Dagur - 21.11.1991, Síða 15
Fimmtudagur 21. nóvember 1991 - DAGUR - 15
Jón Haukur Brynjólfsson
Iþróttir
FH voru Hálfdán og Hans drjúgir
og Bergsveinn varði vel í mark-
inu. -bjb
Mörk FH: Hálfdán Þórðarson 6. Gunnar
Bcinteinsson 5, Kristján Arason 5/1,
Hans Guðmundsson 4, Sigurður Sveins-
son 3, Borgils Óttar Mathiesen 2. Óskar
Helgason I. Pétur Petersen 1.
Mörk KA: Stefán Kristjánsson 7, Alfreð
Gíslason 6/1. Sigurpáll Aðalsteinsson
4/1, Jóhann Jóhannsson 2, Erlingur
Kristjánssön I. Guðmundur Guðmunds-
son I.
Dömarar: Jón Hermannsson og Guð-
mundur Sigurbjörnsson. Áttu hroðaleg-
an dag.
Knattspyrna:
Sigurbjöm
áfram með SM
Sigurbjörn Viðarsson hefur
verið endurráðinn þjálfari 4.
deiidarliðs SM í knattspyrnu.
Sigurbjörn þjálfaði og lék með
SM á síðasta tímabili en liðið
hlaut þá 12 stig og hafnaði í 6. og
næst neðsta sæti D-riðils 4. deild-
ar. Sigurbjörn var áður leikmað-
ur með Pór.
Útlit er fyrir að SM haldi sín-
um mannskap síðan í sumar og
fái jafnvel einhvern liðsauka. Nú
þegar hefur Reynismaðurinn
Gunnar Arnar Gunnarsson
ákveðið að leika með liðinu næsta
sumar.
„Háttyísi, höfum rétt við. Prúðasta lið 4. fl. karla ’91.“ Svo hljóðar áletrun á skyldi sem 4. flokkur Völsungs hlaut
frá KSÍ eftir keppnistímabilið í sumar. Liðið stóð sig vel í sumar og komst m.a. í úrslit í íslandsmótinu. Myndin var
tekin á æfingu nýlega en á hana vantar nokkra pilta sem léku með liðinu í sumar. Með drengjunum á myndinni er
Aðalsteinn Baldursson, þjálfari. Mynd: im
Bikarleikurinn
er í kvöld
Bikarleik Þórs og Fram í 16
liða úrslitum í handbolta var
frestað í gær þar sem Framlið-
ið komst ekki norður.
í gær hamlaði þoka í Reykjavík
flugi til Akureyrar. Af þeim sök-
um komst Framliðið ekki norður,
en leikurinn verður leikinn í
kvöld í íþróttahöllinni kl. 19.30.
KA-menn eru úr leik í bikar-
keppninni í handknattleik eftir
ósigur gegn FH, 21:27, í Hafn-
arfírði á þriðjudagskvöldið.
FH-ingar höfðu forystuna all-
an tímann og staðan í hléi var
14:9.
„Það var erfitt að spila á móti
KA-mönnum og ég fékk óblíðar
viðtökur hjá þeim,“ sagði Hans
Guðmundsson, stórskytta FH-
inga, og sýndi myndarlegt glóðar-
auga máli sínu til stuðnings.
„Þetta var nú reyndar alveg
óvart. Þetta var þó hörkuleikur
og munurinn á liðunum ekki jafn
mikill og tölurnar gefa til kynna.
Mér sýnist KA-liðið vera að
smella saman, það er ekki spurn-
ing unt hvort heldur hvenær."
Hans var sínum gömlu félög-
um í KA erfiður á þriðjudags-
kvöldið, sérstaklega í fyrri hálf-
leik en þá voru yfirburðir FH
töluverðir og þeir náðu á tímabili
7 marka mun. KA-mönnum gekk
illa í sóknarleiknum og þótt þeir
berðust mun betur í seinni hálf-
leik var sigur FH-inga ekki í
hættu. Úrslitin réðust endanlega
íslenska kvenfólkið fallegt
- segir Dan Hallström, sænskur gönguþjálfari hjá SRA
Stefan Kristjánsson átti ágætan leik
gegn sínum gömlu félögum og skor-
aði 7 niörk.
þcgar FH-ingar voru einum færri,
staðan var 20:16 og KA-menn
áttu vítakast. Bergsveinn varði
frá Alfreð og FH-ingar brunuðu
upp og skoruðu og náðu síðan
aftur 7 marka forystu, 23:16.
Stefán Kristjánsson lék með
KA-liðinu gegn fyrrum félögum
sínum nteð reifaða fingur á hægri
hendi. Það virtist þó ekki há hon-
unt því hann skoraði 7 mörk og
átti bestan leik KA-manna. Hjá
Dan Hellström.
Mynd: Golli
Dan Hellström er sænskur
gönguskíöaþjálfari sem ráðinn
hefur verið til starfa hjá
Skíðaráði Akureyrar í vetur.
Hann er aðeins 23 ára að aldri
en hefur þrátt fyrir það mikla
reynslu að baki sem þjálfari,
hefur starfað við hana síðan
hann var 14 ára gamall. „Það
er kannski heldur óvenjulegt
að þjálfarar séu þetta ungir en
ég held að það sé frekar kostur
en löstur. Maður nær betur til
yngri keppendanna en eldri
þjálfarar,“ segir Dan.
Dan er fæddur í Stokkhólmi en
flutti 12 ára gamall til lítils bæjar
sem heitir Norberg en það er
mikill skíðabær þar sem m.a. fer
fram ein frægasta göngukeppni
Svía, Engelbrechtsloppet. „Ég
byrjaði hins vegar sjálfur frekar
seint að ganga á skíðum, eða
ekki fyrr en ég var orðinn 14
ára,“ segir Dan. „Mér gekk mjög
vel í upphafi og vann t.d. fljót-
lega bronsverðlaun í sveitakeppni
á sænska unglingameistaramót-
inu. Ég fór í skíðamenntaskóla í
Gállivare og var þar í tvö ár en
gekk ekki nógu vel enda kom í
ljós að ég var með asma og hætti
því. Ég var um tíma í hernum og
keppti á hans vegum, tók m.a.
þátt í skíðaskotfimi. f fjögur ár
hef ég séð um að leggja brautir í
Norberg og haft yfirumsjón með
félagsþjálfun þar í tvö ár. Ég hef
einnig verið héraðsþjálfari í
Vástmanland í tvö ár. Þar sá ég
um að þjálfa sex rnanna úrvalslið
héraðsins sem tók þátt í öllum
sterkustu keppnum Svíþjóðar.“
Góður skíðamaður
„fæðist“ á sumrin
Akureyringar komust í samband
við Dan í gegnum ísfirðinginn
Daníel Jakobsson sem stundar
nám í skíðamenntaskólanum í
Járpen ásamt Bill Hellström,
bróður Dans. „Þetta bar mjög
brátt að en það var allt í lagi. Ég
er ekki með fjölskyldu og ákvað
bara að drífa mig. Ég hafði áhuga
á að spreyta mig í þjálfun annars
staðar en í Svíþjóð og fannst það
svolítið ævintýralegt að fara til
íslands. Ég vissi nánast ekkert
um landið, hafði þó séð kvik-
myndina Hrafninn flýgur og
fannst hún mjög góð. Ég vissi að
þetta var eldfjallaeyja og íslend-
ingar söguþjóð og mér fannst
þetta einfaldlega spennandi. Ég
hef ekki orðið fyrir vonbrigðum,
mér hefur litist vel á land og
þjóð, fólkið hér er sérstaklega
vingjarnlegt og kvenfólkið mjög
fallegt, enn fallegra en það
sænska.
Ég vissi enn minna um íslenska
skíðagöngumenn, þekkti reyndar
Daníel sem er mjög góður en þar
með er það upptalið. Ég verð að
viðurkenna að ég átti von á að
göngumennirnir væru betri en
þeir eru. Á því eru ýmsar
skýringar, m.a. sú að þeir æfa allt
of lítið á sumrin. í Svíþjóð er sagt
að góður skíðamaður „fæðist" á
sumrin því þá byggja menn sig
upp. Skólinn er líka svolítið
öðruvísi en í Svíþjóð, skíðamenn
sem eru í skóla hafa ntikið að
gera og verða að leggja virkilega
hart að sér til að ná árangri í
íþróttinni. Þeir sem ég þjálfa eiga
mikla möguleika á að ná langt á
íslandsmóti en standa nokkru
aftar en Svíar. Ég myndi segja að
það væri raunhæft fyrir þá bestu
að ntiða sig t.d. við Daníel og
reyna að ná svipuðum árangri og
hann. Daníel er greinilega kom-
inn skrefinu á undan þessum
strákum og það er vænlegast til
árangurs að miða sig við einhvern
betri en maður er sjálfur, ekki
einhvern sem er jafn góður. Þá
verða framfarirnar minni. 13-14
ára krakkarnir hérna eru liins
vegar svipaðir jafnöldrum sínum í
Svíþjóð en munurinn eykst eftir
því sem ofar dregur og það stafar
einungis af því að meira er æft í
Svíþjóð."
- Hvaða markmið hefur þú
sett Jrér fyrir veturinn?
„Ég hef fyrst og fremst sett
mcr tvö markmið. Annars vegar
að koma krökkunum sem ég er
að þjálfa í hóp þeirra bestu á ís-
landi og hins vegar að reyna að
auka fjölda þeirra sem stunda
skíðagöngu hér. Þetta er ekki svo
stór bær að ég hafi átt von á mikl-
um fjölda en niiðað við mögu-
leikana sem bjóðast hér ættu þeir
að vera fleiri. Landslagið er mjög
fallegt og skemmtilegt og aðstæð-
ur allar hinar ákjósanlegustu
þannig að ég er bjartsýnn á að
fleiri eigi eftir að gefa sig að þess-
ari skemmtilegu íþrótt,“ sagði
Dan Hellström.
Bikarkeppnin í handknattleik:
KA-menn áttu ekki
möguleika gegn FH