Dagur - 23.11.1991, Side 10
10 - DAGUR - Laugardagur 23. nóvember 1991
Bjórverksmiðjan á Akureyri er vel tækjum búin og hlutverk starfsmannanna er fyrst og fremst
að sjá til þess að vélarnar vinni eins og þær eiga að vinna.
...,,sl. vor fór ég með manni frá Lövenbrau-verksmiðjunum í Þýskalandi inn í áfengisútsölu í
Reykjavík. Hann missti andlitið þegar hann sá að bjórkippan væri seld á um 900 krónur, en
kampavínsflaskan á um 2000 krónur. í Þýskalandi kostar samskonar bjórkippa um 200 krónur.“
Myndir: Golli
Galdurinn við „forboðna“ dnkkinn
- um 500 þúsund lítrar í einu í bruggtönkunum hjá Viking Brugg á Akureyri
Nei, þetta er ekki starfsmaður Viking Brugg á Akureyri!
Hér er mætt í fullum skrúða nunnan Doris, sem er yfir-
bruggari við Mallersdorf í Bæjaralandi. Mikið er um
bjórbruggun í klaustrum í Evrópu og bæði nunnur og
munkar leggja allt sitt í bruggunina. Mynd: New World
Guid to Bccr.
Magnús Þorstcinsson, framkvæmdastjóri Viking Brugg,
stendur hér við nokkra af bjórtönkum verksmiðjunnar á
Akureyri. Magnús áætlar að um 500 þúsund lítrar séu í
tönkunum í einu.
Eins og við mátti búast eru
íslendingar nú komnir yfir
nýjabrumið í neyslu á áfengum
bjór eftir sprenginguna, sem
varð í kjölfarið á því að brugg-
un og sala bjórs var leyfð 1.
mars 1989. Neyslan er mun
minni nú en á fyrstu mánuðun-
um og að sögn Magnúsar Þor-
steinssonar, framkvæmdastjóra
Viking Brugg hf. á Akureyri,
sem er langstærsti bjórfram-
leiðandinn hér á landi, má ætla
að hlutfall sölu á bjór, sterkum
og veikum vínum sé komið í
það horf sem cðlilegt geti
talist.
500 þúsund lítrar
í tönkunum
Blaðamaður leit á dögunum við í
Viking Brugg á Akureyri og
skyggndist á bak við leyndardóm
bjórgerðarinnar. Óhætt er að
segja að bjórbruggun undirritaðs
í gamla daga, með aðstoð marg-
víslegra efna frá Ingva í Hafnar-
búðinni á Akureyri, hafi fölnað í
samanburði við þessi ósköp. I þá
daga var lagt í 25 lítra kúta og
þóttust menn góðir með þá fram-
leiðslu, en í Viking Brugg eru
menn heldur stórtækari. Þar má
ætla að séu um 500 þúsund lítrar
í einu í bruggtönkunum. En
hvort sem menn leggja í litla
tugalítra kúta eða margra þús-
unda lítra tanka er aðferðin stórt
séð sú sama. Lykillinn að góðum
bjór er fyrsta flokks hráefni;
vatn, korn, ger og humlar, ítrasta
nákvæmni og hreinlæti.
Undirgerjaður bjór
Sem dæmi um nákvæmnina má
nefna að það er hreint ekki sama
hvort notuð er vetrar- eða vor-
uppskera af byggi. Að sama skapi
skiptir miklu hvort notað er svo-
kallað tveggja- eða sex-raða bygg.
Viking Brugg notar tveggja raða
bygg, sem kemur hingað til lands
í 17 tonna gámum og er dælt í
stór síló við verksmiðjuna. Bygg-
ið er hreinsað og sogið úr því allt
ryk áður en það er notað í sjálfa
bjórgerðina. Það er síðan soðið á
ákveðinn hátt í þrem mismun-
andi kötlum til þess að ná úr því
þeim efnum sem æskileg eru í
bjórinn.
Að sögn Magnúsar Þorsteins-
sonar tekur suðan nálægt 10-12
tímum og að því loknu er byggið
fært yfir í gerjunartankana þar
sem gerjun hefst. Þessi hluti
bruggunarinnar tekur allt að 14
dögum og með honum er ná-
kvæmlega fylgst af starfsfólki
rannsóknastofu Viking Brugg.
Að gerjun lokinni er bjórinn
kældur og þá falla óhreinindi til
botns. Þessi tegund bjórs er svo-
kallaður undirgerjaður bjór.
Lokaskref bruggunarinnar er síð-
an síun og átöppun.
íslendingar vilja hina
þýsku hefð í bjórgerð
Viking Brugg er með sjö tegundir
af bjór á markaðnum og sagði
Magnús að á því rúma hálfu öðru
ári, sem bjór hefur verið fram-
leiddur í landinu, hafi greinilega
komið í ljós bjórsmekkur
landans. „Markaðurinn vill þess-
ar Ijósu tegundir af bjór sein
sumir kalla hina þýsku hefð í
bjórgerð. Við höfum því lagt
áherslu á að framleiða þann
bjór,“ sagði Magnús.
Hann sagðist telja að svartsýn-
isspár „bindindispostula" í land-
inu um allsherjar fyllerí í landinu
eftir að bjórinn yrði leyfður, hafi
ekki gengið eftir. Menn drykkju
sinn bjór eins og annað áfengi að
stærstum hluta um helgar. „Það
hefur orðið samdráttur í sölu á
bjór og að sama skapi aukning í
sölu sterkra drykkja. Bjórinn er
meira skattaður en sterka áfengið
og þess vegna er hann hlutfalls-
lega dýrari hér en annað áfengi. í
þessu sambandi get ég nefnt að
sl. vor fór ég með manni frá
Löwenbrau-verksmiðjunum í
Þýskalandi inn í áfengisútsölu í
Reykjavík. Hann missti andlitið
þegar hann sá að bjórkippan væri
seld á um 900 krónur, en kampa-
vínsflaskan á um 2000 krónur. í
Þýskalandi kostar samskonar
bjórkippa um 200 krónur.“
Magnús sagðist aðspurður telja
að leyfa ætti sölu á bjór og öðru
áfengi í matvöruverslunum að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
„Ég tel hins vegar að dreifing á
áfengi eigi að vera áfram í hönd-
urn eins aðila. Það breytir ekki
öllu hvort sá aðili heitir Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins eða
Áfengisverslun fslands.“
Viking Brugg hf. er með þýsk-
an bruggmeistara á sínum
snærum, sem á stóran þátt í
endanlegu bragði bjórsins. Hann
hefur starfað víða annars staðar
og þekkir því vel þennan sér-
kennilega heim bjórgerðarlistar-
innar. Bjórbruggarar víða um
heim þekkjast vel innbyrðis og
bera saman bækur sínar. Þetta er
sérstakur heimur, þar sem talað
er sérstakt tungumál. Magnús
segir vissulega gaman að fá að
kynnast þessum heimi og bjór-
iðnaðurinn sé heillandi, ekki síst
vegna þess hve skammt sé síðan
að þessi áratuga forboðni drykk-
ur hér á landi var leyfður.
6000 ára gamall drykkur
Bjórinn á langa sögu, sem segja
má að spanni allt að 6000 ár.
Þessi görótti drykkur var til dæm-
is drukkinn í forn Mesopotamíu,
Egyptalandi og Kína. í Evrópu
voru kaþólskir munkar frum-
kvöðlar í bjórgerðarlistinni og
segir sagan að sá munkur sem bar
ábyrgð á bjórbrugguninni í við-
komandi klaustri hafi komist
næst ábótanum í virðingarstigan-
um. Ábótinn hélt utan um and-
lega velferð munkanna, en
„bjórmunkurinn" lét sér annt um
líkamlega velferð þeirra með því
að leggja allt sitt í bjórgerðina.
Um norðanverða Evrópu var
bjórgerðin tíðum í höndum
kvenna, en eiginmenn þeirra
stunduðu sjóróðra og öfluðu
fiskjar, eða rændu og rupluðu á
suðlægum slóðum. Sagan segir að
við val á kvonfangi liafi víking-
arnir lagt að jöfnu líkamlega
kvenkosti og hæfileikann til þess
að brugga sterkan og góðan bjór.
Nú er öldin önnur
En nú er öldin önnur, að vissu
leyti. Vissulega hefur bróður-
partur bjórframleiðslu í heimin-
um færst í fullkomnar verksmiðj-
ur, en þó má víða erlendis enn
finna litlar heimilislega bjórkjall-
ara í klaustrum og bóndabæjum.
Bjórbruggun og -drykkja á sér
ríka hefð í mörgum Evrópulönd-
um. Við getum nefnt Þýskaland,
Danmörku og Holland. Banda-
ríkjamenn eru vissulega mesta
bjórframleiðsluþjóð í heimi, með
23 milljarða lítra framleiðslu á
ári. Þeir eru hins vegar í 12. sæti
í neyslu á mann. Þar tróna Þjóð-
verjar á toppnum. Þeir drekka
hvorki meira né minna en 147
lítra á mann á ári hverju. íslend-
ingar keyptu 6,4 milljónir lítra af
sterkum bjór í fyrra, sem sam-
svarar um 25 lítra neyslu af bjór á
hvern íslending. Við verðum
greinilega að hafa okkur alla við
ef við eigum að ná Þjóðverjum í
bjórdrykkju! Af þessari 25 lítra
neyslu hvers íslendings fram-
leiddi Víking Brugg hf. á Akur-
eyri 10 lítra. Staða verksmiðj-
unnar er því sterk á innanlands-
markaði.
Yandið valið á bjórglösum
Og í lokin nokkur holl ráð til
unnenda bjórsins.
Menn skulu hafa það í huga að
bjór er ætíð bestur nýr og því
skal varast að geyma hann of
lengi í kæliskápnum eða uppi á
hillu inni í búri.
Ef menn halda að engu máli
skipti í hvernig glös bjórnum er
hellt, þá er það mikill misskiln-
ingur. Best er ef glösin eru frem-
ur há og þrengjast að ofan. Takið
eftir glösunum næst þegar þið
eigið leið inn á gamla virðulega
bjórkrá erlendis. Það skyldi þó
aldrei vera að þið fengjuð bjór-
inn reiddan fram í slíkum
glösum?
Þá er mikilvægt að glösin séu
hrein og laus við alla fitu, sem er
einn af helstu óvinum bjórsins.
Því er það ekki sæmandi góðum
bjórdrykkjumanni að drekka
bjór og mjólkina úr Auðhumlu
úr sama glasinu. Bjórglösin verða
einnig að vera köld þegar miðin-
um er hellt í þau og góð regla er
að skola þau úr köldu vatni áður
en hellt er í þau. Ekki skal
þurrka glösin, heldur láta þau
þorna sjálf.
Og svo að lokum eitt mikilvægt
atriði. Þvottaefni sem notuð eru
við uppvask geta orðið eftir inn-
an í glösunum og þar með eyði-
lagt bjórfroðuna. Af þeim sökum
er vert að forðast að nota þvotta-
efni við þvott á bjórglösum. óþh