Dagur - 30.11.1991, Síða 15

Dagur - 30.11.1991, Síða 15
Laugardagur 30. nóvember 1991 - DAGUR - 15 Árni Jónsson frá Fremstafelli í Kinn, gjaldkeri Landssambands íslenskra vélsleðamanna. Vélsleðamenn ekki niðurrifsöfl í náttúrunni - spjallað við Árna Jónsson, gjaldkera stjórnar Landssambands vélsleðamanna Landssamband íslenskra vél- sleðamanna eru samtök sem æ meira hefur borið á á síðustu árum og ekki að undra þar sem vélsleðaíþróttin nýtur sífellt vaxandi vinsælda meðal almennings. Félagsmenn í LÍV eru nú hátt á sjötta hundrað talsins og dreifast þeir um allt land, þó stærstu hóparnir komi af höfuðborgarsvæðinu og Eyjafjarðarsvæðinu. Árni Jónsson, bóndi í Fremstafelli í S.-Þingeyjarsýslu, er gjaldkeri stjórnar LIV og leituðum við til hans um upplýsingar um hið breytta fyrirkomulag lands- mótanna sem og félagsstarf LÍV og ýmis málefni sem vél- sleðamenn láta sig varða. Landsmót LÍV er árviss stór- viðburður í félagsstarfi vélsleða- manna sem fram til þessa hefur verið efnt til á hálendi íslands. Nú verður mótið haldið í byggð, nánar tiltekið í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði. Við spurðum Árna nánar um þennan tilflutn- ing á mótinu en mótið er fyrir- hugað fyrstu helgina í apríl næst- komandi. „Eftir að hafa hreyft þessu máli á síðasta landsmóti tókum við þá ákvörðun að breyta nú til og fara með mótið í byggð, að minnsta kosti í eitt skipti til reynslu. Við erum ekki með þessu að binda hendur þeirrar stjórnar sem tekur við af okkur en okkur hefur sýnst, í ljósi reynslunnar, að við þyrftum að gera eitthvað fyrir allan þann stóra hóp vélsleðaáhugamanna sem aldrei kemst í Kerlingafjöll. í gegnum árin hefur sótt þessi mót um 150-160 manna hópur en þar sem félagarnir eru á sjötta hundrað þá er til fleiri átta að líta. Kannski réði mestu þegar við fórum að skoða þetta að mótshaldið í Kerlingafjöllum hefur gengið mjög illa í þau átta skipti sem mótið hefur verið haldið og fyrir vikið hefur fallið niður mest af fyrirhugaðri útidag- skrá á mótunum. Aðeins tvisvar má segja að hafi verið skamm- laust veður á meðan á mótshaldi stóð,“ segir Árni. Góð mótsaðstaða á Stóriitjörnum Að sögn Árna komu margir stað- ir til greina í byggð fyrir mót sem þetta en augu stjórnar LÍV stað- næmdust á Stórutjarnaskóla. Þar segir Árni að aðstaða sé skín- andi, ekki síst útiaðstaðan. „Þarna er Ljósavatnið alveg við skólavegginn og þar er hægt að halda uppi dagskrá. Auk heldur eru svæði í kring sem margir hafa aldrei komið á og kæmu aldrei á nema fyrir þær sakir að mótið er haldið þarna. Þar erum við að tala um svæði eins og Kinnarfjöll, Flateyjardalsheiði og Fljótsheiði. Þetta eru perlur út af fyrir sig í góðu veðri og líkurnar á að veðr- ið verði gott eru mun meiri en til fjalla. En þetta verður líka spurning um snjó og auðvitað getum við lent í snjóleysi en það er nokkuð mikið auðveldara að aflýsa móti sem undirbúið er í byggð heldur en móti sem fyrir- hugað er á hálendinu." Árni segir að frekast megi að þessari ákvörðun finna að of stutt sé á milli landsmótsins á Stóru- tjömum og hinnar árlegu vélsleða- keppni í Mývatnssveit en hún verður haldin mánuði fyrr. Fyrir þá sem búi á suðvesturhorninu verði þetta tvö löng ferðalög með stuttu millibili. „En eitt atriði teljum við líka vert að líta á og það er að Austfirðingar, sem eru félagar eins og aðrir, hafa nánast aldrei getað sótt mótin í Kerl- ingafjöllum þar sem þeir þurfa yfir Vatnajökul að fara og sér- staklega vel þarf að standa á til að sú leið sé fær. Þeir hafa því ekki sótt þessi mót í gegnum árin en þeir eiga nú afskaplega greiða leið á mótið á Stórutjörnum. Við vildum því líka höfða til þeirra,“ sagði Árni. Fjölþætt starf innan LÍV Þingeyingar fara nú með stjórn LÍV en í samtökunum skiptast svæðin á um stjórnina. Auk Árna Jónssonar skipa stjórnina þeir Hermann Ragnarsson á Húsavík sem er formaður, ritari er Hilmar Hermóðsson og meðstjórnendur eru Jósep Sigtryggsson á Laug- um, Hörður Sigurbjarnarson í Mývatnssveit, Héðinn Stefánsson f Laxárvirkjun. Á vettvangi LÍV er vetrarstarf- ið að komast á fulian skrið. Árni segir að hugmynd sé uppi um skipulagðar helgarferðir á há- lendinu þar sem miðað verði við að félagar geti hist á einum stað þó undirbúningur verði lftill. Þar komu til greina staðir eins og Jökuldalur í Tungnafellsjökli, Hveravellir eða Laugafell. Þá eru samtökin að vissu leyti þátttak- andi í vélsleða- og útilífssýning- um sem haldnar hafa verið um landið, t.d. á Akureyri, en ein slík verður þar fyrstu helgi f des- ember. Þá má nefna útgáfustarf- semi á vegum LÍV en gefið er út félagsblað einu sinni á ári auk minni fréttabréfa sem koma oftar út. Árni leggur áherslu á að LÍV séu ekki keppnissamtök. „Landssamband vélsleðamanna stendur aldrei fyrir keppnishaldi af neinu tagi heldur eru slíkar keppnir haldnar á vegum áhuga- manna á viðkomandi svæðum. Þar má nefna mót í Mývatns- sveit, Ólafsfirði og á Hellu. Landssambandið styður samt sem áður við bakið á þeim aðil- um sem að þessu standa og fylgist með í gegnum trúnaðarmenn sína á svæðunum.“ Yélsleðamenn sinna gróðurverndarmálum Vélsleðamenn hafa oft á tíðum legið undir gagnrýni fyrir akstur í bæjarlöndum og einnig hefur þessi hópur oft verið flokkaður í hóp með jeppamönnum þegar skemmdir á viðkvæmum gróðri á hálendinu ber á góma. Árni bendir á að vélsleðamenn taki einmitt virkan þátt í gróður- verndarmálum. „Við höfum lagt fé af sjóðum okkar í þessi mál en félagsgjöld okkar gera meira en standa undir brýnasta kostnaði. Við erum t.d. í mikilli samvinnu við Náttúru- verndarráð um aðgerðir á Hvera- völlum þar sem við vinnum árlega ákveðið umbóta- og endur- reisnarstarf, t.d. við þökulagn- ingu og endurbætur á aðstöðu. Við erum einnig í samvinnu við Ferðafélag íslands og ferðafélög landshlutanna um aðhlynningu að skálum á fjöllum. Þar má nefna skála í Laugafelli inn af Eyjafirði og einnig höfum við varið fé til skála sem hópar vél- sleðamanna eru að koma sér upp inni á fjöllum. Við viljum því láta þess sjást stað að við erum síður en svo niðurrifsöfl í náttúrunni heldur viljum við í hvívetna skilja eftir okkur góða slóð,“ sagði Árni og víkur talinu að við- horfinu gagnvart vélsleðamönn- um. „Við erum dálítið óánægðir hvernig hið opinbera hefur viljað flokka okkur vélsleðamenn því tilhneiging hefur verið til þess að setja í sama flokk fjórhjólin, vél- sleðana og fjallajeppana sem er á því knappasta að sé sanngjarnt. Vélsleðinn er ekki heilsárstæki og enginn keyrir vélsleðann sinn á auðri jörð þannig að minni hætta er því á að vélsleðarnir geti valdið tjóni á gróðri." Þrýst á yfirvöld um breytta tollflokkun vélsleða Árni segir að með því að gerast félagar í LÍV öðlist fólk rétt til að taka þátt í landsmótum vélsleða- manna auk þess að fá ýmsa af- slætti hjá aðilum sem selji búnað tengdan þessari íþrótt. Áuk þess fái félagar blöð samtakanna þar sem upplýsingar komi fram um félagsstarfið. „Þá standa samtök- in einnig fyrir ýmsum námskeið- um, svo sem lórannámskeiðum og ýmsu sem snertir öryggisþátt- inn. Á okkar vegum er líka upp- lýsingaþjónusta um sleðann sjálf- an og uppbyggingu hans,“ segir Árni. Hann bendir líka á að öll- um sé frjálst að gerast félagar í LÍV, þar séu ekki sett skilyrði um sleðaeign. Og samtökin eru eng- inn karlaklúbbur því allnokkrar konur eru félagar. - Þið hafið látið í ykkur heyra varðandi skattlagningu hins opin- bera á þessi tæki. „Já, það höfum við gert og erum á vissan hátt ósáttir við hana. Við erum verulega andvíg því að allar sleðastærðir séu toll- aðar í sama flokk og höfum því reifað við opinbera aðila og tolla- yfirvöld að fá lækkun tolla á minni sleðunum en hærri tolla á stærri sleðunum. í okkar augum er þetta ekki aflíþrótt þótt þeir sem það kjósa geti notað stærri sleða og aflmeiri. Við viljum því hvetja, í gegnum tollana, til að fólk kaupi frekar minni gerðirnar sem eru hljóðlátari, léttari og minni hætta er á að geti valdið tjóni. Þetta er raunverulega það sama og nú er verið að gera í bíl- unum.“ - Hafið þið einhverjar vonir um að þessi tollamál breytist á næstunni? „Við höfum reynt að koma þessari hugmynd okkar sem víð- ast á framfæri en tíminn verður að leiða í ljós hvað kemur út úr þessu. Þetta er tómstundagaman sem á undir högg að sækja í almenningsálitinu eins og aðrar véltækjaíþróttir þannig að við erum ekkert sérstaklega bjart- sýnir en þetta er hugmynd sem ætti að geta leitt af sér að fleiri geti eignast sleða á hóflegu verði,“ sagði Árni Jónsson. JÓH Barnaspariskór Verð frá kr. 1.790 ■ Slærðir 27-35 SKÓHÚSIÐ Verslunarmiðstöðinni Kaupangi, sími 27019

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.