Dagur - 28.12.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 28. desember 1991
Fréttir
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Greiddi 419,5 milljómr
fyrir Árbak og kvótann
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
greiddi 419,5 milljónir króna
fyrir nýjasta skip félagsins,
Arbak EA-308, sem kom til
heimahafnar skömmu l'yrir jól.
Þessi upphæð er samanlagt
heildarsamningsverð fyrir
skipið og aflaheimildir þess.
Fram hefur komið hjá for-
svarsmönnum Útgerðarfélagsins
að þeir eru mjög ánægðir með
þessi kaup. Félagið gekk sem
kunnugt er inn í kaup Bergs-
Hugins hf. í Vestmannaeyjum á
skipinu, sem áður var gert út frá
Grænlandi og hét Natsek. Fyrir
skipið sjálft greiðir Útgerðarfé-
lagið 149,5 milljónir króna, að
Útgerðarfélag
Akureyringa hf.:
Gunnar lætur
af starfi
yfírverkstjóra
Gunnar Lórenzson, sem verið
hefur yfirverkstjóri hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa
hf. frá því árið 1967, lætur af
því starfi nú um áramótin og
tekur við nýju starfi hjá ÚA
sem yfirmaður framleiðslu-
birgða og afskipana. Við starfi
Gunnars tekur nafni hans
Gunnar Aspar og verður
starfsheiti hans framleiðslu-
stjóri.
Auk þess að hafa yfirumsjón
með framleiðslubirgðum og
afskipunum mun Gunnar Lór-
enzson sjá um afgreiðslu frysti-
togara og verður hann tímabund-
ið tengiliður þeirra við land.
Einnig sér hann um þjálfun og
kennslu fyrir áhafnir frystitogar-
anna með tilliti til gæðamála.
Eins og áður segir ber Gunnar
Aspar starfsheitið framleiðslu-
stjóri ÚA frá og með áramótum.
í því felst að öll framleiðsla í
landi verður undir hans stjórn,
þ.e. frystihúsið og fiskverkunar-
stöðin. óþh
þvi' er fram kemur í ÚA-fréttum,
og 270 milljónir króna fyrir kvóta
Bergeyjar VE-544, samtals 1.627
þorskígildi. Heildarkvótinn er
um 2300 tonn, sem skiptist svo:
Þorskur 562 tonn, ýsa 254 tonn,
ufsi 530 tonn, karfi 843 tonn,
grálúða 117 tonn og tæp 5 tonn af
kola. Að jafnaði hefur Útgerðar-
félagið greitt um 117 krónur fyrir
kílóið. óþh
Stund milli stríða.
Mynd: Golli
Músafár á Norðurlandi:
99
Hef drepið 440 hagamýs“
- segir bóndinn að Sigurðarstöðum í Bárðardal
Það sem af er vetri hafa haga- minna sundurnagað. Ekki fylgir
mýs sótt grimmt að híbýlum sögunni hverrar tegundar bifreið-
manna til sveita á Norður- in er
landi. Kindur hafa ekki farið „Ég er búinn að drepa 440
hagamýs frá því á haustdögum.
Músafárið á mínum bæ er því
verulegt. Þessu er svipað varið á
fleiri bæjum hér um sveitir. Far-
varhluta af þessum ófögnuði
því fréttir greina frá að haga-
mýs hafi étið sig niður í bak
ánna þar sem þær standa í
krónum.
Fræg er sagan af jeppabifreið
læknisins frá Akureyri. Læknis-
frúin þurfti að skreppa út í Svarf-
aðardal og hafði dvaldi helgar-
langt í sveitasælunni. Er komið
var aftur til Akureyrar voru
gangtruflanir í jeppanum góða og
frúin fór með bílinn á verkstæði.
Þar kom í ljós að kertaleiðslur
sem og aðrar leiðslur voru illa
farnar þar sem mýs höfðu lagst á
rafkerfið og það var allt meira og
aldurinn er nú í rénun sem betur
fer því þetta er bölvaður
ófögnuður. Flestar mýsnar hef ég
tekið í boga og þær hafa ekki
lagst hér á fé það sem af er,“
sagði Ríkharður Sölvason, bóndi
að Sigurðarstöðum í Bárðardal.
ój
Árbók Þingeyinga komin út
Árbók Þingeyinga 1990 er kom-
inn út. Þetta er 33. árgangur
bókarinnar. Útgefendur henn-
ar eru: Suður-Þingeyjarsýsla,
Norður-Þingeyjarsýsla og
Húsavíkurkaupstaður. Rit-
stjóri er Finnur Kristjánsson
Alþingi:
Sigbjöm kjörinn í Flugráð
Á síðasta starfsdegi Alþingis
fyrir jólaleyfi voru kjörnir full-
trúar í Flugráð, Sfldarútvegs-
nefnd og stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins.
í Flugráð voru kjörnir Árni
Johnsen, Sigbjörn Gunnarsson
og Skúli Alexandersson.
í Síldarútvegsnefnd voru
kjörnir Gunnar Flóvenz, Guð-
mundur J. Guðmundsson og
Kristmann Jónsson.
í stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins voru kjörnir Þorsteinn Gísla-
son, Magnús Guðmundsson,
Einar Ingvarsson, Bogi Sigur-
björnsson (skattstjóri Norður-
lands vestra á Siglufirði) og
Jóhann Ársælsson. óþh
28. desember:
Hringleikahúsið
fjöldi hljómsveita frá Akureyri
Miöauerö kr. 500.
31. desember
(gamlárskvöld):
Rokkbandið
með skelfilegt sprell
Allar pizzur 9“ á kr. 600 og 12“ á kr. 750
Snyrtilegur klæðnaður
Borðapantanir í síma 241 99
en ritnefnd skipa: Helga Helga-
dóttir, Garði, Jóhann Her-
mannsson, Húsavík og Þór-
hallur Bragason, Landamóts-
seli.
Forsíðu Árbókarinnar prýðir
Ijósmynd af Karlinum í Jökulsár-
gljúfrum, tekin af Jóni Jóhannes-
syni. Fjölbreytt efni er í bókinni,
Ijóð, frásagnir, minningaþættir
og fréttir úr héraði. Að þessu
sinni er mikið af efni bókarinnar
úr Norður-Þingeyjarsýslu. Bókin
er tæpar 300 blaðsíður að stærð
og prentuð hjá Prentverki Odds
Björnssonar á Akureyri.
Bókin er send til áskrifenda og
geta nýir áskrifendur pantað bók-
ina í síma 41860, hjá Finni
Kristjánssyni, ritsjóra, í Safna-
húsinu á Húsavík. IM
Hagfélagið hf. í
V-Húnavatnssýslu:
Framhalds-
stofnfiindur
á nýju ári
Vestur-Húnvetningar héldu
boðaðan stofnfund um atvinnu-
þróunarfélag á grunni átaks-
verkefnis sl. fimmtudagskvöld.
Sökum þess að umboð til að
skrifa Byggðastofnun fyrir
hlutafé var ekki til staðar á
fundinum var eiginlegum
stofnfundi frestað fram yfir
áramót.
Hið nýja atvinnuþróunarfélag
heitir Hagfélagið hf. og á fundin-
um var kosin stjórn sem er bráða-
birgðastjórn þar til búið er að
halda framhaldsstofnfund. Hana
skipa: Benedikt Guðmundsson,
Herbjört Pétursdóttir, Gunnar
Þórarinsson, Bjarni Pór Einars-
son og Gunnar V. Sigurðsson.
Að sögn Bjarna eru skráningar
fyrir hlutafé orðnar fimmtán tals-
ins eða samtals 1,1 milljón króna,
en stefnan er að byrja með 2,1
milljón. Stærstu hluthafarnir af
þessum fimmtán eru Héraðs-
nefnd V-Hún. og Kaupfélag V-
Húnvetninga. Bjarni segist vera
bjartsýnn á að meira hlutafé safn-
ist fyrir framhaldsfundinn, en
Byggðastofnun er m.a. ekki inni í
þessari upphæð. Ekki er búið að
dagsetja fundinn á nýju ári. SBG
Húsavík:
Jól í ró
og spekt
Allt gekk vel og óhappalaust
og var í ró og spekt um jólin á
svæði Húsavíkurlögreglunnar,
að hennar sögn.
Að kvöldi annars í jólum var
haldinn dansleikur á Húsavík og
var hann fjölmennur og fór vel
fram.
Tíðindalaust var einnig hjá
lögreglunni á Egilsstöðum, sagði
hún að Austfirðingar hefðu haft
það gott um jólin, eins og reynd-
ar í allt haust. IM
Fjárlögin:
Vetrarsamgöngur á Noður-
landi fá nokíar krónur
Við þriðju umræðu fjárlaga
komu inn ýmsir Iiðir er lúta að
að vetrarsamgöngum á
Norðurlandi. Lítum á einstaka
liði:
- Höfðahreppur stofnstyrkur
750 þúsund.
- Skefilsstaðahreppur 160
þúsund.
- Snjóbifreið í Skagafirði 210
þúsund.
- Til vetrarflutninga í Fljóta-
hreppi 160 þúsund.
- Til vetrarsamgangna í Ólafs-
firði 140 þúsund.
- Snjóbifreið í Dalvíkurlækn-
ishérað 80 þúsund.
- Til vetrarsamgangna í Svarf-
aðardal 140 þúsund.
- Snjóbifreið í Grýtubakka-
hreppi 110 þúsund.
- Til vetrarsamgangna Akur-
eyri-Grýtubakkahreppur 160
þúsund.
- Snjóbifreið í Hálshreppi
Suður-Pingeyjarsýslu 110
þúsund.
- Til vetrarsamgangna í Mý-
vatnssveit 240 þúsund.
- Til vetrarflutninga Mývatn-
Húsavíkurflugvöllur 240 þúsund.
- Til vetrarsamgangna í Fjalla-
hreppi 420 þúsund.
- Snjóbifreið Öxarfjörður-
Kópasker 160 þúsund.
- Snjóbifreið á Þórshöfn 140
þúsund.
- Til vetrarflutninga á Bakka-
firði 240 þúsund.
- Til vetrarflutninga á Vopna-
firði 240 þúsund.
Rjúpnaskyttur frá Akureyri:
Fundu tvö lömb
á Látraströnd
Tvær rjúpnaskyttur frá Akur-
eyri fundu tvo lambhrúta
skammt norðan við bæinn
Hjalla á Látraströnd, skömmu
fyrir jól.
Lömbin eru í eigu þeirra Sveins
Jóhannessonar, bónda á Hóli og
Þorsteins Jóhannessonar, bónda
á Bárðartjörn. Þau voru vel á sig
komin og gekk vel að koma þeim
í hús. -KK