Dagur - 23.11.1991, Side 24
Suður-Þingeyjarsýsla:
Atvinmihorfur slæmar
Veðurstofa:
Óbreytt veður
Veðurstofa íslands spáir
engum breytingum á veðri
fyrir Norður- og Norðaust-
urland um helgina.
Nær kyrrstætt lágþrýst-
isvæði er suðvestur af Islandi
sem dælir hlýju iofti austur
fyrir land. Af því leiðir að nor-
austanáttin sem nú ríkir norð-
an heiða er mun hlýrri en ella.
Skúraleiðingar eða slydda
verður á iáglendi ailt fram á
mánudag og veðurfræðingur á
Veðurstofu íslands varar við
hálku á vegum. ój
Hálka og árekstur
Árekstur varð á gatnamót-
um Þórunnarstrætis og Mím-
isvegar á fimmtudagskvöld-
ið og annar ökumaðurinn
var fluttur til sjúkrahúss.
Lögreglan á Akureyri varar
við hálku á götum bæjarins og
einnig er mikil hálka á vegum
urn Eyjafjörð. Nokkuð harður
árekstur varð neðan Verk-
menntaskólans á gatnamótum
Mímisvegar og Þórunnarstræt-
is á tíunda tímanum á fimmtu-
dagskvöldið. Bílar skemmdust
ali verulega og ökumaður ann-
ars bílsins kvartaði um eymsl í
háisi og var því fluttur til
sjúkrahúss til athugunar. ój
„Atvinnuástand er mjög slæmt
og heldur verra en í fyrra.
Undanfarna vetur hefur verið
atvinnuleysi frá hausti og fram
á vor og ekki er fyrirséð nein
breyting þar á,“ sagði Ágúst
Oskarsson hjá Verkalýðsfélagi
Húsavíkur, aðspurður um
atvinnuástand í sýslunni.
í lok október voru 83 atvinnu-
lausir í Suður-Þingeyjarsýslu, þar
af 46 Húsvíkingar. Síðan hafa um
20 manns bæst við á atvinnu-
leysisskrá sem skiptast nokkuð
jafnt milli bæjarins og annarra
sveitarfélaga í sýslunni. Þannig
að reikna má með að um 55
manns á Húsavík séu atvinnu-
lausir um þessar mundir.
Tvö tilboð bárust í fiskverkun-
arhúsið að Bakkagötu 11 á
Kópaskeri sem Fiskveiðasjóð-
ur Islands hafði eignast á nauð-
ungaruppboði og auglýsti til
sölu. Báðum tilboðunum var
hafnað af tæknilcgum ástæð-
um.
Að sögn Ólafs Stefánssonar
hjá Fiskveiðasjóði var ekki hægt
að fallast á þessi tilboð eins og
þau komu fyrir en báðum aðilum
„Þetta er að langstærstum
hluta verkafólk," sagði Ágúst.
Aðspurður um við hvað fólkið
hefði unnið áður en það kom inn
til skráningar sagði hann að um
væri að ræða: 6 sjómenn, 8 úr
slátrun og kjötiðnaði, 2 úr
niðursuðu og niðuriagningu, 1 frá
Pósti og síma, 4 frá sjúkrahúsi og
heilsugæslustöð, 1 frá elliheimili,
3 verslunarmenn, 13 frá fiskverk-
un og átta koma frá ótiigreindum
störfum.
Alls töldust 1861 atvinnuleysis-
dagur í sýslunni í október, þar af
1019 á Húsavík. Vinna í Fisk-
iðjusamlaginu hefur legið niðri í
nokkra daga það sem af er vetri.
Ágúst sagði atvinnuhorfur mjög
slæmar á næstu mánuðum. IM
var boðið upp á viðræður.
Ekki vildi Ölafur greina frá því
hvaða aðilar gerðu tilboð í fisk-
verkunarhúsið en þeir munu báð-
ir vera úr þessum landshluta, þ.e.
Norðurlandi eystra.
„Ég reikna með að í næstu
viku munum við setjast niður
með þessum aðilum, hvorum í
sínu lagi, og ræða þetta frekar,
heyra þeirra áætlanir og verðhug-
myndir,“ sagði Ólafur og kvaðst
vona að samningar næðust. SS
Fiskverkunarhús á Kópaskeri:
Tvö tilboð bárust
Súlan EA-300 landaði í Krossanesi í fyrrakvöld fyrsta alvöru loðnufarminum
á þessari vertíð. Bræðsla hófst þar í gærmorgun á þeim 600 tonnum sem Súl-
an kom með að landi. Um 10 loðnuskip voru á miðunum út af Norðaustur-
landi í gærmorgun og höfðu öll einhvern afla. Reikna má með að þau sem
lengst hafa verið úti komi inn til löndunar í norðlenskum höfnum í dag.
Mynd:Golli
Flutningabíllútaf
Vöruflutningabíll frá Siglu-
firði lenti út af hjá Stóru-
Giljá í A.-Húnavatnssýslu
aðfaranótt föstudags og
ofan í árfarveginn. Bílstjór-
inn slasaðist í baki og var
fluttur suður á Borgarspítala
með sjúkraflugi.
Slysið varð upp úr miðnætti
með þeim hætti að bíllinn sem
var með fimmtán tonn af varn-
ingi í festivagni rann út úr
beygju í mikilli hálku og end-
aði í árbakkanum neðan við
veginn. Að sögn lögreglunnar
á Blönduósi má teljast mildi
að ekki skyldi fara verr, þar
sem gámurinn á festivagninum
lenti á húsi bifreiðarinnar.
Bíllinn er mjög illa farinn.
SBG
Forsætisráðherra neitar sveitarstjórnarmönnum um gengisfellingu:
Eins og að henda björgunarhring
fulluin af grjóti til drukknandi manns
Ráðstefnu um fjármál sveitar-
félaga lauk í Reykjavík í gær.
Samband íslenskra sveitarfé-
laga stóð fyrir ráðstefnunni og
hófst hún á fimmtudag með
ávarpi Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, félagsmálaráðherra. I
gærmorgun fluttu Davíð
Oddsson, forsætisráðherra og
Friðrik Sophusson, fjármála-
ráðherra, ávörp yfir sveitar-
stjórnarmönnum landsins.
Davíð greindi frá stefnu ríkis-
stjórnarinnar í sveitarstjórnar-
málum og vitnaði í hina hvítu
bók, stefnuskrá ríkisstjórnar-
innar. Forsætisráðherra fjall-
aði einkum um þrjú mál, þ.e.
sameiningu sveitarfélaga, til-
færslu verkefna milli ríkis og
sveitarfélaga og endurskoðun
laga um tekjustofna þeirra.
„Minni sveitarfélög hafa eflst
og eru betur í stakk búin til að
takast á við erfið verkefni," sagði
Davíð og bætti við að þess vegna
væri sameining betri kostur í dag
en fyrir nokkrum árum. Hann
vonast eftir miklum árangri
næstu fjögur ár í sameiningar-
málum.
„Forsenda tilfærslu verkefna
og tekjustofna milli ríkis og sveit-
arfélaga er að svcitarfélög hafi
eflst og sameinast eftir því sem
fært er,“ sagði Davíð.
Um endurskoðun laga um
tekjustofna sagði Davíð að ekk-
Innkaupaferðirnar til Bretlandseyja:
Ferðalangarnir græða 50 milljónir
„Eg hef reiknað út að ef þús-
und einstaklingar fara í þriggja
daga ferð til Bretlandseyja og
hver kaupir inn fyrir 100 þús-
und krónur þá sparar sá hinn
sami sér 48.500 kr. þegar hann
er búinn að borga ferðina. Það
eru því 48,5 milljónir sem
þetta fólk hefur fengið í kjara-
bætur við það að versla erlend-
is,“ segi Einar Sveinn Ólafs-
son, „innkaupaferðalangur“ á
Akureyri.
Eins og Dagur greindi frá í gær
reiknar Ragnar Sverrisson, for-
maður Kaupmannafélags Akur-
segir Einar Sveinn Ólafsson og leggur tölur á borðið
eyrar, með því að kaupmenn á
Akureyri verði af um 200 millj-
ónum króna vegna innkaupa-
ferða fólks af svæðinu til erlendra
borga. Einar Sveinn telur ekki
rétt að einblína á tap kaup-
manna, heldur horfa líka á kjara-
bót ferðalanganna.
„Dagsferðirnar eru auðvitað
ódýrari en þriggja daga ferðirnar
og ef meðalverð er tekið býst ég
við að hægt sé að tala um að hver
einstaklingur spari að meðaltali
55 þúsund krónur miðað við
sömu forsendur. Þetta eru mán-
aðarlaun og það hafa margir
teygt sig eftir minna,“ sagði Ein-
ar Sveinn.
Hann rökstyður tölur sínar
með eigin reynslu af þriggja daga
innkaupaferð til Bretlandseyja.
Barnaföt voru helmingurinn af
vörunum sem hann keypti, föt á
fullorðna 40% og leikföng 10%,
hlutfall sem liann taldi ekki
óalgengt. Ef þessar vörur kosta
100.000 kr. úti þá kosta þær
172.500 á Akureyri, segir Einar
Sveinn og dregur fargjaldið síðan
frá til að finna út sparnaðinn.
Hann segir að barnaföt og leik-
föng séu 50% ódýrari úti og föt á
fullorðna 30% ódýrari, auk þess
fæst
virðisaukaskattur
endurgreiddur.
Einar Sveinn sagðist reyndar
ekki trúa því að meðaleyðslan
væri 100 þúsund krónur en fyrst
sú tala hefði verið notuð til að
finna út 200 milljóna króna tap
hjá kaupmönnum mætti einnig
nota hana til að finna út um 50
milljóna króna gróða hjá
almenningi sem færi í þessar inn-
kaupaferðir. „Það er spurning
hvort stéttarfélögin eigi ekki að
beita sér fyrir því að svona ferðir
verði einu sinni í mánuði eða
koma þeim inn í kjarasamninga,“
sagði Einar Sveinn. SS
ert mætti þar gerast sem gerði
sveitarfélög ábyrgðarlaus gagn-
vart atvinnulífinu. „Við megum
ekki konia tekjustofnalögunum
þannig fyrir að sveitarfélögunum
sé ekki beinn akkur í að greiða
götu atvinnulífsins og stuðla að
því að öflug og sterk atvinnu-
starfsemi eigi sér stað innan sveit-
arfélaganna."
Forsætisráðherra varð tíðrætt
um komandi kjarasamninga og
sagði að flestir væru sammála um
eina greiða leið í þeim efnum.
„Það er sú leið að stilla kjara-
samningum þannig að verðbólga
hér á landi verði lægri en í ná-
grannalöndum til að koma í veg
fyrir mikið kaupmáttarhrun,"
sagði forsætisráðherra.
Að lokinni ræðu Davíðs gátu
fundarmenn borið fram fyrir-
spurnir. í þeim kom fram mikil
óánægja með boðskap hans,
meðal annars frá bæjarstjórum
Bolungarvíkur og Seyðisfjarðar
þar sem steðjar að mikill vandi í
atvinnulífinu. Þar var meðal ann-
ars beðið um pennastrikaaðferð
Alberts Guðmundssonar en
Davíð sagði að sú aðferð væri
siðlaus og ekki boðleg. Einnig
var farið fram á gengisfellingu til
lausnar vanda fiskvinnslunnar en
Davíð sagði að gengisfelling væri
eins og að henda björgunarhring
fullum af grjóti til drukknandi
manns. -bjb