Dagur - 21.11.1991, Blaðsíða 9

Dagur - 21.11.1991, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - Fimmtudagur 21. nóvember 1991 Fimmtudagur 21. nóvember 1991 - DAGUR - 9 meistarakoppni í Karaoke. Ab keppninni standa Sjallinn. Ölver í Glæsibæ, Vib t'élagarnir i Vestmunnaeyjum verbur huldin oll fimmtudagskvöld fram ab úor 1992. Þar verba vuldir tveir sóngvurur sem keppu sem íulltrúur Norburiunds um ísiundsmeislaratitilinn í 10. janúar. Karaokemeistarinn og þeir sem nœstir veröa hljotu vegleg wrölaun sem kynni verda síðar. Öllum er helmil þátltaka (aldurstakmark 1B ar) Upplýsingar um keppnina og skraning er í sima 22770 eHir kl. 13.00 alla daga. fíjatni Dagur fónsson fjallar um keppninaá Bylgjunni i þœtti stnum miíii kl. 09.00- 12.00 virka daga. AKUREYRARB/ÍR Hundaeigendur Akureyri Aukadagur í hundahreinsun veröur í áhaldahúsi Gróörarstöövarinnar á Akureyri föstudaginn 22. nóv. kl. 16-18 fyrir þá sem ekki gátu mætt meö hunda sína í síðustu viku. Framvísa ber kvittun fyrir greiöslu ábyrgðartrygging- ar og leyfisgjaids fyrir yfirstandandi ár. Dýraeftirlit. Heilbrigðiseftirlit. um kosningarétt íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa íslendingar sem flust hafa af landi brott og sest aö erlendis kosningarétt hér í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt taliö frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Eftir þaö falla menn sjálfkrafa af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um aö fá aö halda kosn- ingarétti. Einungis þeir sem einhvern tíma hafa átt lögheimili á íslandi geta haft kosningarétt hér. Kosn- ingaréttur fellur niöur ef íslendingur gerist ríkisborg- ari í ööru ríki. Kosningarétturinn miöast viö 18 ára aldur. Reglur þessar gilda með sama hætti um kjör forseta (slands. Þeir sem búsettir hafa verið erlendis skemur en átta ár, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag, munu veröa teknir á kjörskrá án umsóknar. Þurfa því þeir sem flust hafa af landinu eftir 1. desember 1983 ekki aö sækja um skráningu á kjörskrá miðað viö 1. des- ember 1991. Þeir sem búsettir hafa veriö erlendis lengur en átta ár (þ.e. fluttu af landi brott fyrir 1. desember 1983) þurfa aö sækja um þaö sérstaklega aö veröa teknir á kjörskrá. Umsókn skal senda Hagstofu íslands á sérstöku eyðublaði. Sé umsókn fullnægjandi skráir Hagstofa íslands umsækjanda á kjörskrárstofn. Slík skráning gildir fjögur ár og þarf þá að endurnýja hana meö nýrri umsókn. Eyöublöö fyrir slíkar umsóknir fást í sendiráðum íslands erlendis, sendi- ræöisskrifstofum, skrifstofum kjörræðismanna og hjá fastanefndum viö alþjóðastofnanir. Einnig er hægt aö fá eyðublöðin á afgreiöslu Hagstofunnar. Umsækjandi verður sjálfur aö undirrita umsókn sína. Umsókn þarf aö hafa borist til Hagstofu íslands fyrir 1. desember nk. til þess að umsækjandi verði tekinn á kjörskrá fyrir næstu kosningar. íslendingar sem búsettir eru erlendis verða skráöir á kjörskrá þar sem þeir seinast áttu lögheimili sam- kvæmt þjóðskrá. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 19. nóvember 1991. AUGLÝSING Stelpnabekkir og strákabekkir fyrr og nú: „í blönduðum hópiun fer mikil orka í að ganga í augun á hinu kyninu“ í lokaskýrslu um kynjaskiptar deildir í GA er að finna sögulegt yfirlit Valgerðar Bjarnadóttur yfir stelpnabekki og strákabekki fyrr og nú, auk þess sem hún leggur sitt mat á niðurstöður þróunarverkefnisins. Við ætlum að grípa niður í nokkra kafla. Valgerður segir að allt fram á þessa öld hafi strákar og stelpur verið aðskilin í skóla vegna þess að verið var að undirbúa þau fyr- ir ólík lífshlutverk, annars vegar kven- og hins vegar karlhlutverk- ið, og þótti óhentugt að hafa kyn- in saman. „Upphaflega voru skólar mótaðir af körlum fyrir stráka og stelpum var einfaldlega ekki ætl- að rúm þar. Það þótti hvorki hollt né á nokkurn hátt nauðsyn að stúlkur gengju í skóla. Það gat skaðað þær og flekkað þeirra saklausu sál að læra um hinar dekkri hliðar mannlífsins, þær höfðu ekki forsendur til að nema æðri fræði og þær áttu að geta lært allt sem máli skipti af mæðr- um sínum eða húsmæðrum." Kynjaskipting til að jafna stöðu kynjanna Valgerður rekur söguna í grófum dráttum, staðnæmist við fyrstu kvenstúdentana og vitundar- vakningu kvenna. Um miðja öld- ina er orðið algengt að bæði kyn- in hljóti grunnmenntun og upp úr 1970 er hlutur stelpna og stráka í menntaskólum orðinn nokkuð jafn. Löngu er hætt að flokka nemendur eftir kyni í grunnskól- um, nema þá helst í leikfimi, og því vaknar spurningin um hvort kynjaskipting á 10. áratugnum sé ekki afturhvarf til fortíðar. Orð- rétt segir Valgerður: „Það kemur því eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir suma, kennara, foreldra, nemendur... þegar skyndilega - og að því er virðist að ástæðulausu - einhverj- ir kennarar og „fræðingar" taka upp á því að fara að skipta aftur í deildir eftir kynjum. „Minnir á húsmæðralíf fyrir 30-40 árum“, skrifaði reiður faðir - segir Valgerður Bjarnadóttir m.a. í skýrslu sinni barns í kynjaskiptri deild G.A. þegar hann í skoðanakönnun var spurður álits á því fyrirkomulagi. Það eru ekki nema nokkrir ára- tugir síðan barist var fyrir að afnema kynjaskiptingu, og þá er eðlilegt að einhverjum finnist öfugsnúið og fáránlegt að taka hana upp aftur.“ Það er ekki verið að dusta ryk- ið af kynjaskiptingu síðustu aldar og hverfa aftur til fortíðar, segir Valgerður, forsendur og mark- mið kynjaskiptingar nú eru að jafna stöðu kynjanna. Hún ræðir um ólíka hegðun og skapferli stráka og stelpna og hvernig kyn- in láta að stjórn í tímum, eins og fram kemur hér á eftir: Daðrað við karlkennara „Strákarnir eru sumir grófir, kaldir kallar, með yfirgang og jafnvel ofbeldi. Stelpurnar eru símasandi, nenna ekki að ein- beita sér, vilja helst nýta tímann í að prófa nýjustu hárgreiðsluna á hvor annarri, spjalla eða láta sig dreyma. Þær æfa sig fyrir fram- tíðarhlutverkið með því að daðra við karlkennarana en strákarnir nýta samskiptin við kvenkennar- ana til að prófa hvað konur geta þolað af grófum bröndurum og óheflaðri karlmennsku." Og Valgerður heldur áfram: „Þegar unglingar eru í ein- kynja hópum er oftast auðvelt að byggja upp stolt þeirra yfir eigin kyni, vinna með galla þess kyns og kosti og ræða opinskátt um kosti og galla hins kynsins, erfið- leika í samskiptum o.fl. í þeim dúr. Þegar þau eru í blönduðum hópum fer mikil orka í að ganga í augun á hinu kyninu og keppa innbyrðis um athyglina og keppa við hitt kynið um athygli kennar- ans.“ Valgerður tekur fram að þetta sé huglægt mat, ekki byggt á reynslu af kynjaskiptingunni í GA. Orkustreymi frá konum til karla Hún fjallar einnig um erlendar rannsóknir og ýmsar kenningar. Valgerður Bjarnadóttir. Athyglisverð er kenningin um orkustreymi frá konum til karla og skulum við líta aðeins á hana: „Karlar hafa í margar aldir nýtt sér orku eiginkvenna og ást- kvenna til að ná árangri í starfi. Orkan tekur á sig ýmsar myndir og finnur sér leið frá konunni til karlsins í formi ástar, athygli, umhyggju, atlota og umönnun- ar s.s. matar, hreinna klæða, fal- legs heimilis, uppörvandi orða, hljóðrar athygli og aðdáunar. Konan sér um að hann hafi nóg að borða, hrein föt, sé kynferðis- lega fullnægður, hafi notalegt umhverfi, þurfi ekki að þola truflun frá börnum o.s.frv. Ef eiginkonan hefur ekki uppfyllt þessar þarfir svo fullnægjandi sé leitar karlinn að orku frá annarri konu; mömmu, systur, dóttur eða ástkonu til að fylla það skarð. Á síðustu áratugum hefur það svo færst í vöxt að karla njóti einnig á vinnustað þessa orku- flæðis frá aðstoðarkonum (s.s. riturum, varformönnum stjórna, aðstoðarmönnum ráðherra, full- trúum) og samstarfskonum.“ Valgerður telur ekki ólíklegt að þetta fyrirbæri sé til staðar í skólum og í blönduðum bekkjum þiggi strákar ókeypis orku frá stelpunum í kringum þá. Stelpurnar blómstruöu en strákarnir misstu tökin á sjálfum sér Margt fleira fróðlegt og skemmti- legt er að finna í skýrslu Valgerð- ar en við skulum að lokum líta á hvernig hún metur árangurinn af kynjaskiptu bekkjunum í Gagn- fræðaskóla Akureyrar: „í kynjaskiptu deildunum í G.A. sáum við hvernig stelpurn- ar blómstruðu við kynjaskipting- una. Þær fóru hægt af stað, en þegar þær fundu frelsið þá urðu þær djarfari og sjálfstraustið óx, jafnvel svo að á tímabili fannst kennurunum erfitt að fá þær til að lúta aga. Það leið þó hjá og í heild var árangurinn jákvæður bæði hvað varðar samskipti milli stelpnanna og milli þeirra og kennaranna. Enn getum við ekk- ert sagt um langtímaáhrif kynja- skiptingarinnar, hvort hún leiðir til breiðara námsvals eða aukins sjálfstrausts stelpnanna í framtíð- inni. Strákarnir misstu svolítið tökin á sjálfum sér til að byrja með og leiddust jafnvel inn í ofsafengna hegðun og ofbeldi, þegar stelp- urnar voru ekki lengur til að dempa þá. Með markvissri vinnu, - viðtölum, hópvinnu og myndun stuðningshópa við þá sem urðu fyrir einelti eða ofbeldi -, var þó hægt að taka á þessum málum og bæta til muna andann í bekkjunum. Hvort þeir hafa lært eitthvað sem nýtist þeim í sam- skiptum í framtíðinni vitum við ekki enn. Það sem ekki var gert en eflaust er nauðsynlegt, var að karlkennarar ræddu í eigin hópi sín viðhorf og kynímynd. Kven- kennarar þurfa auðvitað líka að vinna með sín viðhorf, en það er þó staðreynd að konur hafa í mun meira mæli en karlar rætt sitt kynhlutverk og -ímynd og það skilar sér í starfi þeirra með stelpum.“ SS Þróunarverkefnið „Kynjaskiptar deildir“ í Gagnfræðaskóla Akureyrar: „Aldrei hefur neinn árgangur nemenda fengið aðra eins umfjöllun“ - segir Baldvin Bjarnason, skólastjóri, í lokaskýrslu verkefnisins Þróunarverkefnið „Kynja- skiptar deildir“ í Gagnfræða- skóla Akureyrar veturinn 1990-91 vakti mikla athygli á sínum tíma. Kennarar voru ekki sammála um hvort rétt væri að ráðast í þetta verkefni, foreldrar voru tvístígandi og almennir borgarar viðruðu skoðanir sínar. Fjölmiðlar sýndu hugmyndinni töluverð- an áhuga og á tímabili var jafn- vel hægt að tala um fjaðrafok í bæjarlífinu á Akureyri. Hvers vegna í ósköpunum átti að hverfa til fortíðar og taka upp sérstaka strákabekki og stelpu- bekki? Sumir litu á þetta sem öfugsnúna jafnréttisþróun. í októbermánuði síðastliðnum var lokaskýrsla þróunarverkefn- isins kynnt og greindum við laus- lega frá helstu niðurstöðum, sem þóttu fremur jákvæðar en hitt. En það er margt fróðlegt í þessari skýrslu sem vert væri að skoða nánar. Höfundar skýrslunnar eru Kristján M. Magnússon, sál- fræðingur, Valgerður Bjarna- dóttir, félagsráðgjafi, Baldvin Jóh. Bjarnason, skólastjóri, Magnús Aðalbjörnsson, aðstoð- arskólastjóri, og Sigríður K. Bjarnadóttir, kennari. í formála skýrslunnar lýsir Baldvin Bjarnason aðdragandan- um, en haustið 1989 var fyrst far- ið að orða það að sækja um styrk til þess að skoða hvort það væri til bóta að kynjaskipta í deildir, t.d. í 8. eða 9. bekk í a.m.k. eitt ár. Hugmyndina átti Sigríður Bjarnadóttir, en hún hafði fundið fyrir því við kennslu raungreina að strákarnir fengu meirihluta athygli hennar, jafnvel þótt hún reyndi meðvitað að gefa báðum kynjum jafnan tíma og athygli. Sigríður útbjó umsókn til Þróun- arsjóðs grunnskóla og var það staðfest með bréfi frá mennta- málaráðuneytinu 1. mars 1990 að skólinn hefði fengið 200 þúsund króna styrk. Eldri karlkennarar töldu þetta óráö Á kennarafundi í Gagnfræða- skóla Akureyrar var samþykkt með 13 atkvæðum af 30 að fara í verkefnið og þiggja styrkinn, en í umræðum kom í ljós að eldri karlkennarar töldu óráð að ráð- ast í þetta þótt enginn hefði greitt atkvæði á móti. Starfshóp skipuðu áðurnefndir höfundar skýrslunnar og var ákveðið að sækja um frekari styrki. Fengust styrkir frá Kennarasambandi fslands og Jafnréttisnefnd Akureyrar, fag- leg ráðgjöf frá Endurmenntunar- deild KHÍ en engir peningar frá Hinu íslenska kennarafélagi og hrökkluðust kennarar í félaginu fljótlega úr verkefninu. Verkefnið fór síðan af stað í byrjun skólaárs 1990-91 og voru verkefnisstjórar þau Kristján Magnússon og Valgerður Bjarna- dóttir. „Aldrei hefur neinn árgangur nemenda fengið aðra eins umfjöllun og þessi og ekki hefur í annan tíma verið eins mikil umræða um námsefni og fram- setningu efnisins síðan undirrit- aður kom fyrst að þessum skóla árið 1966. Hvort þessi tilhögun, að kynjaskipta í deildir, er til bóta er of snemmt að fullyrða nokkuð um því árgangurinn er ekki að öllu leyti marktækur af ýmsum ástæðum," segir Baldvin skólameistari í formála skýrsl- unnar. Á kennarafundi í apríl sl. var rætt hvernig til hefði tekist. 20 kennarar greiddu atkvæði með því að halda áfram á sömu braut næsta vetur, 5 voru á móti en 3 skiluðu auðu. í ljósi þessa var ákveðið að halda verkefninu áfram í vetur en án allra rann- sóknarstyrkja. Helstu markmið með þróunarverkefninu Víkjurn þá að þróunarverkefninu í framkvæmd og helstu niður- stöðum. Markmið verkefnisins eru sett fram í skýrslu Kristjáns Magnússonar: „I fyrsta lagi er um að ræða jafnréttismarkmið, þ.e. að vinna að því að jafna stöðu kynjanna í skólanum, með því að aðlaga kennsluna að þörfum og hæfni hvors kyns. í öðru lagi er um að ræða það markmið að gera skólann, Gagn- fræðaskóla Akureyrar, hæfari til að mæta þörfum allra nemenda. í þriðja lagi er það markmið verkefnisins að veita kennurum möguleika á að þróa eigin kennsluaðferðir...“ Fimm bekkjardeildir voru í 8. bekk á skólaárinu, 26 nemendur í deild, tvær stúlknadeildir, tvær strákadeildir og ein blönduð. í blönduðu deildinni voru reyndar aðeins 5 strákar á móti 21 stúlku. Verkefnið var síðan keyrt áfram með reglulegum fundum, fræðslu og athugunum. Viðhorf kennara, nemenda og foreldra voru könnuð og allar niðurstöður dregnar saman að vori. Nokkur breyting til batnaðar í kynjaskiptum deildum Orðrétt segir í skýrslunni um reynsluna af kennslu 8. bekkjar: „Mikill munur er á samhljóða jákvæðum væntingum kennara að hausti og lýsingu þeirra á nei- kvæðri reynslu að vori, af kennslu 8. bekkjar. 6 kennarar af 7 sem svara spurningunni segja að vori, að samskipti og náms- ástundun hafi verið slæm í bland- aða bekknum. 3 kennarar af 6 sem svöruðu spurningunni segja að námsástundun í stráka- bekkjunum hafí verið slæm, en allir 5 sem svara liðnum um sam- skipti í strákabekkjum, segja að þau hafi verið góð. I athuga- semdum kemur fram að „sam- skipti við strákadeildir hafi verið erflð, en farið batnandi er á leið“. Öllum 8 kennurum sem svara, bæði haust og vor, ber saman um að jafnt námsástundun sem samskipti hafi verið góð í stelpnabekkjunum. Þegar afstaða foreldra til kynjaskiptra deilda í byrjun og lok vetrar var könnuð kom í ljós að engin ein afstaða var yfirgnæf- andi. Foreldrar skiptust í þrjá nokkuð jafna hópa, jákvæðan, hlutlausan og neikvæðan. Mæður voru jákvæðari en feður, og for- eldrar barna í kynjaskiptum deildum mun jákvæðari en for- eldrar barna í blandaðri deild. í lok vetrar voru töluvert fleiri jákvæð, færri neikvæð en hlut- lausi hópurinn svipaður. Flestir foreldrar voru á þeirri skoðun að barn þeirra hefði lítið breyst hvað varðar hegðun, námsárangur og sjálfstraust. Hjá nemendum í kynjaskiptum deild- um hafði þó orðið breyting til batnaðar hjá nokkuð stórum hópi. Groddalegri samskipti í hreinum strákabekk Viðtöl við fimm nemendur úr hverri deild 8. bekkjar leiddu í Ijós að stelpurnar höfðu almennt verið ánægðar með veturinn. í annarri stelpnadeildinni töluöu þær um að veran í deildinni hefði gefið þeim aukið sjálfstraust, bæði í samskiptum við aðra nemendur og við að leita sér aðstoðar frá kennara. Þær mæltu eindregið með áframhaldandi kynjaskiptingu. Stelpur í blönduðu deildinni sögðu að andinn hefði ekki verið góður og sögðu tvær af fimrn að þær hefðu gjarnan viljað vera í hreinum stelpubekk. Bekkjarandinn var misjafn í strákadeildunum. í annarri deild- inni hafði verið órólegt í tímuni og borið töluvert á átökum milli nemenda og kennara strax frá upphafi skólaárs. í hinni deild- inni fór fyrst að bera á spennu um páskaleytið. Fimm strákar af tíu, allir úr „friðsamlegri“ deildinni, mæltu með áframhaldandi kynja- skiptingu. Kristján Magnússon getur um erfiðleika sem e.t.v. tengjast kynjaskiptingunni: „Erfiðleikarnir hafa fyrst og fremst komið fram í samskiptum milli nemenda og að einhverju leyti milli nemenda og kennara. Það virðist vera tilhneiging til groddalegri samskipta í hreinum strákabekk og nefnt hefur verið að blandaðir bekkir séu demp- aðri bæði í orðbragði og hegðun. (Þó hafa einnig heyrst þau ummæli að orðbragðið sé betra þegar kynin eru út af fyrir sig).“ Kristján getur þess einnig að átök hafi virst snarpari. Athugun hjúkrunarfræðinga sýndi að meiðslum/slysum fjölgaði úr 46 tilfellum skólaárið 1989-90 í 53 tilfelli á umræddu skólaári. Það eru fyrst og fremst aukin meiðsl hjá drengjum í 8. bekk sem valda þessari fjölgun. Slysin færðust um set og urðu fleiri á skólagöng- um en í leikfinrisal. Hér er ekki rýnri fyrir nánari skýringar en niðurstöðurnar gáfu forsvarsmönnum skólans tilefni til að halda áfram á sömu braut. Fleiri niðurstöður eru reifaðar í skýrslu Valgerðar Bjarnadóttur sem hér er tekin sérstaklega fyrir. ' SS Ummæli foreldra: Eini staöurinn á íslandi sem þetta var tekið upp og enginn sýnilegur árangur, minnir fólk á Húsmæöralíf fyrir 30-40 árum. Þetta virðist ekki skila neinum árangri þetta rugl, nær aö kaupa tölvu og bækur og ritvélar. - o - Gott fyrir stúlkur á þessum aldri, þær tjá sig frekar án drengjanna. - o - Þetta er gömul lumma sem oft hefur verið reynd og alltaf komiö illa út. -o- Dóttir mín segir hafa veriö meiri vinnu- friö í bekknum og aö góöur andi ríki Meiri agavandamál þar sem eingöngu drengir eru saman í bekk. Ekkert já- kvætt þótt ég reyni aö vera jákvæö! Meiri harka og slagsmál. -o- Barniö er ánægt og þaö er fyrir öllu. - o - Það vantar jafnvægi. Kvenelementið getur oröiö ansi hart á stundum. Konur eru konum verstar. Er alfarið á móti skiptingunni. — o — Betri námsárangur í nokkrum greinum - betri samskipti nemenda.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.