Dagur


Dagur - 31.03.1992, Qupperneq 6

Dagur - 31.03.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 31. mars 1992 Vinningstölur ?fi mars ’9? Leiklist Sumarið nólgast Enn er óráðstafað þremur stórglœsileg- um sumarhúsalóð- um í Stekkjarhvammi í Bárðardal. Lóðirnar eru 7 km sunnan Fosshóls, afgirtar og fullfrágengnar. Höfum hús til afgreiðslu í vor. Til sýnis eftir nánara sam- komulagi, eða fáið send- ar upplýsingar. .TRÉSMIÐJAN WV MOGILSF.rm SVALBARÐSSTRÖND S 96-21570 UPPLÝSINGAR: sImsvari 91-681511 lukkulIna 991002 Klukka landsins hlutverk Eydalíns lögmanns og Jóns Þeófílussonar. Túlkun Sigurðar á Eydalín lögmanni er festuleg og ákveðin, en hlutverkið býður ekki upp á mikil tilþrif. í flutningi sínum á Jóni Þeófílussyni tekst Sigurði að skapa grátbroslega persónu, sem ber að mestu uppi dýflissuatriðið. Jón Grinvicensis og séra Þor- steinn eru leiknir af Jóni Stefáni Kristjánssyni. Túlkun Jóns á nafna sínum er á stundum nokkuð góð en víða með óhóflega miklum fárán- leikablæ, sem spillir persónunni og gerir hana ekki skoplega heldur beinlínis hjákátlega. Séra Þorsteinn er lítið hlutverk, en Jón Stefán gerir því góð skil. Gestur Einar Jónasson á víða góðan leik í hlutverki Jóns Mar- teinssonar. Ekki síst er svo í tveim síðustu atriðum Jóns í verkinu, þar sem Gestur Einar nær sér vel á strik. Metta, Kona Amasar Amæusar, er leikin af Sigurveigu Jónsdóttur. Sigurveig hefur skemmtileg tök á þessari persónu og tekst til dæmis mætavel í samleik með Þráni Karls- syni í atriði að húsabaki í Kaup- mannahöfn. Marinó Þorsteinsson fer með tvö hlutverk: Von Úffelen og sýslu- manninn. Sýslumaðurinn er smátt hlutverk, en Von Úffelen vemlega stærra. Því gerir Marinó góð og skemmtileg skil. Aðalsteinn Bergdal hefur einnig tvö hlutverk með höndum. Hann leikur Guttorm Guttormsson og Etasráðið. í síðamefnda hlutverkinu tekst Aðalsteini skemmtilega að skapa skoplega ímynd embættis- mannsins, sem af refsilegri lipurð hagar seglum eftir vindi. Herdís Birgisdóttir leikur móður Jóns Hreggviðssonar og gerir vel í hlutverki sínu. Hún er til dæmis ljósasti punkturinn í atriðinu í kot- inu að Rein og heldur því uppi. Guðlaug Hermannsdóttir leikur Guðríði Jónsdóttur, ráðskonu. Guð- laugu tekst vel að ná hæfilegri blöndu undirgefni og festu í túlkun sinni og skapar sannferðuga, hlýja persónu. Fleiri nafngreind hutverk em í fslandsklukkunni, þó hér verði ekki fleiri getið. Langflestir gerðu per- sónum sínum góð eða að minnsta kosti fullnægjandi skil. Það er afrek að setja upp leikrit sem íslandsklukkuna. Það er líka þarft verk að gefa þeim, sem áður hafa séð, kost á að rifja upp, og þeim, sem ekki hafa fyrr haft kynni af þessu höfuðverki íslenskra bók- mennta á sviði, tækifæri til að njóta þess. Þetta verk hefur Leikfélag Akureyrar nú unnið og tekist á flest- an veg glæsilega, enda greinilega fátt verið til sparað að svo mætti verða. Nú ættu sem fæstir að láta tæki- færið fram hjá sér fara. Það er ekki einungis, að íslandsklukkan sé glæsilegt verk í bókmenntalegu til- liti. Ekki síður er það síþörf upprifj- un á niðurlægingartímabili í sögu islensku þjóðarinnar, þegar sjálfs- forræði hennar var ekkert. Löngun- in til sjálfstæðis og eiginákvörðun- arréttar bjó þó í draumum hinna buguðu forvera okkar í þessu landi og vitundin um sérstöðu menningar þessarar smáþjóðar var að vakna. Þó að tímamir séu vissulega aðrir og aðbúnaður alur betri, þurfum við enn að halda vöku okkar. Ekki ein- ungis yfir menningu og tungu, held- ur ekki síður yfir sjálfstæði og frelsi. Því á þetta verk enn erindi ekki síður en þegar það var ritað og ef til vill í ýmsu tilliti enn frekar nú en þá. Haukur Ágústsson. Fá íslensk bókmenntaverk þessarar aldar em íslenskari en íslands- klukka Halldórs Laxness. Allt frá því að verkið kom fyrst út á fimmta áratugnum hefur það hrært streng með íslenskri þjóð; streng, sem ekki hefur hætt að hljóma þó að tímar og aðstæður hafi breyst. Á yfirstandandi ári verður Hall- dór Laxness níræður. Það er því við hæfi, að síðasta verkefni Leikfélags Akureyrar á þessu starfsári er íslandsklukkan. Fmmsýning verks- ins var 27. mars, og bar hana upp á alþjóða leiklistardaginn. Leikstjóri uppsetningarinnar er Sunna Borg, sem einnig samdi leikgerð þá, sem Leikfélag Akureyrar notar. Leikgerð Sunnu Borg fylgir að vemlegu leyti fyrri leikgerðum skáldsögunnar og að sjálfsögðu henni sjálfri. Hún fer nokkuð stirð- lega af stað, en liprast mjög, er á líður og er farin að renna skemmti- lega, þegar líður að miðbiki hennar. Hið sama á við um uppsetninguna sjálfa. Fyrstu senumar em nokkuð þunglamalegar. Svo er til dæmis um klukkuatriðið á Þingvelli við Öxará og sérstaklega mikinn hluta atriðis- ins í kotinu að Rein. Þá em sum atr- iði svo stutt og skyndimyndarleg, að þau sem næst missa marks, svo sem fjórða atriði annars þáttar, þar sem ekkert gerist annað en að kæm- bréf júnkærans í Bræðratungu er lesið upp í algerri kyrrmynd. Mörg atriðin em hins vegar skemmtilega unnin og heildaráhrifin góð. Tónlist við uppsetningu Leikfé- lags Akureyrar á íslandsklukkunni er eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Jón hefur unnið gott verk. Reyndar er hljóðlistin nokkuð framan af verk- inu yfirdrifið dmngaleg og einhæf. Þegar lengra kemur færist tónskáld- ið í aukana og tónlistin nær víða verulegum hæðum í skemmtilegri raddfleygun, sem sver sig í samtíð efnisins, en er þó með fersklegum nútímablæ og styður vel við brag verksins. Leikmynd og búningar upp- setningar Leikfélags Akureyrar á íslandsklukkunni em eftir Sigurjón Jóhannsson. Sigurjón byggir sviðs- myndina að meginhluta úr háum og nokkuð þykkum flekum, sem snúa má og aka og nýta fleti þeirra til þess að skapa ýmist tignarlega hamraborg Almannagjár eða bóka- safn Assessors Amas Amæusar. Vel hefur tekist til í þessu efni og er útkoman víða glæsileg og áhrifa- ,jÞað er afrek að setja upp leikrit sem íslandsklukkuna,“ segir Haukur Ágústsson. Þráinn Karlsson og Jón Stefán Kristjánsson í hlutverkum sínum. Mynd: Golli mikil. Skiptingar ganga bærilega lipurlega fyrir sig. Búningar em vandaðir og við hæfi tímans. Þeir þjóna því vel hvað þetta snertir. Nokkuð em þeir þó glansmyndarlegir á stundum, svo sem klæðnaður Amas og Snæfríðar, þegar þau koma í hreysi Jóns Hreggviðssonar á Rein og hvergi sér hrukku á klæðum þeirra, þó þau hafi væntanlega komið á hestum og það langan veg. Eins eru föt Jóns Hreggviðssonar gjaman óeðlilega hrein og strokin og hið sama er um fleiri. Aftur em aðrir búningar allt að því yfirdrifið velktir og þvældir, svo sem klæðnaður Magnúsar júnk- ærs í Bræðratungu, Jóns Marteins- sonar og Jóns Grinvicensis. Lýsing leikmyndarinnar er unnin af Ingvari Bjömssyni. Hún er lang- oftast yfirveguð og undirstrikar vel jafnt leikverkið sjálft sem leik- myndina. Nokkur atriði hefðu þó gjaman mátt takast betur. Þar má helst nefna lýsingu brunasenunnar á bókasafni Amas Amæusar í Kaup- mannahöfn, sem ekki rís sem skyldi. Elva Ósk Ólafsdóttir er í hlut- verki Snæfríðar Bjömsdóttur Eydal- ín. Túlkun Elvu Óskar er yfirveguð og hún beitir blæbrigðum skemmti- lega til þess að ná fram þeim mörgu hliðum, sem búa í persónunni. Lak- ast tekst henni í atriðinu í kotinu að Rein, en eftir það eykst þróttur hennar stig af stigi. Jón Hreggviðsson er leikinn af Þráni Karlssyni. Þráinn gerir margt stórvel. Hann kemst reyndar ekki almennilega af stað fyrr en líða tek- ur á fyrsta þátt, en þaðan í frá verð- ur persónusköpun hans sífellt ákveðnari og rís í verulega sterkan leik, þegar á líður. Hallmar Sigurðsson leikur Amas Amæus af öryggi og festu. í túlkun Hallmars eru ekki miklar sveiflur, heldur einna helst yfirveguð fágun og heimsmannsbragur, sem heldur vel verkið á enda. Því verður upp- gjöf Amasar átakanlegri en ella og áhrifamikill hápunktur. Séra Sigurður Sveinsson, dóm- kirkjuprestur í Skálholti er leikinn af Valgeiri Skagfjörð. Valgeiri tekst vel að sýna mærð og hræsni þessar- ar persónu og nær verulegri dýpt í túlkun sinni. Felix Bragason leikur Magnús Sigurðsson, júngkæra í Bræðra- tungu. Felix á víða góðan leik í hlutverki þessa drykkjusvola og ólánsmanns og tekst að gefa persón- unni allheilstæðan svip. Felix fer einnig með hlutverk böðulsins. Sigurður Hallmarsson fer með Skrifstofuhúsnæði til sölu Skrifstofuhúsnæði á annarri hæð í Kaupangi til sölu. Stærð ca. 117 fm + sameign. Laust fljótlega. Brekkugötu 4 • Sími 21744 Gunnar Solnes hrl.. Jon Kr. Solnes hrl og Arni Palsson hdl Sölust. Sævar Jonatanssan ÐÆNDUR Norræn ungmenni á vegum NORDJOBB óska eftir sumaratvinnu. Upplýsingar: NORDJOBB/Reykjavík s: 91-19670 eöa Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri s: 96- 27599 milli kl. 9-12. VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5aí5 2 1.413.668.- A KUS.-d Z. 4af5^ St' 4 122.701.- 3. 4aí5 91 9.303,- 4. 3al5 4.116 479.- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 8.136.277.-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.