Dagur - 21.11.1991, Síða 6

Dagur - 21.11.1991, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 21. nóvember 1991 SUNNUHLTO VERSUJNARMIÐSTÖÐ Opið laugardag kl. 10-16 • KEA matvörudeild kl. 10-20 Laugard. 23. nóv. 1991 opið frá kl. 10.00-16.00 Sprengitilboð Vaggan Sprengitilboð Möppudýrið Kaffihlaðborð Kaffihúsið Lifandi tónlist Tískusýning kl. 14 Vaggan Habró Ynja Pálína Lyngdal Vörukynning Föstud. og laugard. Coca Cola Tilboð 2 I kr. 158,- Tilboð Lambalæri 1/1 Var kr. 798,- Nú kr. 699,- Saumavélaþjónustan Leðuriðjan Tera SJÁUMST í SUNNUHLÍÐ Verslanir: KEA, sími 30387 - Möppudýrið, sími 26368 Fuji-búðin, sími 11030 - Tónabúðin, sími 22111 Saumavélaþjónustan, sími 11484 Snyrtistofan Samson, sími 27044 Blómabúðin Laufás, sími 26250 Búnaðarbankinn, sími 27600-Trygging hf., sími 21844 Barnafataverslunin Vaggan, sími 27586 Skóverslun M.H. Lyngdal, sími 26399 Habró, fataverslun, sími 11119 Ynja, sérverslun, sími 25977 Vefnaðarvöruverslunin Pálína, sími 27177 Fatahreinsunin, sími 27224 Rafland, sími 25010 - Kaffihúsið, sími 25904 Bækur Ástaratlot - unaður kynlífs í myndum og máli Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér bókina Ástaratlot eftir dr. Andrew Stanway, einn virtasta kynfræðing Breta. Kynmök og ástaratlot er meginefni bókarinn- ar, tilgangur þeirra og tækni, og það hlutverk sem kynlífið leikur í lífi allra heilbrigðra karla og kvenna. I kynningu Forlagsins segir: „Hér er fjallað um samspil lik- ama og sálar, hvernig hægt er að vinna bug á vandamálum sem upp koma í ástarlífinu og geta auðveldlega spillt ástríkustu sam- böndum. Hér er fjallað um öll stig kynlífsins - frá því að kyn- hvötin vaknar til þess að ná öruggu valdi á leikjum ástarinn- ar. Þá er að finna í bókinni skynsamleg og tæpitungulaus ráð til allra þeirra sem eru of feimnir og bældir til að njóta kynlífs eða eiga við sérstök kynlífsvandamál að stríða. Einnig er hér að finna ítarlegar upplýsingar um getnað- arvarnir, kynsjúkdóma og alnæmi, og loks er fjallað á málefnalegan hátt um allt það fólk sem fetar aðra leið en fjöld- inn í ástum og kynlífi.“ Ástaratlot er 192 bls. í stóru broti, prýdd miklum fjölda ljós- mynda og teikninga. Magnús Rafnsson þýddi. Bláskjár - Fræg barnasaga í nýrri útgáfu Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér bókina Bláskjár eftir þýska skáldið Franz Hoffmann í þýðingu Hólmfríðar Knudsen. Þetta er fimmta útgáfa sögunnar, en hún kom fyrst út á íslensku árið 1915. í kynningu Forlagsins segir: „Fáar sögur hafa notið jafn mikill- ar hylli meðal íslenskra barna og ævintýrið um Bláskjá, drenginn með bláu augun sem flökkufólkið rændi og vistaði hjá sér í dimm- uni helli. Ekkert þráði hann heit- ar en að sleppa út til að sjá sólina - þó ekki væri nema einu sinni. Loksins rættist sá draumur og Bláskjá tókst að flýja frá svarta Eiríki og hyski hans. En flótti drengsins hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir hann. Vilborg Dagbjartsdóttir skáld og kennari ritar eftirmála þessar- ar nýju útgáfu þar sem hún fjallar um söguna, segir frá höfundi hennar og hugleiðir þá þýðingu sem gamlar sögur geta haft fyrir nútímabörn. Hér fá eldri kyn- slóðir tækifæri til að rifja upp söguna um Bláskjá og kynna hana fyrir nýrri kynslóð barna.“ BLÁSKJÁR Ort - ný ljóðabók eftir Pórarin Eldjárn Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út bókina Ort eftir Þórarin Rokkbondið leikur fyrir donsi til kl. 03.00 Aldurstakmork 1 ö ór Miöoverð kr. 800 Kjollarinn Korookekeppni fimmfudogskvöld Upplýsingar og skróning í keppnina í símo 22770 efrirkl. 13.00 Föstudags- og lougordagskvöld Karaoke synmg Grín og glens ó breiötjoldinu Rokkbondið og Guðrún Gunnorsdóttir leiko fyrir donsi fil kl. 03.00 Húsið opnoð kl. 19.00 Dorðapantanir í símo 22770 Nýtt Visa-tímobil í Sjollonum um helgino Kvöldverður, skemmfun og donsleikur kr. 3600 From komo: Ragnar Djarnason Ellý Vilhjálmsdóttir Jóhannes Krisfjánsson effirherma Eyjólfur Krisfjánsson Kynnir: Djarni Hofþór Helgoson Morseðill: Bjómalöguð piporóvaxrasúpQ Sinnepsgljáó bajonesskinba meö sykurhúöuóum jarðeplum og rauövínssósu Ananasfromage meó rjómaropp SJALUNN Eldjárn. Þetta er sjötta ljóðabók Þórarins en fyrr á þessu ári sendi hann frá sér bókina Hin háfleyga moldvarpa. Yrkisefnin eru fjöl- breytt og formið margslungið, en efni bókarinnar skiptir skáldið í vísur, orðlengjur og sonnettur. í kynningu Forlagsins segir: „Ekki er ofmælt að fyrstu þrjár ljóðabækur Þórarins Eldjárns gerðu hann að víðlesnasta ljóð- skáldi þjóðarinnar. Þar tefldi hann saman hefðbundnu Ijóð- formi og ögrandi en jafnframt gráglettinni afstöðu til yrkisefn- anna. I næstu tveimur kvæða- söfnum sínum birti hann í fyrsta skipti ljóð á frjálsu formi, en með þessari nýju ljóðabók tekur hann upp þráðinn þar sem frá var horf- ið og yrkir háttbundin Ijóð sem þó virðast búa að reynslu form- leitarinnar í síðustu bókunum tveimur.“ Ort er 48 bls. Helgi Þorgils Friðjónsson málaði mynd á kápu. Meirigauragangur - skáldsaga eftir Ólaf Hauk Símonarson Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér skáldsöguna Meiri gaura- gangur eftir Ólaf Hauk Símonar- son. Sagan er sjálfstætt framhald sögunnar Gauragangur sern kom út fyrir þremur árum. I kynningu Forlagsins segir: „Þeir sem hafa skemmt sér við lestur Gauragangs muna allir eft- ir Ormi Óðinssyni, ærslabelgnum orðheppna með skáldagrillurnar. í þessari sögu er liann orðinn 17 ára, en síst af öllu stilltari en áður. 17 ára og aldrei komið til útlanda. Algjör bæklun! Ormur er sjaldan að tvínóna við hlutina, hann hoppar upp í næstu flugvél til Kaupmannahafnar með Ranúr í farangrinum. í Höfn mæta þeir stórborgartöffurum og leður- gengi á öðru hverju götuhorni, og stúlkum á hinu horninu. Hvernig eiga grænjaxlar og fram- tíðarskáld að ráða við þessi ósköp? Ólafur Haukur Símonarson kann flestum skáldum betur að skrifa fyrir unglinga. Hér er sleg- ið á margvíslega strengi. Að baki ærslum og ævintýrum býr djúp alvara, því veruleiki lífsins er lík- ast til allt annað en gri'n." Meiri gauragangur er 160 bls. Guðjón Ketilsson gerði kápu. Svanurinn - ný skáldsaga eftir Guðberg Bergsson Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út skáldsöguna Svanurinn eftir Guðberg Bergsson. Hvert nýtt skáldverk, sem Guðbergur sendir frá sér, sætir tíðindum í íslensk- um bókmenntaheimi, og er þetta ellefta skáldsaga hans. Eru þá ótalin smásagnasöfn, ljóðabækur og fjölmargar þýðingar á stór- verkum heimsbókmenntanna frá hans hendi, en á þessu hausti eru þrír áratugir liðnir síðan fyrsta skáldverk Guðbergs, Músin sem iæðist, kom út. í kynningu Forlagsins segir: „Svanurinn er saga stúlku. Hún er níu ára gömul þegar hún er send í sveitina til að bæta fyrir brot sitt. í nýju umhverfi vakna óvæntar kenndir - dularfullar, ógnvekjandi og sárar. Náttúra sveitarinnar og tilfinningar telp- unnar tala saman á því margræða máli sem Guðbergur Bergsson hefur flestum skáldum betur á valdi sínu. Gleðin kallast á við harminn - frelsið við fjötrana - í þessari meistaralegu sögu um litla manneskju, eina og óstudda, í leit að lífinu.“ Svanurinn er 150 bls.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.