Dagur - 04.01.1992, Blaðsíða 7
Laugardagur 4. janúar 1992 - DAGUR - 7
í DAGS-LJÓSINU
Samdráttur hjá flokkahappdrættunum heldur áfram:
Happdrættisþjóðin missir þoiinmæðina
- íslendingar verja 4-5 milljörðum króna í kaup á happdrættismiðum, getraunaseðlum og í spilakassana
- Eldra fólkið heldur tryggð við flokkahappdrættin en það yngra vill fá vinninginn strax
Það leikur lítill vafi á því að
Islendingar eru happdrættis-
þjóð. En við liöfuin verið að
breytast og þróast á því sviði
sem öðrum. Helsta breytingin
er sú að við höfum ekki lengur
þolinmæði til þess að bíða
fram að næsta drætti í happ-
drættinu, við viljum fá úrslitin
strax. Þeir sem líða fyrir þessa
þróun eru fyrst og fremst
stjórnendur stóru flokkahapp-
drættanna þriggja, Háskólans,
SÍBS og DAS.
Það er samdóma vitnisburður
framkvæmdastjóra happdrætt-
anna þriggja að salan hjá þeim
hafi dregist saman að undan-
förnu. Nú stendur yfir helsti
sölutíminn hjá Happdrætti
Háskólans og SÍBS og jrví ekki
séð hvort nýjustu sprotarnir á
meiði óþolinmæðinnar. Happó
og sænsku fótboltagetraunirnar,
hafi veruleg áhrif á sölu miða. En
það er þó enginn umtalsverður
barlómur í gangi.
Flokkahappdrættin
á undanhaldi
Ólafur Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri Happdrættis SÍBS
segir að þar á bæ hafi menn fund-
ið fyrir samdrætti, hann hafi ver-
ið á bilinu 2-3% um síðustu ára-
mót. „Við seljum núna um 55%
af þeim 75.000 númerum sem við
erum með en þetta hlutfall var
allmikllu hærra fyrir nokkrum
árum. Við vonumst til þess að
halda þessu hlutfalli, að það
lækki ekki meira. Þessi skafmiða-
happdrætti eru tískufyrirbæri og
ég hef þá trú að fólk snúi sér aftur
til okkar því mestu vinnings-
möguleikarnir eru óneitanlega
hjá flokkahappdrættunum,"
sagði Ólafur.
Ragnar Ingimarsson hjá HHÍ
tók í sama streng hvað varðar
samdráttinn. „Þetta er alþjóðlegt
fyrirbæri, þessi klassísku flokka-
happdrætti hafa í flestum löndum
látið í minni pokann fyrir lottó-
inu. í Frakklandi hafa þau orðið
að játa sig sigruð og hætt. Þetta
er tíðarandinn," sagði Ragnar.
Hjá HHÍ eru 60.000 númer en
hvert númer skiptist í fjóra ein-
falda miða og einn trompmiða
sent gefur fimmfaldan vinning og
kostar einnig fimm sinnum meira
í endurnýjun. Af þessum fjölda
segir Ragnar að happdrættið selji
innan við helming.
Happdrætti DAS hefur annað
tímatal en hin happdrættin tvö
því þeirra happdrættisár hefst á
vorin. Sigurður Ágúst Sigurðsson
framkvæmdastjóri Happdrættis
DAS viðurkenndi að salan hefði
dalað á undanförnum árum. „Við
brugðumst við með því að hækka
vinningana og fjölga þeim og það
hefur gefist vel. Við höfum hald-
ið markaðshlutdeild okkar. Að
vísu vitum við ekki hvaða áhrif
Happó og sænsku getraunirnar
munu hafa, það kemur ekki í ljós
fyrr en í vor.“ 80.000 númer eru í
Happdrætti DAS en Sigurður
vildi ekki greina frá því hversu
mikill hluti miðanna seldist.
„Græðum ekki á
óseldum miðum“
Allir bentu þeir á að í raun væri
þessi þróun í andstöðu við
skynsamleg rök því ef gróðavon-
in væri aðalatriðið hjá þeim sem
kaupa happdrættismiða væru
vinningslíkurnar langmestar hjá
flokkahappdrættunum. Hjá SÍBS
og DAS fara 60% innkomunnar
beint út aftur í greiðslu vinninga
en hjá HHÍ er hlutfallið enn
hærra eða 70%. í skafmiðáhapp-
drættunum og Happói er þctta
hlutfall 50%, hjá íslenskum get-
raunum 46% og í Lottói 40%. Að
sögn Ólafs Jóhannessonar er vinn-
ingshlutfallið hjá flokkahapp-
drættunum með því allra hæsta í
veröldinni. Hjá SÍBS fellur vinn-
ingur á þriðja hvern miða og hjá
HHI hlýtur fjórði liver miöi
vinning. Þegar til lengdar lætur er
því mun meiri von urn vinning í
þeim en skyndihappdrættunum.
Nú fyrir jólin gerðist það hjá
HHÍ að af 45 milljón krónum
sem voru í fyrsta vinning gengu
einungis 5 milljónir út. Trontp-
miðinn og þrír af fjórum einföld-
um miðum höfðu ekki selst.
Uppákomur af þessu tagi hafa
óneitanlega spillt fyrir stóru
happdrættunum því í Lottói og
Happói er einungis dregið úr
seldum miðum. Þetta hefur þó
sennilega leikið skyndihapp-
drætti félágasamtaka cnn verr
vegna þess að tölfræðin segir
okkur að þegar til lengdar lætur
jafnast vinningarnir út og hlut-
fallið helst.
Ragnar Ingimarsson hjá HHÍ
segir að vissulega hafi svona uppá-
komur áhrif en ekki mjög mikil.
„Ef menn hugsa málið sjá þcir að
vinningáhlutfallið er það sem við
segjum að það sé. Það er fjar-
stæða að halda því fram að við
græðum á óseldum miðum. Ef
svo væri, hvers vegna værum við
þá að reyna að selja þá? Það er
jafn fjarstæðukennt að krefjast
þess að við drögum einungis úr
seldum miðum. Ef viö gæfum
okkur að verðmæti útgefinna
miða væri 200 milljónir króna en
þar af seldist einungis helmingur-
inn. Vinningshlutfallið er 70% og
heildarupphæð vinninga 140 rnill-
jónir. Hvaðan ættum við að taka
þessar 40 milljónir? Viö værum
fljótir að fara á hausinn," sagði
Ragnar.
Yiðbrögð við samdrætti
Áður fyrr voru flokkahappdrætt-
in þrjú allsráðandi á markaðnum
en smátt og smátt hefur saxast á
hlutdeild þeirra. Fyrst komu
spilakassar Rauða krossins og
knattspyrnugetraunirnar sem
framan af voru ekki miklir bógar
en hafa eflst og styrkst verulega á
síðustu árum. Svo kom Lottóið
og þá sáu stóru happdrættin að
citthvað yröi að gera. Happdrætti
Háskólans brást við með því að
sækja um leyfi til að reka skaf-
miðahappdrætti árið 1986 og
fékkst það árið eftir. Það reyndist
þó skammvinnur gróði því fjöl-
margir aðrir fylgdu í kjölfarið,
auk þess sem rekstur skafmiða-
happdrætta reyndist vera nteira
happdrætti en menn höfðu reikn-
að með. Hefur því dregið veru-
lega úr þeim aftur.
En í haust fóru hlutirnir aftur
að gerast hratt. Fyrst tilkynntu
Islenskar getraunir að þær hefðu
tekið upp samstarf við systurfyr-
irtæki sitt í Svíjrjóð. Það hefur í
för með sér að íslenskir tipparar
geta gert sér vonir um rniklu
stærri vinninga en áður, reyndar
þá stærstu sem völ er á hérlendis.
Enda hefur þátttakan í getraun-
unum stóraukist og veltan sömu-
leiðis.
Skömmu síðar hleypti HHÍ svo
af stokkunum Happói sem veltir
12-13 milljónum í hvert skipti
eða um 300 milljónum á ári ef svo
fer sem horfir. Að sögn Ragnars
er stofnun Happós varnaraðgerð
fyrirtækisins og hugsuð sem upp-
bót fyrir samdráttinn í aðalhapp-
drættinu (sem enn er þó risinn á
markaðnum og veltir hálfum öðr-
um milljarði á ári). Ekki fer þó
milli mála að kollegar Ragnars
hjá hinum happdrættunum eru
lítt hrifnir af þessu uppátæki og í
samtali við Sigurð Ágúst hjá
DAS var á honum að heyra að
HHÍ færi fram á ystu mörk vel-
sæmis í starfsháttum sínum, eink-
um auglýsingum.
Fimm milljarðar á ári?
Ekki er gott að segja til um
hversu miklu fé íslendingar eyða
í happdrætti á ári hverju. Senni-
lega er það þó á bilinu 4-5 millj-
arðar króna. Þar af gætu stóru
happdrættin þrjú verið með um
helming. Það sést hins vegar vel
hversu miklar sveiflur eru á
markaðnum að Lottóið sem nú
hefur starfað í rúm fimm ár veltir
tæplega milljarði á ári og veltan
hjá Happóinu (ef hún helst
óbreytt) er fimmtungur af veltu
móðurfyrirtækisins. Ekki er enn
hægt að segja til um hversu mikið
getraunirnar taka til sín en þar á
Sæ er áætlað að veltan aukist úr
120 milljónum króna á ári í 300
milljónir. Aukningin hjá Happói
og getraununum nemur því um
10% af heildarveltunni.
Spurningin er þá sú hvort þetta
muni reynast hrein viðbót við
veltuna í happdrættunum eða
hvort þeir sem fyrir eru á mark-
aönum þurfi að láta eitthvað eftir
af sfnum hlut.
Það virðist þó vera staðreynd
að fslenskt happdrættislandslag,
ef svo má að orði komast, er
verulega breytt og væntanlega til
frambúðar. Ef marka má ummæli
forystumanna ýmissa félagasam-
taka sem reka happdrætti í fjár-
öflunarskyni eru þau flest í veru-
legum erfiðleikum. Má jafnvel á
sumum þeirra skilja að best sé að
hætta þessu og leita uppi nýjar
aðferðir.
Ragnar Ingimarsson segir að
samdrátturinn muni halda áfram
hjá flokkahappdrættunum nema
viðhorfsbreyting verði. Á henni
eru ekki miklar líkur því sam-
kvæmt könnun sem Gallup gerði
fyrir happdrættin kemur í ljós að
unga fólkið spilar í skyndihapp-
drættunum en eldra fólkið í
flokkahappdrættunum. Yngra
fólkið er óþolinmóðara og vill
ekki binda sig heldur vera frjálst
að því að vera með í eitt og eitt
skipti þar sem það kýs. -ÞH
Dags.
SVARSEÐILL
Beiðni um millifærslu
áskriftargjalds
□ Er áskrifandi
□ Nýr áskrifandi
Undirritaður óskar þess að
áskriftargjald Dags verði
framvegis skuldfært mánaðarlega
á greiðslukort mitt.
Kortnr.:
Gildir út:
Nafnnr.:
rrm- œtd
ÁSKRIFANDI:
HEIMILI:
PÓSTNR.-STAÐUR:
SÍMI:
Strandgötu 31 Sími 96-24222
UNDIRSKRIFT.