Dagur - 28.12.1991, Qupperneq 9
Laugardagur 28. desember 1991 - DAGUR - 9
Fréttaannáll ársins
minnihlutans, ber Sigurð Björns-
son hjá meirhlutanum, þungum
sökum.
27. Byggingafulltrúi Akureyr-
arbæjar stöðvar framkvæmdir við
nýtt íþróttahús KA og segir að
teikningar hafi ekki verið sam-
þykktar. KA menn eru óhressir
með þessar aðgerðir og segir Sig-
mundur Pórisson, formaður KA,
þetta hljóti að vera ný vinnubrögð
hjá bygginganefnd.
30. Ný ríkisstjórn er í burðar-
liðnum og sagt er frá því að lík-
lega taki Davíð Oddsson við völd-
um þennan dag. Þá segir að hagn-
aður af rekstri Útgerðarfélags
Akureyringa hf. árið 1990 hafi
numið 185,5 milljónum króna.
Þá voru teikningar af íþróttahúsi
KA samþykktar eftir tveggja daga
vinnustöðvun við framkvæmdir.
Máni Jóhannessun, skipveri á Kaldbak með smyrilinn góða.
7. Á aðalfundi Útgerðarfélags
Akureyringa hf. var stjórninni
veitt heimild til að auka hlutafé
um 50 milljónir króna að nafn-
virði. Sama dag kemur fram, að
breytingar hafi verið gerðar á 529
atkvæðaseðlum Sjálfstæðisflokks-
ins í þingkosningunum í Norður-
landskjördæmi eystra og var það
nafn Halldórs Blöndals sem oft-
ast var strikað út, eða samtals 488
■sinnum.
9. Atvinnuhorfur hjá fram-
haldsskólanemum eru sagðar
góðar á komandi sumri og útlitið
mun betra en tvö undanfarin ár.
Þá fengu skipverjar á togaranum
Kaldbak góðan, en þreyttan gest
þegar skipið var statt miðja vegu
milli Grænlands og íslands. Þar
var á ferðinni smyrill og var þess-
um laumufarþega tekið vel.
Hann var í fóstri hjá skipverjum í
átta daga í góðu yfirlæti. Bændur
kvarta yfir seinagangi á greiðslu
fyrir ull hjá Álafossi.
10. Tveir hlaupagarpar frá
Sauðárkróki hlupu frá Króknum
til Reykjavík og voru að sögn,
þreyttir við komuna til höfuð-
borgarinnar. Þeir Óttar Bjarna-
son og Pálmi Sighvatsson lögðu í
þessa pílagrímsför, til þess að
safna fé til styrktar körfuknatt-
leiksdeild Tindastóls.
15. Bændur á Eyjafjarðar-
svæðinu eru farnir að hella niður
mjólk og segir samlagsstjóri
KEA að enginn möguleiki sé á
greiðslu fyrir umframmjólk með
því að hella henni niður. Þá bár-
ust fleiri en eitt tilboð í Sjallánn á
Akureyri eru þau til skoðunar
hjá skiptaráðanda. Og fjölmarg-
ir aðilar hafa sýnt áhuga á hús-
næði í Listagilinu á Akureyri.
16. Treg grásleppuveiði á
Norðurlandi veldur áhyggjum en
veiðin er aðeins helmingur þess
sem er í meðalári. Þá neitar Einar
Njálsson bæjarstjóri að gerast fjár-
hirðir en sauðfjársjúkdómanefnd
krafðist þess að engri húsvískri
kind verði sleppt úr landi bæjar-
ins á komandi sumri vegna riðu-
veiki. Slippstöðin á Akureyri sjó-
setti Þórunni Sveinsdóttur og Sig-
urjón Óskarsson, frá Vestmanna-
eyjum og kunnur aflaskipstjóri,
segist sannfærður um að Þórunn
verði happafleyta.
18. Halldór Jónsson, formaður
Félags rækju- og hörpudiskfram-
leiðenda, segir framleiðendur
horfa fram á algjört hrun fyrir-
tækjanna vegna slæmrar afkomu
ef ekkert verði að gert. Þá hefur
Gísli Jónsson, „ferðamálakóng-
ur“ á Akureyri ásamt fleirum í
hlutafélaginu Höll hf., fest kaup
á Sjallanum á Akureyri og er haft
eftir honum að þeim hafi fundist
rétt að húsið lenti í höndum Ak-
ureyringa.
Alþingiskosningarnar 1991:
H íkiss t j ó rnar ílokka rnir
héldu meirihlutanum
- Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur saman í stjórn
í Alþingiskosningunum sl. vor,
héldu ríkisstjórnarflokkarnir
meirihluta sínum þótt miklar
breytingar hafi orðið á fylgi
flokkanna. Fimm flokkar náðu
mönnum inn á þing, Sjálf-
stæðisllokkur, Framsóknar-
flokkur, Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag og Samtök um
kvennalista. Frjálsyndir og
Heimastjórnarsamtökin náðu
ekki að koma mönnum á
þing.
Á Norðurlandi vestra voru
það Sjálfstæðisflokkurinn og
Alþýðubandalagið sem bættu
við sig inestu fylgi. Sjálfstæðis-
flokkurinn bætti við sig einum
manni og fékk tvo menn
kjörna. Alþýðubandalagið hélt
sínum manni. Framsóknar-
flokkurinn tapaði hins vegar
fylgi í þessu kjördæmi en hlaut
þó flest atkvæði og hélt sínum
tveimur mönnum. Þá tapaði
Alþýðuflokkurinn sínum eina
þingmanni í kjördæminu. Þing-
menn kjördæmissins eru: Pálrni
Jónsson og Vilhjálmur Egils-
son, Sjálfstæðisflokki, Páll Pét-
ursson og Stefán Guðmunds-
son, Framsóknarflokki og
Ragnar Arnalds, Alþýðubanda-
lagi.
Á Norðurlandi eystra bættu
Framsóknarflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn báðir við sig
ntanni. Framsóknarflokkurinn
bætti við sig 9,5% fylgi og hlaut
þrjá menn kjörna. Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk tvo menn
kjörna, Alþýðflokkurinn cinn
og Alþýðubandalagiö sömuleið-
is einn. Saintök um kvennalista
missti þingmann sinn í kjör-
dæminu, en þær hlutu 1,6%
niinna fylgi nú en í kosningun-
um 1987. Þingmenn kjördæmis-
ins eru: Guðmundur Bjarna-
son, Valgerður Sverrisdóttir og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
Framsóknarflokki, Halldór
Blöndal og Tómas Ingi Olrich,
Sjálfstæðisflokki, Sigbjörn
Gunnarsson Alþýðuflokki og
Stcingrímur J. Sigfússon,
Alþýðubandalagi.
Eftir skammar stjörnarmynd-
unarviðræður, mcð frægum
Viðeyjarfundum, var loks
mynduð ný ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks
sem tók við völdum 30. apríl,
aðeins rúrnri viku eftir kosning-
ar. Forsætisráöherra í þeirri
stjórn er Davíð Oddsson, cn
eini norðlenski ráðherrann er
Halldór Blöndal sem gegnir
embætti landbúnaðar- og sam-
gönguráðherra. VG
Vélsleðamennirnir þrír sem týndust í
Ingi Sveinsson og Marinó Ólafsson.
um heldur reyna að líta á aðra
þætti. Þá er Sjallanum á Akur-
eyri lokað því fyrirtækið Álfa-
bakki 8. í Reykjavík hefur verið
lýst gjaldþrota. Daginn eftir er
skýrt frá því að stefnt sé að sölu
hússins sem fyrst og að ekki sé
inni í myndinni að þrotabúið leigi
né reki staðinn.
16. Mikil leit var gerð að
þremur vélsleðamönnum á há-
lendinu inn af Garðsárdal í Eyja-
firði, en þeir höfðu orðið viðskila
við félaga sína á heimleið af
landsmóti vélsleðamanna í Kerl-
ingafjöllum. Kapparnir fundust
heilir á húfi eftir að hafa látið
fyrirberast í blindbyl í hálfan sól-
arhring. Þá segja kraftlyftinga-
menn, Pétri Péturssyni lækni á
Akureyri stríð á hendur en um-
mæli hans um neyslu kraftlyftinga-
manna á lyfjum vöktu mikla
gremju meðal þeirra. Þrír knáir
piltar í MA sigruðu glæsilega í
spurningakeppni framhaldsskól-
anna, en þeir slógu Flensborgar-
skóla út í úrslitakeppni.
17. Fiskmar í Ólafsfirði er
gjaldþrota og féll milljóna króna
skuld við Iðnlánasjóð á bæjar-
sjóð Ólafsfjarðar.
18. Eindæma veðurblíða eftir
áramót gerir að verkum, að gíf-
urlega háar upphæðir sparast
vegna lítils snjómoksturs í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Daginn eftir er sögð svipuð saga
frá Norðurlandi vestra. Þá er að
rísa sóttvarnarhús fyrir hunda og
Garðsárdal. F.v.: Sveinn Jónsson, Jón
ketti í Hrísey og er áætlað að
ljúka byggingaframkvæmdum að
vori.
20. Alþingiskosningar fara
fram þennan dag og eru kjósend-
ur á Norðurlandi samtals 25.700.
23. Ríkisstjórnarflokkarnir
héldu meirihluta sínum í alþing-
iskosningunum, þótt mikil breyt-
ing hafi orðið á fylgi flokkanna.
Nánar er skýrt frá úrslitum kosn-
inganna í sérstakri samantekt.
24. Fjallað er um afleiðingar
gjaldþrots Fiskmars í Ólafsfirði
og sagt frá umræðum á bæjar-
stjórnarfundi þar sem Björn Val-
ur Gíslason, bæjarfulltrúi
1. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks er tekin við
völdum rneð Davíð Oddsson sem
forsætisráðherra. Einn norð-
lenskur ráðherra er í ríkisstjórn-
inni, en það er Halldór Blöndal
sem gegnir embætti landbúnaðar-
og samgönguráðherra.
3. Á aðalfundi Félags ey-
firskra nautgripabænda segir
Oddur Gunnarsson formaður, að
bæta verði alla skerðingu í mjólk-
urframleiðslunni eins og í sauð-
fjárrækt.
4. Hjá SR á Siglufirði gat
fyrirtækið naumlega greitt laun
um mánaðamótin og er fyrirhug-
að að 35 manns nrissi vinnuna hjá
fyrirtækinu vegna rekstrarerfið-
leika. Þá íhugar Akureyrarbær
að kaupa fasteignir KEA í Gróf-
argili með fyrirhugað „Listagil" í
huga.
Ný ríkisstjórn íslands sem tók við völdum 30. anríl.