Dagur - 30.01.1992, Side 12
Hadegistilboð alla daga
V E I T I N G A H U S I Ð
Súpa og salatbar ásamt okkar nýbökuöu brauöum fylgja öllum aðalréttum og pizzum
Frí heimsendingarþjónusta allan daginn
Alvöru veitingahús
Glerárgötu 20 • 26690
Fjárhagsáætlun Húsavíkurbæjar samþykkt:
Fræðslumál stærsti
gjaldaliðuriim
- tekjur bæjarsjóðs áætlaðar 440 milljónir
- heildargjöld 340 milljónir
Fjárhagsáætlun Húsavíkur-
bæjar og bæjarfyrirtækja var
samþykkt með átta atkvæðum
að lokinni síðari umræðu í
bæjarstjórn Húsavíkur sl.
þriðjudag. Mjög litlar breyt-
ingar voru gerðar á áætluninni
milli umræðna. Heildartekj-
urnar eru áætlaðar 440,5 millj-
ónir en heildargjöld 340 millj-
ónir. Tekjuafgangur er því um
100,5 milljónir, eða 23% af
tekjum. Lántökur eru áætlað-
ar um 110 milljónir og breytast
lítið milli umræðna, áætlaðar
lántökur bæjarsjóðs lækka en
lántökur hafnarsjóðs hækka. í
sumar standa til framkvæmdir
fyrir 130 milljónir við höfnina,
dýpkunarvinna fyrir 55 millj-
ónir og gerð stálþils við
Norðurgarð fyrir 78 milljónir.
Vonast er til að framkvæmdir
geti hafíst um mánaðamót maí/
júní.
Helstu tekjur bæjarsjóðs eru
útsvör, tæplega 150 milljónir,
aðstöðugjöld 38,2 og fasteigna-
skattur um 35 milljónir. Stærsti
gjaldaliðurinn er fræðslumál, 95
milljónir.
Töluverðar umræður urðu um
áætlunina og lýsti Jón Ásberg
Salómonsson (A) því yfir að
hann mundi sitja hjá við atkvæða-
greiðslu um hana. Kristján
Ásgeirsson (G) flutti langa ræðu
og fór fram á bókun. í máli
Bjarna Aðalgeirssonar (B) kom
fram að lántökur Húsavíkurbæjar
hefðu aukist verulega á síðustu
tveimur árum en minnti á að von
væri á að fá verulegan hluta fjár-
magnsins til baka, s.s. kostnað
vegna skólabyggingar og hafnar-
framkvæmda. Bjarni spurði Jón
Ásberg (slökkviliðsstjóra) hverju
hann vildi sleppa við gerð fjár-
hagsáætlunarinnar, kaupum á
nýjum slökkvibíl, skólabygging-
unni eða þátttöku í Dvalarheimili
aldraðra. Bjarni minnti á bygg-
ingu íþróttahúss og framkvæmdir
fyrir landsmót 1987, og að dregið
hefði úr öðrum framkvæmdum
meðan verið var að greiða þetta
niður. Hann sagðist viss um að
bæjarfulltrúar væru í rauninni all-
ir sammála um að efla þyrfti
Framhaldsskólann og horfa til
framtíðar í þessu byggðarlagi.
Hér væri samfélag mjög gott
þjónustulega séð, en meiri drift
vantaði í atvinnulífið. Varðandi
skuldasöfnun bæjarsjóðs, sagði
Bjarni að hann liti bjartsýnum
augum til framtíðarinnar, og
teldi að bærinn myndi innan
skamms tíma geta losað með
hagnaði það framlag sem veitt
hefði verið til Fiskiðjusamlags
Húsavíkur. IM
Þessa dagana eru framteljendur að fá skattframtölin í hendur. Þessi mynd var tekin á Skattstofunni á Akureyri í gær
þar sem starfsmenn höfðu í mörgu að snúast. Mynd: Goiu
„Grenilundsflóðið“ aftur á borð bæjaryfirvalda á Akureyri:
Haldi Akureyrarbær fast við fyrri
afstöðu leita íbúamir réttar síns
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í
dag verður væntanlega tekin
afstaða til skaðabótakröfu íbúa
við Grenilund vegna tjóns sem
þeir urðu fyrir að kvöldi 2. maí
1990. Akureyrarbær hefur
þegar hafnað kröfu íbúanna
um skaðabætur, en málið
verður aftur tekið fyrir í Ijósi
skýrslu dómskvaddra mats-
manna.
Nú liggur fyrir skýrsla tveggja
dómkvaddra manna, frá Siglu-
firði og Húsavík, um vatnstjónið
í Grenilundi. Hlutverk þeirra var
að kanna hvort aðbúnaður í göt-
unni af hálfu bæjarins væri viðun-
andi og hvort starfsmenn bæjar-
ins hafi brugðist rétt við umrædd-
an flóðadag.
í skýrslunni kemur fram að
frárennslislögnin austan Greni-
lundar sé of grönn og geti ekki
tekið við vatni af þessu svæði.
Orðrétt segir í skýrslunni: „Mat
okkar er að 500 ml framræslu-
lögnin anni ekki að ræsta fram
regnvatn eða leysingavatn miðað
við það sem við teljum eðlilegar
Orsakir flestra árekstra
í umferðinni á Akureyri:
Aðalbrautarréttur ekki virtur
Lögreglan á Akureyri gerði
skýrslur yfir 134 árekstra í
bænum á árinu 1991. Orsaka-
valdar í þessum tilfellum eru af
ýmsum toga en áberandi er að
í flestum tilfellum falla öku-
menn í þá freistni að virða ekki
aðalbrautarrétt.
hönnunarforsendur.“
Árin 1978 og 1983 flæddi inn í
hús við Grenilund, sem þá voru í
byggingu. Þá var lögnin með
sama hætti og nú er. Oskað var
úrbóta, en ekkert var aðhafst.
í skýrslunni segja mats-
mennirnir að starfsmenn Akur-
eyrarbæjar hafi ekki brugðist rétt
við þann 2. maí 1990. Bent er á
að snjóbingur syðst í Grenilundi
hafi fyrst í stað hindrað vatn í að
komast norður í götuna, þ.e. að
hann hafi að verulegu leyti valdið
myndun stöðuvatns sem síðan
flæddi norður í Grenilundinn.
Einnig er þess getið að starfs-
menn bæjarins hafi ekki átt að
opna brunnana þegar í óefni hafi
verið komið, vegna þess að lögn-
in í götunni sé ekki hönnuð til
þess að taka við slíku gífurlegu
vatnsstreymi. Við þetta hafi
myndast öfugur þrýstingur og
vatnið flætt inn í húsin við götuna
nokkrum mínútum síðar.
Benedikt Ólafsson, lögfræð-
ingur íbúanna við Grenilund,
segist telja að skýrsla matsmann-
anna styrki málstað íbúanna.
Hann hefur nú sent hana til
bæjaryfirvalda með ítrekun um
að Akureyrarbær bæti þetta tjón.
Gert er ráð fyrir að málið verði
rætt í bæjarráði í dag. „Ef að
Akureyrarbær heldur fast við
fyrri afstöðu, þá held ég að megi
fullyrða að íbúarnir láti á þetta
reyna fyrir dómstólum,“ sagði
Benedikt.
í þessum miklu flóðum varð
tjón í tíu húsum við Grenilund og
heildartjón hefur verið metið um
14 milljónir króna (á verðlagi í
maí 1990). Tryggingarfélög hafa
að fullu bætt tjón í einni íbúð og
að hluta í tveim íbúðum.
Benedikt lét þess getið að Við-
lagatrygging íslands hafi á sínum
tíma hafnað bótaskyldu vegna
þess að þarna hafi ekki verið eig-
inlegar náttúruhamfarir í skiln-
ingi laganna og að um skaðverk
af hálfu Akureyrarbæjar hafi ver-
ið að ræða. óþh
Landsleiksmál Tindastóls:
Krefla KKÍ um greiðslu
- „munum fylgja málinu fast eftir“
Iitill snjór á Hveravöllum
„Það er að fara frá okkur bréf
til KKI þar sem við lýsum okk-
ar áliti á framkomu þeirra og
gerum þá lágmarkskröfu að
þeir greiði okkur vegna beinna
fjárútláta sem við komust ekki
hjá í sambandi við leikinn,“
segir Þórarinn Thorlacius, for-
maður körfuknattleiksdeildar
Tindastóls.
Eins og blaðið greindi frá um
helgina þá varð ekkert af lands-
leik í körfuknattleik milli Litháen
og íslands sem fram átti að fara á
Sauðárkróki sl. föstudag. For-
ráðamenn Tindastóls vilja meina
að KKÍ hafi ekki staðið rétt að
málum þar sem þeim hafi allt frá
upphafi verið ljóst að landslið
Litháen hafi þurft að fljúga til
Kaupmannahafnar á föstudegin-
um.
Að sögn Þórarins krefjast þeir
í körfuknattleiksdeildinni þess að
KKÍ greiði þeim um 100 þús.
krónur sem búið var að eyða
m.a. í auglýsingar og prentun á
minjagripi til að gefa Litháum.
„Við teljum okkur vera mjög
hógværa miðað við þau óþægindi
og hreinlega þá lítilsvirðingu sem
við höfum orðið fyrir hérna og
þess vegna munum við fylgja
málinu mjög fast eftir,“ sagði
Þórarinn í gær. SBG
Rétt er að taka fram að þó 134
árekstrar hafi verið skýrslufærðir
hjá lögreglu voru 300 árekstrar
þar sem ökumenn sáu sjálfir um
skýrslugerðina. En í þeim tilvik-
um þar sem lögregla var kölluð til
var orsökin þannig:
Aðalbrautarréttur var ekki
virtur í 30 af þessum árekstrum, í
24 tilfellum var umferðarréttur
ekki virtur, í 17 skipti var of stutt
bil á milli farartækja, 16 árekstrar
urðu vegna gáleysis eða af
ókunnri orsök, í 12 tilvikum var
ógætilega ekið afturábak, 8
árekstrar urðu vegna ölvunar,
ranglega var beygt í 5 tilvikum, í
fjórum árekstum átti bilun í
bifreið orsökina, réttindaleysi við
akstur var einnig í fjórum
árekstrum, í tveimur tilvikum var
um að kenna rangri staðsetningu
á akbraut og loks varð einn
árekstur vegna þess að mannlaus
bifreið rann af stað og sömuleiðis
einn árekstur þar sem ógætilega
var ekið frá gangstétt. JÓH
„Ef útivistarfólk næði til
veðurguðanna, væri það senni-
lega búið að kæra þá fyrir
vörusvik,“ sagði Grímur Sigur-
jónsson, veðurathugunarmað-
ur á Hveravöllum í samtali við
Dag í gær.
Hann sagði að aðstæður uppi á
hálendinu væru ekki eins og
Það verður að teljast fremur
sérstakur náttstaður sem mað-
ur einn valdi sér í fyrrinótt. Að
honum var komið þar sem
hann hafði lagst til hvílu á
þjóðvegi eitt við Lónsbakka
norðan Akureyrar.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri ætlaði maðurinn að ganga
menn ættu að venjast á þessum
tíma árs. Snjórinn væri farinn að
mestu leyti og til marks um það
sýndu stikur að meðalsnjódýpt í
slökkum væri 8 cm, en fyrir jólin
var meðalsnjódýptin 44 cm.
„Maður fer ekki á skíði þessa
dagana. Maður lætur duga að
taka sér bók í hönd og hafa það
huggulegt,“ sagði Grímur. óþh
heim til sín, sem mun vera langt
norðan Akureyrar, en hefur lík-
lega ætlað að safna kröftum áður
en lengra væri farið. Óhætt er að
segja að maðurinn hafi verið
heppinn að lenda ekki fyrir bíl
þarna á miðjum veginum. Þess
má geta að hann var undir áhrif-
um áfengis. óþh
Óvenjulegur náttstaður