Dagur - 06.02.1992, Page 6

Dagur - 06.02.1992, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 6. febrúar 1992 ROdsútvarpið og fólkið Ef við spyrjum spurninga eins og: „Hvaða hlutverki á ríkisútvarpið að gegna gagnvart landsbyggð- inni?“ Pá sjáum við strax að í spurningunni felst aðskilnaðar- hugsunarháttur. Landsbyggðin er álitin vera öðru vísi og af því leið- ir að hún er talin þurfa eitthvað annað. Ég lít svo á að - að sumu leyti séum við landsbyggðarfólk öðru vísi, en að flestu leyti séum við íslendingar allir sem einn undir sama hatt settir. Ég tel að fámenni og dreifð búseta geri það að verkum að ríkisútvarpið hafi meira vægi í lífi fólksins sem þannig býr, en í ys og þys borgar- innar, þar sem keppt er um athygli og tíma manna af svo mörgum mismunandi aðilum. Þess vegna m.a. er mikilvægt að Ríkisútvarpið standi undir nafni og flytji vandaða dagskrá og yfir- leitt finnst mér svo vera. Meiri fræðslu um innlend málefni Það sem ég vildi þó sjá meira af er fræðsla og þá einkum og sér í Iagi fræðsla um innlend málefni og ég vildi gjarnan sjá og heyra þáttaraðir um viðkomandi efni, þannig að viðfangsefninu séu gerð sæmilega góð skil. Mér finnst það vera mikilvægt að uppfræða fólkið í landinu um hvernig það lifir og leysir hin ýmsu samfélagsmál mismunandi eftir stöðum. Tökum sem dæmi: sorphirðu, flugsamgöngur og hafnarframkvæmdir. Fróðlegt væri að fá samantekt á því hvern- ig kvótasölumálin standa og er ég þá ekki síst að hugsa um smá- bátaútgerðina. Verslunarmálin eru eitt málið. Það væri gaman að fá að vita hver staða verslunar- innar er vítt og breitt um landið eftir samdrátt eða hrun margra kaupfélaga. Við fengum þó nokkra úttekt á verslunarleið- öngrum fólks til útianda nú fyrir jólin en hvernig væri að líta sér nær? Tónlistarskólarnir, framhalds- skólarnir og fullorðinsfræðslan eru líka áhugaverð viðfangsefni. íþróttum eru gerð góð skil og sama má yfirleitt segja um atvinnumálin a.m.k. úti á landi, en e.t.v. síður á höfuðborgar- svæðinu. Þá væri gaman að fá úttekt á öldrunarþjónustunni - eldra fólki er oft lítill gaumur gefinn og virð- ing fyrir lífsreynslu þess og við- horfum má aldrei þverra að mínu mati og þar getur Ríkisútvarpið komið sterkar inn. Hvernig aðstaða er til list- sköpunar vítt og breitt um landið? Fræðimannasetur, refa- og minkaeyðing, tölvuþjónusta og tölvutenging innanlands sem og til annarra landa - allt eru þetta viðfangsefni í fræðandi og skemmtilega þætti. Loks vil ég svo minnast á kjör- dæmin sem kjörið viðfangsefni til að gera góða þætti um á breiðum grunni. Vísir að slíkum þáttum voru kynningarnar á kjördæmun- um fyrir síðustu alþingiskosning- ar, en betur má ef duga skal. Fræðsla dregur úr fordómum Ég er sannfærð um að umfjöllun um innlend málefni sem þessi yrði vinsæl og gerði mikið í að tengja okkur saman, þjóðina í heild. Það eru orðin of skörp skil milli höfuðborgarbúa og lands- byggðarfólks, sem má draga verulega úr með fræðslu á báða bóga, þannig að fordómar og skilningsleysi verði ekki alls ráð- andi hjá okkar annars upplýstu þjóð. En eflaust yrðu slíkir þættir dýrir þættir, allt innlent efni er dýrt, að því er mér skilst. Ekki veit ég hvernig best er að spara hjá Ríkisútvarpinu, til að hafa ráð á meiri fræðslu á innlendum vettvangi, en mér dettur í hug að skera mætti niður ferðir frétta- manna út um heim, því frétta- myndir fást yfirleitt góðar frá erlendum fréttastofum. Eins dettur mér í hug stytting útsendingartíma, að hafa frekar minna efni, en vandaðra, því magn er ekki sama og gæði, fækka fréttatímum og spara stjórnendur þátta, sem nær ein- ungis eru flutningur á tónlist hvort eð er. Eflaust má tína fleira til. Til starfsins veljist hæft fólk Við vitum öll að sjónvarp jafnt sem hljóðvarp skapar ímyndir með umfjöllun sinni, því er mikilvægt að til starfsins veljist hæft fólk og helst heilsteypt fólk með jákvæða sjálfsímynd og já- kvæða manneskjusýn á breiðum grundvelli. Fréttamaður sem fer út á land, að því er virðist, til að fá útrás fyrir vanþóknun sína á fólkinu, sem þar býr, oft við meira atvinnuóöryggi, óöryggi í heilsu- gæslu, óöryggi í fræðslumálum og samgöngum - hann segir meira um sjálfan sig og sína persónu, en nokkuð annað, þegar hann með niðurlægjandi umfjöllun lýs- ir því sem fyrir augum ber. Ríkis- útvarpið ætti að kappkosta að hafa sem fæsta slíka nienn í sinni þjónustu. RÚYAK 10 ára í ár eru 10 ár liðin frá því fyrsta svæðisútvarpið var sett á stofn: RÚVAK á Akureyri. Fjórð- ungsþing Norðlendinga hefur ályktað um Ríkisútvarpið allar götur frá 1954 og minnst á mikil- vægi þess að kynna norðlenska menningu og mannltf. í ályktun þingsins frá 1984 er lögð áhersla á tengsl landshluta- útvarpsins við heimaaðila og tel- ur þingið að í útvarpslögum þurfi að vera ákvæði um samstarfs- nefndir, sem kosnar séu af lands- hlutasamtökum og séu til ráðu- neytis útvarpsráði og starfsliði um efnisval og stjórnun svæðis- útvarpanna. Ingunn St. Svavarsdóttir. í síðustu ályktun Fjórðungs- þings Norðlendinga um Ríkis- útvarpið frá 1987 er svo lögð áhersla á möguleika til fjar- kennslu. Hvorugt þetta virðist mér hafa náð fram að ganga - hvað sem síðar verður. Þarfir fólks Þá erum við komin að því sem við eigum sammerkt öll þjóðin - við íslendingar. Þegar um er að ræða grundvallarhlutverk Ríkis- útvarpsins, hlýtur það að vera hið sama gagnvart heildinni, jafn- vel þótt umhverfi fólksins, sem á það hlustar sé ólíkt. Með tilliti til þessa er því enginn munur á því, hvort þú býrð á Kópaskeri eða í Reykjavík. En hvert er þá þetta grundvallarhlutverk? Ef við lítum á þarfir fólks, en öll þjónusta snýst um að koma til móts við þarfir fólks, þá eru þær skv. kenningu Maslows: 1) Líffræðilegar þarfir. 2) Öryggisþarfir. 3) Félagslegar þarfir. 4) Sjálfsvirðingarþörfin. Við getum hugsað okkur að þessar þarfir okkar staflist hver upp af annarri eins og í lög í kassa. Umgjörð um líf okkar Hvernig getur Ríkisútvarpið komið til móts við þessar þarfir fólks? Sneiðum við hjá líffræði- legu þörfunum sem eru frumþarf- ir eins og þörfin fyrir mat, drykk, kynlíf og svefn - og snúum okkur beint að öryggisþörfinni, þörfinni fyrir að hafa fastan ramma að lifa í, þá er Ríkisútvarpið vissulega umgjörð um líf okkar, hvort sem við erum við leik eða störf. Ríkisútvarpið sendir út til allra landsmanna hvar sem þeir búa á landinu og sinnir upplýsinga- skyldu sinni gagnvart þjóðinni í heild, hvort sem vá er fyrir dyr- um eða ekki. Öryggissjónarmið Með starfrækslu rásar 1 og rásar 2 og samtengingu rásanna er m.a. komið til móts við öryggissjónar- miðin - hægt er að ná til stærri hlustendahóps í einu, ef mikið liggur við. Ég tel því ekki ráðlegt að selja rás 2 til annarra aðila og þrengja þannig svið Ríkis- útvarpsins og möguleika. Þetta sjónarmið að ná til allrar þjóðarinnar verður ekki sagt að aðrar útvarpsstöðvar eða sjón- varpsstöðvar hafi haft enn sem komið er. Við sem búum á Kópa- skeri sjáum t.d. ekki Stöð 2 og heyrum ekki í neinu nema Ríkis- útvarpinu. Á þessu bláhorni landsins eru fáir notendur og dreifingin borgar sig áreiðanlega ekki, ef krónur og aurar eru eina mælistikan, sem notuð er. Sameiningartákn En borgar sig að vera þjóð? Borgar það sig að vera með ríkis- rekstur stofnana á borð við útvarpið? Svar mitt er hiklaust já, þótt mér finnist sjálfsagt að gæta aðhalds í rekstri þeirrar stofnunar eins og allra annarra. í mínum huga þarf hver þjóð að eiga sameiningartákn eins og forseta, þjóðleikhús, þjóðminja- safn og Ríkisútvarp. Auðvitað höfum við önnur leikhús, söfn ýmiss konar og aðrar útvarps- stöðvar og sjónvarpsstöðvar, sem reknar eru af öðrum en ríkinu og það er ekki nema sjálfsagt og gott mótvægi við ríkisreknu stofnan- irnar. Mér hefur ætíð verið það ógeð- fellt að hugsa í annað hvort eða- hugtökum, bæði og-hugtökin eru mér mun hugleiknari. Það er svo miklu fjölbreyttara og ríkara líf sem við fáum með því, í stað þess að steypa alla í sama mót t.d. það mót að allar útvarpsstöðvar og sjónvarpsstöðvar eigi að vera einkavæddar - það yrði dapurt, ef svo færi. Félagslegar þarfír Félagslegar þarfir fólks eru ofar öryggisþörfinni og felast m.a. í því að fá athygli og veita öðrum athygli. Hér kemur útvarpið sterklega inn, hvort heldur um er að ræða hljóðvarp eða sjónvarp. Ég tel okkur landsbyggðarfólki hafi verið mikill greiði gerður með stofnun svæðisútvarpanna og tilkomu landsbyggðarsjón- varpsmanna, þótt fáir séu. Þær raddir hafa þó heyrst að best væri að vera einungis með vel mennt- aða fréttamenn í Reykjavík og senda þá bara annað veifið út um land, eða þegar eitthvað mark- vert á sér þar stað. Mér líst illa á þá hugmynd - mér finnst við eigum að draga úr miðstýringu hjá Ríkisútvarpinu eins og annars staðar hjá hinu opinbera og koma frekar á dreif- stýringu. Vísir að slíku eru útvarpsstöðvarnar á ísafirði, Akureyri og á Egilsstöðum, en það er ekki nóg að koma upp útstöðvum um landið, þar þarf að tryggja þeim raunverulegt vald og mannafla til að geta gert vel og jafnframt að draga úr mann- afla í höfuðstöðvunum á móti. Vel mætti hugsa sér að frétta- menn skiptust á að vera á hinum ýmsu stöðum á landinu annað veifið til að falla nú ekki í þá gryfju að finnast ekkert markvert vera að gerast í kringum þá, því glöggt er gests augað eins og þar stendur. Æðsta þörfín Mig langar til að ljúka þessum hugleiðingum mínum með því að drepa örlítið á æðstu þörf okkar mannfólksins, sjálfsvirðingar- þörfina, en hún felst í því að finna viðurkenningu annarra og leyfa sér að vera ánægð með sjálfa sig og sín verk. Að sjá hið jákvæða í eigin fari og verkum á jákvæðan hátt, í stað þess að gera lítið úr því sem vel er gert. Ég held við ættum öll að leyfa okkur að gleðjast yfir því sem vel hefur verið gert í útvarpinu okkar, því það gefur starfsfólki Ríkisútvarpsins styrk til að takast á við ný og erfiðari verkefni í framtíðinni. Höfuðhlutverk Ríkisútvarpsins Niðurstaða mín eftir þessar vangaveltur er því sú að hlutverk Ríkisútvarpsins eigi fyrst og fremst að vera að vekja sam- kennd meðal landsmanna allra - halda þjóðinni saman sem einni heild með upplýsingum og vand- aðri dagskrá og koma þannig í veg fyrir fordóma og skilnings- leysi á högum annarra. Við þurf- um á því að halda, íslendingar, að standa saman, ef við eigum að geta kallast þjóð eitthvað lengur. Ríkisútvarpið hefur þar stóru hlutverki að gegna. Ingunn St. Svavarsdóttir. Höfundur er sálfræðingur að mennt, en starfar nú sem sveitarstjóri Öxarfjarðar- hrepps og er jafnframt formaður Fjórð- ungssambands Norðlendinga.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.