Dagur


Dagur - 23.11.1991, Qupperneq 11

Dagur - 23.11.1991, Qupperneq 11
• Laugardagur 23. nóvember 1991 - DAGUR - 11 Bókakynning Skömmtunarseðlar og dansleikjabann - kafli úr bók Jóns Hjaltasonar, Hernámsárin á Akureyri og Eyjafirði Hvenær komu hermennirnir í Eyjafjörð? Hvaðan voru þeir? Hvar settu þeir niður herbúðir sínar? Hvernig brugðust Ey- firðingar við „gestunum“? Þessum spurningum og miklu fleiri svarar sagnfræðingurinn Jón Hjaltason í bók sinni Hernámsárin á Akureyri og Eyjafirði. Hin viðkvæmustu mál eru reifuð, svo sem á- standið og nasismi, Bretavinn- an og njósnaveiðar hernáms- liðsins. Akureyri er í þunga- miðju frásagnarinnar enda voru þar höfuðstöðvar setu- liðsins, fyrst þess breska og síðan hins bandaríska. Sagan berst inn á Melgerðismela og Hrafnagil, til Grenivíkur, út í Öxnadal og Hörgárdal, eftir strandlengjunni um Dagverð- areyri, Hjalteyri og Arskógs- strönd og út í Hrísey, einnig til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Siglu- fjarðar og Grímseyjar. Dagur birtir hér kafla úr bókinni með góðfúslegu leyfi höfundar. Það er fyrsti kafli bókarinnar sem hér birtist les- endum. Akureyri, bær og bæjarbragur Árið 1940 voru nafngreindar göt- ur á Akureyri um 45, nær allar ómalbikaðar og án annarrar ryk- bindingar en þeirrar sem lak aft- an úr vatnsbílnum. Þó hafði verið hafist handa um malbikun Kaup- vangsstrætis, upp af Torfunefi og Hafnarstræti, á árinu 1927 en það var fyrsta malbikun í bænum. Ekki hafði þessum framkvæmd- um miðað betur en svo að sumar- ið 1941 ætlaði rykið á götum bæjarins alla lifandi að drepa. Eftir vegunum skröltu hestvagn- ar, bæði bæjarbúa og nærsveita- rnanna, sem komu í bæinn að selja mjólk. Pá var allt nýjabrunt farið af skæðasta keppinauti þarfasta þjónsins, bílnum, og hann orðinn hluti af gráum hversdagsleikanum. Kristján Kristjánsson hafði stofnað Bif- reiðastöð Akureyrar (B.S.A.) árið 1923 og Bifreiðastöð Oddeyrar (B.S.O.) hafði komist á laggirnar 1929. Strax árið eftir voru bílar á Akureyri orðnir 103. l5að er ekki ofsögum sagt að það sem var og hitt sem varð mættist á þessum árum. í desem- ber 1913 var húsið Caroline Rest opnað í Grófargilinu. Pessi bygging, sent reist var af George H.F. Schrader, átti að vera skjól þarfasta þjóni mannsins, hestin- um. Á öndverðu ári 1940 var kvartað yfir því að sóðaskapur stafaði frá húsinu „sakir þess að hesthúsið væri of lítið og fjöldi hesta yrði oft að standa fyrir utan, og þeim gefið hey þar út.“ Bæjarstjórn Akureyrar tók kvört- unina til greina og samþykkti að æskilegt væri að hestageymslan í Caroline Rest legðist af en hvatti jafnframt til þess að leitað yrði eftir annarri hestageymslu sem næst miðbænum. Ekki virðist hafa flögrað að nokkrum manni að hrossaskýli í miðjum kaup- staðnum yrði innan tíðar tákn hins gamla tíma sem bílskúrinn og bílastæðin væru í þann veginn að leysa af hólmi. í gegnum málavafstrið um hrossin í Caroline Rest skín að þrátt fyrir bílaeign Akureyringa setti vélaraflið ekki mikil merki á akureyrskt samfélag 1940, hvað þá árin þar á undan. Vinnuaflið var mest mannsins, og haki og skófla algengustu verkfærin. Hestar voru hin mestu þarfaþing við heyskap jafnframt því að gæðingar voru eigendum sínum nokkur virðingarauki. Streittust menn, stundum unt efni fram, við að halda hross, rétt til þess eins að geta riðið út um helgar og sýnt veraldlegt gengi sitt. Bílar hafa nú að mestu yfirtekið þetta hlut- verk hestsins sem önnur brýnni. En hrossin voru ekki einu hús- dýrin. Ófáir Akureyringar áttu nokkrar rolluskjátur, eina eða tvær kýr og sumir voru með hænsni. Þessi húsdýraeign, ásamt skektunni sent margir lumuðu á, bjargaði mörgum bæjarbúum frá því að fara á vonarvöl. Húsdýra- hald, og takmörkuð launavinna, voru þó ekki einu bjargræði dag- launamannsins. Kartöflugarðar voru víða í bænum og kartöflu- rækt stóð með miklum blóma. Jafnvel þó búsýsla ýmiss konar, og hún með forneskjuleg- um blæ, hafi sett sterkan svip á daglegt líf Akureyringa um 1940, má alls ekki hrapa að þeirri niðurstöðu að samfélagið hafi verið trénað og einstaklingarnir aðeins hirt um líðandi stund og aldrei litið fram á veg. Slíkt væri beinlínis rangt. Á þessum árurn mátti greina fyrstu frjóanga þcss sem síðar átti eftir að verða meira og glæstara. Má til dæmis nefna að Laxárvirkjun var í fæð- ingu. Hinn 14. október 1939 var rafmagnsstraumnum þaðan form- lega hleypt á til Akureyrar. Gert var ráð fyrir því í upphafi að ork- an frá virkjuninni við Brúarfossa nægði bæjarbúum til ljósa, suðu og iðnaðar og til að hita upp fimmta hvert hús í bænurn. Ög nokkuð var það að í manntalinu í desember 1940 reyndust flest hús í bænum hafa rafmagn. Öll vænt- anlega til ljósa en færri til suðu og hitunar. Gerðu sum bæjarblöðin sér óspart mat úr því að kaup- menn næðu með engu móti að anna eftirspurn eftir rafeldavél- um og rafofnum. í flestum húsum bæjarins var einnig rennandi vatn og í mörg- um vatnssalerni en miðað við húsafjölda hafa þau líklegast ver- ið fæst í annarri elstu götu bæjar- ins, Aðalstræti. Um 50 hús stóðu við götuna árið 1940 en um 20 þeirra voru án vatnssalernis. Við Gránufélagsgötu stóðu um 30 hús og voru aðeins fimm þeirra án vatnssalernis og við Brekkugötu voru í kringum 36 hús og einung- is eitt án slíks salernis. Baðkerin voru hins vegar mun færri en sal- ernin og nánast öll í nýjustu hús- unum. Minnug þess að flótti úr sveit í þéttbýli hófst strax á 19. öld, ætti það ekki að koma svo mjög á óvart að mikið var um að fólk byggi í leiguhúsnæði á þessum árum og var oft þröngt setið. Fólkinu fjölgaði ört en íbúðar- húsnæði átti sér ekki sömu tímg- unarkosti. Því var það að jafn- vel í tiltölulega nýlegum bæjar- hlutum var leigustarfsemi í blóma. Til dæmis leigðu sex af tíu húseigendum við Helgamagra- stræti út frá sér en allir bjuggu þeir sjálfir í húsum sínum. En þrátt fyrir að þessi byggð á útnára heims gæti ekki státað af vatnssalernum í hverju húsi eða glæstum flota sjálfrennireiða, þá var einangrunin ekki meiri en svo að strax á öndverðu ári 1939 tóku válegar fréttir frá umheiminum að setja mark sitt á bæjarbraginn. í byrjun september þetta ár braust seinni heimsstyrjöldin út og þó ísland stæði enn um sinn utan þeirra hjaðningavíga, þá settu þau engu að síður svip á allt þjóðlífið. A síðum bæjarblað- anna fjögurra, íslendings, sem studdi Sjálfstæðisflokkinn, Dags, málgagns framsóknarmanna, Alþýðumannsins, en hann reri undir mcð Alþýðuflokki, og Verkamannsins, blaði sósíalista, skiptust vígreifar hetjur íhalds og verkalýðs á skotum. Vikublaðið íslendingur (en raunar voru öll blöðin fjögur vikublöð) var ekki í neinum vafa um sekt og sýknu styrjaldaraðila. Jósef Stalín hafði með bandalagi sínu við Þjóðverja hleypt heimin- um í bál og brand, hans var sökin. Og í forsíðugrein fyrsta tölublaðs ársins 1940 svaraði íslendingur því hver staða íslands skyldi vera í ófriðnum. Fullvissaði greinarhöfundur sig og aðra um það að íslendingar þyrftu ekki að óttast innrás: „Vopnleysi vort og hlutleysi er öruggasta vörn vor, - sú vörn, sem gagnvart siðuðum þjóðum er bezta vörn hvers ríkis, hvort sem það er stórt eða smátt... - getum vér jafn rólegir og um önnur liðin áramót boðið hverjir öðrum Gleðilegt ár.“ Um 1940 var litróf íslenskra hægrimanna mjög tekið að sam- lagast óskalitum stjórnmálanna, svörtu og hvítu. Nasisminn, sem átt hafði nokkur ítök í herbúðum þeirra og valdið þar sundrung, var að syngja sitt síðasta enda átti þjóðernis- og kynhreinsunar- stefna Hitlers aldrei upp á pall- borðið hjá íslensku þjóðinni. En á meðan hægrimenn fylktu liði sínu byrjuðu fylkingar sósíal- ista og kommúnista að riðlast. Roðinn í austri tók að dekkjast og átrúnaðargoðið, Jósef Stalín, að hlaupa út undan sér. Fyrsta alvarlega höggið sern félagi Stalín greiddi áhangendum sínum á ís- landi var þegar Sovétríkin og Þýskaland gerðu með sér griða- sáttmála þann 22. ágúst 1939. Á Akureyri reyndu kommúnistar að klóra í bakkann. Fjórum dögunt eftir för Joachims von Ribben- trops, utanríkisráðherra Þýska- lands, til Moskvu birtis í Verka- manninum grein þar sem tildrög samningsgerðar stórveldanna voru rakin til þrjósku og óbilgirni Nevilles Chamberlains, forsætis- ráðherra Breta, í viðskiptum hans við Rússa... En það var ekki aðeins at' tús- um og frjálsum vilja sem Akur- eyringar og aðrir landsmenn létu sig stríðið í Evrópu einhverju varða. Strax á árinu 1938 gengu í gildi bráðabirgðalög sem heimil- uðu ríkisstjórninni að grípa til ýmissa ráðstafana vegna yfirvof- andi ófriðarhættu. Fjölgaði slík- um lögum árið eftir og urðu þau um leið markvissari, einkum þó eftir að sjálft stríðið var byrjað. í kjölfar og samhliða tylgdu reglu- gerðir um skömmtun á matvöru og margvíslegum nauðsynjavör- um. í byrjun september 1939 gaf ríkisstjórnin út bráðabirgða- reglugerð er tók til sölu og út- hlutunar á rúgi, rúgmjöli, hveiti. hveitimjöli, hafragrjónum, hrís- grjónum, matbaunum, sykri, kaffi og kolum til húsahitunar. Lögðu stjórnvöld blátt bann við sölu þessa varnings beint frá heildsala til neytenda og ekki mátti seljandi láta af hendi við kaupanda mcira en vikubirgðir varanna í einu ef um innanbæjar- sölu var að ræða. Nokkrum dögum síðar hnykkti ríkisstjórnin enn frekar á mat- vælaeftirlitinu en þá var birt reglugerð sem fjallaði um sölu og úthlutun á matvörutegundum. I fyrstu grein hennar var lagt bann við því að selja rúgbrauð og hveitibrauð, rúg, rúgmjöl, hveiti, hveitimjöl, hafragrjón, hafra- mjöl, hrísgrjón, matbaunir og bankabygg nema gegn framvísun ákveðinna skömmtunarseðla. Af öðrum kornvörum voru aðeins fóðurbygg, hafrar og fóðurmaís undanþegnar þessum reglum. En líklega hefur mörgum manninum litist það sýnu verst að kaffi og sykur féllu undir reglugerðina. Sem nærri má geta hafði þessi matvælaskömmtun ríkisstjórnar- innar, sem hófst 18. september 1939, samstundis áhrif urn allt land. Skömmu eftir að áform stjórn- valda um matvælaskömmtun komu fram settist bæjarstjórn Akureyrar á rökstóla. Á fundin- um var stofnsett ný bæjarnefnd sent fékk nafnið úthlutunar- og dýrtíðarnefnd. Átti hún meðal annars að annast úthlutun mat- vælaseðla og allt eftirlit nteð skömmtuninni. Á þessum sama september-fundi var samþykkt að fara þess á leit við ríkisstjórn íslands að hún legði niður í senn áfengisútsöluna á Akureyri og allan innflutning áfengra drykkja til landsins, að minnsta kosti meðan á styrjöldinni stæði. En þetta var aðeins fyrsti liður álykt- unar sem Alþýðuflokksmaðurinn Erlingur Friðjónsson lagði fyrir bæjarstjórn til samþykktar. í öðru lagi fitjaði hann upp á þvf að bannaðar yrðu allar skemmti- samkomur svo sem bíó, dansleik- ir, sjónleikir og hlutaveltur „og aðrar þær skemmtanir, sem fólk eyðir peningum sínum í". Tillaga Erlings var kolfelld með sex atkvæðum á móti tveimur og kom fyrir lítið þó hvikað væri frá upphaflegu orðalagi hennar í þrígang. Sigurður Eggerz bæjar- fógeti var hins vegar líkrar skoðunar og Erlingur og það sem meira var, til hans þurfti að sækja leyfi til dansleikjahalds. Fyrir vikið voru ekki haldnir opinberir dansleikir á Akureyri næstu mán- uðina og enginn allt árið 1940. Þetta kom harðast niður á ein- stökum félögum bæjarins eins og til dæmis skátunum sem höfðu aflað fjár til starfsemi sinnar með dansleikjahaldi. Auðvitað fundu bæjarbúar fljótlega ráð til að fara í kringum vilja bæjarfógetans. Einkaklúbbar af margvíslegu tagi spruttu upp og félög bæjarins, eins og til dæmis íþróttafélagið Þór, fengu leyfi til að halda dans- lciki fyrir meðlimi en auglýstu í neðanmálsgrein að guðvelkomið væri að taka gesti með. Dansinn dunaði því áfram þrátt fyrir að Erlingur ætti öflug- an bandamann þar sem Sigurður bæjarfógeti var. Það sýndi sig hins vegar fljótlega að fjölmargir bæjarbúar voru á svipaðri skoðun um áfengismálin og bæjarfulltrú- ar. í desember (1939) gekkst Umdæmisstúkan númer fimm fyrir undirskriftasöfnun gegn áfengissölu í bænum. Lýstu 2016 atkvæðisbærra manna sig þess fýsandi að áfengisútsölunni yrði byggt út á Akureyri. En þrátt fyr- ir að um % hlutar kjósenda á Akureyri vildu áíengið burt, og þar nteð talin bæjarstjórnin, þá sýndu stjórnvöld lítinn lit á að koma til móts við þá. Vart er að efa að stúkumenn nutu þess í baráttu sinni gegn Bakkusi að íþróttaáhugi almenn- ings fékk byr undir báða vængi um þetta leyti. Hinn gantli ung- ntennafélagsandi var kominn á stjá á nýjan leik og takmarkið var íþróttahús handa Akureyringum. í þjóðhátíðar-tölublaði Verka- mannsins 1939 skrifaði „J.E.K." að fullkomið íþróttahús á Akur- eyri væri lífsnauðsyn. Nokkrum mánuðum síðar minntist Ólafur Magnússon á það í Degi hvílíkt döngunarleysi skini af því fyrir um 5000 manna bæ að eiga ekk- ert íþróttahús. Hvatti hann borg- ara bæjarins til að gerast félagar í íþróttahúsfélagi sem stóð fyrir dyrum að stofna. Átti það að róa að því öllum árum að upp risi á Akureyri nýtísku íþróttahús. Einn ötulasti talsmaður hinnar nýju íþróttahússbyggingar var vafalítið prentarinn Jón Benediktsson. Hann var vakinn sem sofinn í starfinu og á tímabili kom varla svo út blað á Akureyri að ekki væri í því grein eftir Jón þar sem hann minnti bæjarbúa á íþróttahúsið, sem þeir ekki ættu, og jafnframt hvað miðaði að koma því upp. Hann gaf einnig út smárit í sarna tilgangi er hann kallaði „Sumar gengur í garð“. Akureyringar fengu ekki cinasta rafinagn frá Laxárvirkjun, í scptember 1922 var Glerárvirkjun tekin í notkun en smíði hennar liafði hafist árið áður. Ljósm. Minjasafnið á Akurcyri

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.