Dagur - 04.01.1992, Blaðsíða 18

Dagur - 04.01.1992, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 4. janúar 1992 ÚR GÖMLUM DEGI Bruni á Melgerðismelum Kl. um 6.15 í gærkvöldi kviknaði í afgreiðslu- og íbúðarskálunum á Melgerðisflugvelli og munu þeir hafa brunnið til ösku. Hér er um að ræða 3 bragga með við- byggingum er hýsti íbúð hjón- anna frú Eriku og Höyers Jóhannessonar afgreiðslumanns, veitinga- og biðskála og skála með talstöðinni o.fl. Nánari fregnir voru ekki fyrir hendi, en fólk á nærliggjandi bæjum, er blaðið talaði við í síma, taldi skálana hafa brunnið mjög skjótt og er hætt við að litlu sem engu hafi verið bjargað, og þarna hafi orðið mikið tjón. (30. janúar 1952) Kjör negra Einn liður í ófrægingastríði komm- únista gegn Bandaríkjunum er að ýkja mjög erfiðleika svert- ingja þar í landi og segja þá eiga við ægilega kúgun að búa. Kjör svertingja fara stöðugt batnandi vestra, þó viðurkenna stjórnvöld landsins og aðrir ábyrgir aðilar, að langt sé í land að leysa það mikla vandamál til fulls. Nýlega flutti kunn svertingjakona, Edith Sampson, erindi á vegum danska Kvenfélagasambandsins um þessi efni. - Hún sagði, að kynþátta- !li DAGPBjM Tntim < rT kröfm li>»n-»lul>iona hi‘'flar vandamálið vestra væri nú nær því að leysast en nokkru sinni fyrr. Kjör negra færu hraðbatn- andi. T.d. um efnahag þeirra skýrði hún svo frá, að ein milljón amerískra negra ættu bíl, æ fleiri negrar eru nú kjörnir til trúnað- arstarfa fyrir ríki og bæi. (6. febrúar 1952) Kjarnorka og kvenhylli Leikfélag Akureyrar, sem að undanförnu hefur æft þennan vinsæla sjónleik eftir Agnar Þórðarson, ætlar að hafa frum- sýninguna næstkomandi laugar- dag. - Leikstjórn annast ungfrú Ragnhildur Steingrímsdóttir. Sjónleikur þessi er ósvikinn gamanleikur og hefur verið sýnd- Það er framtíð í húfi fyrir (jölmarga. Það eru milljónir króna í húfí fyrir þig. Vertu með. Peningar geta skipt sköpum um framtíð Peningar geta haft úrslitaáhrif á líf fólks og hamingju. Engin heilbrigðisþjónusta verður rekin án fjármagns - ekkert heimili heldur. Þess vegna er Happdrætti SIBS til. Það hefur staðið undir uppbyggingu endurhæfingar, vinnuaðstöðu og aðhlynningar, á Reykjalundi og víðar, sem skiptir sköpum í lífi tugþúsunda Islendinga. Milljónamæringur með góðri samvisku Happdrætti SIBS er jafnhliða þessu skemmtilegur leikur þar sem þú getur orðið margfaldur milljónamæringur í næstu andrá, því að þar vinnur 3. hver miði að meðaltali á næsta ári. Fáðu þér miða hjá næsta umboðsmanni. g i I ur um 70 sinnum í Reykjavík við ágæta aðsókn. Er tæpast hægt að efa að efni hans hæfi leikhúsgest- um hér, hversu svo sem til tekst með leikendur og leik. Leikendur eru 14 talsins og fara Jón Norðfjörð, frú Björg Baldvinsdóttir, Emil Andersen og Haraldur Sigurðsson skrif- stofum. með nokkur helztu aðal- hlutverkin. Efni þessa lciks verður ekki rakið, en nafn hans gefur þó nokkra hugmynd. Þó er fjallað um fleira en ástir og uranium. Þjóðfélagsmál, og þó sérstaklega broddborgarar samtíðarinnar, eru sýnd í spéspegli. Leikfélag Akureyrar mun minnast 40 ára starfs nú í vetur. Ekki er enn fullráðið hvaða leikrit verður fyrir valinu sem hátíðaleikrit í sambandi við afmælið. (16. janúar 1957) Hin rauðu norðurljós Klukkan rúmlega 11 á sunnu- dagskvöldið gaf að líta fagra og óvenjulega sjón. Eldrauður, sterkur bjarmi færðist upp á him- ingeiminn í suðaustri, líkt og af eldum miklum. Upp frá þessum sterka, rauða bjarma gengu ljós- ar rákir, líkt og eftir þrýstilofts- flugvélar. Stóð sýn þessi í 7-8 mínútur en dofnaði síðan. Ekki hefur heyrzt að eldar séu uppi suðaustur á hálendi landsins, sem orsakað gætu þetta fyrirbæri. Samkvæmt upplýsing- um Veðurstofunnar mun hér hafa verið um að ræða hin sjald- gæfu „rauðu norðurljós". Norðurljós eru mjög vísindalega rannsökuð á yfirstandandi jarð- eðlisfræðiári. En þau hafa ein- mitt verið óvenju mikil og marg- breytileg að undanförnu. - Útvarpstruflanir og norðurljósin eru af sömu orsökum og talin stafa af hinum miklu sólgosum, sem mjög eru umtöluð um þessar mundir. (2. október 1957) Margir uröu veöurtepptir í Kinn Ofeigsstöðum í Kinn 16. des. Hér ætlaði allt um koll að keyra í fyrrakvöld í aftaka norðanroki og snjókomu. Bíll valt út af vegi hjá I.ækjamóti, var að koma frá Reykjavík með vörur. Honum til aðstoðar fór bíll frá Húsavík og komst hann hingað og fauk þá út af veginum. Enn ætluðu bílar að lijálpa en fór það á sömu leið. Átta menn gistu hér á bæjunum, veðurtepptir. Margir fleiri lentu í hrakningum en ekki urðu slys. Maður einn gekk sama kvöld af bíl sínum á Fljótsheiði og komst til bæja við illan leik, en þá var með öllu vonlaust að aka bíl. Menn bjóða nú hátt verð í rjúpur en þær láta ekki sjá sig þótt 100 krónur sé boðið í stykkið, og allra sízt eftir gengis- fellinguna. Sumir hafa þegar gert laufa- brauðið og eitthvað huga menn líka að hangikjöti. En kjötreyk- ing er hálfgerð listgrein, sem höfð er í heiðri. Menn eru mis- góðir í þessari grein, sem öðrum, en margir góðir. Sumir bæir eru frægir reykingabæir. Bið svo að heilsa bæjarbúum og Eyfirðingum öllum. B.B. (17. desember 1967) SS tók saman Venjum unga hestamenn strax á að r N0TA HJÁLM! jf. |É| •ÍÉÉE J§Í® W jpT, Li .. r.\ . -v.mii«(n(|;j|1| J k'lfyiUN‘i'JJilV || UMFERÐAR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.