Dagur - 09.10.1991, Page 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 9. október 1991
„Þannig mun kirkjan speglast í
vatninu og vatnið í kirkjunni"
- segir Fanney Hauksdóttir, arkitekt á Akureyri, sem fengin var
til að teikna nýja kirkju fyrir söfnuð Ólafsfjarðarkaupstaðar
Samspil mjúkra og hvassra forma mun einkenna bygginguna. Þetta er nýtt
form í kirkjubyggingu á Islandi.
„Megineinkenni Ólafsfjarðar
er vatnið, tjörnin, hafið og til-
komumikil fjöll. Af þessu tók
ég mið er kirkjan var teiknuð.
Ég vil að byggingin tengist
Hringlaga kirkjuskipið með hvclfdu þakinu sameinar og eflir söfnuðinn í trúnni á eilífan guð.
vatninu. Því er ráðgert að hún
standi að hluta til í tjörninni.
Þannig mun kirkjan speglast í
vatninu og vatnið í bogadregn-
um veggjum kirkjunnar sem
klæddir verða spegilgleri og
aðlaga sig þannig umhverfinu.
Samspil mjúkra og hvassra
forma mun einkenna bygging-
una. Þetta er nýtt form í
kirkjubyggingu á íslandi,“
sagði Fanney Hauksdóttir,
arkitekt á Akureyri, en safnað-
arnefnd Ólafsfjarðar fékk
hana til að teikna nýja kirkju
fyrir kaupstaðinn vegna 75 ára
afmælis kirkjunnar í Ólafs-
firði.
Fanney Hauksdóttir, arkitekt
frá Akureyri, hefur vakið eftir-
tekt fyrir snjallar lausnir og fögur
form þeirra bygginga er hún
teiknar. Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju er glöggt vitni þess.
Nýverið var haldið uppá 75 ára
afmæli kirkjunnar í Ólafsfirði og|
þar voru sýndar teikningar og lík-
an nýju kirkjunnar í veislu er
safnaðarnefndin stóð fyrir í
Tjarnarborg.
„Aðaleinkenni kirkjunnar er
kúpullinn og hin hvössu form
íslensku kirkjuturnanna. Hring-
laga kirkjuskipið með hvelfdu
þakinu sameinar og eflir söfnuð-
inn í trúnni á eilífan guð. í heimi
fornmanna er hringurinn sem
hvolfþakið tákn þess óendanlega
og fullkomna. Hvolfþakið eða
kúpullinn er tignarlegur og loft-
hæðin er 13 metrar. Kirkjubygg-
ingin öll er um 700 fermetrar.
Til hliðar við kirkjuskipið er
safnaðarsalur sem einnig nýtist
við guðsþjónustur sé þess þörf.
Hægt er að færa til veggi með
hægu móti og opna þannig í milli
kirkjuskips og safnaðarheimilis.
Þegar svo er komast 400 manns í
sæti. Sé um minni athafnir að
ræða þá er hægt að fækka sætum,
en samt sem áður virkar kirkjan
ekki tóm. Því ræður hringformið
sem undirstrikar trúarupplifun-
ina. í tengslum við safnaðarsal-
inn er eldhús. Starfsaðstaða
prestsins er góð og vel er hugsað
fyrir öllu er þarf að vera í kirkju.
Hver fermeter er nýttur sem best
og þess gætt að öll form fái notið
sín. Forkirkjan er þannig formuð
að hún leiðir söfnuðinn inn í
helgidóminn. Sjónlínan er bein
inn að altarinu og út á tjörnina.
Þannig tengist söfnuðurinn og
kirkjan vatninu sem er aðalein-
kenni Ólafsfjarðar,“ sagði Fann-
ey Hauksdóttir, arkitekt. ój