Dagur - 30.01.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 30. janúar 1992
Black Jack gallabuxur
st. 31-41, verð kr. 1.700,-
Vinnuskyrtur
st. S tll XXL, verð 1.180,-
111EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 Sími 22275
Fréttir
Vínartónleikar Kammerhljómsveitar Akureyrar:
Tónleikar þetta árið bæði
í Ýdölum og á Akureyri
- Páll Pampichler Pálsson stjórnar annað árið í röð
SKATTFRAMTÖL
fyrir einstaklinga og minni
fyrirtæki
Rolf Hannén, Norðurbyggð 15. Simi 27721.
Kammerhljómsveit Akureyrar
heldur sína árlegu Vínartón-
leika í febrúarmánuði en að
þessu sinni verða tvennir tón-
leikar enda hafa Vínartónleik-
ar hljómsveitarinnar fengið
metaðsókn á undanförnum
árum. Páll Pampichler Pálsson
verður stjórnandi á Vínartón-
leikum Kammerhljómsveitar-
innar í ár eins og í fyrra en ein-
söngvarar verða sópransöng-
konan Sigríður Gröndal og
Óskar Pétursson, tenórsöngv-
ari.
Jón Hlöðver Áskelsson, fram-
kvæmdastjóri Kammerhljómsveit-
ar Akureyrar, segir í tilkynningu
sem hann hefur sent frá sér um
komandi Vínartónleika að
hljómsveitin og stjórn hennar líti
svo á að vinsældir Vínartónleik-
anna endurspegli áhuga Norð-
lendinga fyrir slíkum tónleikum
sem árvissum þætti skemmtana-
lífsins.
Eins og áður segir verða tvenn-
ir tónleikar að þessu sinni. Hinir
fyrri verða í félagsheimilinu
Ydölum laugardaginn 15. febrúar
kl. 16 en hinir síðar í íþrótta-
skemmunni á Akureyri sunnu-
daginn 16. febrúar kl. 17.
Kammerhljómsveit Akureyrar
er skipuð 55 hljóðfæraleikurum.
Páll Pampichler Pálsson er lands-
þekktur sem stjórnandi Sinfoníu-
hljómsveitar Islands og Karla-
kórs Reykjavíkur, auk þess að
vera afkastamikið og eftirsótt
tónskáld.
Sigríður Gröndal stundaði
söngnám í Reykjavík og síðar í
Hollandi. Hún hefur tekið þátt í
flutningi íslensku óperunnar sem
einsöngvari m.a. í Leðurblök-
unni, Don Giovanni, Brúðkaupi
Figaros og Töfraflautunni, auk
þess að hafa sungið á tónleikum
hér heima og erlendis.
Óskar Pétursson er búsettur á
Akureyri og vakti söngur hans
mikla hrifningu á Vínartónleik-
um Kammerhljómsveitarinnar
síðasta vetur. Hann hefur oft
sungið einsöng með kórum, bæði
á Norðurlandi og í Reykjavík,
m.a. sungið með Skagfirsku
söngsveitinni.
Forsala aðgöngumiða á Vínar-
tónleikana mun hefjast í Bóka-
búð Jónasar á Akureyri á mánu-
dag. JÓH
Sértilboð
Eitt símtal og við gerum þér tilboð
AKUREYRI
96-24838
Bílaleigan Örn
Flugvöllur og Tryggvabraut 1. _
ÞÓRSHÖFN: Tel. 96-81175 HVb-AVIS
VIÐ ÞJÓNUM ÞÉR L'Cency
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1992:
íslenska lagið valið
22. febrúar í Sjónvarpinu
Hjá Sjónvarpinu standa nú yfír
upptökur á lögunum sem keppa
til úrslita í undankeppninni
fyrir Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva 1992. Tilgang-
ur keppninnar er að hvetja
höfunda til lagasmíða og að
velja Iag í söngvakeppnina sem
haldin verður í Malmö í Sví-
þjóð að þessu sinni.
Föstudags
kvöld:
Peir sem mæta á föstudag fá frítt inn á laugardag
Laugardagskvöld:
Hátíð hækkandi sólar
Kvöldið hefst á sýningu myndarinnar
Spurning um svar
kl. 23.30
Kynningar • Sýningar • Diskótek
Kynning á Samb... frá Ítalíu Miðaverð kr. 500
Fimmtudag og laugardag:
Valgeir Skagfjörð
skemmtir gestum (Ippans
Snyrtilegur klæðnaður
Borðapantanir í síma 24199
steito*
Piit'tfiri*'0'
íslensku lögin verða kynnt í
tveimur þáttum í Sjónvarpinu 7.
og 14. febrúar; fimm lög í þeim
fyrri og fjögur í þeim síðari. Jafn-
framt verða lögin kynnt í Sjón-
varpinu þrjú og þrjú saman 18.,
19. og 20. febrúar strax að lokn-
um fréttum. Samsent verður með
Rás 2, en þar verða lögin einnig
kynnt sérstaklega. Samkvæmt
þessu hefur hvert lag verið leikið
tvisvar sinnum í Sjónvarpi þegar
kemur að úrslitakvöldinu. Loka-
þátturinn verður £ beinni útsend-
ingu 22. febrúar og verður hann
einnig samtengdur með Rás 2.
Sjónvarpið leggur til hljóm-
sveit 9 manna sem Jón Ólafsson
stjórnar og bakraddir syngja Eva
Ásrún Albertsdóttir, Erna Þórar-
insdóttir og Eyjólfur Kristjáns-
son.
Lögin sem keppa til úrslita
voru valin af dómnefnd sem í
áttu sæti Jón Ólafsson tónlistar-
maður, Helga Möller söngkona,
Magnús Einarsson dagskrárgerð-
armaður á Rás 2, Kristinn
Svavarsson tilnefndur af FÍH,
Magnús Kjartansson tilnefndur
af FTT. Tíu lög voru valin til
áframhaldandi keppni en eitt var
dregið út úr keppninni.
Lögin níu verða öll leikin í
lokaþættinum og atkvæðagreiðsla
fer fram að því loknu. I öllum
átta kjördæmum landsins sitja
dómnefndir og þær hafa jafnt
vægi burtséð frá mismunandi
íbúafjölda kjördæma. Sérstök
dómnefnd „sérfræðinga“ verður
einnig í sjónvarpssal og hefur
nokkra sérstöðu. Hver dóm-
nefndarmaður greiðir öllum
lögunum atkvæði á sama hátt og
gert er í hinum dómnefndunum.
Það lag sem flest stig hlýtur hjá
þessari „sérfræðinganefnd“ fær
alls 16 stig á vogarskálarnar. Þessi
dómnefnd greiðir því aðeins einu
lagi atkvæði. Höfundur eða
höfundar sigurlagsins fá í sinn
hlut vegleg verðlaun: a. Verð-
launagrip sem Sjónvarpið hefur
sérstaklega látið gera. b. Sjón-
varpið veitir einnig peningaverð-
laun að upphæð krónur 200.000,00
og auk þess krónur 300.000,00 til
þess að undirbúa lagið fyrir loka-
keppnina. c. Ferð til Malmö í
Svíþjóð, til þess að fylgjast með
keppninni. ój
Útgáfu Þjóðviljans hætt:
Nýtt helgarblað
kemur út
Þær breytingar verða á
íslenska dagblaðamarkaðinum
um næstu mánaðamót að
útgáfu Þjóðviljans verður
hætt. Hins vegar hafa nokkrir
starfsmenn Þjóðviljans ákveð-
ið að gefa út helgarblað sem
mun fylgja sjálfstæðri rit-
stjórnarstefnu.
Þeir Árni Þór Sigurðsson,
Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Sigurður Á. Friðþjófsson og Sæv-
ar Guðbjörnsson hafa gert samn-
ing við útgáfustjórn blaðsins um
að taka á leigu húsnæði, tæki og
aðstöðu til að gefa út nýtt helg-
arblað.
Helgarblaðið mun koma út
vikulega frá 7. febrúar og verður
það sent öllum áskrifendum
Þjóðviljans auk þess sem það
verður til sölu á helstu blaðsölu-
stöðum.
„Ritstjórnarstefna blaðsins
mun taka mið af því að verja
velferðarkerfið, baráttu fyrir
bættum lífskjörum og hagsmun-
um þeirra sem minna mega sín í
samfélaginu. Blaðið mun fylgja
sjálfstæðri ritstjórnarstefnu og
verður hvorki í beinum tengslum
við stjórnmálasamtök né aðra
hagsmunaðila,“ segir í fréttatil-
kynningu frá útgefendum.
Þá segir að markmiðið með
útgáfunni sé að brúa það bil sem
fyrirsjáanlegt er þegar Þjóðvilj-
inn hættir að koma út og þangað
til nýtt dagblað lítur dagsins ljós.
SS