Dagur - 06.02.1992, Page 1
75. árgangur Akureyri, fímmtudagur 6. febrúar 1992 25. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Fundur fulltrúa ASI og VSI í gær:
ASÍ vill samninga
til eins árs
- desember- og orlofsuppbót verði
24 þúsund hjá öllum
farar verði samningsbundinn.
Björn Valdimarsson, bæjarstjóri á Siglufirði og Kristján Möller, forseti bæjarstjórnar með terturnar girnilegu og
bíða þess að Víkingur AK leggist að bryggju. Mynd: Golli
Fyrsti loðnufarmurinn til Siglu^arðar í gær:
„Aldrei fengið slíkar móttökur“
- skipverjum á Víkingi AK færðar tvær
tertur er skipið lagðist að bryggju
Fulltrúar vinnuveitenda og
ASÍ hittust hjá sáttasemjara í
gær þar sem hinir síðarnefndu
lögöu fram kröfugerð fyrir
komandi kjarasamninga. Meö
þessum fundi eru heildarvið-
ræður að hefjast en skýrt kom
fram að atvinnurckendur eru
ekki til viðræðu um kostnaðar-
aukningu fyrir fyrirtækin. ASI
mun síðar leggja fram launa-
kröfur en segja má að stærstu
punktarnir í kröfugerðinni frá í
gær séu að samningstími verði
eitt ár og að ákvæði um rauð
strik og launanefnd verði
áfram í samningi þannig að
endurskoðun fari þrisvar fram
á samningstímanum.
Þá vill ASÍ að samið verði um
eftirfarandi almenn ákvæði:
„Að desember- og orlofsupp-
bót verði samræmd þannig að
desemberuppbótin hækki hjá öll-
um í 24 þús. kr. í dag er stór hluti
félagsmanna í ASÍ með 10 þús.
kr. desemberuppbót en ýmsir
hópar innan ASÍ svo og flestir
opinberir starfsmenn með 24 þús-
und krónur.
Orlofsréttur verði samræmdur
þannig að 1 dagur bætist við þeg-
ar ákveðnum aldri eða starfsaldri
er náð og síðan fleiri dagar þang-
að til 28 dögum er náð.
Réttur til fráveru vegna veik-
inda barna verði aukinn, þ.e. í 10
daga í stað 7 og að rétturinn nái
einnig til fráveru vegna veikinda
maka og nánustu ættingja.
Réttur starfsmanna til að taka
sér launalaust leyfi vegna jarðar-
Gert er ráð fyrir sunnanátt og
þíðviðri um vestanvert
Norðurland í dag en trúlega
verður hæg norðan- eða norð-
austanátt með lítilsháttar
snjókomu í Eyjafírði og austur
um fram eftir degi en síðdegis
gæti snúist til sunnan áttar og
farið að rigna.
Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar er lægð á leið
upp að landinu úr suðvestri og
mun hún valda sunnanátt með
einhverri rigningu í dag og fram
Samkvæmt upplýsingum frá
Siglingamálastofnun ríkisins
eru 7 skip nú í smíðum í er-
lendum skipasmíðastöðvum.
ÖII skipin utan eitt eru í smíð-
um í Noregi en þrjú eru í smíð-
um fyrir norðlenska aðila.
Aunnin réttindi haldist þegar
starfsmaður flyst á milli vinnu-
staða.
Uppsagnarréttur eldri starf-
manna verði aukinn. Starfsmenn
sem náð hafa 63 ára aldri og hafa
verið 10 ár í starfi hjá sama
atvinnurekanda njóta nú 6 mán-
aða uppsagnarfrests.
Allir sem náð hafa 16 ára aldri
njóti fullra launa. Svo er ekki í dag
hjá verslunarfólki og starfsfólki í
veitinga- og gistihúsum.
Lífaldurs- og starfsaldursálög
verði betur samræmd.
Matartími um helgar verði
greiddur.
Uppsagnarréttur sjómanna
sem nú er 7 dagar verði sam-
ræmdur því sem almennt gerist.
Skýrt komi fram í samningi að
útgerðarmanni sé óheimilt að
krefjast þess að sjómenn taki þátt
í kostnaði við kvótakaup."
Á fundinum í gærmorgun kom
fram að af hálfu ASÍ verða iagðar
fram launakröfur síðar, m.a.
með hliðsjón af framvindu sér-
kröfuviðræðna en áhersla var þó
lögð á kröfuna um sérstakar
kauphækkanir til handa láglauna-
fóiki.
Vinnuveitendur ítrekuðu á
fundinum að þeir hafni öllum
kröfum sem auki á kostnað
atvinnurekenda. Að öðru leyti
var samningafundurinn í gær
árangurslítill en annar fundur er
boðaður á mánudag þar sem for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar mun
gera grein fyrir nýrri þjóðhags-
spá. JOH
eftir nóttu en síðan gæti kólnað
nokkuð á morgun. Ekki er þó
búist við langvarandi kulda í bráð
þar sem önnur lægð er væntanleg
í kjölfar hinnar fyrri með áfram-
haidandi hlýindum. Mjög kalt
loft er hins vegar yfir Grænlandi
og ef það næði yfirhöndinni má
búast við nokkru frosti. Að sögn
veðurfræðings er þó ekki hætta á
slíku á meðan hlýjar lægðir halda
áfram að koma upp að sunnan-
verðu landinu þannig að frosta-
kaflierekkisýnileguríbráð. ÞI
Þau fiskiskip sem nú eru í
smíðum erlendis fyrir íslenska
aðila eru 6 talsins. Auk þess er
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur í
smíðum í Noregi.
í Portúgal er nú í smíðum skip
fyrir Borg hf. í Hrísey, Samherji
hf. á fiskiskip í smíðum í Flekke-
„Nei, ég hef aldrei fengið slík-
ar móttökur,“ sagði Guðjón
Bergþórsson, skipstjóri á
loðnuskipinu Víkingi AK þeg-
ar það lagðist að bryggju á
Siglufírði um hádegisbil í gær
með fyrstu loðnuna sem kemur
til Siglufjarðar á þessari vertíð.
Óhætt er að segja aö Siglfirð-
ingar hafi beðið lengi eftir þess-
um fyrsta loðnufarmi og því lá
vel á þeim í gær. Björn Valdi-
marsson, bæjarstjóri, færði skip-
verjum á Víkingi tertu úr Leifs-
bakaríi, fyrir hönd Siglfirðinga,
og Kristján Möller, forseti bæjar-
stjórnar, bætti um betur og stóð
við gefið loforð um að færa áhöfn
fyrsta loðnuskipsins sem kæmi til
Siglufjarðar á þessari vertíð veg-
lega heimabakaða rjómatertu.
„Við vildum hafa terturnar tvær,
annars vegar vegna þess að við
erum búnir að bíða lengi eftir
loðnunni og hins vegar vegna
þess hve mikinn farm þið eruð
með,“ sagði Kristján Möller um
leið og skipverjum á Víkingi voru
afhentar rjómaterturnar.
Kristján var ófús að gefa upp
hráefni í tertuna góðu sem var
hin veglegasta en sagði að skip-
verjar yrðu ekki sviknir af henni.
Hann var bjartsýnn á að þessi
fyrsti farmur á vertíðinni væri
bara byrjunin, hann væri þess
fjord í Noregi og sömuleiðis á
Skagstrendingur á Skagaströnd
skip í smíðum í Bergen í Noregi.
Þá á Ögurvík skip í smíðum í
Flekkefjord og fyrir Kristján
Guðmundsson í Grundarfirði er
verið að smíða tvö skip í Torme-
fjord. JÓH
fullviss að peningalyktina legði
yfir Siglufjörð næstu vikurnar.
Þórður Andersen, verksmiðju-
stjóri Síldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði, sagðist einnig vera
vongóður um framhaldið en það
fari vitanlega eftir aflabrögðum
og veðri. Loðna hefur ekki verið
brædd hjá SR á Siglufirði frá því
um mánaðamótin febrúar-mars í
fyrra og séu menn farnir að ryðga
Rafeindafyrirtækið DNG á
Akureyri er að kanna með sölu
á móturum og stýribúnaði til
fínnskra aðila, í gegnum Pálma
Stefánsson, sem var verk-
fræðingur hjá Islenska álfélag-
inu. Að sögn Kristjáns
Jóhannessonar, framkvæmda-
stjóra DNG, er hugmyndin að
nota mótorinn og stýribúnað-
inn í álver í Rússlandi en Pálmi
er að vinna að sérstöku álvers-
verkefni fyrir þessa fínnsku
aðila.
Um er að ræða sérhannaðan
mótor sem framleiddur er hjá
DNG og drífur færavindur fyrir-
tækisins. Við mótorinn er sett
sérstök stýring fyrir mötunarkerfi
á súráli.
„Málið er á frumstigi og engar
endanlegar ákvarðanir verið
teknar um hversu mikið af
í hvernig ætti að bera sig að við
bræðsiuna. Þórður sagðist reikna
með að það taki hálfan annan
sólarhring að bræða þau 1350
tonn sem Víkingur kom með.
Björn Valdimarsson, bæjar-
stjóri, sagði það skipta gífurlegu
máli fyrir Siglufjörð að hjól
loðnubræðslunnar séu farin að
snúast. Létt sé yfir Siglfirðingum
á slíkum dögum. óþh - Siglufirði
móturum við gætum hugsanlega
selt. Það hefur verið talað um
2000 mótora, sem er þá sala upp
á rúmar 200 milljónir króna en
það á enn eftir að hnýta marga
lausa enda áður en það gengur í
gegn. Við munum vinna áfram af
fullum krafti í málinu og vonum
að sjálfsögðu að þessi viðskipti
gangi í gegn.“
Kristján segir að búið sé að vinna
ákveðna þróunarvinnu og Pálmi
Stefánsson sé farinn með mótor
og stýringu við hann til Finnlands
og þar verður hann prófaður.
„Það er komin mjög mikil
reynsla á þennan mótor frá
okkur, við ákaflega erfiðar
aðstæður og það er þess vegna
sem verið er að kanna með notk-
un á honum í álverum. Mótorinn
er til hjá okkur og það er hægt að
framleiða hann í miklu magni
með litlum fyrirvara.“ -KK
Veðurhorfur:
Hlýnar í dag - kólnar á morgun
- frostakafli ekki fyrirsjáanlegur í bráð
Skipasmíðar:
Sex íslensk skip í smíðum í Noregi
Rafeindafyrirtækið DNG á Akureyri:
Möguleiki á sölu á
færavindumótorum í
álver í Rússlandi
- „það hefur verið talað um 2000 mótora fyrir rúmar
200 milljónir króna,“ segir Kristján Jóhannesson