dagskrá og um kvöldið var sameiningarfagn- aður í Iþróttahöllinni. Laust fyrir miðnætti var skotið upp flugeldum af varðskipinu Tý á Pollinum. Dagskráin var senn á enda. Lands- björg hafði litið dagsins ljós. Sögu- leg tímamót í björgunarmálum á Islandi voru orðin staðreynd. SS Fulltrúar björgunarsvcitanna sem að Landsbjörg standa með merki samtakanna

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.