Dagur - 31.03.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 31. mars 1992
Fréttir
Námaleyfi Kísiliðjunnar:
Hreppurinn gjaldþrota ef Kísiliðjan stöðvast
- segir í bréfi verksmiðjunnar til r áðgj afanefndarinnar
Jón Sigurðson, iðnaðarráð-
herra og Eiður Guðnason, um-
hverfísráðherra, ráðgjafahóp-
ur um könnun á áhrifum kísil-
gúrnáms úr botni Mývatns og
embættismenn héldu fundi á
Hótel Húsavík og Hótel Reyni-
hlíð sl. föstudag. Á fundunum
voru hagsmunaaðilum og frétta-
mönnum kynnt skýrsla ráð-
gjafahópsins og tillögur, og
ákvörðun ráðherranna varð-
andi leyfi til efnistöku úr vatninu
í sumar, eins og greint var frá í
frétt í Degi 28. mars. Þeir aðilar
sem boðaðir voru á fundina
voru: Héraðsnefnd Suður-Þing-
eyinga, Veiðifélag Mývatns,
Veiðifélag Laxár og Krákár og
Landeigendafélag Mývatns og
Laxár, Sveitarstjórn Skútu-
staðahrepps, forsvarsmenn KísU-
iðju og starfsmanna hennar og
fréttamenn.
Dagur leitaði álits nokkurra
þessarra aðila á ákvörðun ráðherr-
anna og skýrslu ráðgjafanna. „Ég
vil ekkert láta hafa eftir mér um
þetta mál,“ sagði Sigurður Rúnar
Ragnarsson, sveitarstjóri í Skútu-
staðahreppi, og vildi ekki ræða
ákvörðunina um námaleyfið við
fjölmiðla.
Róbert B. Agnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar var
ekki við í gær, og enginn forsvars-
maður fyrirtækisins til staðar. í
bréfi Kísiliðjunnar til ráðgjafa-
Fjórir úr ráðgjafahópnum. Taldir frá vinstri: Einar Tjörvi Elíasson, verkfræðingur, Sigurður Snorrason, Iíf-
fræðingur, Árni Snorrason, vatnafræðingur og Davíð Egilsson, jarðfræðingur og formaður nefndarinnar.
, Námaleyfi Kísiliðjimnar:
„Óttast að lífnlvið
verði rannsakað í hel“
- segir Eysteinn á Arnarvatni
„Veiðifélagsstjórn hefur ekki
fjallað sérstaklega um boðskap
þann er iðnaðar- og umhverfis-
ráðherrar fiuttu á fundinum á
Húsavík 27. þessa mánaðar. Það
er niðurstöður ráðgjafahóps Iðn-
aðarráðuneytisins um rannsókn-
aráætlun '92-'95. Sjálfur hef ég
ekki haft tíma til að fara ýtarlega
yfir plaggið enn, en ég sé ekki að
þar sé ný sannindi að finna, enda
ekki þess að vænta,“ sagði Ey-
steinn Sigurðsson, bóndi á Arn-
Menntamálaráðherra hefur
ráðið Guðríði Sigurðardóttur,
M.ed sem ráðunaut sinn í
skólamálum og mun hún taka
til starfa þann 1. apríl.
Guðríður hefur kennarapróf
frá Kennaraskóla íslands, B.A.
próf í þjóðfélagsfræðum frá
Háskóla íslands og M.ed próf frá
arvatni og formaður Veiðifélags
Laxár og Krákár, aðspurður um
álit á námaleyfi Kísiliðjunnar og
tillögum ráðgjafanefndarinnar.
„Hins vegar er mér enn ljósara
eftir þennan fund að það verða ekki
stjómvöld á íslandi sem bjarga líf-
ríkinu í Mývatni og Laxá, það
verða aðrir að gera. Það var ríkt
eftir því gengið við ráðherrana að
ríkisvaldið gæfi yfirlýsingu um
skyldur sínar gagnvart starfsliði
Kísiliðjunnar ef henni yrði að loka,
Harvard háskóla í Bandaríkjun-
um.
Guðríður hefur kennslureynslu
á grunnskóla-, framhaldskóla- og
háskólastigi. Hún hefur einnig
starfað sem námsráðgjafi á fram-
halds- og háskólastigi. í>á hefur
Guðríður unnið að rannsóknum
sem snerta skóla- og uppeldis-
mál.
en því var hafnað. Umhverfisráð-
herra viðurkenndi að þó bæri ríkið
vissa ábyrgð á atvinnuöryggi þessa
fólks.
Rannsóknir eru nauðsynlegar.
En þær eru gagnslausar ef ráða-
menn taka ekki tillit til þeirra.
Skýrsla Sérfræðinganefndar um
Mývatnsrannsóknir segir að sveifl-
ur í lífríkinu séu ekki í auðsýnilegu
sambandi við starfsemi Kísiliðj-
unnar þó þær hafi magnast á starfs-
tíma hennar. Það er hins vegar
hvergi í skýrslunni sagt að nefndar
sveiflur stafi ekki af umræddri
starfsemi. í skýrslunni er mikinn
fróðleik að finna og margt sem
leiðir rök að því hvar orsakanna sé
að leita. M.a. staðfestir skýrslan
80% aukningu köfnunarefnis í Mý-
vatni, og að sú aukning stafi að
meginhluta af starfsemi Kísiliðj-
unnar. Við bændur þekkjum vel á-
hrif 80% aukningar köfnunarefnis í
ræktun og ekki er ólíklegt að áhrif-
in geti verið svipuð í Mývatni.
Ég óttast að örlög Mývatns
verði þau að hér verði settar upp
rannsóknaráætlanir, hver af ann-
arri, meðan lífríkið, sem ef til vill
er í dauðateygjunum, lognast út af.
Að það verði rannsakað í hel,”
sagði Eysteinn í samtali við Dag.
IM
Menntamálaráðherra:
Ræður sér ráðu-
naut í skólamálum
hópsins í feb. sl. segir m.a.:
„Nauðsynlegt er að taka nú þegar
ákvörðun um ný námuvinnslu-
svæði í Bolum og tryggja þar lág-
marks vinnslutíma.“ Einnig segir í
bréfinu: „Samkvæmt upplýsingum
frá sveitarstjóra Skútustaðahrepps
þá er hreppurinn gjaldþrota komi
til stöðvunar Kísiliðjunnar.
Skyndileg lokun Kísiliðjunnar
myndi því í raun þýða fólksflótta
og hrun allrar þjónustu í sveitarfé-
laginu.“ Bent er á alvarlegar
félagslegar og efnahagslegar
afleiðingar sem stöðvun verk-
smiðjunnar hefði í för með sér.
Ennfremur segir: „Sjálfsagt er að
rannsóknir fari fram á setflutning-
um í vatninu jafnhliða námu-
vinnslunni. Það skal hins vegar
tekið fram að þær rekstrarforsendur
sem Kísiliðjan býr við í dag, bjóða
ekki upp á það að verksmiðjan
setji ómælt fé til slíkra rann-
sókn.“ Bent er á að starf Sér-
fræðinganefndar um Mývatnsrann-
sóknir muni hafa kostað yfir 60
milljónir króna.
Baldvin Baldursson, oddviti á
Rangá er formaður Héraðsnefnd-
ar. Hann svaraði: „Álit Héraðs-
nefndar kom ekki fram á fundin-
um, einfaldlega vegna þess að við
vorum ekki búin að lesa eða kynna
okkur gögnin. Það er þakkarvert
að fá að fylgjast með þessu. En
þetta eru ákaflega viðkvæm mál,
atvinnumál og umhverfismál, sem
ég legg ekki minna uppúr. Lífríki
Mývatns og umhverfi þess skiptir
óskaplega miklu máli. En á hinn
bóginn er þetta atvinnumál fyrir
Skútustaðahrepp, fyrir Húsavík og
nágrannabyggðir. Ef Kísiliðjan
missir námaleyfi sitt kemur upp
vandamál varðandi atvinnumál
þessa fólks.“
Vigfús Jónsson, bóndi á Laxa-
mýri er formaður Landeigendafé-
lags Laxár og Mývatns. Hann
sagði: „Ég hef ekkert út á störf vís-
indamannanna að setja, en menn
getur alltaf greint á um niður- j
stöðumar. Við viljum áframhald-
andi rannsóknir og þar sem1
Mývatn er móðir Laxár viljum við j
að rannsóknimar beiiiist einnig að
ánni. Það er engin spuming, að ef
í ljós kemur að verksmiðjan ógnar
lífiíki Laxár og Mývatns þá verður
hún að víkja fyrir náttúmnni en
ekki náttúran fyrir henni. Afstaða
fólks til náttúmvemdar hefur
breyst svo mikið frá því að verk-
smiðjan var byggð að ég er sann-
færður um að hún hefði aldrei ver-
ið byggð í dag. En vísinda-
mennimir verða að skera úr um
þetta og ég er ekki með neina tor-
tryggni gagnvart þeim.“ IM
Kammerhljómsveit Akureyrar:
Einleikaraveisla á
Blönduósi og Akureyri
Fimm einleikarar koma fram
með Kammerhljómsveit Akur-
eyrar á tvennum tónleikum
sem haldnir verða á Blönduósi
og Akureyri helgina 4.-5, apríl
næstkomandi. Stjórnandi er
Örn Óskarsson.
Tónleikamir hefjast með tónverk-
inu „Quite City“ eftir Aron
Copland, en einleikarar í því verki
verða Gordon G. Jack á trompet og
Jacqueline Simm á enskt hom.
Næst á efnisskránni er hið sívinsæla
verk „Kameval dýranna" eftir Saint
Saens með þeim fagra „svani“. Ein-
leikarar á píanó verða þeir Richard
Simm og Thomas Higgerson, en
þeir leika á tvo flygla.
í fréttatilkynningu frá Kamm-
erhljómsveitinni segir síðan: „Hæst
rísa tónleikamir með fiðlukonsert í
e-moll eftir Mendelssohn, sígildu
og hrífandi verki, sem Sigrún
Eðvaldsdóttir flytur með hljóm-
sveitinni.
Það er sérstakt ánægjuefni að
Sigrún hlaut verðlaun fyrir flutning
sinn á þessum fiðlukonsert á alþjóð-
legri keppni fiðluleikara í Welling-
ton á Nýja-Sjálandi nýverið.
Norðlendingar eiga fyrstir kost að
hlýða á flutning hennar á því verki
hér á landi.“
Tónleikamir á Blönduósi verða
haldnir í félagsheimilinu laugardag-
inn 4. apríl kl. 15 og eru þeir skipu-
lagðir í samvinnu við Tónlistarfélag
Austur-Hún vetninga.
Tónleikamir á Akureyri fara fram
í íþróttaskemmunni sunnudaginn 5.
apríl kl. 17 og hófst forsala á þá tón-
leika í gær.
Kammerhljómsveit Akureyrar
verður skipuð 40 hljóðfæraleikurum
á tónleikunum og hefur hún aldrei
efnt til veglegri einleikaraveislu.
SS
Rastarmál á Sauðárkróki:
„Stefnum á úreldmguna“
- segir Ómar Þór Gunnarsson
„Við erum ákveðnir í að taka
úreldinguna nema þeim mun
betra tilboð komi í skipið með-
an við erum að ganga frá mál-
unum,“ segir Ómar Þór Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri
Dögunar hf., um örlög Rastar
SK, en Hagræðingasjóður
samþykkti 37 milljón króna
úreldingarstyrk til úreldingar á
Röstinni fyrir skömmu.
Dögun hefur tæpa fjóra mán-
uði til að ganga frá lausum end-
um varðandi Röstina, áður en
hægt er að fá úreldingarstyrkinn
greiddan. Meðal þess sem gera
þarf er að koma öllum aflaheim-
ildum varanlega yfir á önnur
skip. Ómar segir að þeir hafi ver-
ið að skoða skip og báta með það
fyrir augum að kaupa, en ennþá
hafi ekki verið tekin ákvörðun
um neitt varðandi þau mál og
þess vegna sé ekki ljóst hvernig
þeir geymi aflaheimildimar.
„Úreldingin hefur það í för
með sér að skuldir fyrirtækisins
lækka eitthvað og staða þess
batnar. Við ætlum ekki að flýta
okkur of mikið að kaupa nýjan
bát, en ljóst er að bjartara er
framundan hjá Dögun en verið
hefur, þrátt fyrir að allt taki þetta
sinn tíma,“ segir Ómar. SBG