Dagur - 31.03.1992, Side 5
Þriðjudagur 31. mars 1992 - DAGUR - 5
Fréttir
Póstur og sími ætlar að bjóða út póstflutninga á næturnar
milli Akureyrar og Reykjavíkur:
Þessu fylgir mikil hag-
ræðing og betri þjónusta
- segir umdæmisstjóri Pósts og síma á Norðurlandi
Póstur og sími ætlar á næstunni
að bjóða út póstflutninga milli
Akureyrar og Reykjavíkur og er
reiknað með að aksturinn verði að
næturlagi fímm sinnum í viku.
Þetta þýðir að bílar fara með póst
að kvöldlagi bæði úr Reykjavík
og Akureyri og hafa þeir við-
komu á öllum póststöðvum á
þessari leið.
Ársæll Magnússon, umdæmis-
stjóri Pósts og síma á Norðurlandi,
segir að með þessu fyrirkomulagi
verði allur póstur, sem kominn er
fyrir lokun í póstmiðstöðina í
Reykjavík, kominn til pósthúsanna
fyrir norðan fyrir kl. 8 að morgni
og sama gildi um póst að norðan
sem fara eigi til Reykjavíkur.
„Þetta er viðleitni hjá okkur til
að hagræða í póstflutningum og
hraða jafnframt okkar póstflutn-
ingum því hingað til hefur böggla-
póstur verið degi á eftir. Bréfapóst-
flutningamir hafa hins vegar geng-
ið vel,“ sagði Ársæll.
Bögglapóstur hefur til þessa
verið fluttur með Norðurleið milli
Verð á fermingarmyndimum:
MLsmunurinn allt að 97%
Verðlagsstofnun hefur gert sam-
anburð á verði sem ljósmynda-
stofur taka fyrir fermingar-
myndirnar í ár, en nú er einmitt
helsta vertíð þeirra. Mikill verð-
munur kom í ljós eða allt að 97%
milli stofa. Mestur var munurinn
á sjálfri myndatökunni að með-
töldum löppum en minni á
stækkunum.
Stofnunin kannaði verðlagið í
átján ljósmyndastofum, sextán í
Reykjavík og tveimur á Akureyri.
Lægsta verðið á fermingarmynda-
töku var hjá Ljósmyndastofu Lofts,
Ingólfsstræti 6 í Reykjavík, en þar
kostaði hún 6.800 kr. Hjá Ljós-
myndastofu Sigríðar Bachmann,
Garðastræti 17 í Reykjavík, lét
nærri að myndatakan væri tvöfalt
dýrari, en þar kostaði hún 13.400
kr. Auk þess tekur Loftur 1.200 kr.
fyrir myndatöku á fermingardag-
inn sjálfan sem er helgidagur en
Sigríður Bachmann tekur 2.400 kr.
fyrir ómakið.
Akureyrsku stofumar tvær em í
hærri kantinum en hjá Norður-
mynd kostar myndatakan 10.100
kr. að viðbættu 600 kr. helgidagaá-
lagi en hjá Ljósmyndastofu Páls
kostar myndatakan 13.100. Þess
ber þó að geta að hjá Páli em lapp-
amir 13x18 sm að stærð en hjá
flestum hinna 10x12 sm.
Minni verðmunur var á mynda-
stækkunum, en þó talsverður.
Lægsta verð fyrir stækkun í 13x18
sm mynd var 2.250 kr. en það
hæsta 3.310 kr„ munurinn er 47%.
Fyrir stækkun á einni mynd í
18x24 sm er lægsta verðið 2.900
kr. en það hæsta 4.700 kr„ mis-
munurinn 62%, og fyrir stækkun í
24x30 sm var lægsta verð 3.900 kr.
en það hæsta 6.700 kr„ munurinn
76%. Akureyrsku stofumar vom
hvergi dýrastar en heldur ekki
ódýrastar. Loks kannaði Verðlags-
stofnun verð á Polaroid-mynda-
töku í vegabréf og ökuskírteini. Þar
kostuðu fjórar myndir á bilinu 950-
1.250 kr. og verðmunurinn því
47% á hæsta og lægsta verði. Hjá
Norðurmynd kosta passamyndim-
ar 1.000 kr. og 1.200 kr. hjá Páli,
en þar er líka innifalin ein stækkun
í 13x18sm. 'ÞH
Skák
Deildakeppni Skáksambandsins:
Úrslitin ráðast um helgina
Síðustu umferðirnar í Deilda-
keppni Skáksambands íslands
verða tefldar um næstu helgi,
dagana 3.-4. aprfl. Skákfélag
Akureyrar.á tvær sveitir í 1.
deild og er A-sveitin í topp-
baráttu en B-sveitin á botnin-
um eftir fyrri hluta keppninn-
ar.
A-sveit Skákfélags Akureyrar
á góða möguleika á sigri en búist
er við að sveitir Taflfélags
Reykjavíkur fái liðsauka á loka-
sprettinum. Þá er sveit Taflfélags
Garðabæjar einnig í toppbarátt-
unni.
Gott gengi Verkmenntaskól-
ans og Menntaskólans á Akur-
eyri í spumingakeppni fram-
haldsskólanna heggur nokkur
skörð f sveitir Skákfélags Akur-
eyrar. Liðin mætast í úrslitum
spumingakeppnii mar á föstu-
dagskvöldið og því geta þeir
Rúnar Sigurpálsson og Skafti
Ingimarsson úr VMA og Magnús
Teitsson úr MA ekki ljáð skák-
sveitunum krafta sína. SS
Stigamót SA:
Hörð barátta um verðlaun
Hörð barátta er um verðlauna-
sæti á 15 mínútna stigamótum
Skákfélags Akureyrar. Úrslit í
sjötta og næstsíðasta mótinu
urðu þau að Þórleifur Karlsson
varð efstur með 5 vinninga,
Sigurjón Sigurbjörnsson fékk
41/2, Gylfi Þórhallsson 4 og
Ólafur Kristjánsson 3'/2.
Staðan í stigakeppninni er þannig
að Rúnar Sigurpálsson er efstur með
35 stig og stendur vel að vígi. Þór-
leifur er með 28 stig, Gylfi 22 og
Sigurjón 20.
Af sjö mótum telja fimm bestu
hjá hverjum og einum. Síðasta 15
mínútna stigamótið verður haldið
skömmu fyrir páska. SS
Akureyrar og Reykjavíkur en
bréfapóstur með flugi. Ársæll segir
að næturflutningur með því fyrir-
komulagi sem nú er fyrirhugaður
hafi verið reyndur um hálfs mánað-
ar skeið í haust með góðum ár-
angri. „Vetraraðstæður eru að vísu
breytilegar en vegakerfið hefur
batnað svo mikið að ég held að á
þessu verði ekki meiri hnökrar en á
flugi.“
Hvað varðar kostnað segir Ár-
sæll að áætlanir Pósts og síma sýni
að kostnaður verði svipaður og nú
er en um þetta atriði er ekki hægt
að segja fyrr en tilboð í verkefnið
liggja fyrir. „En svona breytingu er
erfitt að reikna til kostnaðar því við
það að pósthúsin á þessari leið fái
póstinn fyrir kl. 8 á morgnana má
gjörbreyta allri starfsemi. Hún
verður skipulagðari, meiri hagræð-
ing og við getum búist við minni
yfirvinnu. Að mínum dómi mun
fylgja þessu mikil hagræðing,"
sagði Ársæll.
Miðað er við að póstflutningar
með þessu fyrirkomulagi hefjist í
byrjun júní. JÓH
Útboð á akstri
með póst
Póst- og símamálastofnunin mun á
næstunni bjóða út akstur með póst milli
Reykjavíkur og Akureyrar, og Akureyrar
og Reykjavíkur með viðkomu á öllum
póststöðvum á leiðinni.
Reiknað er með að aksturinn verði að
næturlagi fimm sinnum í viku. Þeir sem
óska frekari upplýsinga vinsamlegast hafi
samband við Baldur Maríusson,
sími 636038 fyrir 3. apríl 1992 eða sendi
skriflega fyrirspurnir til:
Póst- og símamálastofnunin
Póstmálasvið
150 Reykjavík
merkt „Akstur R - AJA - R".
PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN
150 Reykjavík
Grtmhur
★ 7% ramvextir og verðtrygging ★ Sparnaðartími 3-10ár
★ 25% skattafsláttur ★ Lánsréttur í lok sparnaðartíma
★ Innstœða eignarskattsfrjáls ★ Ákjósanlegur lífeyrissjóður
Gunnur er húsnœdisreikningur l.andsbankans. Hann er bundinn i 3-10 ár og nýtur ávalll bestu ávöxtunar-
kjara sem bankinn býður. l.eggja þarf inn á Grunn reglulega og er hámarksinnlegg á árinu nú kr. 428.360,-
eða kr. 107.090,- ársjjórðungslega. Skattafsláttur af innlagðri upphœð er 25%. Þannig gefur til dœmis
400.000,- króna innlegg 100.000,- krónur i skattafslátt. Grunni fglgir sjálfkrafa lánsréltur vegna húsnœðis.
Hámarkslán er nú 1,8 miUjónir króna. Grunnur er þannig bteði góð sparnaðarleiðfgrirþá sem hgggja á hús-
nœðiskaup eða bgggingu og kjörinn lífegrissjóður fgrir sparifjáreigendur.
I.andsbankinn býður viðskiptavinum að millifæra greiðslur af Finkareikningi yfir á Grunn, mánaóarlega eða
í lok hvers ársfjórðungs.
Hafið samband við næsta útibú Landsbankans og starfsmenn þar munufúslega veita nánari upplýsingar um
Grunninn.
Dœmi um sparnað á Grunni:
Forsendur:
* Lagðar eru inn kr. 10.000 í lok hvers mánaðar. * Skattafsláttur er25% af heildarinnleggi.
* 7% raunvextir reiknast mánaðarlega og leggjast * Midað er við fast verðlag.
við höfuðstól í árslok.
Sparnaðartími 3 ár 5 ár 10 ár
Samtals innborgað 360.000 600.000 1.200.000
Vextir 38.165 112.229 511.167
Innstœða með vöxtum 398.165 712.229 1.711.167
Skattafsláttur 90.000 150.000 300.000
Samtals vextir og skattafsláttur 128.165 262.229 811.167
Uppsöfnuð raunávöxtun 22.83% 15.97% 10.94%
Sparnaðartimi Margfeldi qf höfuðstól Hámarksupphæð
3 ár 2 600.000
4 ár 3 1.200.000
5-10 ár 4 1.800.000
Til að náfullum skattafslœtti fyrir árið 1992 þarf að leggja inn eigi
síðar en 31. mars 1992.
Landsbanki
íslands
Útibúin á Norðurlandi