Dagur - 28.12.1991, Síða 20
Elín Björg hlýðir á söng í afmælisveislunni. Að baki hennar stcndur kjördóttir hennar, Sigurlína. Mynd: -PH
ÓlafsQörður:
AldarafmæK elsta borgarans
- Elín Björg Guðbjartsdóttir varð 100 ára á aðfangadag
Elsti borgari Ólafsfjardar,
Elín Björg Guöbjartsdóttir,
varð 100 ára á aðfangadag og
af því tilefni buðu bæjar-
stjórn og ættingjar Elínar til
samsætis að dvalarheimilinu
Hornbrekku þar sem hún
býr. Var veislan haldin annan
jóladag og sótti hana fjöl-
menni.
Elín Björg fæddist á Skeri á
Látraströnd 24. desember 1891
og ólst þar upp frain að tvítugs-
aldri. Þá flutti hún til Akureyrar
en árið 1933 settist hún að í
Ólafsfirði þar sem hún hefur
búið síðan. Maður hennar var
Sigurður Jóhannesson sem
gerði við skó Ólafsfirðinga um
hálfrar aldar skeið en hann lést
fyrir 11 árum.
í afmælisveislunni fluttu þeir
ávörp Óskar Þór Sigurbjörns-
son forseti bæjarstjórnar og
Guðbjörn Arngrímsson sem
talaði fyrir hönd ættingja Elín-
ar. Þá söng Stefán Víglundur
Ólafsson fyrir afmælisbarnið.
Elín er við sæmilega heilsu þótt
sjón og heyrn sé nokkuð farin
að gefa sig. Fjöldi ættingja og
vina heimsótti hana í afmælið
og sumir langt að komnir. -ÞH
Rjóma- og mjólkurþurrð í Grímsey um hátíðina:
Vantaði iMega ijómaim í
súkkulaðið á aðfangadagskvöld
- segir Kristín Óladóttir, útibússtjóri
HlíðarQall:
Snjóriiináfónim
- ekki hægt að opna
skíðasvæðið
Fyrirhugað hafði verið að opna
skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fyrir
almenning í gær en ekkert varð
af því vegna þess að snjórinn
var á hröðum flótta. Akureyr-
ingar gátu því ekki prófað nýju
skíðin sem þeir fengu í jólagjöf
og varla útlit fyrir skíðafæri um
helgina.
A símsvaranum að Skíðastöð-
um voru þau skilaboð í gærmorg-
un að ekkert skíðafæri væri í
Hlíðarfjalli, enda 10 stiga hiti og
hægviðri og allur snjór á förum úr
Hólabraut og Hjallabraut. Hins
vegar átti að reyna að hafa
skíðaæfingar fyrir 13 ára og eldri
við Strompiyftuna.
Dagur náði sambandi við ívar
Sigmundsson, forstöðumann
Skíðastaða, og sagði hann að
áætlunin um að hafa lyftur í gangi
yfir helgina væri fyrir bí því
hlýindin aðfaranótt föstudags
hefðu sett verulegt mark á skíða-
færið.
„Ef frystir þá er sæmilega gott
færi uppi við Strýtu og getur
keppnisliðið notfært sér það, en
það er ekkert skíðafæri í neðri
hlutanum. Þetta var á mörkunum
síðdegis á fimmtudag en við ætl-
uðum að láta okkur hafa það að
opna svæðið, en það verður ekk-
ert úr því nema snjói meira,"
sagði ívar. SS
Jólaverslun á
Norðurlandi vestra:
Heldur niinni
en í fyrra
„Ég held að hvað matvöru
snertir hafi salan verið svipuð
og undanfarin ár. Bækur og
aðrar gjafavörur virtust seljast
minna og ég hef það á tilfinn-
ingunni að þó nokkuð af fólki
hafi fari suður til Reykjavíkur
til að kaupa jólagjafirnar,“
segir Ingunn Gísladóttir, versl-
unarstjóri Kaupfélags Hún-
vetninga á Blönduósi.
Að sögn kaupmanna á Blöndu-
ósi og Sauðárkróki virtist verslun
vera heldur minni fyrir þessi jól,
en jólin í fyrra. Brynjar Pálsson,
bóksali á Sauðárkróki telur þó að
viðskiptin hjá sér hafi ekkert
minnkað, heldur séu það aðrir
vöruflokkar sem fólk fer um
langar leiðir til að kaupa.
„Ég held að fólk hafi fari bæði
suður og norður til að versla fyrir
jólin, en tel að það hafi þó ekki
gerst hvað bóksöluna snertir. Sú
sala er árviss, en hún hófst samt
um viku seinna í ár en undanfar-
ið, vegna þess hversu útgefendur
voru seinir með bækurnar," segir
Brynjar.
Jón E. Friðriksson, rekstrar-
stjóri hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga, segir söluna hjá þeim alla-
vegana ekki vera meiri en í fyrra.
Hann segir að salan hafi farið
seinna af stað en vanalega, en
síðan tekið við sér síðustu dag-
ana. Að sögn Jóns virðist vera
dálítið um að fólk fari annað til
að versla og m.a. nefndi hann
kaupleiðangra til annarra landa.
SBG
„Þetta bjargaðist allt saman en
ég gæti trúað því að rjómann
hafi illilega vantað út í súkku-
laðið á aðfangadagskvöld.
Ríkisstjórnin ætlar að leggja
sérstakt 25% álag á vörugjöld
til að auka tekjur hafnabóta-
sjóðs og hefur þessi skattur
mælst illa fyrir hjá hafnar-
stjórnum víðs vegar um land.
Hafnarstjórn Akureyrar mót-
mælti þessum áformum ríkis-
stjórnarinnar harðlega á fundi
sl. föstudag.
í bókun sem samþykkt var á
fur.dinum segir eftirfarandi:
„Hafnarstjórn Akureyrar mót-
mælir harðlega þeim áformum
ríkisstjórnarinnar að leggja sér-
Fólk bar sig samt vel,“ sagði
Kristín Óladóttir, útibússtjóri
Kaupfélags Eyfirðinga í
Grímsey, en í eynni var rjóma-
stakt gjald á vörugjöld, sem er
einn af aðaltekjustofnum hafnar-
sjóða.
Þessi skattlagning skaðar sam-
keppnisstöðu sjóflutninga við
aðrar flutningaleiðir og gerir við-
skiptavinum erfiðara fyrir að
greina á milli gjaldtöku hafna
annars vegar og skattlagningar
ríkissjóðs hins vegar.“
Bent hefur verið á að ef af
þessari skattlagningu verður
muni hún koma harðast niður á
landsbyggðinni og framleiðslu-
fyrirtækjum þar sem flytja vörur
sínar sjóleiðis. SS
og mjólkurlaust um hátíðárn-
ar. Ferskt grænmeti vantaði
líka með jólasteikinni og því
urðu eyjarskeggjar að notast
við niðursoðið grænmeti.
Vegna veðurs var ferð Sæfara á
Þorláksmessu felld niður en með
þeirri ferð átti síðasti jólavarn-
ingurinn að fara út í ey, þar með
rjómi og mjólk. Kristín segir að
veður hafi verið slæmt fyrripart-
inn á Þorláksmessu en seinni
hluta dags hafi veður gengið nið-
ur og þá verið fært fyrir skipið.
„Við hringdum í þá síðast
klukkan hálf fjögur á Þorláks-
messu þegar hér var komið nán-
ast logn en þá vildu þeir ekki
koma. Þessi uppákoma hefði því
ekki þurft að verða,“ sagði
Kristín.
Flugfélag Norðurlands var í
startholunum með flug til Gríms-
eyjar fram eftir aðfangadegi en
ekki viðraði til flugs. Vörurnar
komust því ekki til Grímseyjar
fyrr en í fyrradag, annan dag
jóla. Kristín segir að kaupfélagið
hafi verið opnað í klukkutíma
þann dag og mikil sala verið í
rjóma og mjólk. JÓH
Norðurland:
Bóksalar
ánægðir með
,jólavertíðina“
Bóksalar á Norðurlandi, sem
Dagur ræddi við í gær, voru
ánægðir með söluna fyrir jólin
og í sumum tilfellum var hún
betri en í fyrra. Þannig sagði
Ingvar Þórarinsson, bóksali á
Húsavík, að þar hefðu aldrei
selst fleiri bækur fyrir jólin en
nú.
Mönnum ber saman um að
Lífróður Árna Tryggvasonar,
leikara, sé metsölubókin í ár á
Norðurlandi, og ef marka má
fréttir úr öðrum landshlutum hef-
ur hún selst mest allra bóka í
landinu fyrir jólin. Á hæla Árna
kemur .skáldsaga Ólafs Jóhanns
Ólafssonar, Fyrirgefning synd-
anna, unglingabók Þorgríms
Þráinssonar, Mitt er þitt og bók
Gylfa Gröndal um ævi Kristjáns
Eldjárn. Þá er ógetið bókar Jóns
Hjaltasonar, sagnfræðings, um
Hernámsárin á Akureyri og Eyja-
firði. Sala á henni var að vísu að
stærstum hluta bundin við Eyja-
fjarðarsvæðið. óþh
Norðurland vestra:
Innbrot og
ölvunumjól
- líflegt hjá lögreglu
Jólahald á þéttbýlisstöðum
Norðurlands vestra hefur að
mestu verið með hefðbundnu
sniði að sögn lögreglu. Óvenju-
mörg innbrot hafa samt verið
framin um hátíðina og töluvert
borið á ölvun.
Aðfaranótt Þorláksmessu var
brotist inn á Skagaströnd og
aðfaranótt gærdagsins var brotist
inn í sundlaugarhús staðarins. í
hvorugu tilfelli var um miklar
skemmdir að ræða.
Brotist var inn f söluskálann á
Hvammstanga aðfaranótt aðfanga-
dags, en þjófarnir gómaðir á
staðnum þar sem til þeirra sást.
Aðfaranótt annars í jólum var
síðan brotist inn á knattborðs-
stofu á Sauðárkróki og m.a. stol-
ið úr spilakössum.
Dansleikir voru haldnir bæði á
Blönduósi og Sauðárkróki að
kvöldi annars í jólum og á Sauð-
árkróki urðu töluverð ólæti í
sambandi við það. Tveir voru
teknir vegna meintrar ölvunar
við akstur og einn gisti fanga-
geymslur.
„Ætli megi ekki segja að það
hafi verið heldur líflegra hjá okk-
ur þessi jól, en undanfarin ár. Til
að mynda hefur borið meira á
ölvun en áður,“ segir Björn
Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á
Sauðárkróki.
Kristján Þorbjörnsson, yfirlög-
regluþjónn á Blönduósi, segir
jólin þar um slóðir hafa gengið
fyrir sig líkt og undanfarið að
undanskildum áðurnefndum inn-
brotum. „Það er nú oft svo, að
þegar krakkarnir koma heim úr
skólunum í jólafrí að eitthvað
meira gerist en venjulega. Þó
virðist vera meiri galsi í mann-
skapnum núna en áður,“ segir
Kristján. SBG
Hafnarstjórn Akureyrar:
Sérstökum skatti á
vörugjöld mótmælt
- skaðar samkeppnisstöðu sjóflutninga