Dagur - 06.02.1992, Side 15

Dagur - 06.02.1992, Side 15
Fimmtudagur 6. febrúar 1992 - DAGUR - 15 ÍÞRÓTTIR Jón Haukur Brynjólfsson Pórsarar stöðvuðu sigurgöngu ÍR-inga: „Það er engin spurning að við erum með besta liðið í deildinni“ „Þetta var meiriháttar,“ sagði Hermann Karlsson, markvörð- ur og fyrirliði Þórs, eftir fræki- legan sigur liðsins á IR-ingum í toppslag 2. deildar í handbolta í Seljaskóla á þriðjudagskvöld- ið. Þórsarar unnu 24:22, bundu þar með enda á sigur- göngu IR-inga og eru nú eina lið deildarinnar sem ekki hefur tapað stigi. Leikurinn var æsi- spennandi og ljóst er að bæði þessi lið eiga fullt erindi í 1. deild en Þórsarar eru sterkari í dag og eiga alla möguleika á sigri í deildinni. „Við vissum að ÍR-ingar væru sterkir en við vorum einfaldlega Handknattleikur 2. deild ÍR-Þór 22: :24 ÍR 12 11-0- 1 330:217 22 Þór 10 10-0- 0 270:183 20 HKN 12 9-0- 3 301:231 18 UMFA 11 7-0- 4 236:214 14 ÍH 10 6-0- 4 226:219 12 Armann 12 5-0- 7 264:253 10 KR 11 3-1- 7 243:243 7 Fjölnir 11 3-1- 7 218:257 7 Völsungur 12 2-0-10 241:305 4 Ögri 12 0-0-12 178:331 0 betri. Það er engin spurning að við erum með besta liðið í deild- inni og við spiluðum vel þótt við getum gert betur,“ sagði Hermann. Jan Larsen, þjálfari Þórs, var að vonum ánægður með sína menn en sagðijjá samt hafa gert sín mistök. „Eg er ánægðastur með hvað leikgleðin og baráttan var mikil,“ sagði Larsen sem hef- ur tvímælalaust unnið frábært starf fyrir félagið. Leikurinn var æsispennandi allan tímann og mátti halda að liðin væru að leika til úrslita í bikarkeppninni. í fyrri hálfleik skiptust þau á að hafa forystuna, Þórsarar yfir fyrri helminginn og ÍR-ingar þann seinni. í leikhléi hafði ÍR yfir 12:11. Þórsarar mættu dýróðir til leiks í seinni hálfleik og komust fljótlega yfir, 13:12, en ÍR-ingar hleyptu þeim aldrei langt framúr og náðu nokkrum sinnum að jafna. Þórs- arar gáfust hins vegar ekki upp og sjálfstraust þeirra virtist vaxa á meðan taugar ÍR-ingar fóru að titra. Þegar 10 mínútur voru til leiksloka náðu Þórsarar þriggja marka forystu, 21:18, og héldu forystunni til leiksloka. Síðasta mínútan var þó æsileg og þegar staðan var 23:22 náðu ÍR-ingar hraðaupphlaupi en Ole Nielsen komst inn í sendingu þeirra, sendi fram á Jóhann Samúelsson sem skoraði og innsiglaði sigur Þórs á síðustu sekúndunum. Liðsheildin hjá Þór skóp sigur- inn en ekki verður hjá því komist að nefna sérstaklega Rúnar Sig- tryggsson, Ole Nielsen og Jóhann Samúelsson sem allir áttu stór- leik. Hermann varði ekki jafn vel og í síðustu leikjum en skilaði sínu á mikilvægum augnablikum. Hjá ÍR-ingum voru Róbert Rafnsson og Sigfús Orri Bollason skæðastir í annars jöfnu liði. Gunnar Einarsson, þjálfari ÍR, hafði þetta að segja í leikslok: „Við vissum að Þór er með skemmtilegt og gott lið og við þyrftum toppleik til að vinna. Því miður gerðum við allt of mörg mistök og getum sjálfum okkur um kennt. Þórsarar voru einfald- lega betri en við getum unnið þá á góðum degi og mætum þeim af fullri hörku á Akureyri." -bjb Mörk IR: Sigfús Orri Bollason 4, Magn- ús Ólafsson 4, Róbert Rafnsson 4, Ólafur Gylfason 4/2, Jóhann Ásbjörnsson 3, Frosti Guðlaugsson 2, Matthías Matthíasson 1. Hallgrímur Jóhannsson varði 8 skot. Mörk Þórs: Rúnar Sigtryggsson 8/2, Jó- hann Samúelsson 6, Ole Nielsen 4, Ing- ólfur Samúelsson 3, Sævar Árnason 2, Atli Rúnarsson 1. Hermann Karlsson varði 9 skot. Dómarar: Gunnar Kjartansson og Óli P. Ólsen. Dæmdu erfiðan Ieik nokkuð vel. Brad og Joe áfram Bandaríkjamennirnir tveir hjá körfuknattleiksdeild Þórs, Brad Casey og Joe Harge, verða áfram á Akureyri og klára keppnistímabilið með Þór. Eins og fram kom í Degi í gær íhugaði körfuknattleiks- deildin að rifta samningum við þá en Birgir Torfason, formað- ur deildarinnar, segir að náðst hafi samkomulag á þriðjudags- kvöldið sem allir aðilar séu ánægðir með og engar breyt- ingar verði gerðar. Birgir sagði í samtali við Dag að ekki hefði ríkt óánægja með Cas- ey og Harge heldur væri rekstur deildarinnar erfiður fjárhagslega. „Deildin stendur í sjálfu sér ekki illa en svona rekstur er fjárfrekur og erfiður, ekki síst þegar illa gengur. Við berum bæði ferða- og launakostnað og nauðsynlegt var að skera þann kostnað niður. Við náðum góðu samkomulagi við þá og niðurstaðan er sú að þeir verða áfram og hjálpa okkur að berjast fyrir áframhaldandi veru í úrvalsdeildinni. Það eru allir aðilar ánægðir með niður- stöðuna." Staða Þórsliðsins í deildinni er slæm en Birgir segir möguleika liðsins á að halda sæti sínu góða. Sturla og Gunnar gegn Þór í kvöld: „Óneitanlega svolítið skrítið“ - Tindastoll mætir toppliði Það bíða sjálfsagt margir spenntir eftir leik Þórs og Islandsmeistara Njarövíkinga í úrvalsdeildinni í körfuknatt- Ieik sem fram fer í íþróttahöll- inni á Akureyri í kvöld kl. 20. Astæðan er sú að þar mæta Þórsarar sínum gömlu félögum Sturlu og Gunnari Örlygssyni sem léku með Þór í haust en fóru til Njarðvíkur í nóvember eftir ágreining við Brad Casey, þjállara Þórs. í Keflavík verð- ur stórleikur þar sem heima- menn í ÍBK, efsta liði deildar- innar, taka á móti Tindastól en Stólarnir þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að eiga mögu- leika á sæti í úrslitakeppninni. með Þór „Við vinnum a.m.k. þrjá leiki í viðbót og það dugar. Okkur gæti nægt að vinna einn leik í viðbót, ef við vinnum t.d. Skallagrím og þeir tapa rest fara þeir beint nið- ur þar sem við erum þá búnir að vinna báðar innbyrðisviðureign- irnar. Ég vil nota tækifærið og hvetja fólk til að mæta á heima- leikina okkar því góður stuðning- ur gerir gæfumuninn. Við mætum Njarðvíkingum annað kvöld [í kvöld] og ég hvet fólk til að koma og taka vel á móti Sturlu og Gunna. Við eigum ekkert sökótt við þá og það er engin ástæða til annars en að taka vel á móti þeim,“ sagði Birgir. Sturla Örlygsson. Sturla Örlygsson sagði í sam- tali við Dag að hann hlakkaði til að mæta sínum gömlu félögum. „Það verður óneitanlega svolítið skrítið að spila á móti liði sem maður byrjaði tímabilið með en málin þróuðust þannig að við því var ekkert að gera. Mér finnst gott að vera kominn heim aftur en ég kunni mjög vel við mig á Akureyri og sakna margs þaðan. Ég hef engar áhyggjur af því að okkur verði illa tekið í bænum, þeir sem þekkja mig vita að ég gaf mig allan í það sem ég var að gera og ég er ekki að koma til að gera upp illdeilur heldur til að spila körfubolta og hitta fjöl- ÍBK marga vini mína í leiðinni,“ sagði Sturla. Gengi Þórs hefur ekki verið gott í vetur en Sturla sagðist vona að liðið næði að bjarga sér frá falli í 1. deild. „Það eru ágætir leikmenn í þessu liði og þeir geta þetta alveg. Við munum að sjálf- sögðu spila til sigurs eins og venjulega og ætlum okkur að fara alla leið. Keflvíkingar hafa for- skot á okkur eins og stendur en ég hef trú á að Stólarnir geri þeim skráveifu á morgun [í kvöld].“ Valur bjartsýnn Tindastóll þarf að vinna upp 8 stiga forskot KR-inga til að hljóta sæti í úrslitakeppninni og Valur Ingimundarson, þjálfari og leikmaður Stólanna, var bjart- sýnn fyrir leikinn gegn ÍBK í kvöld. Mótherjarnir eru að sönnu ekki árennilegir, Keflvík- ingar hafa aðeins tapað einum leik í vetur og engum á heima- velli. „Við verðum að vinna og möguleikarnir eru góðir ef við náum toppleik. Keflavíkurliðið er auðvitað þrusugott og ósigrað á heimavelli en þetta er ekki spurningin um styrkleika þess heldur hvernig við spilum. Það stöðvar ekkert lið Tindastól þeg- ar við eigum toppleik og ef við verðum sprækir held ég að við vinnum. Við höfum spilað vel að undanförnu, misvel reyndar á útivöllum sem skýrist sennilega af ferðaþreytu þar sem við keyr- um í alla útileiki. En við höfum verið í stöðugri framför og ég er bjartsýnn,“ sagði Valur Ingi- mundarson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.