Dagur - 23.11.1991, Qupperneq 23
Laugardagur 23. nóvember 1991 - DAGUR - 23
Popp
Neil Young þykir í augum margra
vera orðinn þjóðsagnapersóna í
lifanda lífi. Á sínum u.þ.b. 25 ára
ferli með Buffalo Springfield
Crosby, Stills, Nash and Young,
CH og svo á eigin vegum, hefur
Young stigið til hæstu hæða
frægðarinnar í sínum tryllta
dansi við tónlistargyðjuna. En
dansinn hefur þó langt í frá verið
eingöngu á rósum.
Ymisleg persónuleg vanda-
mál, eins og sykursýki, sem hrjáð
hefur hann um langan aldur,
þunglyndi vegna vinamissis og
margt fleira, hafa staðið Young
fyrir þrifum á ferlinum, en hann
hefur aldrei gefist upp og alltaf
náð sér upp úr öldudalnum.
Á síðasta ári hóf Neil Young
samstarf á ný við Crazy Horse
Magnús Geir Guðmundsson
sem hæst þegar tónleikaferðin
var farin, þannig að friðarsinnan-
um Neil Young hefur þótt tilhlýði-
legt að lýsa andúð sinni á því,
með því að setja þetta fræga
friðarlag á efnisskrána. Er flutn-
ingurinn á Blowin’ in the wind
með þeim tilkomumeiri sem
heyrst hafa í seinni tíö á tón-
leikaplötu og á það séistaklega
við um byrjunina, þar sem engu
er líkara en að allt sé að springa
í loft upp í tónleikasalnum.
Weld er tvímælalaust enn einn
Neil Young & Crazy Horse - Weld:
Verkið lofar meistarann
eftir þriggja ára hlé og gerði með
henni plötuna Ragged Glory. Er
skemmst frá því að segja að plat-
an fékk mjög góðar viðtökur og
þykir hún vera með því besta
sem Young hefur sent frá sér í
seinni tíð.
í kjölfar útgáfunnar á Ragged
Glory, héldu svo Young og Crazy
Horse í tónleikaferð um Banda-
ríkin, sem stóð fram að mars á
þessu ári. Er nú afrakstur þess-
arar ferðar kominn út í formi tvö-
falds tónleikadisks, sem hér er til
umfjöllunar. (Væntanlega er
einnig um að ræða tvöfalda eða
þrefalda plötu.) Þetta er í þriðja
skiptið sem Young sendir frá sér
lifandi efni, en áður hafa komið
út, Time fades away, sem er ein-
stök tónleikaplata fyrir þær sakir
að hún innihélt eingöngu nýtt
efni, frá 1973, og Live Rust frá
1980.
Nýja útgáfan, sem kallast
Weld, inniheldur sextán lög, þar
af eru sjö af síðustu tveimur plöt-
um Youngs, Freedom og Ragg-
ed Glory. Það að fimm af lögun-
um skuli vera af Ragged Glory,
hefði einhvern tímann þótt heldur
mikið af svo nýrri þlötu, en hér
falla þau einfaldlega svo vel að
eldri lögunum, að ekki er hægt
að hugsa sér lagavalið öðruvísi.
Weld er nefnilega einstaklega
heilsteypt og er ekki ofsagt að
segja að hér sé á ferðinni ein
mesta og besta rokkveisla, sem
fest hefur verið á plast hin seinni
ár. Er Poppskrifari nánast orð-
laus af hrifningu yfir mörgu á
Weld, slíkur er tilfinningahitinn
og slík er dýptin [ túlkun Youngs
og félaga.
Auk laganna sjö, sem fyrr eru
nefnd, af Freedom og Ragged
Glory, sem nánar tiltekið eru,
Love to burn, Love and only love,
Fuckin up, Farmer John og
Mansion on the hill af Ragged
Glory og Rockin’ in the free world
og Crime in the city af Freedom,
eru þrjú lög af Rust never sleeps,
sem kom út 1979. Eru það lögin
Cortez the killer, Hey hey, my my
og Wellfare mother. Hin lögin sex
eru síðan af ýmsu tagi, þar á
meðal hið magnaða Tonight’s
the night af samnefndri plötu frá
1975 og Blowin’ in the wind, hinn
frægi óður Bob Dylan, sem kyrj-
aður var tíðum gegn Víetnam-
stríðinu meðan það var og hét.
Persaflóastríðið stóð einmitt
Karl Örvarsson þarf sennilega
ekki að kynna fyrir flestum Akur-
eyringum eða öðrum Norðlend-
ingum. En fyrir þá sem ekki
þekkja, þá kom Karl fram í sviðs-
Ijósið ásamt Atla bróður sínum
og fleirum í Stuðkompaníinu árið
1988. Það ár kom Stuðkompaní-
ið, sáog sigraði í Músíktilraunum
Tónabæjar og sendi síðan frá
sér plötuna Skýjum ofar í kjölfar-
ið. Samdi Karl megnið af lögun-
um á plötunni og þótti þá strax
býsna glúrinn við lagasmíðarnar.
„Kompaníið” lifði hins vegar
ekki lengi eftir þetta og hefur Karl
síðan komið fram undir eigin
nafni. Hafa nokkur lög komið frá
honum á síðustu misserum á
safnþlötum auk þess sem lagið
Draumar á plötu Stjórnarinnar,
Tvö líf, er eftir hann.
Nú hefur Karl hins vegar sent
frá sér slna fyrstu plötu undir eig-
in nafni og sett saman hljómsveit
sem ber sama nafn og hún, Eld-
fuglinn. Hefur þessi plata verið í
vinnslu hjá Karli í um tvö ár og
hefur hann notið þar aðstoðar
Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar
úr Todmobile við gerð hennar. Er
sigurinn fyrir Neil Young og það
stór sigur. Hér sannar hann sem
aldrei fyrr hversu mikill snillingur
hann er í að sameina hið grófa
og hið fíngerða, grimmdina og
mildina, ástina og hatrið, stríðið
og friðinn. Hér lofar verkið meist-
arann.
í lokin skal svo þess getið að
myndband frá þessari tónleika-
ferð, sem samtals innihélt 54 tón-
leika, mun nú einnig vera komið
út.
Þorvaldur upptökustjóri plötunn-
ar, höfundur útsetninga ásamt
Karli og Atla og spilar að auki á
gítar o.fl. Auk Þorvaldar og Atla,
sem spilar á hljómborð, aðstoða
margir af þekktustu tónlistar-
mönnum landsins Karl á plöt-
unni. Má þar nefna Gunnlaug
Briem á trommum o.fl., Einar
Braga Bragason á tenór-saxa-
fón, Eið Arnarsson á bassa og
Kristján Edelstein og Jón Elvar
Hafsteinsson á gítar. Þá er
ónefndur Nick nokkur Serrate,
sem ku víst hafa spilað með
Whitesnake, en hann tekur
píanósóló í laginu Eldfuglinn.
Lagasmíðarnar á Eldfuglinum
eru í hreinum nútímapoppsanda
með rokkáhrifum og eru hinar
þokkalegustu margar hverjar,
samanber, Eldfuglinn, Haltu mér,
slepptu mér og Drekinn. Er von-
andi að Eldfuglinn sé fyrsta skref
Karls til meiri og betri afreka.
(Það er svo rétt að taka fram
að þótt hér sé talað um „þlötu“,
þá er strangt til tekið ekki um
slíka útgáfu að ræða, heldur ein-
ungis í formi geisladisks og kass-
ettu.)
Karl Örvarsson - Eldfuglinn:
Nútímapopp
Ymsir - Forskot á sæluna:
Fínt forskot
Forskot á sæluna, sem kemur út
á vegum Steina hf. og ps músík í
sameiningu, er eins og nafnið
bendir til ætlað að kynna rjóm-
ann af því sem þessar útgáfur
eru að senda frá sér um þessar
mundir. (Sumt er reyndar nú
þegar komið út.)
Er hér að finna ný lög af útgáf-
um með, Sálinni hans Jóns
míns, Todmobile, Karli Örvars-
syni, Eyjólfi Kristjánssyni, Valdi-
mar Erni Flygenring, K.K. Band,
Ný dönsk, Geirmundi Valtýssyni
og Valgeir Guðjónssyni (Gaia).
Þá er eitt gamalt lag með Bubba
af nýju tónleikaþlötunni hans, Eg
er, (Stál og hnífur) og annað lag
með honum og Rúnari af GCD
þlötunni.
Stjórnin á einnig eitt lag af Tvö
líf plötunni og Sigríður söngkona
Stjórnarinnar og Páll Óskar
Hjálmtýsson syngja sitt hvort
lagið. (Lagið sem Sigga syngur,
hið alkunna barnalag Snati og
Óli, er að finna á plötu sem kall-
ast Stóru börnin leika sér, en lag-
ið sem Páll syngur, Yndisleg
jörð, gamla Louis Armstrong lag-
ið Wonderful World, er af plöt-
unni Minningar.) Er ekki hægt að
segja annað en að hér hafi tekist
vel með lagavalið og er Popp-
skrifari ekki frá því að Forskot á
sæluna sé með betri safnplötum
sem hann hefur heyrt. Til dæmis
eru tvö af hans uppáhalds lögum
þessa stundina að finna á For-
skotinu, Færðu mérfrið með Sál-
Stefán Hilmars og félagar í Sálinni
æskja friðar.
inni og True to you með K.K.
Band. Þá má ætla að sjaldan eða
aldrei hafi tóngæðin í heildina
verið eins góð og hér. Sem sagt
hið fínasta forskot.
Kúlu- og keflalegur
STRAUMRÁS s.f
Furuvöllum 1 sími 26988
Þar sem þjónustan er í fyrirrúmi.
Byggðastofnun
Húsnæði til leigu
Verslunarhúsnæði er til leigu við
Hafnarstræti 88.
Tilboðum skal skila til Byggðastofnunar Akureyri eigi
síðar en 28. nóvember 1991.
Nánari upplýsingar í síma (96) 21210.
AKUREYRARB/ÍR
Tungumálanám fyrir börn
í janúar nk. stendur til að bjóða upp á stuðn-
ingsnám í dönsku, ensku, norsku og sænsku
fyrir börn, yngri en 11 ára.
Námið er hugsað fyrir börn sem dvalið hafa lang-
dvölum erlendis og náð góðum tökum á viðkom-
andi tungumáli. Fjöldi í námshópum er áætlaður
10-12 nemendur og skólagjöld verða 2.200,- kr.
fyrir önnina.
Skráning nemenda fer fram á skrifstofu skólafull-
trúa, Strandgötu 19 b, sími 27245. Þareru einnig
veittar nánari upplýsingar.
Skráningu lýkur 10. desember nk.
Skólafulltrúi.
Fóslrur • Fóstrur
Leikskólann Sunnuból á Akureyri vantar
fóstrur til starfa frá 1. janúar nk. eða eftir sam-
komulagi.
Sunnuból er leikskóli með 25 börnum á aldrinum
2ja-6 ára í 8 eða 9 tíma vistun.
Upplýsingar um innra starf gefur leikskólastjóri í
síma 96-27753.
Holtakot • Iðavöllur • Lundarsel
Yfirfóstru og deildarfóstru vantar á þessa
leikskóla.
Upplýsingar um innra starf gefa leikskólastjóri á
Holtakoti í síma 96-27081, Iðavelli í síma 96-
23849 og Lundarseli í síma 96-25883.
Þá vantar fóstrur á fleiri leikskóla Akureyrar-
bæjar.
Aðstoðað er við útvegun húsnæðis.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK og Ak-
ureyrarbæjar eða Launanefndar sveitarfélaga og
Fóstrufélags Islands.
Upplýsingar veita deildarstjóri dagvistardeildar í
síma 96-24600 og starfsmannastjóri Akureyrar-
bæjar í síma 96-21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar í Geislagötu 9, Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 9. desember nk.
Bæjarstjórinn á Akureyri.